Morgunblaðið - 04.03.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
Egyptaland:
Líbýskir hermenn
sækja um hæli
Kaíró, Reuter.
FIMM líbýskir hermenn, er lentu herflugvéi í suðurhluta Egypta-
lands í fyrrinótt og báðu um pólitiskt hæli, voru í stöðugum yfir-
heyrslum hjá egypskum yfirvöldum í gær. Ljóst er að atburður þessi
mun ekki bæta slæmt samband Líbýu og Egyptalands.
Sagt var í Karíró í gær að menn-
irnir fengju landvistarleyfi ef
egypsk yfirvöld væru sannfærð um
að þeir væru ekki útsendarar Líbýu-
stjórnar. Talið er að flugvélin,
C-130 Herkúles, flutningavél, sem
lent var í ferðamannabænum Abu
Simbel, 1.500 km. fyrir sunnan
höfuðborgina, hafi komið frá Chad,
þar sem Líbýumenn hafa háð stríð
gegn ríkisstjórninni. Eftir viðræður
milli Líbýumannanna og egypskra
yfirvalda flugu egypskir flugmenn
vélinni til Kaíró.
Grunnt hefur verið á því góða
milli landanna tveggja um langt
skeið og háðu þau skammvinnt stríð
fyrir 10 árum. Gaddafi Líbýuleið-
togi hefur gagnrýnt mjög friðar-
samning Egypta við Israelsmenn,
sem gerður var 1979 og allmargir
útlagar frá Líbýu búa í Egypta-
landi. Einn þein-a Abdel-Hamid
Bakoush, fyrrum forsætisráðherra,
sagðist álíta að hermennirnir hefðu
flúið þar sem þeir hafi verið þreytt-
ir á stríðinu í Chad, en mikil
óánægja væri innan líbýska hersins
vegna stríðsins.
Jana, hin opinbera fréttastofa
Líbýu, sagði í gær að flugvélin til-
heyrði líbýska flugfélaginu „Libyan
Arab Airlines“ og hefði hún orðið
Sakharov-
heimsóknin:
Missögn
leiðrétt
I fréttinni á forsíðu Morgunblaðsins
í gær um heimsókn Bjöms Bjarna-
sonar til Sakharov-hjónanna varð
sú missögn, að forstöðumaður Re-
uters-fréttastofunnar í Moskvu,
Robert Evans, hafí túlkað með því
skilyrði, að ekki yrði um viðtal að
ræða. Það voru að sjálfsögðu Sakh-
arov-hjónin sem óskuðu eftir því
að hafa þann hátt á.
að lenda vegna slæmra veðurskil-
yrða.
Egypskar hersveitir voru í við-
bragðsstöðu eftir lendingu vélarinn-
ar, sem ráðamenn álitu að gæti
verið einhvers konar herbragð
Gaddafis, en þeir telja að hann
hafi staðið að baki fjölda hermdar-
verka í Egyptalandi.
Reuter
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Edda kona hans hlýða á skýringar vísindamannsins
------------ Roalds Sagdeyev í heimsókn í sovésku geimvísindastofnunina.
Mikhail Gorbachev í viðræðum við Steingrím Hermannsson:
Andinn frá Reykjavík-
urfundinum lifir enn
„Ný bylting í Sovétríkjunum,“ segir Steingrímur Hermannsson
Moskvu, frá Birni Bjarnasyni.
„ÞAÐ ER svo sannarlega táknrænt að þér komið hingað á sama tíma
og nýtt skref er stigið í anda Reykjavíkurfundarins með ákvörðun
okkar vegna Evrópueldflauganna. Hún sannar að andinn frá
Reykjavík lifir enn. Reykjavík sýndi öllum að það er unnt að ná
samkomulagi um þau stóru mál er snerta líf mannkyns. Það urðu
í raun mikilvæg þáttaskil í Reykjavík." Þessi ávarpsorð eru höfð
eftir Mikhail Gorbachev, aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, á
forsíðu Prövdu í gær, í frétt um fund hans með Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra.
