Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 15
15
Árni Gunnarsson
menn. Á einum stað fræðir hann
nemandann með tilvitnun í marxist-
ann Herbert Marcuse, þar sem
segir: „Afnám sjónvarps og skyldra
miðla gæti þannig fært okkur nær
því marki, sem hinar innbyggðu
mótsagnir kapítalismans náðu ekki,
þ.e. hruni kerfisins". Og á öðrum
stað um skoðanir marxista segir
Þorbjörn: „Marxistar telja, að í okk-
ar heimshluta séu það fjármagns-
eigendur, sem beint eða óbeint hafi
úrslitaáhrif á starfsemi fjölmiðl-
anna“.
Fijálst útvarp
falskenning?
Lesendur fá sjálfir að dæma um
með hveijum Þorbjörn stendur í
þessum málum, þegar hann ályktar
svo í grein í DV í nóvember 1984:
„Málsvarar auglýsingastefnunnar
halda því mjög oft á lofti að það
séu í raun notendur sem séu hæst-
ráðandi í þessum efnum. Bæði
eigendur stöðvanna og auglýsendur
verði að beygja sig undir vilja
þeirra. Þetta er í meginatriðum fals-
kenning ...“
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
Svavar Gestsson
Frjálst útvarp varð ekki fals-
kenning. Stóru orðin um samsæri
fjármagnsins á Bylgjunni og fleiri
stöðvum urðu ekki að veruleika hjá
þeim alþýðubandalagsmönnum.
Pólitískt tilgangsleysi er samnefn-
ari þessara manna og þeirra aftur-
haldsafla er telja það falskenningar
að valdið sé best niðurkomið í hönd-
um fólksins.
Framsókn og frjáls-
lyndið eiga lítið
sameiginlegt
í fyrirsögn þessari kemur ekkert
nýtt fram. Fyrir þá, sem enn velta
þó vöngum um hlutverk Framsókn-
arflokksins í íslenskri pólitík, má
til staðfestingar þeirri fullyrðingu
úr fyrirsögninni benda á viðhorf
framsóknarmanna til fijáls útvarps.
Ýmsir framsóknarmenn tóku þátt í
umræðunni um fijálst útvarp.
Meðal annars hafði Páll Péturs-
son, ráðherrakandidat framsóknar-
manna, þetta að segja um
hugmyndir sjálfstæðismanna um
fijálsan útvarpsrekstur í þingræðu
Páll Pétursson
1977. „Þetta frumvarp, sem hér
liggur fýrir til umræðu um breyt-
ingu á útvarpslögum, er sennilega
hægt að flokka undir það sem kalla
mætti fijálshyggjufrumvarp." Og
litlu síðar segir Páll: „Ég lít svo á
að það sé meira atriði að reyna að
halda uppi einni góðri útvarpsstöð
en mörgum lélegum. Ríkisútvarp
okkar hefur barist í bökkum fjár-
hagslega, svo sem hæstvirtur
menntamálaráðherra hefur marg-
tekið fram hér í þingsölum, og ég
hef enga trú á því að þetta útvarp,
sem ég held að miðað við aðstæður
sé harla gott mundi batna við að
dreifa kröftunum."
Stefán Valgeirsson sagði í þing-
ræðu 11. maí 1985: „Ég held að
ástandið í þjóðfélaginu sé heldur
ekki þannig að ástæða sé til að leyfa
mörgum útvarpsstöðvum og jafnvel
sjónvarpsstöðvum að taka til
starfa." Og þann 6. maí hefur Stef-
án þetta um málið að segja: „Það
er auðvitað þarflaust fyrir mig að
ræða mikið um þetta mál ... ég
er algerlega á móti þessu frum-
varpi og mun greiða atkvæði gegn
því.“
Allir að g-era það gott
Ungur framsóknarmaður, Helgi
Pétursson, lagði orð í belg til um-
ræðunnar um frjálst útvarp. Hann
sagði m.a. í erindi er hann flutti í
útvarpinu og sem birtist í fjölritinu
„Vísir að fjölmiðlafræði“, og minnst
var á hér að framan: „Ég fullyrði
hér að það sé eini tilgangur þeirra
manna sem hafa haft uppi tilburði
til að fá að setja upp útvarpsstöðv-
ar að græða peninga." Helgi dregur
þá ályktun á öðrum stað í erindinu
að tillögur sem settar höfðu verið
fram um aukið fijálsræði í útvarps-
málum, að þar fari „einhver gróf-
asta móðgun sem dengt hefur verið
í andlit starfsfólks ríkisútvarpsins
í mörg ár.“ í lok erindisins segir
Helgi: „Hugsum um eitt: Fyrst
ríkisútvarpið er í eigu allra' íslend-
inga, hvem er þá verið að einoka?
Góðar stundir." Hlýtur ekki ná-
kvæmlega sama staðan að vera
uppi í viðhorfum framsóknarmanna
til útgáfu blaða? Hefði Helgi og
fleiri spurt sem svo ef Lögbirtinga-
blaðið væri eina blaðið sem gefið
væri út á Islandi? Hvem er verið
að einoka? Góðar stundir.
