Morgunblaðið - 27.03.1987, Page 2
2
iRj t ': jaJCA'iuraóí <f
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 27. MARZ
KRISTJÁN Thorlacius formaður
Hins islenska kennarafélags og
Heimir Pálsson varaformaður
félagsins hafa fundað óformlega
með Indriða H. Þorlákssyni for-
manni samninganefhdar ríkisins
og Geir Haarde aðstoðarmanni
fjármálaráðherra. Á þessum
fundum hafa verið ræddar ýms-
Grindavík:
Islandslax hf.
selur stórseiði
til Irlands
Grindavik.
ÍSLANDSLAX hf. í Grindavík
hefur selt fjóra skipsfarma af
stórseiðum til írlands að heildar-
verðmæti um 20 milljónir króna.
Starfsmenn Ríkisspítalanna funda í dag með stjómarformamii og forstjóra:
ar hugmyndir sem stjórn og
fulltrúaráð HÍK hafa síðan rætt
nánar. Kristján Thorlacius segir
hinsvegar að hann sjái ekki að
lausn í deilunni sé í sjónmáli.
„Það væri fásinna að kalla saman
samninganefndir ef ekki væri nokk-
uð góð trygging fyrir að saman
næðist, því ef slitnaði upp úr einu
sinni enn væri mun erfiðara að
tengja þráðinn saman aftur," sagði
Kristján Thorlacius í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði aðspurð-
ur að lítið hefði þokast frá því á
mánudag þegar upp úr viðræðum
siitnaði en málin hefðu verið rædd
og hitt og þetta verið til athugunar
þar sem báðir aðilar gerðu sér ljósa
þýðingu þess að leysa deiluna.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra sagði í samtali við
blm. Morgunblaðsins að ekki kæmi
til greina að grípa inn í kennaradeil-
una með lögum. Það hlyti að vera
í ýtrustu neyð að löggjafinn gripi
inn í kjaradeilur og sú staða væri
ekki komin upp í þessu verkfalli þó
illa horfði.
Sverrir sagði að ekki væri gert
ráð fyrir neinum breytingum á
framkvæmd prófa í skólum í vor
þrátt fyrir að skólastarf riðlaðist
vegna verkfallsins. „Ég hef hangið
í þeirri von að menn kæmust til
ráðs vegna þess að ég hef ekki trú-
að því að svo gæti haldið áfram að
lífshlaup unglinga væri truflað með
þessum hætti. En ég er daufari og
svartsýnni en áður,“ sagði Sverrir
Hermannsson.
Sjá viðtöl við nemendur og
skólameistara á bls. 35.
Morgunblaðið/Þorkell.
Framhaldsskólanemendur hafast enn við i húsakynnum fjármála-
ráðuneytisins í Arnarhvoli. í gær voru kröfuspjöld á lofti.
Óformlegir fundir í kennaradeilunni:
Lausn í deilunni
ekki í sjónmáli
- segfir Kristján Thorlacius formaður HIK
Að sögn Jóns Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra íslandslax hf., er hér
um að ræða megnið af ársgömlum
seiðum stöðvarinnar, 100—150
grömm að stærð, sem ekki verða
alin upp í matfisk í stöðinni. Venju-
leg gönguseiði eru um 50 grömm.
„Heildarverðmæti þessarar sölu
er um 20 milljónir króna og verða
seiðin flutt utan til írlands með
norskum skipum sem koma til
Grindavíkur," sagði Jón og bætti við
að íslandslax hf. hefði fengið leyfi
bæjaryfirvalda í Grindavík til að reisa
tvo tanka við höfnina í Grindavík og
verður seiðunum komið þar fyrir
áður en skipin koma, til að lestun
taki sem allra stystan tíma. Skipin
verða að koma og fara á sama flóð-
inu.
Fyrsti farmurinn fer 7. apríl en
sá síðasti 24. apríl. „Nú bíðum við
eftir að ná tveimur minni samningum
fyrir afganginn af seiðunum og ætti
það að ganga á næstunni," sagði Jón
að lokum.
