Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
27
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Við styðjum kennara og stöndum með þeim, sögðu Sigurlaug Sigur-
jónsdóttir Margrét Helga Hjartardóttir sem báðar eru í MH.
Morgunbiaðið/RAX
Framhaldsskólanemendur þeyttu bílflautur í Reykjavík í gær i
mótmlaskyni, svo ákaft að mörgum þótti nóg um.
nú ríkti sagði hún að óánægja með
laun virtist hafa verið að smá hlaða
utan á sig lengi og staðan nú væri
ekki endilega þessari ríkisstjórn að
kenna. „Ég heyrði það í útvarpinu
áðan að það væri varla óhætt að
fá botnlangabólgu því innan
skamms væri ekki hægt að taka á
móti blóðgjöfum. Það er eins og
þetta sé allt skyndilega að springa,"
sagði Sigurlaug.
„Ef þetta verður mikið lengur
fell ég í meirihlutanum af fögunum,
ef það verða þá einhver próf, sagði
Kári Valur Sigurðsson nemandi á
fyrsta ári í Flensborgarskóla. Kári
sagðist samt standa með kennurn-
unum í baráttunni. „Þeirra barátta
Framhaldsskólanemendur létu fara vel um sig í andyri og stigum í
fjármálaráðuneytinu í gær.og sumir þeirra dvöldu þar í nótt.
er sanngjöm því kennarastéttin er
undirstaða þjóðfélagsins,“ sagði
Kári.
Þorsteinn Pálsson ijármáraráð-
herra ávarpaði nemendurna
skömmu eftir hádegið og sagði
meðal annars að samninganefnd
ríkisins hefði fyrir sitt leyti reynt
að vinna að þessu máli á þann veg
að það fengist sem skjótast lausn.
Búið væri að gera samninga við
ýmis félög sem væru flestir á þeim
grundvelli sem almennt hefði verið
lagður í þjóðfélaginu og ríkið vildi
auðvitað gera samninga við kenn-
ara á þeim grundvelli. „ÞÓ höfum
við gert nokkuð betur því það er
samkomulag í þeim viðræðum um
að endurskoða launakerfi kennara
og vonast er til að hægt verði að
fúllvinna nýtt launakerfi og byrja
að nota það næsta haust. En við
vonum öll að þessi deila leysist sem
fyrst því eldurinn brennur fyrst og
fremst á ykkur og það eru ykkar
hagsmunir sem eru í húfi,“ sagði
Þorsteinn.
Þorsteinn bauð síðan sendinefnd
nemendanna að hitta samninga-
nefnd ríkisins að máli til að
samninganefndin gæti skýrt fyrir
nemendunum einstök atriði þeirra
tilboða sem gengið hafa á milli ríkis
og kennara.
Hluti nemendanna var enn í fjár-
málaráðuneytinu þegar húsinu var
lokað í gær. Að sögn starfsmanns
þar voru tekin niður nöfn og síma-
númer þeirra sem ætluðu að dvelja
í anddyri hússins í nótt til að láta
aðstandendur þeirra vita.
Fell í meirihlutanum af fögunum
ef þetta gengur svona lengur,
sagði Kári Valur Sigurðsson
nemandi í Flensborgarskóla.
Árbók kirkj-
unnar1986
ÁRBÓK kirkjunnar er komin
út öðru sinni. Það er og 4.
hefti Kirkjuritsins. Árbókin
safnar saman upplýsingum og
heimildum sem að gagni koma
í starfsemi kirkjunnar frá ári
til árs.
Biskup ísalands, herra Pétur
Sigurgeirsson, fylgirÁrbók kirkj-
unnar 1986 úr hlaði og segir þar
m.a. að þegar þess sé gætt að
Kirkjuritið hafí um hálfrar aldar
skeið verið það tímarit sem öðrum
ritum fremur hafi gegnt hlutverki
árbókar, fari vel á því að útgáfan
sé í tengslum yið þetta málgagn
Prestafélags íslands sem hóf
göngu sína 1935.
1 ritinu er m.a. birt ræða bisk-
ups við setningu Prestastefnu
1986 og íjallað um Prestastefn-
una, Kirkjuþing 1986. Þá er í
Árbókinni að finna leiðbeiningar
fyrir leikmenn í safnaðarstarfi
og skrá yfír allar 284 sóknar-
nefndir landsins og sóknarnefnd-
armennina sem eru 1236 talsins..
Árbók kirkjunnar er gefin út
af Biskupsstofu og ritstjóri henn-
ar er sr. Bemharður Guðmunds-
son, fréttafulltrúi.
Mclsölublað á hverjum degi!
T7T?TSrTSrCrr 'RTT T ZVTVJ
PU J-/YPÍ
með lánslgaravísitölu
úr Byggingarsjóði ríkisins?
Efsvoer: FÉKKSTU ÞAÐ FYRIR 1. SEPTEMBER 1983?
Efsvoer: GREIDDIRÐU LÁNIÐ UPP EÐA SELDIRÐU
EIGNINA Á TÍMABILINU FRA 1. SEPTEMBER
1983 TIL 1. FEBRÚAR 1987?
Ef svoer: PA ATT
SJ’’
0f€
:
■m
Frá og með 1. febrúar 1987 voru grunnvísitölur þessara
lána hækkaðar með staðlinum 1,0288, þannig að
eftirstöðvar lánanna með verðbótum lækka um 2,8%.
Svarir þú öllum þremur spurningunum hér að ofan
jatandi, þá skaltu senda sölusamning eða greiðsluseðil,
sem sýnir aðjánið hafi verið greitt upp, til Veðdeildar
Landsbanka íslands, Laugavegi 77 fyrir 1, apríl nk.
^Húsnæðisstofiiun ríkisins
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK