Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 26

Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ Guðmundur Benediktsson ráðuneytisstjóri, Hans Andreas Djur- huus sendiherra Dana, Ólafur G. Einarsson, dr. Gylfi Þ. Gíslason og Knut Ödeg-árd. Helsingfors-sátt- málinn 25 ára ÍSLANDSDEILD Norðurland- aráðs, Norræna húsið og Norræna félagið gengust fyrir hátíðardagskrá síðastliðið mánudagskvöld í tilefni af því að 25 ár voru þá liðin frá undir- ritun Helsingfors-sáttmálans. Sáttmálinn er grundvöllur norræns samstarfs þjóðþinga og ríkisstjórna Norðurlanda. Knut Ódegárd, forstjóri Nor- ræna hússins, sagði í samtali við Morgunblaðið að um 50 gestir hafí komið á dagskrána, fólk sem tengt er norrænu starfi auk áhugamanna um norræn málefni. Allir sendiherrar Norðurlandanna mættu auk fleiri sendiráðsstarfs- Dagskráin hófst kl. 20.30 með setningu forstjóra Norræna húss- ins. Þá flutti dr. Gylfi Þ. Gíslason, formaður Norræna félagsins, ávarp. Ólöf Kolbrún Harðardóttir söng lög eftir Atla Heimi Sveins- son tónskáld við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Ólafur G. Ein- arsson alþingismaður og formað- ur íslandsdeildar Norðurlandar- áðs flutti ávarp um samstarf þjóðþinga og að lokum sá Hjörtur Pálsson um bókmenntadagskrá. Lesið var úr verkum Snorra Hjart- arsonar og Ólafs Jóhanns Sig- urðssonar, sem báðir hafa fengið bókmenntaverðlaun Norðurland- aráðs. manna. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Björk Melax og Haraldur Ólafsson ræðast við. Morgunblaðið/RAX Frá blaðamannafundi utanríkisráðherra Norðurlanda i gær. F.v. Uffe Elleman-Jensen, Paavo Vayryn- en, Matthías Á. Mathisen, Thorvald Stoltenberg og Sten Andersson. Kjamorkuvopnalaust svæði á norðurslóðum: Athugnn embættísmanna á grundvelli skuldbindinga Ánægður með niðurstöðuna, segir Matthías A. Mathiesen UTANRÍKISRÁÐHERRAR Norðurlanda komust að sam- komulagi um það á fundi sínum í gær, að fela forstöðumönnum stjórnmáladeilda eða jafnsettum embættismönnum i ráðuneytum þeirra, að semja greinargerð um forsendur fyrir kjarnorkuvopna- lausu svæði á norðurslóðum er væri liður i viðleitni til að draga úr spennu og vígbúnaði í Evrópu. Matthías Á. Mathiesen, utanrík- isráðherra, sagði á fundi með blaðamönnum í gær, að hann væri ánægður með þessa niðurstöðu, enda væri með henni fallist á sjón- armið íslendinga. I yfirlýsingu norrænu utanríkis- ráðherranna segir, að embættis- mennimir skuli í störfum sínum leggja til grundvallar skuldbinding- ar þeirra ríkja, sem eru í vamar- bandalagi og stefnu hinna, sem hlutlaus eru. Þá skuli taka mið af samþykktum norrænu þjóðþing- anna varðandi stefnu í öiyggis- og afvopnunarmálum svo og skýrslum og greinargerðum ríkjanna í því efni. Þá segir í yfírlýsingunni, að nið- urstöður af þessari könnun skuli leggja fyrir utanríkisráðherra Norð- urlanda til þess að auðvelda þeim frekara pólitískt mat í þessum málaflokki. Tekið er fram, að ráð- herramir hafi rætt hvað felist í hugtakinu „norðurslóðir", en ákveðið hafi verið að binda sig ekki við neina fasta landfræðilega skil- greiningu. Ráðherramir séu sammála um, að athugunin geti náð til landsvæða Norðurlandanna fímm, þar með talið Grænlands, og aðliggjandi hafsvæða og land- svæða, t.d. Kólaskagans. Á blaðamannafundinum i gær sagði Matthías Á. Mathiesen, að engin tímamörk hefðu verið sett varðandi samningu greinargerðar- innar. Á fundi ráðherranna fimm var skipst á skoðunum um alþjóðamál, sem efst em á baugi, og auk sam- komulagsins um kjamorkufriðlýs- ingu vom samþykktar yfírlýsingar um málefni Suður-Afríku og Aust- urlanda nær. I ályktun um Suður- Afríku er hvatt til þess, að aukinn verði þrýstingur á stjómvöld þar um að falla frá aðskilnaðarstefn- unni. í ályktun um Austurlönd nær er tekið undir hugmynd um alþjóð- lega ráðstefnu um málefni ríkjanna á vegum Sameinuðu þjóðanna með þátttöku allra aðila. Þá var ákveðið að næsti fundur ráðherranna yrði í Helsinki 1.