A blaðamannafundi í fréttamið-
stöð sovéska utanríkisráðuneytisins
í lok heimsóknar sinnar til Moskvu
í gær sagði Steingrímur Hermanns-
son, að persónulega teldi hann
nýjustu tillögur Sovétmanna um
brottflutning meðaldrægra eld-
flauga frá Evrópu mjög jákvæðar
og væri mikilvægt að hrinda þeim
í framkvæmd. Segir í frétt Prövdu,
að þeir Steingrímur og Gorbachev
hafi verið sammála um að eftir
Reykjavíkurfundinn hafi ekki verið
um annað ræða en að halda áfram
á þeirri braut sem þar var mörkuð.
Engin sameiginleg tilkynning var
gefin út í lok tveggja daga heim-
sóknar Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra til Sovétríkjanna.
Sovétmenn líta á heimsóknina sem
þakklætisvott af sinni hálfu til ís-
lendinga fyrir að hafa verið gest-
gjafar Reykjavíkurfundarins.
í frétt Prövdu segir, að Gorbach-
ev hafi lagt áherslu á hlutverk lítilla
og meðalstórra ríkja á alþjóðavett-
vangi. Ætti þetta við um hugmyndir
um kjamorkuvopnalaust svæði í
Norður-Evrópu en tilurð þess gæti
orðið mjög mikilvægur þáttur í því
að draga úr alþjóðlegri spennu.
A blaðamannafundinum í gær
sagði Steingrímur Hermannsson,
að Alþingi hefði samþykkt tillögu
um kjarnorkuvopnalaust svæði frá
Grænlandi að Úralfjöllum. Um
þetta mál yrði að ræða á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins, áður en
ákvarðanir yrðu teknar. Varðandi
ísland væri þess sérstaklega að
gæta, að bannið við kjarnorkuvopn-
um þar væri strangara en hjá
Dönum og Norðmönnum.
í Prövdu segir, að Gorbachev
hafi að beiðni íslenska forsætisráð-
herrans lýst þeim breytingum, sem
nú eru að verða á sovésku þjóð-
félagi. Hafi hann lagt áherslu á að
sameina þyrfti alla krafta þjóðar-
innar í sosíalísku átaki; annað þýddi
stöðnun, sem fólkið þyldi ekki. Á
blaðamannafundinum • sagði
Steingrímur Hermannsson, að það
hefði verið einstaklega fróðlegt að
kynnast því sem hann kallaði „nýja
byltingu“ í Sovétríkjúnum. Hann
væri sannfærður um einlægan vilja
Sovétstjórnarinnar til að fram-
kvæma breytingar á þjóðfélaginu.
Og í Prövu er komist þannig að
orði í lauslegri þýðingu: „Her-
mannsson óskaði Sovétstjóminni
heilla með þá stefnu sem hún hefði
mótað, hún vekti vonir hjá öllum,
vonir, sem ættu fullan rétt á sér,
vegna þeirrar svartsýni, sem víða
ríkti um framtíðina. Því þyrfti að
hvetja fólk til bjartsýni og það
væri gert af Sovétmönnum með
breytingum þeirra heima fyrir og
frumkvæði út á við.“
Á blaðamannafundinum var
Steingrímur spurður að því, hvort
hann hefði nefnt ákveðna einstakl-
inga þegar hann ræddi mannrétt-
indamál og ferðafrelsi við
Gorbachv. Sagðist ráðherrann ekki
hafa gert það. Á hinn bóginn hefði
Gorbachev boðað mjög miklar
breytingar í fijálsræðisátt í þessum
efnum innan ekki langs tíma.
Ástralía:
Mótmælaaðgerðir gegn
heimsókn Snevardnadzes
Canberra, Reuter.
HUNDRUÐ gyðinga og Afgana
voru til staðar, er Eduard Shev-
ardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna kom til þing-
hússins í Canberra í gær til
viðræðna við Bill Hayden, ut-
anríkisráðherra Astralíu. Hélt
fólkið á borðum, þar sem á stóð
m. a.: „Hvernig fékkst þú vega-
brefsáritun til brottfararinnar,
hr. Shevardnadze" og „Niður
með sovézka útþenslustefnu.“
Við handalögmálum lá, er þeir
sem stóðu að mótmælaaðgerðun-
um, reyndu að bijótast í gegnum
sveit lögreglumanna og hrópuðu:
„Stöðvið gyðingaofsóknirnar."
