Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 64
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Albert Guðmundsson baðst lausnar í gær: Framboðslistinn í Reykj avík óbreyttur Þau sár yrðu lengi að gróa, segir Albert um hugsanlegt sérframboð FORSETI íslands, Vigdis Finn- bogadóttir veitti Albert Guð- mundssyni lausn frá embætti iðnaðarráðherra í gærkveldi og skipaði Þorstein Pálsson fjár- málaráðherra til þess að vera iðnaðarráðherra í ríkisstjórn ís- lands. Albert skýrði þingflokki Sjálfstæðisflokksins frá ákvörð- un sinni um að biðjast lausnar '•'Td. 16 í gær. Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í Valhöll kl. 18 i gær og niðurstaða þess fundar varð sú að ekki verður kallaður saman almennur fundur í fulltrúaráð- inu til þess að fjalla á ný um framboðslista flokksins í Reykjavík.I gær lagði hópur manna, sem kallar sig Borgara- flokkinn fram umsókn í dóms- málaráðuneytinu um listabók- stafinn S. Það var Hreggviður Jónsson, framkvæmdastjóri, sem lagði umsóknina fram og fylgdu henni nöfn 62 einstaklinga. Er talið að með þessari umsókn hafi stuðningsmenn Alberts Guð- mundssonar viljað undirbúa hugsanlegt sérframboð af hans hálfu. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að hann legði ekki mat á afsögnina, enda væri hún ákvörðunarefni Sjálfstæðis- flokksins, hins vegar þætti sér leitt, að ríkisstjómin sæti ekki óbreytt út lqörtímabilið. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „Albert Guðmundsson hefur í dag axlað pólitíska ábyrgð, með því að taka sjálfur ákvörðun um að segja af sér ráðherraembætti af þessum sök- um.“ Albert Guðmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann stæði á örlagaríkum vegamótum, þar sem annars vegar blasti við eldur og ólga, en hins vegar mögu- leikinn á því að það yrði friður og ólguna gæti lægt. „Ef ég verð neyddur út í sérframboð, getur Sjálfstæðisflokkurinn særst þannig sárum, að þau grói ekki í langan tíma,“ sagði Albert. Albert útilokar þó ekki sérframboð, en segist vita það af löngum starfsferli, að það sé ekki alltaf rétti leikurinn „að kjaftshöggva til baka.“ Sveinn H. Skúlason, formaður stjómarinnar sagði í samtali við Morgunblaðið, að loknum fundi full- trúaráðsins að umræður hefðu verið hreinskiptnar en niðurstaða fundar- ins verið einróma.Þorsteinn Pálsson sagði aðspurður í gær, að Albert Guðmundsson yrði ekki ráðherra í nýrri ríkisstjóm. I tilefni af þeim orðum sagði Albert Guðmundsson í ríkissjónvarpinu, að Þorsteinn gæti ekki talað svona, hann væri ekki einráður. Sjá frásagnir og ritsljómar- grein í miðopnu og frétt um Borgaraflokkinn á bls. 2. Morgunblaðið/Rax Frá fundi þeirra Alberts Guðmundssonar, Ólafs G. Einarssonar og Þorsteins Pálssonar með fréttamönnum í gær, skömmu eftir að þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins hafði fallist á lausnarbeiðni Alberts Guðmundssonar. Eimskip fær varnarliðsflutningana Frá Jóni Ásgeirí Sigurðssyni, fréttaritara Eimskipafélag íslands hf. gerði lægsta tilboð í vömflutn- inga á vegum bandaríska flotans og fær því 65 prósent varnarliðs- flutninga milli Bandaríkjanna og íslands í sinn hlut. Óstaðfestar fregnir herma að bandaríska skipafélagið Rainbow Navigati- on hljóti 35 prósent flutning- anna, en ekki er vitað hvort önnur bandarísk skipafélög gerðu tilboð í flutningana. „Við gemm ekki ráð fyrir miklum flárhagslegum ávinningi af þessum flutningum og ætlum að nota þetta tólf mánaða samningstímabil til að '•tneta framhaldið. Við reiknuðum [orgunblaðsins í Bandaríkjunum. dæmið í gegn og