Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 40
40______________MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ Verkfall HÍK eftir Þorstein Alexandersson Hluti af kennurum landsins er nú í verkfalli til þess að betjast fyrir bættum kjörum. Nú eru breyttir tímar frá því að kennara- starfið var virt starf og metið að verðleikum. Ekki eru mörg ár síðan alþingismenn miðuðu laun sín við framhaldsskólakennara og þótti sómi að. í dag eru laun alþingis- manna rúmlega tvöfalt hærri og þó er árlegur starfstími þingsins allnokkru styttri en skólanna. Nú vil ég ekki fara lengra út í saman- burð á þingmannslaunum og kennaralaunum en ég tel að flestir séu sammála um að þingmenn eigi að vera vel launaðir, til þess að tryggja mannval á þingi. Hið sama á að gilda um skólana. í starfi mínu sem kennari undan- farin ár hef ég fundið fyrir miklum áhuga flestra foreldra fyrir mennt- un barna sinna, þe. að hún verði sem best. Þeir hafa um leið lýst áhyggjum sínum hvert stefni með launakjör kennara. Sem foreldri segi ég að ég vil eins og flestir að menntun minna bama verði sem best og að þau verði af skólans hálfu vel undir lífið búin. Að mínu mati er besta leiðin til þess sú að laun kennara séu það há að þau verði eftirsóknarverð af vel menntuðu hæfileikafólki. Margt hefur verið sagt um laun kennara undanfarið og hafa margar tölur um laun komið kennumm á óvart. Kennarar í HÍK hafa misjöfn laun eftir því hvort þeir kenna við gmnnskóla eða framhaldsskóla. Þeir sem kenna við gmnnskóla hafa fyrir fullt starf rétt rúmlega 33.000 kr. sem byrjunarlaun og eftir 18 ára starf fá þeir kr. 45.320 í mánað- arlaun. Það er alltaf erfítt að verðleggja menntun, en til að fá þessi laun verða menn að hafa 3ja ára háskólanám til mega kenna í grunnskóla. Lágmarksmenntun til þess að mega kenna í framhaldsskóla er BA- eða BS-próf sem er 3ja til 4ra ára háskólanám. Margir kennarar hafa þar fyrir utan magister-próf. Þótt ávallt sé matsatriði hvað hver stétt þjóðfélagsins á að fá fyrir vinnu sína held ég að flestir sann- gjamir menn sjái nauðsyn þess að bæta kjör kennara landsins. Þó ekki sé nema vegna þess að við verðum að byggja alla okkar fram- tíð á velmenntuðu fólki. Ef stéttin má horfa á eftir stómm hópum hæfileikafólks til betur launaðra starfa er menntun og menning þjóð- arinnar í hættu. Því hefur verið haldið á lofti undanfarið af samninganefnd ríkis- ins að meðallaun framhaldsskóla- kennara séu um 70 þúsund kr. á mánuði. Til þess að fá þessa tölu er reiknuð öll yfirvinna allra kenn- ara, en margir kennarar vinna mikla yfirvinnu m.a. í öldunadeild- um (kvöldvinna). Auk þess em lögð við þetta öll laun skólameistara og skólastjóra en þessir hópar hafa hærri laun en almennir kennarar. Nokkurs ókunnugleika hefur gætt meðal fólks þegar rætt er um vinnu- tíma kennara og er þar að nokkm leyti við okkur kennara sjálfa að sakast, við höfum ekki útskýrt nógu vel hvað í starfinu felst annað en bein kennsla. Kennsluskylda kenn- ara er 26 til 30 (18 til 24 stundir á Norðurlöndum) stundir á viku, en kennslan sjálf er aðeins um helmingur af þeirri vinnu sem kenn- arar vinna. Annað sem í starfinu felst er undirbúningur undir kennsl- una, úrvinnsla og