Shevardnadze hafði einnig orðið
fyrir aðkasti við komuna til flug-
vallarins í Fairbairn, er Devahl
Davis, leiðtogi gyðinga í Nýja
Suður-Wales krafði hann svara
um hið slæma hlutskipti gyðinga
í Sovétríkjunum.
Bill Hayden, sem tók á móti
Shevardnadze á flugvellinum,
Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna (til hægri
á myndinni), hlýðir á móttökuræðu á flugvellinum í Canberra og
gýtur augunum til túlksins á meðan.
sagðist hafa mikinn áhuga á að
fá nánari vitneskju um síðustu
tillögur Mikhails Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna um brottflutn-
ing meðaldrægra eldflauga frá
Evrópu, án þess að það væri gert
að skilyrði, að Bandaríkjamenn
féllu frá geimvarnaáætlun sinni
(SDI).
Shevardnadze mun dveljast í
Canberra í tvo daga, áður en hann
heldur til Sidney, en þaðan fer til
Víetnams, Laos og Kampucheu. í
Sydney mun hann m. a. ræða við
Bob Hawke, forsætisráðherra
Ástralíu.
Á leið sinni til Ástralíu kom
sovézki utanríkisráðherran við í
Bangkok, höfuðborg Thailands,
þar sem hann ræddi m. a. við
Siddhi Savetsila utanríkisráð-
herra. Eftir viðræður þeirra sagði
sá síðamefndi, að Shevardnadze
hefði lagt til, að Sovétmenn flyttu
herlið sitt í Afganistan brott það-
an á 22 mánuðum. Var það haft
eftir Shevardnadze, að þessar til-
lögur væru bomar fram að
frumkvæði stjómarinnar í Kabúl.
Shevardnadze skýrði Savetsila
einnig svo frá, að unnt væri að
leysa Kambucheudeiluna eftir
þeim leiðum, sem verið væri að
vinna að varðandi Afganistan.
Víetnam, sem er í bandalagi við
Sovétríkin, hefur 120.000 manna
herlið í Kampucheu og styður
stjómina þar gegn samsteypu-
stjóm þriggja skæmliðahreyf-
inga, sem Norodom Sihanouk
prins er leiðtogi fyrir.
Deng Xiaoping:
Stjórnmála-
óróinn er
úr sögfunni
íKma
Peking, Reuter, AP.
DENG Xiaoping, valdamesti leið-
togi Kínveija, sagði í gær í
viðræðum sínum við George
Shultz, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, sem nú er þar í
heimsókn, að stjórnmálaórói sá,
sem verið hefði fyrir hendi í
landinu að undanförnu, væri ur
sögunni. Kínveijar myndu halda
áfram efnahagsumbótum sínum
og „halda dyrunum opnum gagn-
vart Vesturlöndum.“
Ásakanir Bandaríkjamanna í
garð Kínveija um vopnasölu til ír-
ans vom hins vegar í nokkurri
mótsögn við gang viðræðnanna,
sem annars einkenndust af vin-
semd. Shultz sagði á fundi með
fréttamönnum, að kínverskir ráða-
menn hefðu spurt, hvort vopnasala
Bandaríkjamanna sjálfra til Irans
hefði ekki valdið erfiðleikum við að
fá aðra til að hætta vopnasölu þang-
að.
„Auðvitað hefur það skapað
nokkur vandamál, en afstaða okkar
er í gmndvallaratriðum mótuð af
réttmæti málefnins," svaraði
Shultz. Hélt hann því fram, að það
væm íranir, sem neituðu að semja
um frið í Persaflóastríðinus. Ein
leiðin til að knýja þá að samninga-
borðinu væri að neita þeim um
vopn.
Kínveijar segjast ekki selja írön-
um vopn. Bandaríkjastjóm heldur
því hins vegar fram, að það séu
framar öðmm Kínveijar, sem_ sjái
írönum fyrir vopnum og selji írök-
um, fjandmönnum írana, einnig
vopn.