Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ Stærsta kakaí heimi Síðasta hönd var lögð á stærstu köku í heimi á mánudag. Hún er laginu eins og kirkj- an í Arras í Frakklandi og gerð úr 6.120 eggj- um, 150 kílóum af hveiti og sykri og 200 lítrum af rjóma. Hópur ungmenna lagði fram 500 vinnu- stundir við gerð kökunn- Reuter. Ítálía; Var Giorgieri á dauða- lista Action directe mánuðum saman? Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins. RAUÐU herdeildirnar reyndu að myrða ítalska hershöfðingjann Licio Giorgieri í Róm fyrir tveimur mánuðum og er talið að hann hafi verið á dauðalista frönsku hryðjuverkasamtakanna Action directe frá því í upphafi þessa árs. Ónafngreindur hermaður hefur sagt við yfirheyrslur að í janúar síðastliðnum hafi tveir menn á vél- hjóli miðað skammbyssu á Licio Giorgieri, ítalska hershöfðingjann, sem skotinn var til bana í síðustu viku. Hermaðurinn var einn þeirra sem stöðvuðu mennina tvo í janúar og kom þannig í veg fyrir að þeir myrtu hershöfðingjann. Frásögn af vitnisburðinum kom fram í dag- blaðinu La Stampa í gær, þar sem ennfremur er gefið í skyn að nafn Giorgieris hafi verið ofarlega á „dauðalista“ Action direct, sem fannst I Orléans í febrúar síðastliðn- um, er fjórir meðlimir frönsku hryðjuverkasamtakanna voru hand- teknir. Auk tilræðisins í janúar mun hafa verið gerð önnur tilraun til að ráða Giorgieri af dögum í febrúar, er ökumaður Pandab-bifreiðar reyndi að stöðva bifreið hershöfð- ingjans með því að flauta og gefa einkabílstjóra Giorgieris merki um að stöðva bifreiðina. Sagt er að hershöfðinginn hafi ekki tekið tilræði þessi alvarlega og var fjölskyldu hans til dæmis ókunnugt um þau. Þessar fréttir hafa enn ekki verið staðfestar, en dagblaðið La Stampa sagði í for- síðufrétt í gær: „Ef þetta er rétt, hvernig stendur á því að ábyrgðar- manni flughernaðardeildarinnar var ekki gert viðvart og af hverju voru viðeigandi varúðarráðstáfanir ekki gerðar?" Itölsk yfirvöld hafa neitað að staðfesta fréttina um að Giorgieri hafi verið á áðurnefndum „dauða- lista“, en umræður um þetta mál fóru fram í ítalska þinginu í gær. í fréttabréfi rauðu herdeildanna sem kom út í gær segir um ástæð- una fyrir morðinu á Giorgieri að hann hafi verið myrtur vegna ábyrgðar á þátttöku ítala í „stjörnu- stríðsáætluninni og til heiðurs Wilmu Monaco", en hún lét lífið í skotbardaga sem átti sér stað í kjöl- far árásar á fjármálaráðunautinn Antonio Da Empoli fyrir ári. Portúgal: Stj óniarkieppa yfirvofandi? Lissabon, AP. TALSMAÐUR Lýðræðislega endursköpunarflokksins í Port- úgal, Herminio Martinho lýsti því yfir í dag, að flokkurinn ætlaði að leggja fram vantrauststillögu á stjórn Anibal Cavacou Silva I næstu viku, og vonandi næði hún fram að ganga og stjórnin væri Reuter þá tilneydd að fara frá.Tillagan verður tekin til umræðu í næstu viku. Ef svo fer verður Mario Soares forseti að velja nýjan mann til að mynda ríkisstjórn. Cavacou Silva hefur verið í forsvari minnihluta- stjórnar Sósialdemókrata í sautján mánuði. Amóta vantrauststillögur hafa leitt til falls 15 ríkisstjórna frá því lýðræði var endurreist í landinu árið 1974. Lýðræðislegi endursköpunar- flokkurinn, sem oft er kallaður Eanistaflokkurinn, hefur 45 sæti á portúgalska þinginu. Einatt hefur flokkurinn varið stjórnina falli í atkvæðagreiðslum síðan hún tók við völdum. Það hefur vakið nokkra furðu, að vantrauststillagan skuli vera lögð fram einmitt nú,þegar Mario Soares forseti, er að leggja upp í tólf daga opinbera heimsókn til Brazilíu. Vitor Constancio, form- aður Sósialistaflokksins, en sá flokkur hefur 57 sæti á þinginu, vildi ekki, að svo stöddu tjá sig um, hvernig þingmenn flokks hans myndu greiða atkvæði. Fengju Sós- ialdemókratar