yfirferð verkefna, kennarafundir, viðtöl við foreldra og oft samning námsefnis sem stundum er ekki fyrir hendi. Undir- búningur fyrir kennslu er alltaf í endurskoðun vegna þess að sama námsefni og námshraði henta ekki öllum. Þegar þetta allt saman er ljóst kemur í ljós að vinnutími kennara er mun meiri en 50 klukkustundir miðað við fullt starf. Kennarar fá ekki greitt nema fyrir lítið brot af þeirri heimavinnu sem þeir vinna en líta má á að hluti þessarar vinnu sé í raun greiddur að sumri, þegar skólar starfa ekki. Hinu má ekki Þorsteinn Alexandersson gleyma að kennarar eiga lögbundið sumarfrí eins og aðrir, en með hlið- sjón af framansögðu mætti velta því fyrir sér hversu óeðlilegt vinnu- álag er á kennurum meðan á skólatíma stendur. Stærstur hluti kennara notar sumarið til þess að fara á endurmenntunarnámskeið sem og til þess að undirbúa kennslu næsta skóiaárs. Einn mikill kostur við kennarastarfið er að mínu mati sá að kennarar geta hagrætt vinnu- tíma sínum þannig að þeir taka vinnu sína með sér heim að lokinni kennslu og viðveru í skólanum dag hvem. Þegar heim er komið tekur við 2ja til 4ja klukkustunda vinna við undirbúning og yfirferð verk- efna. Fijálsræðið sem felst í því að kennarar geti unnið undirbúnings- vinnu og farið yfir verkefni hvenær sem er sólarhrings tel ég mikils virði. Nefna má í þessu sambandi að þetta fyrirkomulag sparar ríkinu stórar upphæðir, sem færu í það að koma upp vinnuaðstöðu, en eins og menn vita komast ekki einu sinni allir nemendur sumra skólanna fyr- ir samtímis í skólanum. Það starf, sem fer fram fer í skólunum, er mjög viðkvæmt og þess vegna eru verkföll neyðarúr- ræði, eina leiðin til þess að koma í veg fyrir þau er að hækka laun kennara myndarlega þannig að kennarar geti einbeitt sér að sínu mikilvæga starfí um ókomin ár. Fleiri en einn kennari hefur sagt við mig að ef kjörin batni ekki veru- lega muni þeir snúa til betur launaðrar vinnu. Þetta er sérstak- lega hættulegt þar sem töluverð þensla ríkir nú á vinnumarkaði og eftirspum eftir vel menntuðu fólki er meiri en framboð. Að lokum vil ég láta í ljós þá von að mennta- og fjármálaráðherra beiti sér af öllum mætti í anda sam- þykktar um skólamál sem gerð var á nýafstöðnum landsfundi Sjálf- stæðisflokksins. Allar stéttir verða að gæta þess að framtíð þjóðarinnar er falin í góðu menntakerfi. Gott mennta- kerfí verður ekki byggt upp nema að allir standi saman að uppbygg- ingu þess og beijist undir kjörorðinu stétt með stétt. Höfundur er kennari í Reykjavík. Foreldrar - greiðum vel- ferð bama okkar atkvæði 0 •• eftir Jenny Onnu Baldursdóttur Nú dregur að kjördegi. Við kjós- endur gerum upp hug okkar á þessum síðustu vikum og nú ríður á að vanda valið. Mikið er rætt þessa dagana um verðbólgu, við- skiptahalla, erlendar lántökur og því um líkt. Hinn félagslegi, mann- legi þáttur er samt sá málaflokkur sem snertir okkur mest og því ekki síður mikilvægur þar sem andleg og líkamleg vellíðan okkar stendur og fellur með því að þau mái séu í góðum höndum. Hvernig er nú ástand þessara mála nú á útmánuð- um árið 1987? Það er ekki úr vegi að íhuga það vel áður en gengið er inn í kjörklefann og jafnframt velta fyrir sér horfunum að kosn- ingum