Morgunblaðið - 25.03.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
61
Heimsmeistarakeppnin í rallakstri:
Lancia með afgerandi forystu
LANCIA-verksmiðjuliðið hefur náð afgerandi forystu í heimsmeistara-
keppninni i rallakstri. Lancia-ökumenn skipa þrjú efstu sætin í keppni
ökumanna og í keppni framleiðenda hefur ftalska liðið 23 stiga for-
skot á Mazda. Finninn Marrku Alén tryggði þessa stöðu með sigri í
portúgalska rallinu, sem fram fór 14. til 18. mars. Frakkinn Jean Rag-
notti, á Renault 11 turbo, náði 2. sæti á undan Kenneth Eriksson á
VW Golf.
Finninn Juha Kankkunen er efst-
ur í keppni ökumanna með 57 stig,
en landi hans Alén hefur 20 stig.
Þeir slógust grimmilega um titilinn
í fyrra, sem féll i skaut Kankkunen.
Þeir aka báðir um 250 hestafla
Lancia Delta 4x4 og sömuleiðis
Italinn Miki Biasion, sem er þriðji
til heimsmeistara. Það gekk allt á
afturfótunum hjá honum í Portú-
gal. Bilaðir demparar hrjáðu bíl
hans fyrst, síðan þurfti hann að
ýta bílnum tvo kílómetra þegar
bensíndæla bilaði. Einn daginn af
fjórum þurfti hann að aka í öðrum
gír, þegar gírkassinn bilaði, en
hélt þó áfram. Kankkunen lenti
einnig í demparavandræðum.
Þyrla sem flutti þeim félögum
dempara brotlenti á einu viðgerð-
arsvæðinu og sagaði vörubílspall
í sundur með afturspöðunum, en
engin slys urðu á mönnum.
Alén slapp við svona vandræði
að mestu en kvartaði sáran yfir
hestaflaleysi, en hann ók 4—600
hestafla bíl í fyrra, sem ásamt
mörgum öðrum var bannaður.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
• Juha Konkkunen varð heims-
meistari í fyrra á Peugeot og
leiðir nú stigakeppnina á Lancia.
Ragnotti á Renault náði forystu á
fyrstu leiðunum í Portúgal og barð-
ist við Alén um forystuna. Alén
• Renault hefur náð óvæntum árangri í ár. Ragnotti á Renault II
turbo varð 2. í Portúgal og 7. í Monte Carlo.
Ljósmynd/Martin Holmes
• Finninn Marrku Alén á leið til sigurs í portúgalska rallinu ásamt llkka Kivimaki. Þeir eru í 2. sæti f
heimsmeistarakeppninni í rallakstri.
seig þó framúr, en demparavand-
ræði í seinni hluta keppninnar
gerðu honum erfitt um vik. Munaði
stundum aðeins 5—10 sekúndum
á fyrstu bílunum tveimur. Alén
varð þó, eftir 2.080 km akstur,
rúmri mínútu á undan Ragnotti,
sem ók framdrifnum bíl. Það gerði
líka Svíinn Kenneth Eriksson á VW
Golf og varð hann þriöji, á undan
heimsmeistaranum Kankkunen.
Erik hefur sýnt frábæran akstur á
árinu og er einn efnilegasti öku-
maðurinn í heimsmeistarakeppn-
inni, þó farkosturinn sé ekki sá
best útbúni. Næsta keppni er um
páskana í Afríku, en þá fer fram
hið illræmda Safari-rall. Keppnis-
liðin munu eyða 2—3 vikum í
undirbrning og æfingar.
Úrslit í portúgalska rallinu
Refsing
klukkustundir
1. Marrku Alén/lllka Kivimaki,
Lancia Delta HF 4xD 7:09,39
2. Jean Ragnotti/Pierre Thimoni,
Renault II turbo 7:12,32
3. Kenneth Eriksson/Pieter Diek-
man, VW Golf Gti 16V 7:14;37
4. Juha Kankkunen/Juha Piironen,
Lancia Delta HF 4xD 7:20,46
5. Francois Chatriot/Michel Perin,
Renault II turbo 7:25,14
6. Georg Fischer/Thomas Zeltner,
Audi Cupe Quattro 7:29,07
Alls hófu 94 keppni en 36 kom-
ust í mark.
