Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
63
Morgunblaöiö/Þorkell
• Garðar Jóhannsson skoraði 16 stig gegn UMFN í gærkvöldi og hér eru tvö þeirra í uppsiglingu.
Úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni:
Leið Njarðvíkinga
greið í úrslitin
„HITTNIN hjá okkur var ekki góð
í fyrri hálfleik, en við náðum okk-
ur á strik í þeim seinni. Ég átti
von á KR-ingunum sterkari, en
þetta var ekki þeirra dagur,“
sagði Valur Ingimundarson, þjálf-
ari UMFN, eftir sigurinn gegn KR
í gærkvöldi.
Bæði liðin hafa oft leikið betur,
en Njarðvíkingar voru ákveðnari.
„Herslumuninn vantaði hjá okkur,
en við sigrum ekki Njarðvík fyrr
en við trúum að við getum það,"
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
KR, að leik loknum.
Hvort lið um sig náði 23 varn-
arfráköstum, en sóknarfráköst
Njarðvíkinga voru 14 á móti 11 og
þeir töpuðu boltanum fimm sinn-
um, en KR-ingar tólf sinnum.
Þetta var síðasti leikur KR á
keppnistímabilinu og vonandi
síðasti leikurinn í íþróttahúsi Haga-
skólans, en Njarðvíkingar eru
komnir í úrslit gegn Val eða ÍBK.
Valur Ingimundarson var bestur
hjá íslandsmeisturunum, en Teitur
Örlygsson og Helgi Rafnsson voru
einnig góðir.
Guðni Guönason bar af hjá KR
sem fyrr, en Garðar Jóhannsson
og Ólafur Guðmundsson áttu
ágæta spretti.
S.G.
Leikurinn
ítölum
iþróttahús Hagaskóla, 24. mars 1987.
Úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni, annar
leikur
KR - UMFN 71:89 (35:40)
2:2, 4:4, 4:11, 11:13, 18:20, 18:26,
23:26, 27:31, 29:38, 35:40, 35:46,
40:52, 48:54, 56:59, 56:68, 59:72,
63:78, 68:78, 68:89, 71:89
Stig KR: Guðni Guðnason 23, Garðar
Jóhannsson 16, Ólafur Guðmundsson
13, Guðmundur Jóhannsson 8, Matt-
hías Einarsson 7, Þorsteinn Gunnars-
son 4.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 28,
Teitur Örlygsson 20, Helgi Rafnsson
14, Jóhannes Kristbjörnsson 10, ísak
Tómasson 7, Hreiðar Hreiðarsson 4,
Kristinn Einarsson 4, Árni Lárusson 2.
Valur og ÍBK
VALUR og ÍBK leika annan leik
sinn í úrslitakeppni úrvalsdeildar-
innar f kvöld. Vaiur sigraði í
Kefiavík, en í kvöld verður leikið
í íþróttahúsi Seljaskóla og hefst
viðureignin klukkan 20.
England:
Sheffield
sigraði
FJÓRIR leikir fóru fram í 1. deild
ensku knattspyrnunnar í gaer-
kvöldi. Sheffield Wednesday
vann West Ham í London 2:0,
Wimbledon sigraði Coventry 2:1,
Charlton og Oxford gerðu marka-
laust jafntefli og Southampton
vann Luton 3:0.
Morgunblaðiö/Júlíus
Víkingur vann Leikni
Víkingur sigraði Leikni 2-1, er liðin áttust við í fyrsta leik Reykjavíkur-
mótsins í knattspyrnu í gærkvöldi. Víkingar léku með sterkan vind í bakið
í fyrri hálfleik og náðu forystunni með skallamarki Björns Bjartmarz.
Snemma í síðari hálfleik náði Leiknir að jafna með glæsilegu marki
Baldurs Baldurssonar. Sigurmark Víkings kom stuttu síðar. Halldór Gísla-
son náði þá að skora af stuttu færi eftir góðan undirbúning Atla
Einarssonar sem á myndinni sést reyna að hemja knöttinn í rokinu.
vagnar
f'j« Eigum ávallt fyrirliggjandi
iS hina velbekktu BV-hanrl-
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI:6724 44
Færibönd
fyrir ailnn
iðnað -
Getum útvegaö með
stuttum fyrirvara allskonar
íæribönd úr plasti og stáli
fyrir smáiönaö sem
stóriðnað; matvælaiönaö,
fiskvinnslu og
verksmiðjuiðnað.
Fjölbreyttir möguleikar.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVEfíSLUN
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 6724 44
getrsuna
VINNINGAR»
31. leikvika - 21. mars
1987
Vinningsröð: 1XX-1 1 1-X21-XX2
1. vinningur: 12 róttir, kr. 571-470,-
220763(9/11)
2. vinningur: 11 róttir, kr. 15.307,-
14863 125877+ 216709+
42169 127815+ 653645
55341
Kærufrestur er til mánudagsins 13. mars 1987. kl.
12.00 á hádegi.
Nafnlausir seðlar úr 30. leikviku 2. vinningur 11 rétt-
ir kr. 604.-
12455 12465 43617 46560
46562 61209 61525 95985
102278 128079* 129005 214809
Konir skulu vera skriOagar. Kæruayðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni i
Raykjavlk. Vinningaupphæöir gata iaskkað, ef kætur verða taknar til greina.
Handhafar nafnlauara aeðia (+) varða aö framviaa stofni aða senda stofninn og fuHar
uppiýaingar um nafn og heimilisfang til (slenskra Qetrauna fyrir lok kænjfrests.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni vlSigtún, Reykjavik
MEÐ EINU SÍMTALI
er hægt að breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskrift-
viðkomandi greiðslukortareikiv
ing mánaðarlega.
SÍMINN ER
691140
691141