loknum. Kjósum við með velferð okkar sjálfra og barn- anna okkar að leiðarljósi? Hvað líður ástandi eftirtalinna mála í dag, svona rétt fyrir kosning- ar? Skóla-, dagvistunarmál og rétt- indamál bama, umhverfísvernd- unarmál, öryggismál. Skóla- og dagvistunarmál á ís- landi eru, því miður, í fremur bágbomu standi. Skólarnir tví- og þrísetnir, skólamáltíðir eitthvað sem maður lætur sig dreyma um og engin viðvera skólabarna er fyr- FRÆÐSLUFUNDIR um frá- veitu- og vatnsiagnakerfi i húsum var haldinn föstudaginn 13. mars sl. í húsakynnum Bygg- ingaþjónustunnar að Hallveig- arstíg 1 í Reykjavík. Annar fræðslufundur um sama efni verður haldinn föstudaginn 27. mars nk. á sama stað. Fundurinn 13. mars sl. var á ir hendi eftir skóla, með ábyrgum aðila. Þetta viðgengst þrátt fyrir að meirihluti foreldra vinni úti allan daginn. Dagvistunarmálin eru í svipuðu horfi og það í þjóðfélagi sem sökum láglaunastefnu neyðir báða foreldra út á vinnumarkaðinn. Það ættu að vera sjálfsögð rétt- indi allra foreldra, bæði heima- og útivinnandi, að eiga þess kost að koma bömum sínum á dag- heimili til að börnin geti í hópi jafnaldra notið samvista undir handleiðslu faglærðs fólks. Oft heyrir maður talað um dag- og leik- skólavistun eins og eitthvað neyðar- úrræði „stofnanir þar sem börnum er hent inn á til geymslu". Þetta er löngu úrelt sjónarmið, sem er vatn á myllu íhaldsaflanna sem vilja konuna inn að eldhúsvaski um leið og þörfin eftir vinnukrafti úti í þjóð- félaginu minnkar. Velmegunarþjóðfélagið sýnir síðan skilning sinn á nauðsyn skóla og dagvistunarheimila með því að borga kennurum og fóstr- um slík smánarlaun að hvergi í Evrópu finnst nokkur hliðstæða. Islenskt þjóðfélag er fjand- samlegt börnum. Því miður þá er það staðreynd að öll mál sem tengjast börnum og þeirra rétt- indamálum eru i molum. Þessi afskipti hópur, sem á að taka við landinu innan fárra ára, á sér ansi fáa málsvara og börnin vegum Endurmenntunarnefndar Háskóla Islands og var haldinn með stuðningi Staðaldeildar Iðntækni- stofnunar og Lagnafélags íslands. Mörg erindi voru flutt á fundinum. Jóhannes Þorsteinsson, deildarstjóri Iðntæknistofnun, flutti erindi Sig- urðar P. Kristjánssonar, tæknifræð- ings, í forfölium hans um lagnastaðla ÍST 67 og 68. Þráinn sjaldan eða aldrei höfð með í ráðum þegar um þeirra mál er fjallað. Þetta er vert íhugunar- efni, hvað verður um börnin eftir kosningar? Það er undir okkur sjálfum komið. Umhverfísverndun er stór málaflokkur þar sem um- ferðaröryggi bama er einn liðurinn. Þar ríkir sama vanþróunin og í skóla- og dagvistunarmálum. Það er búið í haginn fyrir blikkbeljumar enda eni þær okkar heilögu kýr en umferðaröryggi gangandi vegfar- enda, sem að stærstum hluta eru börn, er lítið sinnt. Ein er sú stað- reynd, sem lítið hefur verið haldið á loft, og hún er sú að tíðni um- ferðarslysa er sú langhæsta á íslandi miðað við alla Evrópu. Held- ur nöturlegur sannleikur, ekki satt? Við foreldrar verðum að treysta á guð og gæfuna á meðan bömin okkar koma sér úr og í skóla. Mér dettur helst í hug línudansari án öryggisnets. Það eina sem hægt er að gera honum til hjálpar er að halda niðri í sér andanum og vona það besta. Umhverfísvemdun