Morgunblaðið - 27.03.1987, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
33
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið.
Sérframboð
Alberts
Vonir um sæmilegan frið í
Sjálfstæðisflokknum eftir
þær sviptingar, sem urðu vegna
skattamála Alberts Guðmunds-
sonar, hafa nú brugðizt. Sú
ákvörðun fráfarandi iðnaðarráð-
herra að víkja úr efsta sæti
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík og efna til
sérstaks framboðs á vegum hins
svonefnda Borgaraflokks þýðir
að framundan eru á næstu vik-
um mikil átök milli Sjálfstæðis-
flokksins og Alberts Guðmunds-
sonar og stuðningsmanna hans.
Ef undan er skilin stjómarmynd-
un Gunnars Thoroddsen 1980
er þetta alvarlegasti klofningur,
sem orðið hefur í Sjálfstæðis-
flokknum frá stofnun hans. Að
þessu sinni er um klofning að
ræða skömmu íyrir kosningar,
sem haft getur ófyrirsjáanlegar
afleiðingar. Þá kom upp sundur-
lyndi eftir kosningar.
Með sérframboði Alberts Guð-
mundssonar skapast ný staða í
kosningabaráttunni, ekki aðeins
fyrir Sjálfstæðisflokkinn heldur
alla flokka.
Löng reynsla sýnir, að það er
ekki beinlínis eftirsóknarvert
fyrir stjómmálamenn að efna til
slíkra framboða. Bandalag jafn-
aðarmanna varð til eftir klofning
úr Alþýðuflokknum, en þing-
menn þess gengu til samstarfs
við Alþýðuflokkinn á ný seint á
yfirstandandi kjörtímabili. Sam-
tök frjálslyndra og vinstri manna
urðu til eftir klofning úr Al-
þýðubandalaginu fyrir rúmum
einum og hálfum áratug. Sam-
tökin unnu mikinn sigur í einum
kosningum og áttu aðild að ríkis-
stjóm eitt kjörtímabil en lögðu
síðan upp laupana. I-listi, fram-
boð Hannibals Valdemarssonar
1967, er hann gekk gegn forystu
Alþýðubandalagsins þá og vann
umtalsverðan sigur í kosningum,
varð undanfari þeirrar flokks-
myndunar.
Klofningsframboð hafa orðið
til úr flokkum í sveitarstjómum.
Fýnnr nokkrum árum kom t.d.
upp klofningur meðal Sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjóm Kópavogs,
sem leiddi til þess að sérstakt
framboð kom fram á þeirra veg-
um í bæjarstjómarkosningum.
Smátt og smátt tókst samstarf
milli Sjálfstæðisflokksins og
þeirra, sem efndu til sérfram-
boðs, sem leiddi að lokum til
einingar á ný. Þess eru engin
dæmi á Alþingi, að klofnings-
framboð hafí leitt til myndunar
lífvænlegra stjómmálasamtaka,
þegar til lengri tíma er litið.
Hlutskipti Alberts Guðmunds-
sonar og félaga hans á Alþingi
getur því orðið þeim þungbært.
Að vísu er ekki útilokað að þeir
geti náð lykilstöðu í viðræðum
um stjómarmyndun, en það er
háð tilviljunum fyrst og fremst.
í bréfí Alberts vegna afsagnar
hans af lista sjálfstæðismanna
gefur hann þá skýringu, að Þor-
steinn Pálsson hafi haft uppi
„síendurteknar hótanir" í sinn
garð; „hótanir" um að þrengja
starf Alberts að kosningum lokn-
um sem 1. þingmanns
Reykjavíkur „svo að fyrirfram
er ákveðið að mér verður erfítt
að gegna skyldum þeim, sem
mér ber að gegna á Alþingi ís-
Iendinga“, segir í bréfí Alberts.
Hér er vísað til ummæla Þor-
steins Pálssonar í sjónvarpsvið-
tali þess efnis, að hann teldi
ekki að Albert gæti átt kost á
ráðherraembætti að kosningum
loknum. Er þetta nægileg
ástæða til að stofna nýjan stjóm-
málaflokk?
í umræðum manna um þessa
óvæntu þróun mála, má ekki
gleymast, hvert upphafíð er.
