Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
39
Sigríður Arnbjarnardóttir
„En ákafinn er svo mik-
ill að seilast ofan í vasa
almenningfs að þeir
sjást ekki fyrir. Enda
telja þeir sig náttúrleg-a
vita betur en þú hvern-
ig þínum peningum er
best varið.“
ráðstöfunarfé sitt er í augum Jóns
einkaneysla og kjörinn skattstofn.
Hver vill stuðla að því að Jón
Sigurðsson komist í valdaaðstöðu
til þess að hækka aftur verð á bílum
og bensíni?
Höfundur skipar 13. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Ferðaáæthm Útivist-
ar með 210 ferðum
- sérstök kynning- á gömlum þjóðleiðum
FERÐAÁÆTLUN Útivistar
1987 er nýlega komin út með
samtals 210 ferðum, sem
skiptast í dags-, kvöld-, helg-
ar- og sumarleyfisferðir.
í fréttatilkynningu frá Útivist
segir að í dags- og kvöldferðun-
um sé að þessu sinni lögð áhersla
á að kynna gamlar þjóðleiðir og
er í hverjum mánuði ferð sem
kallast þjóðleið mánaðarins.
Einnig er mikið lagt upp úr
íjöruferðum, t.d. kræklin-
gatínslu og fjöruskoðun, og
dæmi um slíka ferð er stór-
straumsfjöruferð og krækl-
ingatínsla í Hvalfirði 29. mars.
Reykjavíkurganga Útivistar
verður 10. maí og þann 15. og
16. ágúst verður þjóðleiðin frá
Þingvöllum til Reykjavíkur
gengin. Kvöldferðir eru áætlað-
ar í eyjamar við Reykjavík,
Viðey, Engey og Þerney. Dags-
ferðir verða alla sunnudaga í
Þórsmörk yfir sumarmánuðina
og á miðvikudögum í júlí og
ágúst.
Helgarferðir verða í Þórsmörk
um hverja helgi og á ýmsa aðra
staði í byggð og óbyggðum. Af
þeim má nefna páskaferðir í
Óræfi, Esjufjöll og á Snæfells-
nes. Fjölskylduhelgi verður í
Þórsmörk 7.-9. ágúst.
Útivistarskálarnir í Básum.
Flestar sumarleyfisferðir eru
á Homstrandir eða alls 6 og
heíjast tvær þær fyrstu þann
9. júlí. Önnur þeirra er dvöl í
Hornvík, en hin er gönguferð frá
Hesteyri um Aðalvík til Horn-
víkur. Meðal nýjunga í sumar-
leyfisferðum em t.d. bakpokaf-
erð frá Hítardal yfir í
Norðurárdal þann 13.-17. júní
og sólstöðuferð á Vestfirði og
Strandir þann 17.-21. júlí. Ný
ferð er á Tröllaskaga 9.-15.
ágúst og Ingjaldssand 18.-23.
ágúst. Útivist leggur_mikið upp
úr því að nýta gistiaðstöðu sína
í tveimur skálum í Básum í Þórs-
mörk og er þar boðið upp á
sumardvöl, t.d. í heila eða hálfa
viku. Gefst ferðafólki með því
góður tími til að upplifa nátt-
úmfegurð og friðsæld Þórs-
merkur á þægilegan máta.
Fararstjórar em í öllum ferð-
um félagsins, en farþegar leggja
sjálfir til fæði og viðeigandi
ferðaútbúnað.
Við Hjallaveg í Njarðvík mynd-
uðust stórir snjóskaflar eins og
sjá má.
Skafrenn-
ingur olli
víða umferð-
artöfum
Ytri-Njarðvík.
TALSVERÐUR skafrenningur
var alltaf öðru hvoru alla síðustu
viku, viða dró í stóra skafla og
áttu menn sumstaðar í erfiðleik-
um með að komast leiðar sinnar.
Lögreglan varð að aðstoða öku-
menn á Reykjanesbraut, Sand-
gerðisvegi og víðar.
Við Hjallaveg í Njarðvík urðu
snjómðningstæki að vera stöðugt
að um tíma til að halda í horfinu
þegar mest gekk á. Víða em nú
stórir snjóskaflar líkt og eftir
stórhríð.
- BB
UTSALA A
SKÍÐAVÖRUM