Morgunblaðið - 27.03.1987, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.03.1987, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ Á réttri leið? Orð og efndir í tollamálum eftir Kristmann Magnússon Sjálfstæðisflokkurinn stærir sig nú af því að hann sé á réttri leið, og svo sannarlega hefur margt áunnist í tíð núverandi ríkisstjórn- ar. En eitthvað hefur nú flokkurinn farið út af þessari réttu leið í tolla- málum, en það er m.a. sá mála- flokkur, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýrt í núverandi ríkisstjóm. Hafa ekki færri en tveir ráðherrar úr röðum Sjálfstæðisflokksins hald- ið þar um stjómvölinn. í það minnsta þijú fmmvörp og tillögur um breytingar á tollamálum hafa verið samin á stjómartímabilinu, en ekkert bólar á raunverulegum aðgerðum í málunum. Að vísu var fyrir stuttu lagður fyrir Alþingi lagabálkur um tollskrá, en aðalat- riðið, þ.e.a.s. breytingin á sjálfri tollskránni, hefur enn ekki séð dagsins ljós. Ekkert virðist bóia á nýrri tollskrá þrátt fýrir marggefin loforð og fagrar yfirlýsingar um að breyta þeim vanskapnaði, sem íslensk tollskrá er í dag. Við raftækjasalar höfum ámm saman reynt að sannfæra ráðamenn um að nauðsynlegt væri að breyta tollum á raftækjum, þar sem gifur- Iegu magni af þeim væri smyglað til landsins. Stór hluti smærri raf- tækja er keyptur erlendis vegna miklu lægra verðs á þeim í öllum öðmm löndum. Ertu með raftæki? Já, þetta er búið að vera ein vin- sælasta spuming tollvarða á Keflavíkurflugvelli þegar ferða- menn ganga í gegnum tollinn þar. Það virðist vera eitt mesta böl þjóð- félagsins að menn skuli ætla að voga sér að koma með raftæki í farangrinum, tæki, sem erlendis kosta aðeins brot af því sem þau kosta hér á landi. Hvenær skyldum við mega eiga von á því að íslensk- ir neytendur fái að versla í íslensk- um búðum á svipuðum eða sömu kjömm og fólk í nágrannalöndun- um. Væmm við ekki á réttri leið ef við gætum breytt sumarlejrtfis- ferðunum úr innkaupaferðum í hressingar- og skemmtiferðir. Vær- um við ekki á réttri leið ef íslending- ar fengju að sitja við sama borð og annarra þjóða fólk, líka þegar þeir em að versla? Og hvemig skyldi svp ástandið vera með stærri tækin? í umræðu- þáttum um fjölmiðlun fyrir rúmlega ári, kom það fram tvo daga í röð að líklega væri myndbandatækja- eign landsmanna um 30 þúsund tæki, og þar af væm um 30—40% smygluð tæki. Skyldi nokkur aðili í opinbera kerfinu hafa reiknað út hve miklu ríkissjóður tapaði á þess- um smygluðu tækjum? Tollatekjur — söluskattstekjur Þegar ráðamenn setja upp hátíð- lega svipinn sinn og þykjast vera að vemda tekjur ríkisins, segja þeir gjaman að því miður séu ekki póli- tískar aðstæður til þess að ríkið geti misst tollatekjur að svo stöddu máli. Það mætti ætla að þessir menn hefðu aðeins lært, eða reynt að læra mengið, sem tekið var upp á sínum tíma eins og margt annað böl frá frændum vomm Svíum. Það er eins og þessir menn kunni bara alls ekki að reikna. Staðreyndin er nefnilega sú, að þótt tollatekjur ríkisins lækki koma aðrar tekjur af sömu vömm í staðinn. Þessir spekingar og ráðamenn vilja ekki skilja þær einföldu staðreyndir að ef tollar era lækkaðir eða felldir niður verður löglegur innflutningur með þær vömr meiri og heildartekj- ur ríkisins vaxa en minnka ekki. Þannig urðu t.d. heildartekjur ríkisins af innflutningi rakvéla og hársnyrtitækja 30% meiri en þær vom fyrir tollalækkunina á síðasta ári. Og tekjur ríkisins hefðu aukist enn meir ef tollar og álögur hefðu verið lækkaðar meira. Við raftækja- salar höfum sölutölur frá öðmm Kristmann Magnússon „Við raftækjasalar höf- um árum saman reynt að sannfæra ráðamenn um að nauðsynlegt væri að breyta tollum á raf- tækjum, þar sem gífur- legu magni af þeim væri smyglað til lands- ins. Stór hluti smærri raftækja er keyptur erlendis vegna miklu lægra verðs á þeim í öllum öðrum löndum.