Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
37
Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Dag:
Þau lesa dagblöðin nyrðra I
Sjónvarp
Akureyri
MIÐVIKUDAGUR 25. mars
§ 18.00 Morgunverðarklúbburinn
{The Breakfast Club). Bandarísk
kvikmynd frá 1985 með Judd
Nelson, Emilio Estevez, Molly
Ringwald, Anthony Michael Hall,
Ally Sheedy og Paul Gleason í
aðalhlutverkum. Fimm ólíkirtán-
ingar eru settir i stofufangelsi í
skólanum sinum. Þau kynnast vel
og komast að því að þau eiga
fleira sameiginlegt en bara prakk-
araskapinn.
19.40 Ferðir Gúllivers. Teiknimynd.
20.05 Bjargvætturin (Equalizer).
§21.00 Húsiðokkar(OurHouse).
§21.55
§22.30 Ástarþjófurinn (Thief of He-
arts). Bandarisk kvikmynd frá
1984. Dagbók ungrar konu er
stolið. Þjófurinn les dagbókina og
langar til að kynnast höfundinum
nánar. Mynd þessi er ekki við
hæfi barna. Aöalhlutverk eru leikin
af Barbara Williams, Steven Bauer
ogJohnGets.
00.15 Dagskrárlok.
„Frægu stólarnir fyrir VMA:
Ekki smíðaðir hjá Kótó
NÚ ER ljóst að Kótó sf. mun
ekki framleiða stóla fyrir Verk-
menntaskólann á Akureyri. Hér
er um að ræða „fræga" stóla —
mikið var rætt um þá á sínum
tíma þegar jafnvel stóð til að
kaupa þá erlendis frá.
Núverandi eigendur Kótó sf. eru
að hætta starfsemi og óskaði fyrir-
tækið því eftir að losna frá samningi
um smíðina. Árni Árnason, hönnuð-
ur stólsins, hefur áhuga á að
Trésmiðjan Þór taki að sér verkefn-
ið.
Það er Form hf. sem gerir frum-
eintak stólsins og verður það tilbúið
til styrkleikaprófunar 1. maí.
Atvinnumálanefnd Akureyrar
hefur lagt til að þegar styrkleika-
prófun stólsins liggur fyrir verði
gengið til samninga við Þór hf. um
mögulega smíði stólsins.
Starf smannaf é-
lagið samþykkir
samningana:
1 lh til 16%
hækkun
FÉLAGAR í STAK, Starfs-
mannafélagi Akureyrarbæjar,
samþykktu fyrir helgi nýgerðan
kjarasamning við bæinn. 154
greiddu samningnum atkvæði
sitt, 117 voru á móti og 11 seðlar
voru auðir. 615 voru á kjörskrá
en 282 greiddu atkvæði.
Samningurinn felur í sér tals-
verða tilfærslu á milli launaflokka;
segja má að hann feli í sér tveggja
launaflokka hækkun. Þeir lægst
launuðu hækka mest en hækkanir
eru allt frá V/t% upp í 16%. Samn-
ingurinn gildir frá síðustu áramót-
um og er til tveggja ára, til ársloka
1989. Samningnrinn gerir ráð fyrir
2% hækkun 1. mars síðastliðinn,
1,5% hækkun 1. júní og 1,5% hækk-
un 1. október í haust.
Starfsvika ogskóla-
skemmtun í Glerárskóla
STARFSVIKA var haldin í Glerárskóla í síðustu
viku. Þetta er orðinn árlegur viðburður — nem-
endur taka sér frí frá venjulegu námi um tíma
og huga að öðru. Nú var til dæmis rekin út-
varpsstöð, gefið út blað og sitthvað fleira. í lok
þessarar starfsviku var síðan haldin skóla-
skemmtun, og var hún í tvo daga. Guðmundur
Svansson mætti á skólaskemmtunina og tók
meðfylgjandi myndir fyrir Morgunblaðið og
segja þær vonandi meira en mörg orð um þessa
skemmtun krakkanna.
Dagur og Morgunblað-
ið útbreiddustu dag-
blöðin á Norðurlandi
FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN
Háskóla íslands gerði nýlega
könnun á útbreiðslu dagblaða á
Norðurlandi fyrir Dag á Akur-
eyri. Samkvæmt henni er Dagur
útbreiddasta dagblaðið á Norð-
urlandi eystra og Morgunblaðið
á Norðurlandi vestra. 50,7%
Norðlendinga, á aldrinum 18—75
ára, sjá Dag daglega, 38,4%
Morgunblaðið, 33,2% DV, 13,6%
Timann, 7,7% Þjóðviljann og
2,4% Alþýðublaðið.
Niðurstöður könnunarinnar fyrir
Norðurland eystra eru þessar: Dag
sjá 60,5% daglega, 22,3% nokkrum
sinnum í viku og 17,2% sjaldnar.
39,9% fólks sér Morgunblaðið dag-
lega, 22,3% nokkrum sinnum í viku
og 37,8% sjaldnar. DV sjá 33,2%
daglega, 30,6% nokkrum sinnum í
viku og 36,2% sjaldnar. Tímann sjá
12,9% daglega, 13,4% nokkrum
sinnum í viku og 73,3% sjaldnar.
8,2% sáu Þjóðviljann daglega, 8,2%
nokkrum sinnum og 83,2% sjaldn-
2,4%
7,7%
Hlutfall íbúa, 18 til 75 ára,
sem sjá dagblöðin á
hverjum degi í
Norðurlandskjördæmun,
13 6% eystra og vestra.
33,2%
38,4%
ar. Alþýðublaðið sér 2,6% daglega, lega, nokkrum sinnum í viku eða
1,7% nokkrum sinnum í viku og sjaldnar?
95,2% sjaldnar.
Á Norðurlandi vestra sjá 34,8%
fólks Morgunblaðið daglega, 21,1%
nokkrum sinnum í viku og 43,7%
sjaldnar. DV sjá 33,3% daglega,
24,8% nokkrum sinnum í viku og
41,9% sjaldnar. 27,1% sjá Dag dag-
lega, 30,9% nokkrum sinnum í viku
og 41,3% sjaldnar. Tímann sjá
15,2% daglega, 15,2% nokkrum
sinnum í viku og 68,1% sjaldnar.
6,7% sjá Þjóðviljann daglega, 11,9%
nokkrum sinnum í viku og 79,6%
sjaldnar. 1,9% aðspurðra á Norður-
landi vestra sjá Alþýðublaðið
daglega, 1,9% nokkrum sinnum í
viku og 93,7% sjaldnar.
Könnunin náði til 650 manns á
Norðurlandi, á aldrinum 18 til 75
ára. 77,5% aðspurða svöruðu. Spurt
var: Ég les nöfn dagblaðanna í staf-
rófsröð og langar að spyija þig
hvort þú sjáir hvert dagblað dag-
þJÓÐVILJINN
llminn
DAGUR
i