Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
47
AF ERLENDUM VETTVANGI
- eftir Halldóru J. Rafnar
Er raunverulegt trúfrelsi
á döf inni í Sovétríkjunum?
TRÚFRELSI á að ríkja í Sovétríkjunum samkvæmt stjómar-
skránni, en frá því kommúnistar komust þar til valda hafa
stjómvöld markvisst unnið að því að uppræta trúarbrögð og ef
það hefur ekki tekist, þá að ná tangarhaldi á viðkomandi trúar-
hreyfingu og nota hana síðan málstað sínum til framdráttar.
Fyrir skömmu var Konstantin Kharchev, yfirmaður trúmála í
Sovétríkjunum, á ferð í Bandarikjunum og gaf þar í skyn, án
þess að skýra frekar hvað hann meinti, að á næstunni yrði slakað
á klónni varðandi trúmál. Hvort um er að ræða þátt í breytingum
þeim er Mikhail Gorbachev, aðalritari sovéska kommúnistaflokks-
ins, segist ætla að beita sér fyrir í frjálsræðisátt, er ekki gott
að segja á þessu stigi, því lítil merki hafa sést um sinnaskipti
hjá stjórnvöldum. En hvernig er málum háttað hjá hinum ýmsu
trúarhreyfingum í Sovétríkjunum?
Rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unni er leyfð takmörkuð
starfsemi gegn því að hún lýsi
yfir stuðningi við stefnu sovéskra
stjómvalda í innan- og utanríkis-
málum, þar með talið innrásina í
Afganistan. Milli 30 og 50 milljón-
ir manna eru taldar tilheyra
þessari kirkju. Fyrir byltingu
Bolsévika árið 1917 er talið að
guðshús kirkjunnar hafi verið
54.174, en nú eru þau um 7.000.
Flest klaustur hafa verið lögð nið-
ur og eru nú starfandi 6 klaustur
fyrir munka og 10 fyrir nunnur,
en þau voru mörg hundruð fyrir
árið 1917.
Þrátt fyrir harðýðgi stjómvalda
gagnvart trúuðum virðist unga
fólkið hafa mikinn trúaráhuga og
á það við um öll trúarbrögð. I
ræðu í júní 1983 deildi Konstant-
in Chemenko, á þennan áhuga
og var það í fyrsta skipti í langan
tíma sem háttsettur embættis-
maður hafði rætt um slíkt.
Vladimir, erkibiskup af Dmitrov,
segir að fjórir til fimm umsækj-
endur séu um hvert sæti í presta-
skóla rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar.
Útgáfustarfsemi á vegum
kirkjunnar hefur aukigt lítillega
að undanfömu, en þeir sem til
þekkja segja að ritskoðun sé mjög
ströng. Ymsir kirkjunnar menn
hafa reynt að koma á framfæri
upplýsingum um brot á ákvæðum
um trúfrelsi, en yfírleitt hefur
umsvifalaust verið þaggað niður
í þeim. Skortur er á biblíum og
hafa margir guðfræðistúdentar
ekki getað orðið sér úti um ein-
tök. Talið er að á síðustu 30 ámm
hafí tæplega hálf milljón eintaka
af Biblíunni verið prentuð.
Múhameðstrú
Múhameðstrúarmenn em taldir
mynda næst fjölmennustu trúar-
hreyfínguna í Sovétríkjunum.
Ekki er vitað hversu margir þeir
em, en á svæðum þeim er þeir
byggja, aðallega í Mið-Asíu,
Kákasus, Bashkiria og Kazan, er
giskað á að búi um 45 milljónir
manna. Fyrir 1917 vom moskur
um 25.000 talsins, en em nú tald-
ar milli 400 og 500.
Sovésk stjómvöld reyna að hafa
vemleg áhrif á hreyfinguna, er
hinum trúuðu skipt eftir búsetu
og er sérstök stjóm yfir hveiju
svæði. Ákveðnum fjölda nemenda
er leyft að stunda guðfræðinám
og útskrifast á ári hvetju. Eitt
opinbert trúarrit fyrir múhameðs-
trúarmenn er gefíð út í ríkinu og
mega aðrir sem reyna útgáfu
búast við því að verða handteknir.
Miklar hræringar em nú meðal
múhameðstrúarmanna víða um
heim og gætir aukins trúarhita.
Óttast yfirvöld í Sovétríkjunum
að ólgu kunni því að gæta innan-
lands vegna áhrifa frá nágranna-
löndunum, t.d. Afganistan og
Iran. Múhameðstrúarmönnum
fjölgar mun hraðar en Slövum og
er talið að mishá fæðingartíðni
meðal Sovétlýðveldanna 15 kunni
að leiða til óstöðugleika innan
valdakerfísins áður en langt um
líður. Reyndar hafa stjómvöld
þegar gripið til aðgerða til að
stemma stigu við hárri fæðingar-
tíðni í Asíulíðveldinu Tadzhikistan
og bera því við að efnahagskerfíð
megni ekki að skapa nægilega
mörg störf fyrir allt þetta fólk.
