Morgunblaðið - 04.03.1987, Blaðsíða 62
Knattspyrna:
Sjö þjóðir sækja
um HM 1994
SJÖ þjóðir hafa sótt um að halda
úrslitakeppni heimsmeistara-
mótsins í knattspyrnu 1994. Þær
eru: Aisír, Benín, Brasilía, Chile,
Marokkó, Suður-Kórea og
Bandaríkin.
Alþjóða knattspyrnusambandið,
FIFA, mun ákveða það 30. júní á
vjæsta ári hver hlýtur hnossið.
Keppnin verður að öllum líkindum
ekki haldin í Evrópu 1994 vegna
þess að ítalir halda keppnina 1990
og til þessa hefur það verið hefð
að halda keppnina til skiptis í Evr-
ópu og Ameríku.
Brasilía og Chile sækja nú um
að halda keppnina í annað sinn.
Úrslitakeppnin var í Brasilíu 1950
og Chile 1962.
Svanhildur
keppirá HM
SVANHILDUR Kristjónsdóttir
frjálsíþróttakona úr UBK keppir á
heimsmeistaramótinu í frjáisum
íþróttum sem fram fer í Indiana-
polis i Bandaríkjunum um næstu
helgi.
Svanhildur keppir þar í 60 og
200 metra hlaupi. Hún á núgild-
andi íslandsmet í báðum þessum
greinum, sett á Norðurlandamót-
inu sem fram fór í Noregi fyrir
stuttu.
„Ég vona að mér takist að bæta
íslandsmetið í 200 metra hlaupi.
Það getur orðið erfiðara að bæta
metið í 60 metrunum," sagði Svan-
hildur. Hún og Eggert Bogason
kúluvarpari sem dvelst í Banda-
ríkjunum verða einu fulltrúar
Islands á mótinu og er þeim boðið
af mótshaldara.
Svanhildur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hún hyggðist
reyna að ná Ólympíulágmörkunum
í 100 og 200 m hlaupi í sumar.
Hún á best 11,79 sek. í 100 metr-
um og 24,30 sek. í 200 metrum.
Hún æfir nú sex sinnum í viku og
segist aldrei hafa verið í betri æf-
ingu á þessum árstíma.
• Svanhildur Kristjónsdóttir.
Ragnheiður og Eggert
I þriðja sæti
^ Frá Vósteini Hafsteinssyni í Bandaríkjunum.
RAGNHEIÐUR Ólafsdóttir og
Eggert Bogason, bæði úr FH,
kepptu fyrir Alabamaháskóla f
svæðamóti háskóla suðaust-
urríkja Bandarikjanna um helgina
og höfnuðu bæði í þriðja sæti í
sínum greinum.
Ragnheiður hljóp 1.500 metrana
á 4.23,68 mínútum, sem er
skammt frá íslandsmetinu. Hún
hefur átt við veikindi að striða að
undanförnu og er árangurinn góð-
ur með þau í huga.
Eggert kastaði kúlunni 17.96
metra, sem er 18 cm frá hans
besta innanhúss. Hann keppir í
Indianapolis um helgina þar sem
heimsmeistarakeppnin í frjálsum
íþróttum innanhúss fer fram.
Morgunblaöið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
• Amór Guðhjonsen og félagar hans hjá Anderlecht mæta Bayern Miinchen á Ólynmpfuleikvanginum
í Múnchen f kvöld.
Evrópukeppnin íknattspyrnu:
Arnór í sviðs-
Ijósinu í kvöld
- þegar Anderlecht og Bayern Munchen
mætast í Evrópukeppni meistaraliða
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni í Vestur- Þýskalandi.
FYRRI leikirnir í 8-liða úrslitum
Evrópukeppninnar í knattspyrnu
fara fram i' kvöld. Bayern Mun-
chen og Anderlecht mætast i
Evrópukeppni meistaraliða á
Ólympíuleikvanginum í Munchen
og verður leikurinn sýndur f
beinni útsendingu i' þýska sjón-
varpinu. Arnór Guðjohnsen er í
byrjunarliði Anderlecht. Auk þess
leika Rauða Stjarnan og Real
Madird, Porto og Bröndby og
Dynamo Kiev og Besiktas f sömu
keppni.
Mikið hefur verið fjallað um leik
Bayern og Anderlecht hér í Vest-
ur-Þýskalandi. Bæði liðin verða án
nokkurra sinna bestu manna. Það
reynir því á varamenn þeirra í
kvöld.