Staðan í heimsmeistarakeppni ökumanna:
Juha Kankkunen, Lancia 37 stig
Marrku Alén, Lancia 28 stig
Miki Biasion, Lancia 23 stig
Kenneth Eriksson, VW 21 stig
Timo Salonen, Mazda 20 stig
Keppni framleiðenda:
Lancia, 57 stig
Mazda, 34
Audi, 28
VW, 26
Renault, 23
Ford, 22
1. deild kvenna:
Framsigur á Val
Erla skoraði 17 mörk á móti Ármanni
ÞRÍR leikir fóru fram í 1. deild
kvenna í handbolta um helgina.
Stjarnan burstaði Ármann í Laug-
ardalshöll og Fram sigraði Val á
sama stað. Báðir leikirnir fóru
fram á sunnudagskvöld. Þá spil-
uðu FH og KR í Hafnarfirði og
lauk leiknum með sigri FH.
Stjarnan vann stórsigur á botn-
liði Ármanns. Leikurinn endaði
41—13 eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 20—5. Stjörnuliðið átti
í heild góðan dag, en þó stóðu upp
úr þær Erla Rafnsdóttir og Guðný
Gunnsteinsdóttir.
Mörk Ármanns: Margrét Hafsteinsdóttir
8, Elísabet Albertsdóttir 3, Ellen Einarsdóttir
og Halla Grótarsdóttir eitt mark hvor.
Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdóttir 17,
Guðný Gunnsteinsdóttir 10, Hrund Grétars-
dóttir 6, Margrót Theodorsdóttir 4, Drífa
Gunnarsdóttir 2, Brynhildur Magnúsdóttir og
Ingibjörg Andrósdóttir eitt mark hvor.
Valur— Fram 19—21
Leikurinn var mjög jafn framan
af og var mikið um ótímabær skot
hjá báðum liðum, enda bar marka-
talan í leikhléi því vitni, en hún var
8—7 fyrir Val.
í síðari hálfleik byrjuðu Fram-
stúlkur af krafti. Þær náðu góðum
hraðaupphlaupum og breyttu
stöðunni í 10—8 sér í hag. Þessi
munur hélst síðan út leikinn og
endaði hann 21—19 fyrir Fram.
Mörk Vals: Erna Lúðvíksdóttir 5, Ásta
Sveinsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir 4 mörk
hvor, Katrín Friðriksen 3, Guðný Guöjóns-
dóttir, Harpa Siguröardóttir og Rósbjörg
Jónsdóttir eitt mark hver.
Mörk Fram: Guöríöur Guöjónsdóttir 11,
Arna Steinsen 5, Margrót Blöndal 3 og Jó-
hanna Halldórsdóttir 2 mörk.
FH — KR 23—16
í fyrri hálfleik var jafnræði með
liðunum og var staðan í leikhléi
jöfn 10—10. í byrjun seinni hálf-
leiks náði FH nokkrum hraðaupp-
hlaupum og eftir það var engin
spurning um hvorum megin sigur-
inn lenti. Leiknum lauk með
öruggum sigri FH 23—16.
Mörk FH: Maria Siguröardóttir 9, Berglind
Hreinsdóttir 4, Rut Baldursdóttir 3, Inga Ein-
arsdóttir 3, Kristín Pótursdóttir 2, Heiöa
Einarsdóttir og Ósk Sigurgunnarsdóttir eitt
mark hvor.
Mörk KR: Sigurbjörg Sigþórsdóttir 7, Karó-
lína Jónsdóttir 3, Snjólaug Benjaminsdóttir 2,
Bryndís Haröardóttir, Olga Garöarsdóttir,
Arna Garðarsdóttir og Valgeröur Skúladóttir
eitt mark hver.
Staðan
Fram 20 18 0 2 478- -324 36
FH 20 15 1 4 433- -304 31
Stjarnan 19 13 0 6 460- -333 26
Víkingur 9 10 1 8 377- -327 21
KR 20 7 3 10 351- -390 17
Valur 18 7 2 9 384- -328 16
ÍBV 16 1 1 14 236- -392 3
Ármann 19 0 1 18 253- -574 1
Markahæstar:
Erla Rafnsdóttir 167
Guðríður Guðjónsdóttir 143
Sigurbjörg Sigþórsdóttir 118
Margrét Theódórsdóttir 107
RutBaldursdóttir 97
KF og ÁS
• Erla Ransdóttir, Stjörnunni, er markahæst i 1. deild kvenna. Hún
hefur gert 167 mörk. Guðríður Guðjónsdóttir kemur nsst með 143
mörk.