Morgunblaðið - 25.03.1987, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
Þrjár rósir
Ríkisflölmiðlarnir gerðu það svo
gott í fyrradag að ég færi þeim
þijár rósir:
Fyrsta rósin
Fyrsta rósin fellur að sjálfsögðu í
kjöltu hinnar undurraddfögru söng-
stjömu Höllu Margrétar Ámadóttur,
er hallaði sér að öxl sönglagahöfund-
arins Valgeirs Guðjónssonar í hrifn-
ingarvímunni þá sigurlagið Hægt og
hljótt skaust upp fyrir öll hin. Val-
geir hógvær að vanda, íklæddur
gráleitu belgísku fötunum sínum.
Þjóðin hlýtur að samgleðjast þessu
ágæta fólki þó vart reikni nokkur
íslendingur með því að lagið þokist
hænufet í Belglu. Gleðibankinn var
hins vegar í fyrsta sæti frá því hann
hljómaði fyrst. Svona emm vér ís-
lendingar, okkur finnst ekki tiltöku-
mál að verða fremstir meðal
jafningja og ef undrið gerist ekki þá
ypta menn bara öxlum og gá til veð-
urs, gott ef sumir fá sér ekki í nefið.
Kolbrún Halldórsdóttir lýsti
söngvakeppninni í glæsilegri um-
gjörð sjónvarpssalarins og fórst
einkar vel úr hendi, en í miðri keppn-
inni, þá undirritaður hafði fyllt
sérríglasið, hringdi síminn: Ólafur,
þú verður að skrifa um þetta, það
er ekki hægt að troða inn svona
mörgum augiýsingum ... þetta er
dýrkun á Mammoni! Ég tæmdi fing-
urbjörgina.
Númer tvö
Mánudagsþættir ríkissjónvarpsins
um Sambúð/sambúðarslit em svo
raunalegir á stundum að ég horfi
með öðm auganu, en samt em þess-
ir þættir bráðnauðsynlegir því þar
er íjallað um ýmis lagaleg vandamál
er koma gjaman upp þá fólk slítur
samvistir án þess að hafa gengið í
hjónabandið marglofaða. Orator, fé-
lag laganema, sér um þessa þætti,
en Helga Thorberg stýrir umræðum
og einnig leikendum. Þessir þættir
byggja annars á gömlum gmnni fyrri
Oratorsþátta, en hér er þó bmgðið
út af þeirri venju að hafa eintóma
karla á dómarastóli, þess í stað em
bara konur á lögmannabekk. Gott
innlegg í jafnréttisbaráttuna — ekki
satt?
ÞriÖja rósin
. .. fellur í skaut rásar 1 þar sem
Ævar Kjartansson tók á Torginu
býsna fagmannlega á því máli er ber
hvað hæst þessa stundina í sam-
félagi vom, þ.e. ríkisrekstrinum
blessuðum. Fyrst kvaddi Ævar Davíð
Á. Gunnarsson forstjóra Ríkisspítal-
anna í hljóðstofu, en Davíð flutti
nýlega erindi í útvarpið um rekstur
ríkisstofnana. Mér virtist Davíð eink-
ar málefnalegur og rökfastur. Hann
lagði þunga áherslu á að yfirmenn
ríkisstofnana sýndu stjómvisku, en
oft væri þar erfitt um vik sökum lít-
illa sérhagsmunahópa er vildu engu
breyta ef breytingamar skertu for-
réttindin. í þessu sambandi minnti
Davíð á möguleikana á að hækka
laun hjúkmnarfólks ef dregið væri
úr lyfjakostnaði sjúkrahúsanna. Þá
kallaði Ævar á þau Ingibjörgu Sól-
rúnu borgarstjómarkonu og Hannes
Hólmstein kennara að ræða ríkis-
reksturinn. Það „brann eldur í
æðum“ þeirra Ingibjargar og Hann-
esar og lýsti Ingibjörg því meðal
annars yfir að hún teldi nú fijáls-
hyggjuna ekki rista djúpt. .. Mér
virðist þetta helst vera ungir, frískir
og vel stæðir karlmenn er vilja dreifa
valdinu á milli sln. Hannes taldi að
skólakerfíð svaraði betur kröfum for-
eldra skólabamanna ef þeir réðu
sjálfir meim um rekstur skólanna
og skildist mér helst á Hannesi að
námsferill barnanna ætti að ráðast
af menningaráhuga foreldranna.
Næsta skref verður sennilega að
gefa bömunum kost á að velja sér
foreldra.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTYARP / SJÓNVARP
Útrás:
Utvarp framhalds-
skólanema
FM 88,6
Útrás — útvarp framhalds-
skólanema — er nú orðið
eins og hálfs mánaðar
gamalt, en það afmæli átti
stöðin sl. mánudag. Um
leið og framhaldskólanem-
ar fögnuðu þeim áfanga
tók annar við, en nú er
rekstur stöðvarinnar allur
orðinn skipulegri og reglu-
legri. í upphafí miðuðust
tilraunaútsendingar Útrás-
ar við tilraunadaga fram-
haldsskólanna, en nú em
þeir að baki sem og til-
raunaútsendingarnar.
