Morgunblaðið - 04.03.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
35
IBM Super Chess Tournament* Reykjavik 1987 VKS hf
Nr Naf n Land l 2 3 9 5 6 7 0 9 10 11 12 Vinn Röð
1 Jón L úrnason ISD 0 0 'k 'k 'k 'k 0 1 1 'k 5* 7-8
8 Marqeir Pétursson ISD 0 0 0 0 1 0 0 0 'k 0 'k 2 12
3 Niqel D Short ENG 1 1 1 'k 0 'k 'k 'k 1 1 1 e 1
U Jan H Timman NDL 1 1 0 1 'k 'k 'k 1 1 0 'k 7 2-3
5 Lajos Portisch HUN 'k 1 'k 0 1 'k 'k 1 1 0 'k b'i 4-5
6 Jóhann Hjartarson ISD 'k 0 1 0 0 0 'k 0 1 'k 4 9-11
7 Lev Polugaevsky URS 'k 1 'k 'k 'k 1 'k 'k 'k 0 'k 6 6
8 Mikhail N Tal URS 'k 1 'k 'k 'k 1 'k 'k 1 'k 7 2-3
9 Simen Agdestein N0R 1 1 'k 0 0 '4 '4 'k 'k 0 1 5'4 7^8
10 Ljubomir Ljubojevic JUG 0 0 0 0 1 'k 'k '4 9 9-11
1 1 Viktor Korchnoi SWZ 0 1 0 1 1 0 1 0 1 'k ■ 1 6‘k 4-5
12 Helgi Úlafsson ISD 'k 0 'k 'k 'k 'k 'k 0 'k 0 4 9-11
Staða VKS hf
Röð Nafn Vinn S-B ELO-stig Ný ELQ -stig Hlutur nú
1 Nigel D Short 8 41.50 2615 2635 ( 20) $2000
2-3 Mikhail N Tal 7 35.75 2605 2615 ( 10) $1000
Jan H Timman 7 34.00 2590 2605 ( 15) $1667
4-5 Viktor Korchnoi 6*4 33.00 2625 2625 $2000
Lajos Portisch 6'4 30.75 2610 2615 ( 5) $1333
6 Lev Polugaevsky 6 29.75 2585 2590 ( 5) $667
7-8 Jón L Arnason 5*4 26.25 2540 2545 ( 5) $1000
Simen Agdestein 5'4 26.00 2560 2565 ( 5) $1000
9-11 Jóhann Hjartarson 4 25.50 2545 2535 ( -10) $667
Helgi Olafsson 4 21.00 2550 2540 ( -10)
Ljubomir Ljubojevic 4 19.50 2620 2600 ( -20) $333
12 Margeir Pétursson 2 8.00 2535 2510 ( -25) $333
Tal og Timman deildu með sér 2. og 8. sæti á mótinu. Hér spjalla
þeir saman í lokahófinu í gærkvöldi.
Islensku skákmenn-
irnir tefldu undir getu
- sagði Nigel Short, sigurvegarinn
á IBM skákmótinu
„Þetta mót tókst vel, það var
boðið til þess góðum skákmönn-
um sem voru baráttuglaðir og
ég er því eðlilega ánægður með
niðurstöðuna," sagði Nigel
Short, sem var einn í efsta sæti
IBM-skákmótsins sem lauk í gær-
kvöldi. Hann fékk að launum 10
þúsund dollara og auk þess 2
þúsund dollara fyrir unnar skák-
ir, sem jafngildir 480 þúsundm
islenskum krónum.
Gunnar Hansson, forstjóri IBM
á íslandi afhenti verðlaun í loka-
hófi á Kjarvalsstöðum í gærkvöldi
og sleit mótinu. Hann sagði að
mótið hefði meðal annars verið
haldið til að veita íslensku stór-
meisturunum veglega keppni og
það hefði tekist. Short varð efstur
eins og áður sagði, en í 2.-3. sæti
urðu Mikhail Tal og Jan Timman
og skiptu þeir á milli sín 10 þúsund
dollurum, eða um 400 þúsund krón-
um íslenskum, auk þess sem þeir
fengu verðlaun fyrir unnar skákir.
Viktor Korchnoi átti möguleika á
að verða einn í öðru sæti með því
að vinna Jón L. Árnason. í tíma-
hraki rétt áður en skákin fór í bið
lék hann af sér vinningsstöðu og
tapaði skákinni. Jón L. Amason
varð efstur af íslensku skákmönn-
unum í 7. sæti með 5,5 vinninga.
Short sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann teldi árangur
íslensku stórmeistaranna á mótinu
ekki í samræmi við getu þeirra.