ákváðum að bjóða eins og við gerðum, en við ætlum okkur á hinn bóginn alls ekki að tapa á þessu,“ sagði Hörður Sigur- gestsson, forstjóri Eimskipafélags Islands, er fréttaritari Morgun- blaðsins náði tali af honum í gærkvöldi. Sjóflutningadeild bandaríska flot- ans skýrði í gær frá veitingu 65 prósenta flutninganna til Eimskips, en mun að sinni ekki skýra frá því hvaða bandarískt skipafélag hlýtur 35 prósentin sem eftir standa. „Okkur þykja það forvitnileg vinnu- brögð að við fáum ekki að vita hvað aðrir buðu,“ sagði Hörður Sig- urgestsson. Talsmenn sjóflutninga- deildarinnar hafa varist allra frétta af öðrum tilboðum og þvertóku í gær fyrir að skýra frá því hveijir hefðu gert tilboð aðrir en Eimskip. Gert er ráð fyrir að alls verði flutt um 44.000 tonn af vamingi, aðallega í gámum, frá austurströnd Bandaríkjanna til íslands á ári hveiju. Flutningamagnið frá íslandi til Bandaríkjanna verður að líkind- um um 17.000 tonn. í fréttatilkynn- ingu sjófiutningadeildar flotans, sem gefin var út í gær, segir að Eimskip muni flytja í það minnsta 32.650 tonn á samningstímanum. Jafnframt er tekið fram að magnið sem Eimskip flytji gæti orðið meira en 65 prósent af flutningunum og því meira en áðumefnt magn. Gert er ráð fyrir að sjóflutninga- deildin geti tekið bandarísk skip sem annast flutningana á leigu í önnur verkefni. Þessi ákvæði sem fulltrúum sumra bandarískra skipa- félaga þóttu ámælisverð, eiga ekki við þann hluta flutninganna sem fellur íslenskum aðilum í skaut. Uppi voru raddir meðal bandarískra aðila að leggja fram formleg mót- mæli áður en tilboðsfresti lyki, en ekkert varð úr slíku. Bílflautur þeyttar NEMENDUR í grunnskólum og framhaldsskólum, sem nú fá ekki kennslu vegna verkfalls kennara í HÍK, þeyttu í gær bílflautur til að lýsa óánægju sinni með seina- gang í samningamálum, og þótti öðrum vegfarendum nokkuð um, eins og þessi mynd ber með sér. í gær settust nokkrir nemendur að á stigagöngum fjármálaráðu- neytisins og þegar Morgunblaðið hafði síðast spurnir af í gærkveldi voru um 20 nemendur enn í ráðu- neytinu. Sjá frásögn á bls. 26 og 27. Bátur slitnaði frá bryggju Siglufjörður. SNARPAR vindhviður voru á Siglufirði í gær og í einni slíkri slitnaði vélbáturinn Týr frá Sauðárkróki frá bryggju og rak upp á svokallaðar Leirur um 3-400 metra innar í firðinum. Þetta varð um kl. 22.40 í gær- kveldi. Bátsveijar á Tý, sem er um 40 tonna bátur, voru um borð og kölluðu eftir aðstoð. Vélbáturinn Hafdís frá Hofsósi fór á véttvang og tókst að draga Tý á flot og að bryggju aftur. Ekki er vitað hve miklar skemmdir urðu á Tý. Fréttaritari Sjúkraþjálf- arar boðað- ir á fund ENGIR fundir hafa verið boðaðir í deilum Hins íslenska kennarafé- lags og Félags háskólamennt- aðra hjúkrunarfræðinga við ríkið. Félag islenskra sjúkra- þjálfara hefur hins vegar verið boðað á fund kl. 9 i dag, sam- kvæmt upplýsingum rikissátta- semjara. Samninganefnd ríkisins fundaði í gær með Félagi íslenskra náttúru- fræðinga og Matvæla- og næringar- fræðingafélagi Islands en þessi félög hafa boðað verkföll 31. mars og 1. apríl. Þá voru einnig fundir vinnuveitenda með Félagi leiðsögu- manna sem hefur boðað verkfall frá miðnætti í nótt. Enginn fundur hefur verið boðað- ur í deilu Sálfræðingafélags Islands o g ríksins en verkfali félagsins hófst á miðnætti aðfaranótt þriðjudags. í dag kl. 17 verður fundur með byggingarmönnum í húsnæði sátta- semjara og í Borgartúni 6 fundir kl. 14 með félagsráðgjöfum og kl. 15 með símamönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.