íslandslax hf. hóf starfsemi sína
í Grindavík fyrir þremur árum og
er þetta fyrsta salan á stórseiðum
frá fyrirtækinu en uppbygging þess
hefur gengið áfallalaust fram að
þessu. Þessi samningur er þýðingar-
mikill í ljósi þeirra frétta að mikil
óvissa ríkir um seiðasölu til Noregs
á þessu ári.
- Kr.Ben.
Oskir um hlunnindi
utan kjarasamninga
Heimild til hlunnindagreiðslna til athugnnar, segir Ragnhildur Helgadóttir
FULLTRÚAR þeirra háskóla-
menntuðu starfsmanna Ríkisspít-
alanna, sem sagt hafa upp
störfum frá og með 1. apríl, hafa
óskað eftir fundi með stjórnar-
formanni og forstjóra Ríkisspít-
alanna í dag. Vilja þeir ræða
möguleika á að fá laun sín hækk-
uð utan kjarasamninga, til dæmis
með því að fá greidda óunna
yfirvinnu eins og tíðkast í nokkr-
um öðrum ríkisfyrirtækjum.
Yrði þá að einhveiju leyti leið-
réttur sá munur sem er á launum
þessa fólks og fólks i sambæri-
legum störfum í sjúkrahúsum úti
á landi.
í samtali við blm. Morgunblaðs-
ins sagði Friðrik Sophusson formað-
ur stjómar Ríkisspítala að
Ríkisspítalamir hefðu ekki beinar
tekjur heldur væru þeir bundnir af
framlögum á fjárlögum. Þeir væru
einnig bundnir af stöðuheimildum
og gætu því ekki greitt starfsfólki
umfram kjarasamninga eins og
önnur ríkisfyrirtæki. Hinsvegar
hlyti það að vera markmið í fram-
tíðinni að stjómin fengi möguleika
á meiri sveigjanleika í samningum
við starfsfólk.
Ragnhildur Helg;adóttir heil-
brigðisráðherra sagði í samtali við
blm. að það væri meðal annars til
athugunar að Ríkisspítalar fengju
heimild til að greiða ýmis hlunnindi
til starfsfólks, en skilyrði slíks væri
auðvitað að Qárveiting fengist og
taka þyrfti tillit til þess við gerð
næstu fjárlaga. Þetta gæti bætt
verulega starfsaðstöðu þeirra heil-
brigðisstétta sem nú standa í
kjaradeilu.
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
Bréf Alberts til Fulltrúaráðsins
HÉR FER á eftir bréf það, sem
Albert Guðmundsson rítaði
Sveini H. Skúlasyni formanni
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík i gær:
„Hérmeð fer ég þess á leit við
yður, hr. formaður Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
að þér dragið til baka nafn mitt
af framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Frá þessari stundu lít ég svo
á, að ég sé ftjáls af því framboði.
Ástæðan fyrir þessari ákvörð-
un minni er sú, að þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir frá minni hálfu
að halda góðum samstarfsvilja,
koma síendurteknar hótanir frá
formanni flokksins um, að kosn-
ingum loknum verði starfssvið
mitt sem 1. þingmanns
Reykjavíkurkjördæmis þrengt,
svo fyrirsjáanlegt er, að fyrirfram
er ákveðið að mér verður erfítt
að gegna skyldum þeim, sem mér
ber að gegna á Alþingi íslend-
inga.
Með virðingu
Albert
Guðmundsson."
ALBERT OUOMUNDSSON ALBERT GUDMUNDSSON
LAUíASVtOI U
26. ««r*. 19*t.
Hr. Sv«inn Skúl*son gegna á Albingi fslendinr.a.
formaöur rulltrúaráðs Sl4lf*t*öis- félananna Raykjavík. Meft virftlngu
HÁrmcð fcr é* bess a leit vló vóur• hr. formaöur fulltrúaráðs r.Lílfstcóisfélaaanna
í Kcvk'avík, aft bcr drapift til baka nafn mitt af framboftslista ?Jálfct*íls* /iui-U.1 )->UVt
flokksins í RcykJavík. o i i r - 0202.
Trá bessari stundu l»r ár svo á. aft ás sá frJáls af bví fra->bofti.