-2. september n.k. Píanótónleikar á Akranesi og í Keflavík SELMA Guðmundsdóttir píanó- leikari heldur tónleika í Safnað- arheimilinu Vinaminni á Akranesi laugardaginn 28. mars. Einnig verður hún með tónleika í Tónlistarskólanum í Keflavík mánudaginn 30. mars. Tónleikamir á Akranesi em á vegum tónlistarskólans á staðnum og hefjast kl. 15.00. Tónleikamir í Keflavík em á veg- um tónlistarfélagsins þar og hefjast kl. 20.30. Á efnisskrá hvorra tveggju tón- leikanna em verk eftir Jón Leifs, Pál ísólfsson, Franz Liszt, Frédéric Chopin og Leos Janácek. Selma Guðmundsdóttir píanó- leikari. Blönduós: 11,4 milljóna tap á rekstri Pólarprións Blönduósi. HALLI var á reksti Pólarpijóns árið 1986 að upphæð 11,4 milljónir króna og nemur því tapið 21,8% af veltu. Meginástæður þessa halla- reksturs eru málaferli fyrirtækisins við Dorette Egilsson í Banda- ríkjunum og óhagstæð gengisskráning. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Pólarpijóns sem haldinn var á Blönduósi sl. laugar- dag. Á aðalfundinum var jafnframt ákveðið að auka hlutafé fyrirtæk- isins um 10 milljónir króna. Það kom fram í ræðu formanns stjómar Pólarprjóns, Ingjaldar Hannibalssonar, að töluverðar breytingar hefðu átt sér stað í hús- næðismálum fyrirtækisins á sl. ári. M.a. flutti fyrirtækið starfsemi sína í nýtt húsnæði í Hnjúkabyggð 30 og er starfsemin núna öll á einum stað og taldi Ingjaldur þetta hag- kvæmt þó þröngt væri um starf- semina í bili. Eitt er það mál sem Ingjaldur Hannibalsson taldi alvar- legast fyrir framtíð Pólarprjóns en það eru málaferlin við Dorette Eg- ilsson í Bandaríkjunum vegna skuldar hennar við Pólarpijón að upphæð rúmlega 210 þús. dollara, eða á milli 9 og 10 milljónir króna. Það kom fram í máli Ingjaldar að þessi málaferli hefðu dregist mjög á langinn og lögfræðikostnaður orð- inn mjög mikill. Sem dæmi má nefna að málareksturinn á árinu 1986 kostaði Pólarpijón 3,7 milljón- ir króna og að sögn Ingjaldar er ekki séð fyrir endann á þessu máli. Ingjaldur Hannibalsson sagði að það væri ekki neitt sem ylli eins mikilli óvissu um framtíð fyrirtæk- isins og þessi málaferli. „Það er hugsanlegt að Pólarpijón geti tapað á þessum málaferlum 14—15 millj- Morgunbladið/Jón Sig. Það er vel unnið þó þröngt sé setið. ónum króna og þá yrði fyrirtækið væntanlega gjaldþrota. Ef málið vinnst, sem mestar líkur eru á, þá þarf að greiða lögfræðikostnað af stærðargráðunni 4—5 milljónir og það sem þá stæði eftir af kröfuupp- hæðinni færi í að greiða annan kostnað vegna þessa máls." Þrátt fyrir þessa miklu óvissu í málefnum Pólarpijóns þá var Ingjaldur Ingjaldur Hannibalsson formaður, Hilmar Kristjánsson og Gísli J. Grímsson. Hjá Pólarpijón vinna núna 36 manns og er Baldur Valgeirsson framkvæmdastjóri þess. — Jón Sig. Hannibalsson bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins og sem dæmi nefndi hann að hagnaður væri á rekstrin- um samkvæmt bráðbirgðauppgjöri fyrstu tvo mánuði þessa árs. Stjórn Pólarpijóns var endurkjör- in á aðalfundinum en hana skipa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.