Upplýst er, að afsláttargreiðslur
frá Hafskip hf., vegna innflutn-
ings á vörum til Afengis- og
tóbaksverslunar ríkisins, til Al-
berts Guðmundssonar eða heild-
verzlunar hans, voru ekki taldar
fram til skatts. Það gerðist, þeg-
ar Albert var ijármálaráðherra.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, átti engan
annan kost en þann að óska eft-
ir því við Albert Guðmundsson,
að hann tæki pólitískum afleið-
ingum þeirra mistaka. Það gerði
Albert með afsögn sinni úr ráð-
herraembætti sl. þriðjudag.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
hefði legið undir stórkostlegu
ámæli innan flokks síns og utan,
ef viðbrögð hans hefðu engin
verið. Á hinn bóginn lýsti Þor-
steinn Pálsson þeirri skoðun
sinni, við stjóm Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reylgavík, að framboðslistinn í
Reykjavík ætti að vera óbreyttur
og Albert Guðmundsson í efsta
sæti. Við þá niðurstöðu hefði
Aibert átt að geta unað og virt-
ist gera það í fyrstu.
Það er alltaf hætta á því, þeg-
ar sundrung verður meðal póli-
tískra samheija, að menn gangi
of langt í baráttunni og sjáist
ekki fyrir. Morgunblaðið hvetur
bæði talsmenn Sjálfstæðis-
flokksins og Albert Gúðmunds-
son og félaga hans til þess að
haga málflutningi sínum í kosn-
ingabaráttunni þannig að þeir
hafí fullan sóma af. íslenskt
þjóðfélag þarf á öðru að halda
en því að andrúmið í landinu
verði eitrað af heift og jafnvel
hatri milli fyrri samherja.
Fjölmennur fundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:
Einróma stuðningur
við flokksforystuna
„Menn eru ekki í Sjálfstæðisflokknum vegna einstakl-
inga heldur málstaðar,“ sagði Friðrik Sophusson
HVERT sæti var skipað og
staðið í öllum göngum í
Súlnasal Hótel Sögu í gær-
kvöldi, er fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
kom þar saman til að sam-
þykkja nýjan framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í höfuð-
borginni. Birgir ísleifur
Gunnarsson, alþingismaður,
sagði, að hann myndi ekki
eftir fjölmennari fundi I
fulltrúaráðinu þau þijátíu
ár, sem hann hefði starfað
í Sjálfstæðisflokknum. Eng-
inn þeirra, sem kvöddu sér
hljóðs, tók málstað Alberts
Guðmundssonar.
Hinn nýi framboðslisti var
samþykktur samhljóða svo og
ályktun, þar sem lýst er yfír
fullu trausti á formanni Sjálf-
stæðisflokksins og stjóm full-
trúaráðsins.
Friðrik Sophusson, vara-
formaður flokksins, sem nú
mun skipa efsta sæti á listanum
í Reykjavík, sagði í ræðu á
fundinum, að menn væru ekki
í Sjálfstæðisflokknum vegna
einstaklinga, hvorki Alberts
Friðrik Sophusson, sem skipar
efsta sæti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, ávarpar fund Fulltrú-
aráðsins.
Guðmundssonar né annarra,
heldur vegna málstaðar, vegna
trúar á hugsjónir flokksins.
Hann kvaðst fyllast endumýj-
uðum þrótti, þegar hann stæði
frammi fyrir þessum glæsilega
fundi.
Á fundinum rakti Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, mál Alberts Guð-
mundssonar og vísaði á bug
fullyrðingum Alberts, að
starfssvið hans í flokknum
hefði verið þrengt vegna yfir-
lýsinga sinna. Hann sagði
ennfremur, að rökin fyrir fram-
boði Alberts í Reykjavík dygðu
ekki fyrir framboði stuðnings-
manna hans í öðmm kjördæm-
um.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
alþingismaður, kvaðst hafa
starfað með með Alberti Guð-
mundssyni í 17 ár og varla
hefði liðið sá dagur, að þeir
hefðu ekki talað saman. Þess
vegna harmaði hann, að Albert
hefði nú stigið skref, sem ekki
yrði tekið iftur. Ekki væri
hægt að una við aðgerð Al-
berts og henni yrði að mæta
af fullkominni hörku, enda
væri ætlun Albertsmanna að
reyna að mola Sjálfstæðis-
flokkinn sundur.
Fundur fulltrúaráðsins hófst
klukkan 21:00 og stóð í hálfa
aðra klukkustund. Fundarstjóri
var Davíð Oddsson, borgar-
stjóri.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins flytur ræðu
á fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík á Hótel
Sögu i gærkvöldi. Davíð Oddsson
borgarstjóri var fundarstjóri.