Hann treysti sér ekki til að gera
upp á milli þeirra, en sagði að Jón
L. Ámason hefði teflt best á þessu
móti. Um einu tapskák sína á mót-
inu gegn Jóhanni Hjartarsyni sagði
Short að hann teldi sig hafa haft
vinningsstöðu áður en hann lék af
sér, þótt hann vildi ekki afsaka sig
eða draga úr taflmennsku Jóhanns.
„Þú veist hvað þeir segja, heilbrigð-
ur skákmaður tapar aldrei skák,“
sagði hann hlæjandi og bætti við
að hann hefði verið með höfuðverk.
Næsta verkefni Shorts er mót í
Belgíu í apríl þar sem Kasparov,
Karpov, Korchnoi og Timman verða
meðal þátttakenda. Þangað til
sagðist Short ætla að hvíla sig,
hann væri þreyttur og vildi ekki
hugsa um skák á næstunni.
I lokahófinu þakkaði Portisch
fyrir sig og aðra þáttakendur. Hann
gerði sér svo lítið fyrir og söng
aríu úr Don Giovanni og fóru síðan
allir glaðir til síns heima.
GSH.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 42 - 3. mars 1987
Kr. Kr. Toll-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 39,230 39,350 39,290
St.pund 61,356 61,543 61,135
Kan.dollari 29,438 29,528 29,478
Dönskkr. 5,6732 5,6905 5,7128
Norsk kr. 5,6103 5,6275 5,6431
Sænskkr. 6,0648 6,0833 6,0929
Fi.mark 8,6467 8,6731 8,7021
Fr. franki 6,4148 6,4345 6,4675
Belg. franki 1,0313 1,0344 1,0400
Sv.franki 25,3867 25,4643 25,5911
Holl. gyllini 18,9106 18,9684 19,0617
V-þ. mark 21,3404 21,4056 21,5294
Ít.líra 0,03002 0,03012 0,03028
Austurr. sch. 3,0346 3,0439 3,0612
Portescudo 0,2766 0,2774 0,2783
Sp. peseti 0,3035 0,3044 0,3056
Jap. yen 0,25531 0,25609 0,25613
Irsktpund 56,968 57,142 57,422
SDR (Sérst.) 49,5572 49,7090 49,7206
ECU, Evrópum. 44,2299 44,3652 44,5313
.. Morgunblaðið/Þorkell
Frá viðskiptaþingi '87. Olafur B. Thors forstjóri í ræðustóli. Forseti íslands Vigdís Finnbogadótt-
ir, sem sat þingið fram að hádegi, þá Johann J. Ólafsson formaður VÍ. Hægra megin við ræðustólinn
Arni Arnason framkvæmdastjóri VÍ og lengst til hægri Jóhann Bergþórsson forstjóri.
Viðskiptaþing Verzlunarráðs íslands:
Einkavæðing afturhvarf til
frjálslyndis í efnahagsmálum
- sagði franski bankastjórinn Pierre Ledoux m.a., en hann segir
einkavæðingu hins opinbera njóta mikilla vinsælda í Frakklandi.
VIÐSKIPTAÞING Verslunar-
ráðs íslands var haldið að Hótel
Sögu í gær. Bar það yfirskrift-
ina „Frá hinu opinbera til
einkarekstrar". Þingið var
fremur fámennt, en á því voru
flutt fimm framsöguerindi, auk
þess sem fram fóru pallborðs-
umræður. Aðalræðu þingsins
flutti franski bankastjórinn Pi-
erre Ledoux frá París, en það
kom m.a. fram í máli hans, að
einkavæðing hins opinbera í
Frakklandi hefur notið vin-
sælda. Hann telur einkavæð-
ingu, sem nýtur vaxandi
vinsælda víða um heim, vera
afturhvarf til frjálslyndis í
efnahagsmálum. Frönsku
einkavæðinguna segir hann
dæmigerða fyrir þessa nýju
stefnu í efnahagsmálum um
víða veröld. Við sameiginlegan
hádegisverð afhenti Jóhann J.
Ólafsson formaður Verslunar-
ráðsins tvo námsstyrki úr
námssjóði V.I. Þá hlutu að
þessu sinni Sigurborg Kr.
Hannesdóttir og Kristján G.
Jóakimsson. Þingforseti var
Hjalti Geir Kristjánsson for-
stjóri.