Xstcftan fyrir bessari ákvftrftun minr.i cr sú, aft brátt fyrir ftrckaftar tilrau.iir frá minni hálfu aft halda RÓftum sémstarfsvilla, koma sfcndurtaknar hótanir frá formanni flokksins us, aft kosningusi loknum varfti starfsviA mitt sem 1. MnRmanna Rcyklavfkur- kjflrdcmis brengt, svo fyrirsJácnlef.t er, aft fyrirfram er ákveftift aft már vcrftur crfitt aft Re*na skyldum beim, sem már ber aft
/t£x
Ríkisspítalanna sagði við blm. að
þessi hugmynd væri í takt við þá
umræðu sem verið hefur í þjóð-
félaginu undanfarið að flytja meira
af samningamálum yfir í stofnan-
imar. Hinsvegar væri nýbúið að
setja lög um þessa kjarasamninga
sem gengju ekki í þessa átt og því
virtist löggjafinn ekki vera að hugsa
á þessum línum.
Davíð sagði að svo virtist sem
kjarasamningar sveitarfélaganna
utan Reykjavíkur væm rýmri en
þeir kjarasamningar sem ríkið hefur
boðið upp á og starfsmenn hefðu
sagt upp hjá Ríkisspítulunum og
farið í vinnu annars staðar á landinu
fyrir mun hærri laun. Davíð nefndi
sem dæmi að talsverð vandamál
hefðu verið í Kristneshæli í Eyja-
fírði, sem er eini ríkisspítalinn utan
Reykjavíkur þar sem nágranna-
spítalinn, í þessu tilviki á Akureyri,
greiðir mun hærri laun.
Friðrik Sophusson sagði um þetta
að sveitarfélögin hefðu heimild til
að greiða mismuninn á launum
starfsfólks Ríkisspítalanna og ann-
arra heilbrigðisstofnana. Hinsvegar
hefði daggjaldakerfíð haft það í för
með sér að ríkið hefði oft á endan-
um greitt þennan mismun úr eigin
vasa.
Friðrik Sophusson sagði það ljóst
að kjarasamningar við ríkið leystu
ekki þann vanda sem skapast hefur
vegna mismunandi kjara starfsfólks
Ríkisspítala og annarra stofnana.
Hann sagðist ekki sjá neina
ákveðna lausn á vandanum og ef
ekki væri hægt að komast að sam-
komulagi fyrir fyrsta apríl, þegar
uppsagnimar taka gildi, blasti
neyðarástand við. Ragnhildur
Helgadóttir sagðist vona að brátt
rofaði til, því það væri hörmulegt
að kjarabarátta, sem allir væru
sammála um að þyrfti að leiða til
bættra kjara þessara stétta, bitnaði
á veiku fólki. Hinsvegar sagðist hún
vita að það væri eindreginn vilji í
fjármálaráðuneytinu að leysa þessa
deilu en málin væru mjög flókin og
erfíð.
„Ég er þó þeirrar skoðunar að
þessi mál komist aldrei í almenni-
legt horf fyrr en búið er að byggja
upp þau heildarsamtök sem eru
samningsaðilar með allt öðmm
hætti en nú er,“ sagði Ragnhildur
síðan. „Mér finnst miklu eðlilegra
að heildarsamtökin taki mið af
skyldleika þeirra starfa sem verið
er að vinna. Þannig væm heilbrigð-
isstéttimar í sérsambandi, kennslu-
stéttir í sérsambandi og svo
framvegis," sagði Ragnhildur
Helgadóttir.
Bréf Alberts Guðmundssonar.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Eyjum:
Hvetur til samstöðu
sjálfstæðismanna
eyjum harmar þá ákvörðun Alberts
Guðmundssonar að víkja af lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Jafnframt hvetur fundurinn til
órofa samstöðu sjálfstæðismanna
um land allt og tryggja með bar-
áttugleði góðan árangur Sjálfstæð-
isflokksins í alþingiskosningunum
25. apríl nk.“
Á NÆR 100 manna fundi í full-
trúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Vestmannaeyjum, sem haldinn
var í gærkvöldi f Básum, ríkti
mikill einhugur og baráttugleði
í fólki. Á fundinum var einróma
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Fjölmennur fundur í fulltrúaráði
Sjálfstæðisfélaganna ( Vestmanna-