Morgunblaðið - 27.03.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
9
íslenskar Brrruður!
- því það er stutt
úr bökunarofnunum okkar
á borðíð til þín.
Þingmenn glugga í Helgarpóstinn við þinglausnir.
Albert, DV og Þjóðviljinn
Eins og við var að búast hafa fjölmiðlar gert mikið veður úr
málum Alberts Guðmundssonar síðustu daga og flest annað
fallið í skuggann, ekki sízt hjá útvarps- og sjónvarpsstöðvum.
Staksteinar staldra í dag við forystugreinar tveggja dagblaða,
DV og Þjóðviljans, um þetta efni.
„Siðferðilegur
mælikvarði“
Forystugrein Þjóðvilj-
ans um Albertsmál hefst
á þessum orðum:
„Sá einstæði atburður
í sögu islenzka lýðveldis-
ins hefur gerst að
ráðherra hefur verið
knúinn til að segja af sér
embætti. Albert Guð-
mundsson á ekki lengur
sæ*i i ríkisstjóm
eingrims Hermanns-
jonar, heldur er hann
einungis einn af þing-
mönnum Sjálfstæðis-
flokksins . . .
Að sögn Þorsteins
Pálssonar er þetta mál
siðferðilegur mælikvarði
á Sjálfstæðisflokkinn.
Flest bendir til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn fái
ekki ýkjamörg stig út úr
þeirri siðferðismælingu.
Þetta mál Alberts hef-
ur verið til umræðu
mánuðum saman. Það
hefur valdið ótviræðum
trúnaðarbresti án tillits
til þess, hvort Albert hef-
ur gerst sekur um ólög-
legt athæfi eða ekki.
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra,
hefur þvegið hendur
sínar af þessu máli með
þvi að skjóta ábyrgðinni
yfir á fjármálaráðher-
rann, Þorstein Pálsson,
sem er formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Þor-
steinn hefur látið málið
dankast von úr viti —
alla vega fram yfir lands-
fund Sjálfstæðisflokks-
ins, þar sem honum
sjálfum var vottað traust
með rússneskri kosn-
ingu. Ef til vill hefur
Þorsteinn allan þennan
tíma verið að leita að
hinum siðferðilega mæli-
kvarða Sjálfstæðis-
flokksins, sem nú loksins
virðist vera kominn í leit-
iraar, þótt laskaður sé.“
„Þjóðin tapaði
áþví“
Forystugrein DV hefst
á þessum orðum:
„Rétt var af Albert
Guðmundssyni að láta af
ráöherraembætti eins og
málum var komið. Hinn
möguleikinn hefði
greinilega aðeins verið
að láta reka sig úr emb-
ætti og efsta sæti á lista
sjálfstæðismanna og fara
í hart með sérframboð.
Sjálfstæðisflokkurinn er
mikilvægur flokkur.
Þjóðin tapaði á því, að
honum yrði illa sundrað
og ný flokksnefna bætt-
ist í hóp þingflokka.
Einnig var rétt af
stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna að láta
Albert halda efsta sæti
listans í Reykjavík þrátt
fyrir allt. Albert hafði
unnið til þess sætis með
sigri í prófkjöri. Sú kosn-
ing fór fram eftir að
margs konar sakargiftir
gegn Albert höfðu birzt
i fjölmiðlum . .
Það eru sögulega mik-
il tíðindi, að ráðherra
skuli neyddur til að segja
af sér hér á Iandi. En
raunar ættum við fram-
vegis að hafa þann hátt
siðaðra manna, að ráð-
herra víki úr sæti, eftir
að þungar sakargiftir
hafa komið fram og með-
an málin eru f rannsókn."
Niðurstöður
DV
Það er niðurstaða
þessa leiðara DV sl. mið-
vikudag að „líkur fyrir
sérframboði Alberts-
manna séu litlar".
Lokaorð forystugreinar-
innar eru þessi:
„Þorsteinn Pálsson
vinnur það til lengdar,
að hann er ótvíræðari
leiðtogi en fyrr. Þor-
steinn var um langt skeið
almennt talinn aumur
formaður. Hann hefur
komizt upp úr þeim sljó-
leika, bæði nú og þegar
hann hindraði á elleftu
stundu, að sjómanna-
verkfall yrði stöðvað með
lögum. Þorsteinn er orð-
inn ótvíræðara efni í
forsætisráðherra.
Hefði leikflétta Þro-
steins brugðist hefðu
formennska hans brátt
orðið f hættu. Hann hefði
getað orðið sá formaður,
sem klofið hefði Sjálf-
stæðisflokkinn f herðar
niður.
Albert hefur tekið
ábyrgðina á sig, senni-
lega til að varðveita frið
f flokknum. Hann lendir
þó í því, að sagan verður
honum ekki hliðholl."
Þanning blöstu mál við
Ieiðarahöfundi DV sl.
miðvikudag. Og f dag er
föstudagur.
Égkýs
Sjálfstæðis-
flokkinn
Guðjón
Ólafsson,
málari, Sandgerði:
„Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
vegna þess að ég hef trú á
stefnu hans. Flokkurinn hef-
ur náð árangri á undan-
förnum árum, og er að mér
finnst á réttri leið."
X-D
wmREYKJANESmm
Á RÉTTRIIIID
TSítamatkadulLnn.
lattisgetu 12 - 18
Toyota Landcruser stuttur '86
Ekinn 20 þ.km. V. 830 þ.
MMC Pajero stuttur '85
Ekinn 30 þ.km. V. 750 .
MMC L 300 4x4 '85
Ekinn 39 þ.km. V. 690 þ.
Subaru Justy rauður '85
Ekinn 36 þ.km. V. 290 þ.
Daihatsu Curo
Rauður, ekinn 10 þ.km. V. 250 þ.
Ford Escort XR3I '87
Ekinn 8 þ.km. V. 690 þ.
Volvo 240 station '85
Ekinn 45 þ.km. V. 690 þ.
Ford Fiesta '86
Fiat Panda '83
Pulsar '86
Daihatsu 4x4 '85
með gluggum.
Volvo station '82
Fiat Uno '86
Opel Ascona '84
Rauður, ekinn 65 þ.km. V. 410 þ.
Subaru 4x4 1800 station '85
36 þ.km. 5 gira. V. 520 þ.
Citroen BX 14-RE '84
5 dyra. 5 gíra. V. 400 þ.
Toyota Corolla Liftback '84
33 þ.km. 5 gíra. V. 385 þ.
Ford Bronco II '85
Blár, sjálfsk., litað gler o.fl. V. 880 þ.
BMW 316 '84
26 þ.km. Sem nýr. V. 500 þ.
Mazda 626 GTI 2000 '86
Hvítur, 5 gíra, ekinn 20 þús., vökvastýri,
lo profile dekk.
Nissan Vanette '87
Hvítur, 7 manna, ekinn 2 þ.km.
Honda Prelude EX 1985
L.blásans, sóllúga, vökvastýri, ABS
bremsur, sjálfskiptur. Ath! skipti á ódýr-
ari. Verð 620 þús.
MMC Lancer GLX 1985
Silfurgrár, ekinn 38 þús. Útvarp + kasettu-
tæki. Sumar- og snjódekk. Skipti á Lada
Sport.
Mazda RX-7 1980
Grásans. Einn sá besti af sinni árgerð.
Ath! Skipti á ódýrari. Verö 420 þús.