Morgunblaðið/ólafur K. Magnússon
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna:
Harmar ákvörðun Alberts
EFTIRF ARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á fundi full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna i
Reykjavík á Hótel Sögu i gær-
kvöldi:
„Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík harmar þá ákvörðun Al-
berts Guðmundssonar að hætta við
að vera í framboði á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við
næstkomandi Alþingiskosningar.
Fulltrúaráðið vill nota þetta tækifæri
og þakka Albert Guðmundssyni störf
í þágu sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Fulltrúaráðið lýsir bví jafnframt
yfír, að það styðji í einu og öllu þær
ákvarðanir sem stóm fulltrúaráðsins
hefur tekið varðandi meðferð fram-
boðsmála flokksins í Reykjavík
síðustu daga. Sérstaklega þakkar
fulltrúaráðið Sveini H. Skúlasyni,
formanni ráðsins, örugga og vandaða
forystu í þessum vandasömu málum.
í tilefni af því bréfí er Albert Guð-
mundsson hefur í. dag ritað stjóm
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík vill fulltrúaráðið taka fram
að það telur að formaður Sjálfstæðis-
flokks hafí á öllum stigum þess máls,
er leiddi til afsagnar Alberts Guð-
mundssonar úr embætti iðnaðarráð-
herra og nú hefur leitt til þess að
hann dregur sig út af framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að
eigin frumkvæði, verið rétt og að
öllu leyti í samræmi við skyldur hans
sem formanns Sjálfstæðisflokksins.
Fulltrúaráðið hafnar með öllu þeim
fullyrðingum Alberts Guðmundsson-
ar í bréfi hans að formaður Sjálfstæð-
isflokksins hafí með einhveijum hætti
haft í hótunum við Albert Guðmunds-
son þess efnis að hann mundi ekki
geta rækt með eðlilegum hætti skyld-
ur sínar sem þingmaður Reykvíkinga.
Fulltrúaráðið skorar að lokum á
sjálfstæðismenn í Reylqavík að
standa þétt saman um framboðslista
flokksins í Reykjavík í komandi Al-
þingiskosningum. Það er þjóðamauð-
syn að kosningaúrslitin verði
Sjálfstæðisflokknum sem hagstæð-
ust. Sterkur og öflugur Sjálfstæðis-
flokkur er eina vöm þjóðarinnar gegn
óstjóm og upplausnarstefnu vinstri
afíanna. Sá árangur sem náðst hefur
á síðustu áram með stjómarþátttöku
Sjálfstæðisflokksins er góður, honum
má ekki spilla. Sterkur Sjálfstæðis-
flokkur er forsenda frelsis, framfara
og mannúðar á íslandi."
Friðrik
skipar
1. sætið
FRIÐRIK Sophusson, vara-
formaður Sjálfstæðisflokks- -
ins, skipar efsta sætið á
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í
komandi þingkosningum.
Ákvörðun þessi var tekin á
fundi fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík í
gærkvöldi eftir að Albert Guð-
mundsson hafði sagt sig af
listanum.
Friðrik skipaði áður annað
sætið á listanum. Aðrir fram-
bjóðendur fram að 16. sæti
listans færast einnig fram, en í
16. sætið hefur fulltrúaráðið
valið Hannes H. Garðarsson,
flokkssljóra, formann Málfunda-
félagsins Óðins.
Hannes H. Garðarsson
Albert Guðmundsson ákveður sérframboð:
„Það var ekki um annað
að ræða - það var
engin fær útgönguleið“
„Guð veit að ég sé eftir þessu,“ segir
Albert um hnefahöggið - „met dreng-
skap ljósmyndarans meir en orð fá lýst“
ALBERT Guðmundsson, fyrsti þingmaður Reykvikinga, dró í gser
framboð sitt til baka, sem fyrsti maður á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, jafnframt því sem Albert ákvað að bjóða sig
fram i sérframboði í komandi alþingiskosningum, undir listabók-
stafnum S, í nafni Borgaraflokksins. Albert staðfesti þessa ákvörðun
sina í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins í gærkveldi og greindi
frá þvi að hann myndi að öllum líkindum bjóða fram í öllum kjördæm-
um landsins. Albert segist sjálfur munu skipa efsta sæti S-listans i
Reykjavík, Guðmundur Ágústsson héraðsdómslögmaður annað sætið
og Aðalheiður Bjamfreðsdóttir, formaður Verkakvennafélagsins
Framsóknar skipi þriðja sætið. Þá hafi verið ákveðið að Júlíus Sól-
nes muni skipa fyrsta sæti S-listans í Reykjaneskjördæmi. Albert
segir að gengið verði frá listum Borgaraflokksins í dag.