Anderlecht verður án Enzo
1X2 •o 3 (0 Z c 9 S> o 5 > o Tíminn C _c f 3 s* Dagur Ríkisútvarpið Bylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS
1 2 4
Chariton — West Ham X 2 X 1 2 2 2 X X X 2 X 1 6 5
Chelsea — Arsenal 2 1 2 2 X 1 2 — - — — — 2 1 4
Coventry — Sheff. Wed. 1 2 X 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 1 1
Liverpool — Luton 1 1 1 1 1 1 1 1 i 1 1 1 12 0 0
Man. Utd. — Man. City X 1 1 X 1 1 X 1 1 1 1 1 9 3 0
Newcastle — Aston Villa 2 1 X 1 1 X 1 1 X 1 X X 6 5 1
Norwích — Wimbledon 1 1 1 X 1 X 1 1 X 2 1 1 8 3 1
Tottenham —QPR 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0
Blrmingham — Sunderland 1 X 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 10 2 0
Bríghton — Derby 2 2 2 2 2 X 2 2 2 2 2 2 0 1 11
Stoke — Ipswich 1 1 1 1 2 2 X 1 1 1 X 1 8 2 2
WBA — Portsmouth X X 1 X 2 2 2 X 1 X X X 2 7 3
Scifo og hollenska leikmannsins,
Adri van Tiggelen, sem báðir taka
út leikbann. Stephane Demol og
framherjinn, Eugene Kabongo,
verða einnig fjarri gjóðu gamni þar
sem þeir eru báðir meiddir.
Bayern verður án miðvallarleik-
mannsins snjalla, Lothar Matt-
haeus, sem er í leikbanni. Fyrirlið-
inn, Klaus Augenthaler, meiddist
í deildarleiknum gegn Dusseldorf
um síðustu helgi og leikur því ekki
í kvöld. Hans-Dieter Flick og fram-
herjinn, Reinhold Mathy, eiga
einng við meiðsli að stríða.
„Ég skal sjá til þess að við vinn-
um í kvöld. Þeir koma ekki tuörunni
í netið hjá mér,“ sagði Jean-Marie
Pfaff, landsliðsmarkvörður Belga,
sem leikur með Bayern. Hann er
nú orðinn 33 ára og hefur sjaldan
verið betri.
Arie Haan, þjálfari Anderlecht,
er bjartsýnn fyrir leikinn og segir
að þeir fari með það hugarfar að
leika góða knattspyrnu. „Jafntefli
væru góð úrslit fyrir okkur og ef
okkur tekst að skora þá eigum við
góða möguleika. Það er mikilvægt
að eiga seinni leikinn á heima-
velli," sagði Haan.
Leikmenn Bayern eiga harma
að hefna vegna þess að And-
erlecht slóg þá út úr Evrópukeppn-
inni í fyrra. Bayern vann fyrri leikinn
heima, 2:1, en töpuðu í Belgíu,
0:2.
Liðin verða þannig skipuð:
Bayern Miinchen: Pfaff, Winklhofer, Ed-
er, Nachtweih, Plugler, Brehmen, Dorfn-
er, Rummenigge, Korfner, Höness og
Wohlfarth.
Anderlecht: Munaron, Marchoul, Grun,
Swinnen, Andersen, Arnór Guöhjonsen,
Janssen, Vercauternen, Lozano, Nilis og
Eddie Krancevic.
Erfitt hjá Real Madrid
Real Madrid og Rauða Stjarnan
mætast í Belgrad. Real Madrid,
sem sex sinnum hefur orðið Evr-
ópumeistari, gæti átt í erfiöleikum
með Rauðu Stjörnuna. Þessi lið
léku síðast fyrir 12 árum og þá sló
júgóslavneska liðið Real Madrid
út í keppni bikarhafa.
Uppselt er á völlinn sem tekur
90 þúsund manns. Breyttar að-
stæður, mikill kuldi og harður
völlur, gætu reynst leikmönnum
Real Madrid erfiðar.
En Spánverjarnir eru þekktir fyr-
ir góða knattspyrnu og með
leikmenn á borð við Hugo Sanc-
hez, Valdano og Emilio Butragu-
eno, gefa þeir sig ekki fyrr en í
fulla hnefanna.
Liðin verða þannig skipuð í
kvöld:
Rauða Stjarnan: Stojanovic, Djurovski,
Elsner, Krivokapic, Bracunn, Vorotovic,
Jankovic, Djurovic, Stojkovic, Cvetkovic
og Mrkela.
Real Madrid: Buyo, Salguero, Chendo,
Sanchis, Camacho, Gonzales, Gallego,
Gordillo, Sanchez, Valdano og Butragu-
eno.
Auðvelt hjá Kiev
Evrópumeistarar bikarhafa frá í
fyrra, Dynamo Kiev, ætti að eiga
auðvelda leið í undnanúrslit keppn-
innar. Þeir mæta tyrkknesku
meisturunum, Besiktas, á útivelli.
Tyrkknesk knattspyrna hefur ekki
verið hátt skrifuð hingað til.
Fjórði leikurinn verður svo viöur-
eign Porto og Bröndby og fer hann
fram í Lissabon. Seinni leikirnir
fara svo fram eftir hálfan mánuð.
í Evrópukeppni bikarhafa eigast
við Bordeaux (Frakklandi) og
Torpedo (Sovétrikjunum), Real
Zaragoza (Spáni) og Vitoshia
(Búlgaríu), Malmö FF (Svíþjóð) og
Ajax (Hollandi) og loks lokomottiv
(A-Þýskalandi) og Sion (Sviss).
í UEFA-keppninni leika Dundee
United (Skotlandi) og Barcelona
(Spáni), Borussia Mönchenglad-
bach (V-Þýskalandi)og Guimaraes
(Portúgal), Inter Milan (l'talíu) og
Gautaborg (Svíþjóð)og loks Tórinó
(Ítalíu) og Tirol (Austurríki).