Hér er ekki, eins og áður sagði,
um alls ófundna uppgötvun um
Framsóknarflokkinn að ræða.
Framsóknarflokkurinn er flokkur
þröngra hagsmuna og stjómlyndis,
sem ég hef þegar eytt allof mörgum
orðum í. Góðar stundir.
Höfundur er formuður Heimdallar.
Skátaþing í
Vestmanna-
eyjum
DAGANA 27.-29. mars verður
skátaþing haldið í Vestmannaeyj-
um. Skátaþingið er haldið annað
hvert ár og fer það með æðstu
stjórn í málefnum íslenskra
skáta. Ágúst Þorsteinsson skáta-
höfðingi setur þingið.
Á skátaþing mæta nú um 100
þátttakendur úr 52 deildum og 36
skátafélögum víðsvegar að af
landinu. Jafnframt mæta til leiks
fulltrúar skátasambanda og lands-
samtaka sérskáta.
Líkur benda til að þetta skáta-
þing marki merk tímamót í sögu
75 ára skátastarfs á íslandi því auk
almennra þingstarfa svo sem kosn-
ingu í stjóm og fastanefndir verður
tekin afstaða til tillagna um nýjan
verkefnagrunn skátastarfs er
reyndur hefur verið í tilraunastarfí
undanfarin 2 ár og felur í sér mikl-
ar breytingar á starfsaðferðum og
verkefnavali og lagafrumvarps um
breytingar á uppbyggingu hreyf-
ingarinnar.
Herra Ante Lindström sænskur
sérfræðingur í friðarfræðslumálum
æskulýðshreyfíngar í Svíþjóð verð-
ur sérstakur gestur þingsins og
heldur framsögu um friðarfræðslu
í æskulýðsstarfí auk þess að að-
stoða umræðuhópa þingsins.
Góóan daginn!
dagana 27. og 28. mars
ekki í veg fyrir keppendur sem sumir hverjir gætu
verið með hugann fullan af TOMMA BORGURUM. Og
athugið að hóflega étinn TOMMA BORGARI gleður
mannsins hjarta eins og hann sagði Snarreddarinn
árið sem hann sofnaði á Ekkjunni (undir stýri sko).
tSÍ’.T'“
16°0- \„o»°n09S 9
7 por«*«’nnln9
1c«m9r‘nn,,ln9a*0''" rWbnra**""
8Sle " —.0^**0"“
Tilboð þessa helgi:
Tommi, franskar og pepsí á
190 kall!
,éT«\b°»
,«Toyola
^unnvor*^00
>°9 * —ní.E*00'1
Dal‘“n «\ö»'-«r**°n°9
9.jOh»nnW fiuöb®r9ut
p- w»'*lo'n „ kM«\'»*on *
14- 09S .nn*^r°'
»ooo.
■TOMMA
^HAMBORGARAR
GRENSASVEGI7
LÆKJARTORGI
LAUGAVEGI 26
REYKJAVfKURVEGI 68 HAFNARFIRÐI
FYTJUM í NJARÐVÍK
:STI BITINN fi BÆNUM
TOMMA GETRAUN
Til kl. 14.00 á laugardag verður í gangi get-
raun sem ffelst í þvi að þátttakendur reyna að
segja til um röð fyrstu þriggja keppenda í
Tomma rallýinu með því að raða þeim sam-
kvæmt rásnúmerum þeirra á get-
raunaseðilinn hér að neðan, skrifa síðan
samviskusamlega nöfn sín, heimilisföng og
símanúmer á seðilinn og skila honum síðan í
þar til ætlaðar tunnur sem verða til staðar á
öllum Tomma stöðum hér á Reykjavíkur- og
Suðumesjasvæðinu. Um leið og getrauna-
seðlinum er stungið í tunnuna gæti verið gott
að muna eftir tilboðsverðinu á Tomma borg-
ara, frönskum og Pepsí sem verður í boði
þessa helgi (það gerði sá sem vann fyrstu
verðlaun í síðustu getraun).
í boði eru þrenn verðlaun: Ein fyrstu verðlaun
sem era 10 skammtar af Tomma borgara,
frönskum og Pepsí, tvenn önnur verðlaun
sem era 5 skammtar af Tomma borgara,
frönskum og Pepsí og hvorki meira né minna
en tíu þriðju verðlaun sem eru 1 skammtur af
Tomma borgara, frönskum og Pepsí. j
Tomma borgara er að sjálfsögðu aðeins not-
að 100% nautakjöt, engin aukaefni.
KLIPPIÐ HÉR
TOMMA GETRAUNASEÐILL
í Tomma rallýinu verður röð fyrstu
þriggja keppendanna þessi:
1. sæti rásnr. _________________
2. sæti rásnr. _________________
3. sæti rásnr. _________________
«j Nafn___
| Heimili _
| Póstfang
* Sími____
‘4