Viðtalið við Albert, sem tekið var á heimili hans við Laufásveg í
gærkveldi, fer hér á eftir.
Morgunblaöiö/Júlíus
Albert Guðmundsson á heimili sínu í gærkveldi.
— Albert, þú sagðir við mig
fyrr f dag, að það væri þér þung-
bært, sem þú værir að gera i
dag. Eftir það samtal dregur þú
nafn þitt til baka af D-listanum
og ákveður sérframboð. Hvað
réði endanlegri ákvörðun þinni í
þessu efni?
„Eins og kemur fram í bréfínu
sem ég skrifaði formanni fulltrúa-
ráðsins, þá varð sú ákvörðun mín
til, að fara af D-lista Sjálfstæðis-
flokksins og fara í sjálfstætt
framboð, eftir þau ummæli sem
formaður Sjálfstæðisflokksins, Þor-
steinn Pálsson, lét falla f sjónvarps-
þætti á Stöð 2 síðastliðið þriðju-
dagskvöld. Hann tók fram, að þrátt
fyrir vera mína í fyrsta sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins, og þar með sá
þingmaður sem hefur flest atkvæði
á bak við sig, af öllum 63 væntan-
legum þingmönnum, skuli ég eftir
kosningar vera áhrifalaus. Eg get
ekki tekið því sem fyrsti þingmaður
Reykvíkinga, að formaður Sjálf-
stæðisflokksins og frambjóðandi í
öðru kjördæmi lýsi því yfír að þeg-
ar hafí verið tekin ákvörðun um
það, að Reykvíkingar hafí ekki
sama rétt í sínum þingmanni og
aðrir landshlutar."
— Hvenær tókstu endanlega
ákvörðun um sjálfstætt framboð?
„Það var reyndar ekki fyrr en í
morgun sem endanleg ákvörðun
mín lá fyrir. Ég hitti Þorstein Páls-
son í morgun, því það er siður þegar
ráðherrar hætta, að þeir afliendi
arftaka sínum lyklavöldin að ráðu-
neyti sínu. Við Þorsteinn töluðum
saman í morgun í mesta bróðemi,
eins og við höfum alltaf gert, en
þá varð mér Ijóst að það var ekki
um neina hugarfarsbreytingu að
ræða hjá formanninum. Eg tel mig
hafa reynt allt sem hægt er frá
minni hálfu til þess að halda sátt-
um. Ég sagði af mér ráðherraemb-
ætti og tel mig hafa lítillækkað mig
með því, til þess eins að reyna að
halda sáttum, en ummæli for-
mannsins f sjónvarpsþættinum
sýndu fram á að það var ekki sátta-
vilji fyrir hendi. Þrátt fyrir það vildi
ég ræða þessi mál þegar ég af-
henti honum lyklana, en hans áhugi
beindist allur að því að skýra þau
orð sem hann lét falla í sjónvarps-
þættinum á annan hátt en almenn-
ingur og ég skildum þau. Orðin sem
voru látin falla, sögðu sfna sögu.
Skilningurinn og túlkunin sem
formaðurinn hefur á þessum orðum
er á allt annan veg. Það var því
ekki fyrr en í morgun, að ég sá að
það var ekki um annað að ræða —
það var engin fær útgönguleið,
hvemig sem maður reyndi að ná
sáttum og halda friðinn, því miður.
Það er ekki minna sárt fyrir mig
að yfírgefa félaga mína á framboðs-
listanum en að yfirgefa ráðherra-
stólinn. Ráðherrastaða er afskap-
lega tímabundin og fallvölt staða.
Þar er ekki um fastráðningu að
ræða. Aftur á móti er félagsskapur
sem maður hefur kunnað vel við
sig í, manni kærari. Ég á eftir að
sakna margra af þessum ágætu
félögum mínum."
— Þú segist stefna að þvi að
bjóða fram í öllum kjördæmum
landsins. Ertu tilbúinn með fram-
boðslista í öllum kjördæmum?
„Ég veit ekki á hvaða stigi undir-
búningur þess máls er. Á þessari
stundu er verið að opna kosninga-
skrifstofu S-listans í Skeifunni 7
og ég hef ekki fylgst með neinni
kosningavinnu, hvorki hér í
Reykjavík né annars staðar. Ég
veit að mínir stuðningsmenn hafa
haft nokkuð mikið umfangs frá því
í gærkveldi, að þeim varðljóst hvað
ég hafði í huga. Það er fúllur vilji
hjá okkur fyrir því að bjóða fram
í öllum kjördæmum."