Ýmsir kristnir söfnuðir
Kaþólska kirkjan er talin hafa
hátt í 10 milljónir áhangenda í
Sovétríkjunum. Sterkust er hún í
Lettlandi, Litháen, Hvíta-Rúss-
landi og Úkrainu. Ekki hefur hún
reynst jafn samstarfsfús við yfír-
völd og rússneska rétttrúnaðar-
kirkjan og hefur því mátt þola
miklar ofsóknir. Síðan 1983 hefur
kirkjan í Úkraínu barist hart fyrir
rétti sínum til guðsdýrkunar.
Stofnaður var sérstakur hópur til
vamar þessum réttindum og sendi
forsvarsmaður hópsins, Iosyf Ter-
elya, bréf til miðstjómar
úkraínska kommúnistaflokksins,
þar sem segir að ofsóknir hafi
styrkt úkraínska kaþólikka í
trúnni og „það er ekkert stórkost-
legra en að deyja sem kaþólikki
í fangelsi kommúnista". Terelya
var þegar í stað handtekinn. Slík
eru venjulega örlög andófsmanna
þar í landi.
í Úkraínu hefur útgáfustarf-
semi kaþólskra verið blómleg þó
hún hafí að mestu verið í blóra
við vilja yfírvalda. Eitt blaðanna
sem gefíð er út birti bréf er sent
var til Lech Walesa, þar sem lýst
var yfír stuðningi við hann og hin
bönnuðu samtök verkalýðsfélaga,
Samstöðu.
I Lettlandi hefur kirkjan einnig
reynst ótrúlega lífseig sé miðað
við þær ofsóknir er hún hefur
orðið fyrir og er talið að í landinu
séu 574 guðshús.
í Eistlandi, Lettlandi og Lithá-
en á mótmælendatrú nokkuð sterk
ítök enn, þrátt fyrir harðar að-
gerðir yfírvalda, m.a. nauðunga-
flutninga á trúuðu fólki.
Baptistar em sennilega fjöl-
mennastir af mótmælendum,
jafnvel nokkrar milljónir. Nokkur
ágreiningur hefur verið innan
þeirra raða m.a. varðandi sam-
vinnu við stjómvöld og hafa þeir
sem verið hafa samningaliprir
fengið smávægilegt fijálsræði.
Þeir hafa fengið að starfrækja
kirkjur, prenta biblíur o.fl.
Gyðingar
Um 3 milljónir gyðinga búa í
Sovétríkjunum og hafa trúarof-
sóknir gegn þeim staðið linnulítið
frá því kommúnistar komust til
valda. Aðeins 69 samkunduhús
eru nú opin, en voru 5.000 árið
1917. Skólum þeirra hefur verið
lokað og að frátöldum nokkrum
bókum er út komu árið 1956 hafa
engin trúarrit verið gefín út frá
1917. Bannað er að kenna hebr-
esku og fjöldi gyðinga situr í
fangelsi fyrir þá sök eina að vilja
iðka trú sína.
Hér hefur verið stiklað á stóm
varðandi trúarhrejrfíngar í Sov-
étríkjunum og fátt eitt nefnt, en
ljóst er að langur vegur er frá því
að trúfrelsi sé í þessu víðlenda
ríki. Vesturlandabúar eiga erfítt
með að gera sér í hugarlund
hvílíkt helsi það er að mega ekki
iðka sína trú, en þeir munu án
efa fylgjast grannt með þeim
breytingum sem boðaðar em og
vonandi færa almenningi í Sov-
étríkjunum það sem við álítum
sjálfsögð mannréttindi, þar á með-
al trúfrelsi.
Stuðst víð: Liberiy, The Europa Year
Book 1986 o.fl.
Blaðburðarfólk
óskast!
AUSTURBÆR GRAFARVOGUR
Þingholtsstræti o.fl.
Sóleyjargata
Laufásvegur 2-57
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Gerðhamrar
Dverghamrar
Krosshamrar
Hesthamrar
Camp-let
Luxus gerðin GLX kemur á
13 tommu dekkjum.
Við óskum ykkur góðrar ferðar og vitum að
vagninn bregst ykkur ekki.
Verðið á herlegheitunum er kr. 188.000.-
með fortjaldi og eldhúsi.
Gísli Jónsson og Co. hf
Sundaborg 11, simi 686644.
Það tekur 3 mínútur að reisa þennan 17 fermetra
tjaldvagn með fortjaldi.
MEB EINU SIMTALI
er hægt að breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskrift-
argjöldin skuldfærð á
viðkomandi greiðslukortareikn
SÍMINNER
691140
691141
fRofjjuttbfaíiií)