“ löndum í Evrópu, tölur sem sýna árlega sölu miðað við íbúatölu þess- ara landa. Ef við bemm þær saman við sölutölur hér á landi kemur í ljós, að sala á þessum tækjum hér er miklu minni en annars staðar. Ég ætla að taka hér eitt dæmi um sölu á rakvélum. Land Sala á rakvélum Heildartala íbúafjöldi f millj. Stykkjafjöldi Sala miðuð við 1.000 fbúa Svíþjóð 330.000 8,3 39,8 Danmörk 115.000 5,1 22,5 Noregur 160.000 4,1 39,0 Bretland 1.200.000 56,0 21,4 V-Þýskaland 2.400.000 61,4 39,1 ísland 3.000 0,24 12,5 Tölurnar hér að ofan fýrir Dan- mörku lækkuðu úr 150 þús. stykkj- um í 115 þús. stykki eftir að þarlend stjómvöld settu 20% lúxustoll á rakvélar. Ef eldri talan, 150 þús. stykki, er tekin inn í dæmið væri salan þar 36,6 vélar pr. 1.000 íbúa. Salan þar í landi lækkaði sem sagt um 25% við það að aðeins 20% toll- ur var settur á þessi tæki. Nú kaupir sem sagt fjórðungur Dana sínar rakvélar í Svíþjóð, V-Þýska- landi eða öðmm löndum þar sem þær em ódýrari. Hin lága tala fyrir Bretland á sér þá skýringu að þar sé blautrakstur algengari svo og vegna þess að í Bretlandi vanti rafmagnstengla í baðherbergi. En síðast kemur talan 12,5 fyrir ísland. Skyldi hún eiga sér þá skýr- ingu að við íslendingar rökum okkur síður með rafmangsrakvélum en aðrar þjóðir? Nei, hún á sér ein- faldlega þá skýringu að vegna óhóflegra tolla og annarra gjalda hins opinbera kaupa íslendingar þessar vélar erlendis. En lítum nú á önnur dæmi, sem sýna einmitt að tekjur ríkisins vaxa við það að lækka tolla. Bæði þessi dæmi era reiknuð út frá tölum úr innflutningsskýrslum Hagstofu ís- lands. Sýna þessar tölur ekki einmitt að lækkun tolla gæti komið öllum aðilum til góða? Viðskiptavinurinn fær lægra vömverð í sínu heima- landi, verzlunin með þessar vömr kemur inn í landið og ríkissjóður fær auknar tekjur í kassann. Ef ekki felst þjóðarhagur í þessu veit ég ekki hvar hann er að finna. Breytingar á tollskrá Á þriðja ársfjórðungi 1985 stóð loksins til að leggja margumrætt tollafmmvarp fram á Alþingi. Ég hefi fyrir satt að búið hafí verið að dreifa því á borð þingmanna, en það tekið þaðan jafnharðan og búið var að dreifa því. í desemberbyijun 1985 tjáði fjármálaráðherra mér að það væri því miður ekki hægt að gera neinar breytingar á tollamál- um að sinni, það væri „pólitískt harakiri“ að ætla sér að breyta ein- hveiju í þeim málum að sinni. Aðeins tveimur mánuðum seinna sitja svo Guðmundur J. og fleiri góðir menn að kjarasamningagerð í Garðastræti, allt í einu snýtir Guðmundur J. sér hressilega og það var eins og hugsun allra í salnum yrði skýrari, lausnin á kjaradeilunni var tollalækkun. Nú var allt í einu, og það án þess að þurfa að fremja „pólitískt harakiri" hægt að lækka tolla á ákveðnum vömflokkum, stómm raftækjum, bílum og meira að segja var ákveðið að lækka tolla á hlutum, sem flármálaráðherrann var stuttu áður búinn að hugleiða að yrðu hækkaðir við næstu lagfær- ingu á tollskránni!!! Nú þurfti ekki faglegar eða rökstuddar ástæður fyrir nauðsyn tollalækkunar. Eða þurfti kannski að hressa upp á ein- hveija vísitöluna til að halda almenningi rólegum? Og nú rétt fyrir þinglok í mars Samanburður 1985 og 1986. Rafmagnsrakvélar Innflutt 1985 Tekjur rfkisins Innflutt 1986 Tekjur ríkisins CIF-innfl. 3.190 6.129 Tollur 80% 2.552 2.552 40% 2.452 2.452 Vömgj. 30% 1.723 1.723 2.574 2.574 7.465 11.155 ÁlagrninR 3.033 4.531 10.498 15.686 Sölusk. 