Aðstandendur stöðvar-
innar telja sig hafa fengið
gífurlega reynslu á þessum
eina og hálfa mánuði og
telja sig hafa komist að þvi
svo ekki verði um villst að
útvarp framhaldsskóla-
nema hafí verið fyllilega
tímabært og reyndar ekki
seinna vænna að hefja það.
Hundmð dagskrárgerðar-
manna hafa fengið að
spreyta sig á þessum tíma
og að sögn er efniviðurinn
í dagskrána óþijótandi.
Fram til 1. maí mun stöðin
því útvarpa í 88 tíma í viku.
Þá hefur stöðin einnig
batnað frá tæknilegu sjón-
armiði, en nú em hljóðnám-
ur stöðvarinnar orðnar
þijár, en minna má á að á
fyrsta ári Rásar tvö var
aðeins ein hljóðnáma til
staðar. Ennfremur munu
útsendingar stöðvarinnar
heyrast betur og víðar, því
á mánudaginn var tekinn í
notkun nýr sendir, sem er
helmingi sterkari en sá
fyrri.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
■25. mars
6.4S Veðurfregnir. Bæn
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin
Jón Baldvin Halldórsson og
Jón Guöni Kristjánsson.
Fréttir eru sagöar kl. 7.30
og 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson. Höfundur les
(18).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forustugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Óskastundin
Umsjón: Helga Þ. Steph-
ensen.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.03 íslenskt mál
Endurtekinn þáttur frá laug-
ardegi sem Ásgeir Blöndal
Magnússon flytur.
11.20 Kórsöngur
Drengjakórinn í Regens-
burg, danskur drengjakór,
Bach-kórinn i Stokkhólmi og
Skólakór Kársness og Þing-
hólaskóla syngja.
Theobald Schrems, Henn-
ing Elbrik, Anders öhrwall
og Þórunn Björnsdóttir
stjórna.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Börn
og skóli. Umsjón: Sverrir
Guðjónsson.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
íslandi. Indriði G. Þorsteins-
son skráði. Sigríöur Schiöth
les (23).
14.30 Segðu mér að sunnan
Ellý Vilhjálms velur og kynn-
ir lög af suörænum slóðum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Austurlandi. Umsjón: Inga
Rósa Þóröardóttir.
16.00 Fréttir. Tílkynningar.
16.05 Dagbókin
— Jóhanna Hafliðadóttir.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar
Strengjasextett nr. 1 i B-dúr
op. 18 eftir Johannes
Brahms. Cecil Aronowitz og
William Pleeth leika með
Amadeus-kvartettinum.
17.40 Torgið — Nútímalífs-
hættir
Umsjón: Steinunn Helga
Lárusdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgiö, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar. Fjölmiðla-
rabb. Bragi Guömundsson
flytur. Tónleikar.
20.00 Tónlistarkvöld Ríkisút-
varpsins
Robert Schumann-tríóið
leikur á tónlistarhátíöinni í
Schwetzingen í fyrravor.
a. Tríó í E-dúr K.542 eftir
Wolfgang Amadeus Moz-
art.
b. Kammersónata eftir Hans
Werner Henze.
c. Tríó í Es-dúr, „Notturno",
eftir Franz Schubert.
d. Trió í Es-dúr op. 70 nr. 2
eftir Ludwig van Beethoven.
21.20 Á fjölunum.
Þáttur um starf áhugaleik-
félaga. Umsjón: Haukur
Ágústsson. (Frá Akureyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 „Borðnautar"
Gunnar Stefánsson les úr
SJÓNVARP
MiÐVIKUDAGUR
25. mars
18.00 Úr myndabókinni
47. þáttur. Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni.
Umsjón: Agnes Johansen.
Kynnir: Sólveig Hjaltadóttir.
19.00 Hver á að ráða?
(Who's the Boss?) Banda-
rískur gamanmyndaflokkur
um einstæöan föður sem
tekur að sér eldhússtörfin
fyrir önnum kafna móður.
Áöalhlutverk: Tony Danza,
Judith Light og Katherine
Helmond. Þýöandi: Ýrr Bert-
elsdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Spurt úr spjörunum
Áttundi þáttur. Spyrlar Óm-
ar Ragnarsson og Kjartan
Bjargmundsson. Dómari:
Baldur Hermannsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Auglýsingarog dagskrá
20.40 (takt við timann
Blandaöur þáttur um fólk
og fréttnæmt efni. Umsjón:
Ásdis Loftsdóttir og Ásthild-
ur E. Bernharösdóttir.
