Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
óó
Albert Guðmundsson:
„Besti leikurinn ekki
alitaf að kjafts-
höggva til baka“
Albert getur ekki orðið
ráðherra segir Þorsteinn
Þorsteinn Pálsson er ekki ein-
ráður, segir Albert
Þorsteinn Pálsson sagöi í við-
talsþættinum í eldlínunni á
Stöð 2 í gærkvöldi að það lægi
í augum uppi að Albert Guð-
mundsson gæti ekki orðið
ráðherra á ný. Þessi ummæli
formanns Sjálfstæðisflokksins
voru borin undir Albert í við-
tali við sjónvarp ríkisins. Fara
ummæli Þorsteins annars veg-
ar og Alberts hins vegar
orðrétt hér á eftir.
Þorsteinn Pálsson í
Eldlínunni
Páll Magnússon: Kemur til greina
að Albert verði aftur ráðherra?
Þorsteinn Pálsson: Það segir
sig nú sjálft eftir atburði dagsins
í dag. Ég veit að ég þarf ekki að
svara þeirri spumingu.
Páll Magnússon: Felst neitun í
þessu?
Þorsteinn Pálsson: Það liggur
í augum uppi að það getur ekki
orðið.
Ólafur Friðriksson: Er það rétt
skilið að þetta sé nei?
Þorsteinn Pálsson: Ég svara því
á þann veg. Það þarf ekki að fara
fleiri orðum um það á þessum
degi.
Albert í viðtali við
ríkissjónvarpið
Ingvi Hrafn Jónsson: Þorsteinn
sagði í viðtali á Stöð 2, Albert
verður ekki ráðherra aftur í Sjálf-
stæðisflokknum. Breytir þetta
einhverju?
Hvernig getur einn formaður
núna tekið ákvörðun langt fram
í tímann? Hvemig í ósköpunum
er það hægt? Þama talar Þor-
steinn óvarlega vegna þess að —
hann er jú ungur formaður og
allt það — hann er ekkert einráð-
ur og aðstæður geta breyst. Það
er svo margt, sem getur komið
fyrir. Það geta verið allt aðrir
menn en hann, sem ráða ráð-
herralista. Við megum ekki gera
ráð fyrir því að allt sé óbreytan-
legt. Það má ekki gera ráð fyrir
því. í pólitík er allt breytilegt frá
degi til dags, frá einum degi til
annars. Þú getur haft þessa skoð-
un núna, svo hittir þú einhvem
andstæðing og hann talar við þig
í tvær, þijár mínútur og þá ert
þú kominn með allt aðra skoðun.
Þetta er svo breytilegt.
Hallur Hallsson: Ertu þá ekki
að einangrast í flokknum?
Albert Guðmundsson: Það ein-
angrar mig enginn í flokknum.
Hvemig í ósköpunum ætla þeir
að einangra mig? Það hefur ekki
verið reynt.
Hallur Hallsson: En samkvæmt
þessum orðum Þorsteins: hann
verður ekki ráðherra í Sjálfstæðis-
flokknum?
Albert Guðmundsson: Hann
getur ekki sagt svona. Hann veit
það sjálfur ef hann hugsar málið.
Það getur enginn sagt hvað verð-
ur. Enginn maður, sem ég þekki,
getur sagt hvað á eftir að koma
fyrir. Eins og ég er settur út í
dag, þá getur verið að þeir þurfí
á mér að halda næst.
en hins vegar möguleikinn á því
að það verði friður og ólguna
lægi kannski eitthvað," sagði ‘
Albert þegar Morgunblaðið
spurði hvers vegna hann hefði
ákveðið að undirrita lausnar-
beiðni sína á þingflokksfundinum
í gær.
„Ef ég verð neyddur til þess
að fara út í sérframboð, þá getur
Sjálfstæðisflokkurinn særst
þannig sárum, að þau grói ekki
í langan tíma,“ sagði Albert. „Ef
ég get, með því að fóma ein-
hveiju af sjálfum mér, komið í
veg fyrir það, þá vil ég reyna það
áður en farið er út í stríð, ef það
kemur í veg fyrir styrjaldar-
ástand."
Albert var þá spurður hvort
hann teldi, miðað við þann ham
sem stuðningsmenn hans væm í
nú, að hann gæti sannfært þá
um að sérframboð væri ekki rétt-
ur leikur: „Ég stórefast um að
ég geti sannfært þá, en á löngum
starfsferli, hvort sem það er í
íþróttum eða pólitík, þá er það
ekki alltaf besti leikurinn að
kjaftshöggva til baka,“ sagði Al-.
bert Guðmundsson.