Jóhann J. Ólafsson formaður V.í.
setti þingið kl. 10.15 í gærmorg-
un. Viðstödd var _ Vigdís Finn-
bogadóttir forseti Islands og sat
hún þingið fram að hádegi. Fyrsta
erindið flutti Ólafur B. Thors for-
stjóri og kallaði hann það:
„Opinber avinnurekstur í hendur
einkaaðila". Þá flutti Jóhann
Bergþórsson forstjóri erindið: Op-
inber þjónusta og verklegar
framkvæmdir". Eftir þessar ræð-
ur voru umræður og fyrirspumir
en því næst sameiginlegur hádeg-
isverður.
Við afhendingu námsstyrkj-
anna við hádegisverðinn kom
fram, að 20 umsóknir höfðu bo-
rist um þá að þessu sinni, en hvor
þeirra er að upphæð kr. 90 þús-
und. Styrkir þessir eru afhentir
árlega. Sigurborg Kr. Hannes-
dóttir hyggur á nám í ferðamála-
fræðum við Surrey-háskólann í
Bretlandi. Kristján G. Jóakimsson
ætlar að stunda frekara nám í
líftækni í fiskiðnaði og hyggst
sækja það nám til Japans. Bæði
hafa lokið háskólaprófín, Sigur-
borg við Háskóla Islands en
Kristján við háskólann í Tromsö
í Noregi.
Að loknu hádegisverðarhléi
fluttu erindi þeir Sigurður Líndal
prófessor, sem fjallaði um reglu-
gerðarríkið og Vilhjálmur Egils-
son hagfræðingur, sem ræddi
lægri skatta með sparnaði í opin-
berum útgjöldum. Þá voru
umræður og fyrirspurnir en að
loknu kaffihléi flutti franski
bankastjórinn erindi sitt. í lok
þingsins stjórnaði Friðrik Pálsson
pallborðsumræðum um efni þings-
ins undir heitinu „Viðhorf ríkis
og sveitarfélaga til einkavæðing-
ar“. Þátttakendur voru: Björn
Friðfinnsson formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, Davíð
Oddsson borgarstjóri, Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
og Þorsteinn Pálsson ijármálaráð-
herra.
Pierre Ledoux, bankastjórinn
franski, fjallaði um einkavæðingu
hins opinbera í Frakklandi. Hann
gerði í upphafi máls síns grein
fyrir stöðu mála þar í landi og
sagði m.a., að það væri mikilvægt
að við gerðum okkur grein fyrir
því, að einkavæðing væri einn
helsti kjarninn í efnahagsstefnu
frönsku ríkisstjómarinnar og
helsti málaflokkurinn í stefnu
hennar. Hann kvað einkavæðing-
una hafa gengið vel og sérstak-
lega ánægjulegt væri, hversu vel
henni væri tekið af almenningi.
Um kosti einkafyrirtækja fram
yfir ríkisfyrirtæki sagði hann
m.a.: „Það er staðreynd, að setji
menn of lengi traust sitt á ríkið,
útilokar það möguleikann á, að
fyrirtæki finni eða geti aflað sér
nægilegra fjármuna á fjármagns-
markaðnum til að tryggja vöxt
sinn, og það grefur undan sjálf-
stæði stjómenda, því að stjórn-
endur em tilnefndir af ríkinu.“
Þá sagði hann og, að sala hluta-
bréfa í einkavæddum fyrirtækjum
færðu ríkissjóði umtalsverða fjár-
muni og kvað þá staðreynd hafa
verið nefnda sem eina aðalástæð-
una fyrir frönsku einkavæðing-
unni.
Ledoux fjallaði einnig um mat
á hlutabréfum og sagði það eitt
lykilvandamál einkavæðingarinn-
ar. Varðandi möguleika verð-
bréfamarkaðarins sagði hann m.a.
í svari síðar á fundinum, að sem
bankastjóri ætti hann eflaust að
mæla gegn auknu framboði hluta-
bréfa vegna sölu ríkisfyrirtækja,
því hún kallaði á úttekt sparifjár
úr bönkum, en að hann gæti ekki
harmað slíkt vegna jákvæðra
áhrifa einkavæðingarinnar á
efnahagslífið almennt í Frakkl-
andi.
Pierre Ledoux sagði m.a. í lok-
in, að upphaf einkavæðingarinnar
í Frakklandi og árangurinn þar
virtist sanna, að almenningur vildi
fjárfesta í þessum fyrirtækjum,
og sagði síðan: „Við erum nú vitni
að raunverulegri endurvakningu
sparnaðar í Frakklandi. Lifandi
áhugi fyrirtækjanna sjálfra og
stjórnenda þeirra á því að koma
sem fyrst til álita í einkavæðing-
unni sannar, að menn eru varir
við þessa nýju srauma og hin
breytta stefna hefur hlotið skiln-
ing.“
Hér má sjá hluta þinggesta, en þingið var fremur fámennt.