25% 2.624 2.624 3.921 3.921 13.122 6.899 19.606 8.947 Hluti ríkis af úts. verði 52,5% 45,6% Tekjur ríkisins eftir tollalækkun 1986 8.947,- Tekjur rfkisins fyrir tollalækkun 1985 6.899,- Tekjuauki 2.047,- eða 29,7%. Samanburður 1985 og 1986. Hársnyrtitæki 1 Innflutt 1985 Tekiur ríkisins Innflutt 1986 Tekjur rfkisins Cif-innfl. 2.881 5.648 Tollur 80% 2.305 2.305 40% 2.259 2.259 Vörugj. 30% 1.556 1.556 2.372 2.372 6.742 10.279 Álagning 2.739 4.176 9.481 14.445 Sölusk. 25% 2.370 2.370 3.614 3.614 11.851 6.231 18.069 8.245 Hluti ríkis af úts. verði 52,6% 45,6% Telgur ríkisins eftir tollalækkun 1986 8.245,- Tekiur ríkisins fyrir tollalækkun 1985 6.281,- Tekjuauki 2.014,- eða 32,3% X — allar tölur f þús. króna. Efsta stig í auglýsing- um og fullyrðingar eftirElínu Káradótturog HilmarBraga Jónsson Undanfarið hefur fýrirtækið Ice- land Review verið að dreifa auglýs- ingaverðlista vegna tímarits sem fyrirtækið ætlar að gefa út í sam- vinnu við VISA-ísland. í vaxandi samkeppni við aðra fjölmiðla um auglýsingar em allar klær hafðar úti og Iceland Review kynnir þetta nýja tímarit sitt sem „stærsta og ódýrasta auglýsinga- miðilinn". Þessa efstu stigs fullyrðingu sína styður fyrirtækið svo með saman- burðartölum um upplag og verð á heilsíðu auglýsingum í lit hjá öðmm tímaritum og blöðum sem tilgreind em. Tölum, sem í mörgum tilfellum em ósannaðar með öllu (enda útgáf- ur ekki aðilar að upplagseftirliti), og í okkar tilfelli þ.e.a.s. Gestgjaf- ans, með tölum um seld en ekki prentuð eintök. Hinir gefa upp tölur um prentuð eintök nema Morgun- blaðið sem gefur einnig upp seld eintök. Síðan deilir þessi auglýsingaaðili í þessar mjög svo furðulegu tölur með verði á heilsíðuauglýsingu í lit (sem í okkar tilfelli er 20% of hátt) og fær þá út tölur sem eiga að vera verð á auglýsingu pr. eintak. Til samanburðar er svo þeirra eigið verð, pr. eintak, miðað við prentað upplag, sem sagt er að verði 50.000 eintök, þ.e.a.s. eitt eintak á hvem VISA-korthafa á landinu. Lítum nú á staðreyndir. Á okkar heimili em fjórir ein- staklingar sem allir em VISA- korthafar. Við fengjum því væntanlega fjögur eintök af þessu tímariti inn um bréfalúguna. Af þeim má því ætla að þijú fæm strax í mslakörfuna. Við höfum ekkert að gera við fjögur eintök af sama auglýsingablaðinu, sem við höfum ekki beðið um eða gerst áskrifendur að. Okkar heimili er engin undan- „Á okkar heimili eru fjórir einstaklingar sem allir eru VISA- korthafar. Við fengjum því væntanlega fjögur eintök af þessu tímariti inn um bréfalúguna. Af þeim má því ætla að þijú færu strax í rusla- körfuna.“ tekning. Á flestum heimilum, þar sem einhver fjölskyldumeðlimur er VISA-korthafí, er oftast einn eða fleiri sem einnig em fulgildir kort- hafar þessa sama fyrirtækis. Hvað verður þá mörgum eintökum af þessu tímariti hent í ruslið ólesn- um? Fyrir hvað em þá auglýsendur að greiða? Fullyrðingar, sem ekki er hægt að sanna, ættu aldrei að sjást í Elín Káradóttir HOmar B. Jónsson auglýsingu og svona óstaðfestar fullyrðingar um upplagstölur tíma- rita og að auki rangar upplýsingar um verð á auglýsingum ber vitni um óheiðarleg vinnubrögð. Viðmið- unin verður að vera rétt, þ.e.a.s. réttar tölur um prentuð eða seld eintök og rétt verð miðað við að auglýsingin komi tilbúin og fullfrá- gengin. Það er reyndar einnig undarlegt að ennþá, eftir alla þá miklu um- fjöllun sem auglýsingamál hafa fengið að undanfömu, skuli enn finnast aðilar, sem aðeins einblína á verð auglýsinga án þess að hafa fyrir því að fá uppgefnar staðfestar tölur um upplag, þ.e.a.s. seld og lesin eintök tímarita, og bera ekki saman líftíma auglýsinga. Ennþá einu sinni viljum við benda auglýsendum á að treysta aðeins tölum frá þeim sem þora að taka Íiátt í upplagseftirliti Verzlunarráðs slands. Höfundareru útgefendurtíma- ritsins Gestgjafans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.