Morgunblaðið - 27.03.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
23
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs og Heilsugæsiustöð Suðurnesja í Slökkvistöð Brunavarna Suðumesja. Morgunbiaðið/EG
Keflavík.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.
ekki falin öðrum, t.d. launanefnd
sveitarfélaga, en stjórn SSS fer með
ákvörðunarvald.
Ástæðurnar fyrir þessum breyt-
ingum voru fyrst og fremst nauðsyn
samræmingar og vandaðri vinnu-
bragða. Nú er leitast við að vinna
þannig að málum, að íjárhagsáætl-
anir sameiginlegu fyrirtækjanna
séu í samræmi við vilja og fjár-
hagslega getu sveitarfélaganna.
Hvað launamálin varðar verður
reynt að tryggja, að launakjör í
fyrirtækjunum og stofnunum sveit-
arfélaganna, séu í eðlilegu sam-
ræmi við þau launakjör sem bjóðast
hjá sveitarfélögunum sjálfum."
— Hve umfangsmikið er sam-
starf sveitarfélaganna og hvað
greiða sveitarfélögin mikið til sam-
eiginlegra fyrirtækja?
„Samstarf sveitarfélaganna á
Suðurnesjum er orðið býsna um-
fangsmikið og margbrotið og nær
til flestra þátta í mannlegu sam-
félagi.
Til þess að gefa örlitla hugmynd
um umfang samstarfsins mætti
taka fáein dæmi:
Hitaveita Suðumesja er alhliða
orkuveita sem framleiðir og dreifir
mestallri orku sem notuð er á svæð-
inu. Sveitarfélögin eiga 80% hita-
veitunnar en ríkið 20%. Áætlaðar
tekjur veitunnar á yfirstandandi ári
nema tæpum 800 milljónum króna.
Sveitarfélögin reka sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs í samvinnu
við ríkið og Heilsugæsla Suðumesja
er einnig rekin af öllum sveitarfé-
lögunum sameiginlega.
Framhaldsmenntun á Suðumesj-
um fer fram i Fjölbrautaskóla
Suðumesja, sem einnig er rekinn
af öllum sveitarfélögunum. Sama
máli gegnir um heilbrigðiseftirlit,
sorphirðu og sorpeyðingu.
Hins vegar er Dvalarheimili aldr-
aðra á Suðumesjum rekið í sam-
vinnu 6 sveitarfélaga af 7 og
Brunavamir Suðumesja af 5 þeirra.
Beinar greiðslur sveitarfélag-
anna til samstarfsverkefna, sem
fjárhagsnefnd SSS fjallar um, em
áætlaðar um 110 milljónir króna á
yfirstandandi ári.“
— Hvemig er kostnaði vegna
samstarfsins skipt milli samstarfs-
aðila?
„Kostnaði er nær undantekning-
arlaust skipt í hlutfalli við íbúatölu
í sveitarfélögunum."
— Eftir sveitarstjórnarkosning-
amar sl. sumar náðu margir nýir
aðilar kosningu í sveitarstjórnir á
svæðinu og hafa ýmsir þættir sam-
starfsins verið til skoðunar í sveitar-
stjómunum. Em einhveijar
breytingar hvað varðar samstarfið
í sjónmáli?
„Að sjálfsögðu em ekki allir jafn-
ánægðir með samstarfið, frekar en
annað sem gert er. Flestir em þó
sammála um, að öll samstarfsverk-
efnin séu nauðsynleg og flest
reyndar óhjákvæmileg. Flestir em
jafnframt þeirrar skoðunar, að þessi
verkefni séu betur af hendi leyst
og fyrir minni fjármuni, heldur en
unnt væri, ef samstarfsins nyti ekki
við. Það er reyndar fullvíst að sum
verkefnin væm nánast óleysanleg
a.m.k. fyrir sum sveitarfélögin án
samstarfs.
Hitt er svo annað mál að sjálf-
sagt er að þessi mál séu í stöðugri
endurskoðun. Slíkri endurskoðun
er nýlokið, hvað samstarf okkar
varðar og þær breytingar sem hér
em til umræðu em afleiðing eða
árangur hennar.
Það er vissulega rétt að miklar
breytingar urðu í liði sveitarstjórn-
armanna á Suðumesjum eftir
síðustu kosningar, þegar hvorki
meira né minna en 60% kjörinna
fulltrúa var nýtt fólk.
Að sjálfsögðu koma alltaf ein-
hveijar nýjungar og nýjar áherslur
með nýju fólki. Ég hef þó ekki get-
að merkt neinar róttækar áherslu-
breytingar enn sem komið er í
samstarfsmálum. Þó er því ekki að
neita að æ oftar heyrist nú að ekki
sé rétt að halda áfram að fjölga
samstarfsverkefnum, heldur beri að
snúa sér að sameiningu sveitarfé-
laganna, og það sem fyrst. Ef ekki
takist að sameina þau öll skuli byija
þar sem sameiningarviljinn er mest-
ur.“
- EG
Fimmhundruð
titlar áfor-
lagsútsölu Vöku
og Helgafells
Forlagsútsala hófst á fimmtu-
dag hjá útgáfufyrirtækinu Vöku-
Helgafelli í verslun þess í Síðu-
múla 29 i Reykjavík. Á útsölunni
eru nærri fimmhundruð bókatitl-
ar, gefnir út af Vöku og Helgafelli
gegnum tíðina. Verð bókanna er
mjög breytilegt en algengt er að
veittur sé allt að 80-90% afsláttur
frá skráðu verði bókanna og fást
þarna meðal annars tugir bó-
katitla á aðeins 50 krónur stykkið.
Margar bókanna á forlagsútsöl-
unni hafa komið í leitirnar við
flokkun og flutning á gömlum bóka-
lagerum Helgafells og hafa ekki sést
í búðum eða á mörkuðum árum og
jafnvel áratugum saman. Svo sem
menn rekur minni til voru þessi tvö
forlög sameinuð fyrir rúmu ári.
Þarna verða á boðstólum bækur
úr fjölmörgum ólikum flokkum: Inn-
lend og þýdd skáldverk, fjöldi ljóða-
bóka, ævisögur og endurminningar,
mannlífsþættir, bækur um listir og
listamenn, þjóðlífsþættir, þjóðsögur,
greinasöfn, leikrit, fjölfræðibækur
og handbækur, heimildafrásagnir,
barna- og unglingabækur og bækur
fyrir allra yngstu lesenduma.
Þótt bækur af öllu tagi frá síðustu
áratugum séu í meirihluta á þessum
bókamarkaði forlaganna tveggja
kennir þama ýmissa grasa annarra
og má finna á markaðsborðum fá-
gætar bækur frá enn eldri tímum.
Ráðgert er að forlagssalan standi
í rúmar tvær vikur eða til 11. apríl
næstkomandi.
FRISTUND
Þrumandi góð afþreying
Frístund er stútfull af krossgátum,
myndagátum, þrautum,
leikjum, léttum |
gátum og skopi. '
Alltaf nýtt og áður
óbirt.
plnr^ívwMítíiii^
?WL- Askriftarsíminn er 83033