Morgunblaðið - 27.03.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
Lögðum allt kapp á
að fá flutníngana
- segir Hörður Signrgestsson um gagnrýni á lágt tilboð
Eimskips í varnarliðsf lutningana
„VIÐ HÖFÐUM fátt tU að miða
við í þessu útboði en lögðum
kapp á að fá vamarliðsflutning-
ana í þetta skipti. Því buðum við
tiltölulega lágt, en þó nægjanlegt
til að ekki ætti að verða tap á
þessum flutningum," sagði Hörð-
ur Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélags íslands, þegar
leitað var álits hans á gagnrýni
annarra flutningsaðila á tilboð
félagsins, sem þeir telja óeðlilega
lágt.
Hörður sagði að menn yrðu að
hafa í huga að þama væri um að
ræða flutninga á 1.800 gámum á
einu ári á milli tveggja staða, sem
ætti að vera tiltölulega einfalt að
fást við. Flutningar félagsins á milli
Evrópu og Bandaríkjanna væm að
dragast saman og mætti að hluta
til líta á vamarliðsflutningana í því
ljósi, að þeir kæmu þar í staðinn.
Hörður sagði að það væri rétt
að verðið væri aðeins hluti af því
verði sem í gildi hefði verið þegar
íslensku skipafélögin önnuðust
þessa flutningas á sínum tíma,
sagði að verðið nú væm um fjórð-
ungur af því verði.
Danska skipið:
Sjópróf í Reykjavík í dag
SJÓPRÓF vegna strands danska
flutningaskipsins Arktis River
verða haldin í Reykjavík í dag.
Skipið strandaði við Rif á Snæ-
fellsnesi aðfaranótt þriðjudagsins.
Varðskipinu Óðni tókst að ná skip-
inu á flot í fyrrinótt og hélt það
þá áleiðis til Reykjavíkur. Þangað
kom skipið í gær og hefjast sjópróf
í málinu um kl. 15 í dag. Lögreglu-
rannsókn fór fram á Rifi og í gær
vann rannsóknarlögregla ríkisins
einnig að málinu.
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi f gær: Yfir norðaustur-Grænlandi er 1028 milli-
bara hæð. 500 kílómetra suðaustur af landinu er 983 millibara
lægð sem þokast austnorðaustur og vaxandi 978 millibara lægð
um 1700 kílómetra suður í hafi þokast norðaustur.
SPÁ: í dag verður norðaustanátt, víðast strekkingsvindur. Él um
norðan- og austanvert landið en bjart suðvestanlands. Hiti rétt um
eða undir frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR: Norðaustanátt og víða vægt frost. Dálítil él við
norðaustur- og austurströndina, en úrkomulaust og víða léttskýjað
annars staðar.
SUNNUDAGUR: Fremur hæg breytileg átt og hiti nálægt frost-
marki. Dálítil él við austurströndina og á annesjum vestanlands,
en víða bjart veður inn til landsins.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
A
g| Hálfskýjað
'dðlk. Skýjað
W/Æfflm
/ /\ Alskyjað
yy//ÆnW/j
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hltl 0 veður úrkomaígr
Reykjavik 3 skýjaó
Bergen 3 skúr
Helsinki 1 hálfskýjað
Jan Mayen -5 snjóél
Kaupmannah. S skýjað
Narssarssuaq -1 úrk.ígr.
Nuuk -8 snjókoma
Osló 1 þokumóða
Stokkhólmur 1 þokumóða
Þórshöfn 2 slydda
Algarve 17 hálfskýjað
Amsterdam 10 skýjað
Aþena 15 léttskýjað
Barcelona 15 þokumóða
Berlfn 8 skýjað
Chicago 8 þokumóða
Glasgow Feneyjar 12 vantar þokumóða
Frankfurt 11 léttskýjað
Hamborg 9 léttskýjað
Las Palmas 20 skýjað
London 12 skýjað
Los Angeles 11 helðskfrt
Lúxemborg 11 hálfskýjað
Madrfd 16 hálfskýjað
Malaga 9 heiðskfrt
Mallorca 16 mistur
Mlami 23 skýjað
Montreal 6 rigning
NewYork 8 alskýjað
Parfs 11 skýjað
Róm Vfn 15 vantar rigning
Washington 13 lóttskýjað
Winnipeg -3 skýjað
Engar tóbaksvörur
seldar á Egilsstöðum
og Seyðisfirði
REYKINGAR verða litnar
homauga víðsvegar um land i
dag. Tóbaksvarnarnefnd og
Samtökin um reyklaust ísland
árið 2000 hafa hvatt reykinga-
menn til þess að gera daginn
reyklausan. Fyrirtæki, heil-
brigðisyfirvöld og félagasam-
tök Iýsa stuðningi við
málstaðinn, þar á meðal versl-
anir á Egilsstöðum og Seyðis-
firði sem selja ekki tóbaksvömr
í dag.
sem heilbrigðis og trygginga-
málaráðuneytið og Landlækni-
sembættið heldur með héraðs-
læknum á Akureyri þessa dagana
skoraði í gær á landsmenn að
taka þátt í reyklausum degi og
sameinast í því að úthýsa „einni
mestu heilsuvá þjóðarinnar“ eins
og það er orðað í ályktuninni.