al- mennt er málaflokkur sem fólk tengir ekki íslandi. Þó koma þau okkur ekki síður við en öðrum þjóð- um þar sem mengun og úrgangur virða ekki nein landamæri. Allar þjóðir eru jafn berskjaldaðar fyrir mengun og hvor annarri háðar um hvemig til tekst. Okkur ber því að axla ábyrgð í samfélagi þjóðanna á Karlsson, verkfræðingur, flutti er- indi um hönnun fráveitulagna og um notkun IST 68 og Guðmundur Gunnarsson, verkfræðingur, um brunaþol lagna og um brunaþolnar þéttingar meðfram þeim. Einar B. Pálsson, prófessor, ræddi um störf orðanefndar byggingaverkfræðinga og Pétur Sigurðsson, efnafræðing- ur, um efnisval í vatns- og fráveitu- Jenny Anna Baldursdóttir „íslenskt þjóðfélag er fjandsamlegt börn- um. Því miður er það staðreynd að öll mál sem tengjast börnum og- þeirra réttindamál- um eru í molum.“ þessum vettvangi og láta okkur annt um umgengnina í okkar eigin landi. Með kjarnorkuvá tengjast nú öryggis- og friðarmál umhverfis- verndun. Við eigum að taka afstöðu sem er okkur samboðin sem sjálf- stæðri þjóð. Það skiptir ekki máli hvers lensk sprengjan er þegar hún springur og því ber okkur skilyrðis- laust að taka afstöðu á móti allri vopnaframleiðslu hvar sem er og í lagnir. Að lokum flutti Steindór Guðmundsson, verkfræðingur, er- indi um hávaða og hávaðavarnir í lagnakerfum. A dagskrá fundarins var einnig erindi Gunnars Kristinssonar, verk- fræðings, um hönnun vatnslagna- kerfa í húsum, en það féll niður vegna veikinda höfundar. Þátttakendur, fyrir utan fyrirles- ara, voru 26 og komu þeir víðsvegar að af landinu. Fundarstjóri var Hilmar Sigurðssona, verkfræðing- ur. hvaða formi sem er og án allrar aðstoðar frá stórveldunum sem gjarnan „leggja línuna" fyrir smá- þjóðir og stuðla þannig að innbyrðis klofningi. Það er ekki traustvekj- andi að skipa sér í flokk með þjóð sem notar orðið „friðarsinni" sem skammaryrði. Astandið í þessum málum er vissulega bágborið. Ekki má gleyma að við sitjum uppi með er- lendan her á friðartímum og fólk farið að líta á veru hans hér eins og eitthvert náttúrulögmál. Þett sinnuleysi þarf að uppræta. Við megfum aldrei gleyma því að vera hersins hér er óæskileg og á ekki að vera til frambúðar. Eg hef fyrir Iöngu gert upp hug minn varðandi atkvæði mitt þ. 25. apríl nk. Það val byggði ég á þeirri einföldu staðreynd að Alþýðu- bandalagið er eini stjórnmálaflokk- urinn sem hefur raunhæfar lausnir á þeim málum sem ég hef komið hér inn á. Þessi mál eru mín for- gangsmál. Eru þaj ekki forgangs- mál okkar allra? Höfundur er læknafulltrúi og skipar20. sæti lista AJþýðubanda- lagsins íReykjavík. Búnaðarsamband Suðurlands: Fræðslufund- ir um heima- öflun fóðurs Selfossi. Búnaðarsamband Suðurlands hélt þrjá fundi dagana 12. og 13. mars um heimaöflun fóðurforð- ans. Fundirnir voru haldnir á Selfossi, Tunguseli í Skaftártungu og á Hvolsvelli. Framsögumenn á fundunum voru Þórarinn Lárusson tilraunastjóri á Skriðuklaustri og Kristján B. Jónsson ráðunautur á Selfossi. A fundunum var lögð áhersla á mikilvægi þess að standa vel að öflun fóðurs. Bændur sóttu fundina nokkuð vel og lögðu fyrirspurnir fyrir frummælendur. Sig. Jóns. Fræðslufundir um vatnslagnir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.