21.40 Leiksnillingur
Fjórði þáttur. Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur í sjö
þáttum, gerður eftir skáld-
sögu Sidneys Sheldon.
Aðalhlutverk: Dyan Cann-
on, Harry Hamlin og Cliff
De Young. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
22.45 Seinni fréttir
22.40 Sjötta skilningarvitið
Endursýning s/h. 2. spáspil.
Myndaflokkur um dulræn
efni frá 1975. (öðrum þætti
segir Sveinn Kaaber frá Tar-
otspilum og sýnir hvernig
spáð er með þeim. Umsjón-
armaöur: Jökull Jakobsson.
Stjórn upptöku: Rúnar
Gunnarsson.
23.45 Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
25. mars
§17.00 Undir áhrifum (Under
The Influence).
Ný sjónvarpsmynd frá CBS-
sjónvarpsstöðinni. Átakan-
leg mynd um áhrif þau sem
ofneysla áfengis hefur á fjöl-
skyldulífið.
§18.30 Myndrokk.
19.05 Feröir Gúllivers. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Nýr skemmtiþáttur. Nýr
skemmtiþáttur með Ladda
og Júliusi Brjánssyni verður
framvegis annan hvorn mið-
vikudag. í þættinum verður
spjallað við þekkt fólk og
ýmsum skemmtikröftum
gefið tækifæri til að spreyta
sig.
20.40 Bjargvætturin (Equaliz-
er)
Blaðakona fær bjargvættina
í liö með sér til að rannsaka
nágranna sinn sem m.a.
fæst við vopnasölu.
§21.25 Húsið okkar (Our
House).
Framhaldsþáttur fyrir alla
fjölskylduna. Gus er kvadd-
ur til setu í kviðdómi og vill
ekki sætta sig við mála-
rekstur verjandans.
§22.15 Tískuþáttur. Um-
sjón Helga Benediktsdóttir.
§22.45 Andstreymi (The
Dollmaker)
Bandarísk sjónvarpsmynd
með Jane Fonda í aöalhlut-
verki. Sveitafjölskylda flytur
úr sveitinni á mölina. [ iðn-
væddri borginni kemst
fjölskyldan naumlega af.
Konan lætur pig dreyma um
lítið sveitabýli og notar
frístundir sínar til brúðu-
gerðar; þannig hyggst hún
láta draum sinn rætast.
00.55 Dagskrárlok.
nýrri Ijóðabók sér Bolla
Gústavssonar.
22.35 Hljóð-varp
Ævar Kjartansson sér um
þátt í samvinnu við hlust-
endur.
MIÐVIKUDAGUR
25. mars
00.10 Næturútvarp. Andrea
Guðmundsdóttir stendur
vaktina.
6.00 I bitið. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri
,færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist i
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: „Plötupottur-
inn", gestaplötusnúður og
miövikudagsgetraun.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur. Afmæliskveðj-
ur, bréf frá hlustendum o.fl.,
o.fl.
16.05 Hringiöan. Umsjón:
8roddi Broddason og
Margrét Blöndal. Síðdegis-
útvrp rásar 2, fréttatengt
efni og tónlist.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 (þróttarásin. Ingólfur
Hannesson og Samúel Örn
Erlingsson íþróttafrétta-
menn taka á rás. M.a.
veröur fylgst með bikar-
keppninni í handknattleik
þetta kvöld.
22.05 Perlur. Guðmundur
Benediktsson kynnir sigilda
dægurtónlist.
23.00 Við rúmstokkinn. Guð-
rún Gunnarsdóttir býr fólk
undir svefninn með tali og
tónum.
00.10 Næturútvarp. Þorsteinn
G. Gunnarsson stendur
vaktina.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00, 22.00 og
24.00.
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Héðan og þaöan
Fréttamenn svæðisútvarps-
ins fjalla um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
23.10 Djassþáttur
— Tómas R. Einarsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til
morguns.
989
’BYL GJANj
MIÐVIKUDAGUR
25. mars
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Siguröur litur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Opin lína til
hlustenda, mataruppskrift
og sitthvaö fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með því
sem helst er i fréttum, segja
frá og spjalla við fólk.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síðdegispoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavik síödeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólkiö sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 19.00.
19.00—21.00 Hemmi Gunn í
miðri viku. Létt tónlist og
þægilegt spjall eins og
Hemma einum er lagiö.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á miövikudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Ljúf
tónlist og fréttatengt efni.
Dagskrá í umsjá Braga Sig-
urðssonar fréttamanns.
Fréttir kl. 23.00.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veður og flugs-
amgöngur. Fréttir kl. 3.00.
ALFA
trialilef Atrar)MitM.
FM 102,9
MIÐVIKUDAGUR
25. mars
8.00 Morgunstund: Guð
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
13.00 Tónlistarþáttur me
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.