stuðning Sósialista og Miðdemókrata myndi stjórnin halda velli. Martinho sagði, að ástæðan fyr- ir vantrauststillögunni væri alvar- legur trúnaðarbrestur, sem væri kominn upp milli þings og stjómar. Málavextir eru þeir, að portúgölsk þingmannanefnd var fyrir skömmu í heimsókn í Sovétríkjunum. Portú- galska ríkisstjómin sendi nefndinni fyrirmæli um, að fara ekki til Eist- lands í ferðinni, eins og var á dagskrá gestgjafanna. Nefndin af- lýsti Eistlandsferðinni, eins og fyrír hana hafði verið lagt. Stjórnarand- staðan er gröm yfir því, að stjómin skyldi ekki hafa samráð við hana zum málið, áður en nefndinni voru send þessi fyrirmæli. Sjónvarpstrúboðinn Oral Roberts (t.v.) heilsar bandaríska milljóna- mæringnum Jerry Collins. Myndin var tekin þegar sá síðarnefndi færði trúboðanum ávísun að upphæð 1,3 milljónir dollara sem fram- lag í söfnun. V-Þýzkaland: Náðu heró ini fyrir milljarð Dortmund, AP. VESTUR-þýzka lögreglan lagði fyrir nokkrum dögum, hald á 51 kíló af heróini, sem að söluverðmæti hefði verið um milljarður ísl. króna. Frá þessu var skýrt í dag. Eitrið hafði verið falið undir ávax- tafarmi í tyrkneskum vöru- flutningabíl. Þetta er mesta magn heróins, sem lögreglan í Vestur-Þýzkalandi hefur nokkru sinni komið höndum yfir. Allmargir þeirra sem eru grunaðir um að eiga aðild að þessum mikla heróinflutningi eru taldir vera í felum í Amst- erdam. Sjö hafa verið hand- teknir og er búizt við að lögreglu takist að grípa fleiri á næstunni. Bílstjórinn hefur sömuleiðis verið fangelsaður. Hann er ekki talinn höfuð- paurinn í málinu, heldur hafí honum verið greitt há fjárupp- hæð fyrir að leyfa að heróinið væri sett undir ávextina. Afangastaður bifreiðarinnar var Amsterdam. Heitir 52 milljónum • • i i | á sjónvarpstrúboða gOYÍg reyndllSt Vel Milljónamæringur hefur heitið 1,3 miljónum dollara, eða 52 millj. ísl. kr., á sjónvarpstrúboða, sem segir að Guð muni drepa sig ef hann ljúki ekki ákveðinni fjár- söfnun fyrir mánaðamótin. Milljónamæringurinn, hinn 79 ára Jerry Collins, sagðist hafa feng- ið samúð með sjónvarpstrúboðanum Oral Roberts, sem setti sér það tak- mark að safna átta milljónum dollara til greiðslu skólastyrkja við læknaskóla, sem hann stofnaði. Roberts sagði að Guð hefði gefíð sér frest til að ljúka söfnuninni fyr- ir marzlok. „Hann mun kalla mig heim ef ég klára ekki dæmið fyrir þann tíma,“ sagði Roberts í einni sjónvarpsræðu sinni. Collins sagði augljóst að trúboðinn þyrfti á að- stoð geðlækna að halda. Collins er fyrrverandi lögreglu- þjónn og varð hann miljónamæring- ur á því að kaupa og selja veðhlaupabrautir. London, AP. FYRSTU körtumar í skóginum við þorpið Hambleden vöknuðu af dvala í fyrradag og lögðu þegar af stað í átt til nærliggjandi vatns til að verpa eggjum sínum. Fóru þær flestar um sérstök göng, sem dýravinir höfðu grafið undir veg, sem körtumar þurfa að fara yfir á leiðinni til vatnsins. Félagar í samtökum, sem láta verndun dýra- og jurtaríkisins til dalltsín taka, voru mættir á staðinn til mlisað fylgjast með körtunum, en þær fyrstu fóru á stjá. Fögnuður þeirra var innilegur þegar fyrstu körturnar fóru í gegnum göngin í stað þess stofna lífi sínu í hættu með því að æða út á veginn. Alls vöknuðu um 800 körtur af dvala og fóru þær yfir á vatnið frá sólarlagi í fyrradag þar til roðaði á himni í gær. Talið er að margfalt fleiri körtur séu enn í dvala í skógin- um við Hambleden, sem er lítið þorp við Tempsána, um 55 kíló- metra vestur af London. Þótt flestar körturnar færu í gegnum gönginn fannst mörgum þeirra helzt til kalt í þeim og sneru til baka. Viðstaddir dýravinir sviptu þeim samstundist upp í fötur og báru þær þannig á leiðarenda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.