Jón Baldvin
Hannibalsson:
Ekki eitt
einasta orð
JÓN Baldvin Hannibalsson vildi
ekkert segja um afsögn Alberts
Guðmundssonar, þegar Morgun-
blaðið sneri sér til hans í gær.
„Ég vil ekki láta hafa eftir mér
eitt einasta orð,“ sagði formaður
Alþýðuflokksins.
Morgunblaðið/Einar Falur
ð í tæpa tvo tima í gær, en Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
íar þegar 40 mínútur voru liðnar af fundinum.
Starfsmenn iðnaðarráðuneytisins
honum samstarfið.
nokkuð tekið mark á því,“ sagði
Albert.
Albert var spurður hvort hann
hefði staðið frammi fyrir tveimur
kostum, þ.e. að biðjast lausnar eða
vera látinn víkja: „Ég stóð frammi
fyrir tveimur kostum,“ sagði Al-
bert, „og ég stend frammi fyrir
tveimur kostum og alla mína ævi
hef ég staðið frammi fyrir því að
velja og hafna.“
Albert var spurður hvort hann
liti þannig á að pólitískum ferli
hans væri nú að ljúka: „Hann er
rétt að byija,“ sagði Albert.
Albert var spurður hvort stuðn-
ingsmenn hans hefðu sótt um
listabókstafínn S í gær: „Þú ert að
segja mér fréttir," sagði Albert og
bætti við: „Það kemur mér ekkert
á óvart ef þeir hafa sótt um lista-
bókstaf, því það brennur eldur í
æðum þeirra um þessar mundir.
Spurningin er hvort hann verður til
þess að skaða eða ekki.“
Albert var spurður hvort hann
teldi að stuðningsmenn hans myndu
leggja hart að honum að hafna því
að skipa fyrsta sætið í Reykjavík,
og fara fram í sérframboði: „Á þess-
ari stundu veit ég ekkert hveiju ég
á von á,“ sagði Albert, „en þessar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
héldu Albert Guðmundssyni lítið kaffihóf síðdegis í gær og þökkuðu
raddir hef ég heyrt hvaðanæva af
landinu, frá mjög mörgum." Hann
kvaðst á þessari stundu ekki vera
reiðubúinn að svara því hvort hann
yrði við þessum tilmælum stuðn-
ingsmanna sinna.
ALBERT Guðmundsson sagði
í samtali við Morgunblaðið í
gær, að hann hefði ekki
ákveðið fyrr en hann var
kominn inn á þingflokksfund
Sjálfstæðisflokksins kl. 16 í
gær að undirrita lausnar-
beiðni þá sem hann hann
lagði fram á fundinum. „Ég
undirritaði lausnarbeiðnina
hér í þingflokksherberginu,"
sagði Albert.
„Mér finnst ég standa á ör-
lagaríkum vegamótum, þar sem
annars vegar blasir við eldur og
ólga. Fólk er æst og það eru
margir særðir fyrir mína hönd,
Sveinn H. Skúlason, formaður fulltrúaráðsins:
„Búið að ákveða framboðslistann
og honum verður ekki breytt“
„ÞAÐ ER búið að ákveða fram-
boðslistann og honum verður
ekki breytt. Það verður því ekki
kallaður saman fundur fulltrúa-
ráðsins á nýjan leik,“ sagði
Sveinn H. Skúlason formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík í samtali við Morgun-
blaðið, þegar stjórnarfundi full-
trúaráðsins lauk í gærkveldi.
Sveinn sagði að hreinskiptnar
umræður hefðu farið fram á fundin-
um, en niðurstaðan hefði verið
einróma. „Ég held að frambjóðend-
ur í Reykjavík séu sammála því að
fylgja þeim ákvörðunum sem hér
voru teknar," sagði Sveinn. „Hér
var raunar ekki tekin ákvörðun um
neitt annað en það, að það sem
búið er að gera standi,“ sagði
Sveinn.
Sveinn vildi ekki upplýsa á hvaða
hátt skoðanir hefðu verið skiptar,
en ítrekaði að niðurstaðan hefði
verið með þeim hætti að allir fund-
armanna stæðu að henni. „Ég leyfi
mér að fullyrða að það er skoðun
þeirra sem sátu þennan fund,. að
þetta er héppilegasta niðurstaðan.
Það er hins vegar jafnljóst að það
var næstum sama hvaða ákvörðun
yrði tekin - hún myndi skapa ein-
hver særindi hjá einhveijum. Við
munum bara, eins og áður hjá þess-
um flokki, láta þau sár gróa,“ sagði
Sveinn H. Skúlason.
Sveinn H. Skúlason formaður
stjórnar fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.