Að sögn Þorvarðar Ömólfsson-
ar starfsmanns Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur verður opið hús
á skrifstofu félagsins við Skóg-
arhlíð í dag. Þar geta reykinga-
menn sótt sér fróðleik og
stuðning. Einnig munu leiðbein-
endur á tóbaksvamamámskeiðum
svara í símann og gefa holl ráð.
„Þeir sem hafa áhuga á því að
ganga í reyklausa liðið og aðrir
sem áhuga hafa á þessu máli eru
velkomnir. Hér verður boðið upp
á kaffi, sýnd myndbönd allan dag-
inn og bæklingar liggja frammi.
Þetta er einnig kjörið tækifæri til
þess að skoða húsnæðið í Skóg-
arhlíð," sagði Þorvarður.
Tóbaksvamarnámskeið, þar
sem reykingamönnum fá stuðning
•til þess að láta af vananum, eru
nú í boði á 13 stöðum á landinu.
Þorvarður sagði að nýlega hefði
Krabbameinsfélaginu borist
beiðni frá Alþýðubankanum að
halda slíkt námskeið fyrir starfs-
menn hans. Reykingamönnum
innan bankans verður boðið á
námskeiðið þeim að endurgjalds-
lausu. Þetta er í fyrsta skipti sem
fyrirtæki kaupir slíkt námskeið
en erlendis er þessi háttur við-
tekinn.
Það er von tóbaksvarnarmanna að sem flestir drepi í síðustu síga-
rettunni í dag.
Reyklaus dagur í dag:
Mjólkurmálið:
Akvörðun um
refsingu frestað
TVEIR dómar féllu í sakadómi
Reykjavíkur á þriðjudag í svo-
kölluðu mjólkurmáli, en nokkrir
starfsmenn Mjólkursamsölunnar
og kaupmenn voru ákærðir fyrir
verslun með stolnar mjólkurvör-
ur. í dómsorði segir að fresta
skuli ákvörðun um refsingu
hinna ákærðu og falli hún niður
að tveimur árum liðnum, sé al-
mennt skilorð haldið.
Mál þetta kom upp í janúar á
síðasta ári, þegar kært var til rann-
sóknarlögreglu ríkisins yfir þjófnaði
á framleiðsluvörum Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík. Við rannsókn
málsins viðurkenndi nokkur fjöldi
þáverandi og fyrrverandi starfs-
manna fyrirtækisins að hafa um
nokkurra mánaða skeið tekið vörur
ófijálsri hendi og selt kaupmönnum
í Reykjavík og nágrenni fyrir hálf-
virði eða 2/s af heildsöluverði.
í öðru málinu sem dæmt var í á
þriðjudag voru ákærðu einn starfs-
maður Mjólkursamsölunnar og sjö
kaupmenn, en í hinu þrír starfs-
menn og tveir kaupmenn. í niður-
stöðum dómsins í báðum málunum
segir, að brot starfsmannanna varði
við 244. grein almennra hegningar-
laga og brot kaupmannanna við
263. grein sömu laga. Þá segir að
ekki verði hjá því komist að líta til
þess, að hjá rannsóknarlögreglu
ríkisins viðurkenndi nokkur fjöldi
starfsmanna Mjólkursamsölunnar
að hafa tekið vörur að ófijálsu frá
fyrirtækinu og selt til kaupmanna.
Fjórir starfsmenn hafi verið ákærð-
ir, en ekki verði séð að til aðgerða
ákæruvalds hafi komið gegn öðrum.
Varðandi þátt kaupmannanna virð-
ist ekki aðhafst gegn öðrum en
þeim níu sem þessi tvö mál fjalli
um. Enginn hinna ákærðu utan
einnw hafi áður gerst sekt um hegn-
ingarlagabrot.
Að þessu athuguðu ákvað dóm-
ari að fresta ákvörðun refsingar á
hendur öllum ákærðu og skal hún
falla niður að liðnum tveimur árum
frá uppkvaðningu dóms, haldi þau
almennt skijorð. Dóminn kvað upp
Amgrímur ísberg, sakadómari.
1NNLENT