— Hveijir munu skipa efstu
sætin í Reykjavíkur- og Reykja-
neskjördæmi?
„Ég verð sjálfur í fyrsta sætinu
í Reykjavík. Guðmundur Ágústs-
son, ungur héraðsdómslögmaður
verður í öðru sæti listans í
Reykjavík og Aðalheiður Bjam-
freðsdóttir skipar þriðja sætið.
Frekari skipan listans ræðst seint
í kvöld og á morgun. í Reykja-
neskjördæmi hefur Júlíus Sólnes
haft veg og vanda af undirbúningi
framboðs okkar þar, í nánu sam-
starfl við mig og aðra, og hann
mun skipa þar efsta sætið. Önnur
niðurröðun á lista kemur á daginn
á morgun."
— Hvaða stefnumál munuð þið
kynna sem ykkar höfuðstefnu-
mál?
„Ég verð aldrei annað en sjálf-
stæðismaður — sjálfstæðisstefnan
er þvf okkar steftia. Ég fer síður
en svo með glöðu geði úr Sjálfstæð-
isflokknum. Reyndar fer ég ekki
úr Sjálfstæðisflokknum. Svo lengi
sem ég er í stjómmálum og svo
lengi sem ég lifi, þá er ég sjálfstæð-
ismaður í hugsjón og það breytir
mér ekkert, þótt ég sé nú f fram-
boði undir gamla listabókstaf
Sj álfstæðisflokksins. “
— Ertu með þessu að segja að
það sé enginn málefnalegur
ágreiningur á milli S-Ustans og
D-listans heldur aðeins persónu-
legur ágreiningur?
„Þessi listi verður til vegna þess
að einhveijir í forystu Sjálfstæðis-
flokksins gerðu tilraun til þess að
hefta mitt athafnafrelsi sem þing-
manns Reykvíkinga og ég er ekki
þannig maður að ég láti hefta mig.
Þess vegna má segja að ég hafí
orðið undir í einhveijum átökum
sem voru frá flokknum, en ekki frá
mér til flokksins. Það voru ákaflega
einhliða átök, því ég gerði ekkert
til þess að koma í veg fyrir að mér
yrði sparkað, hvorki ur ráðherrastól
né úr þingmennsku, því ég lít svo
á, að með ummælum formanns,
fyrst um ákvörðun þingflokksins
um að sparka mér úr ráðherrastól,
ef ég ekki segði af mér sjálfur, og
sfðan með ummælum sínum í áður-
nefndum sjónvarpsþætti, að mér
hafí verið sparkað úr Sjálfstæðis-
flokknum, þó ég vilji ekki viður-
kenna að ég sé kominn úr
flokknum."
— Hvað gerið þið ykkur vonir
um að ná mörgum þingmönnum
inn á Alþingi á vegum Borgara-
flokksins?
„Mér er ekki nokkur leið að svara
þessari spumingu núna. Ég hef
ekki hugsað það mál og geri mér
ekki Ijósa grein fýrir því hversu
mikinn stuðning þetta framboð okk-
ar hefur."
— Hugsar þú til þess, að kosn-
ingum loknum, að Borgaraflokk-
urinn sameinist Sjálfstæðis-
flokknum, eða að um nána
samvinnu þessara tveggja flokka
geti orðið að ræða?
„Nú er það svo með Borgara-
flokkinn, að hann er flokkur
borgara. Hann er flokkur sem er
líkur Sjálfstæðisflokknum að því
leytinu til, að það er ætlast til þess
að fólk geti starfað innan hans með
mismunandi skoðanir, eins og þú
sérð af því að ég er þama í fyrsta
sæti og kem úr Sjálfstæðisflokkn-
um, en Aðalheiður Bjamfreðsdóttir
er í þriðja sæti og er talin vera á
vinstri væng stjómmálanna. Borg-
araflokkurinn er nýtt afl sem hér
er verið að virkja og við verðum
bara að sjá hvemig það kemur út.
Ég vil ekki spá neinu um framtíðina
hvað varðar samstarf við Sjálfstæð-
isflokkinn eða aðra flokka.“
— Þess var vænst klukkan
þijú í dag að þú myndir tilkynna
opinberlega um sérframboð þitt
á óopinberum fundi með stuðn-
ingsmönnum þínum á Hótel
Borg. Það varð ekki og árekstur
þinn við ljósmyndara Þjóðviljans,
sem þar var staddur, varð til
þess að þessum óformlega fundi
lauk mjög skyndilega og án þess
að nokkur yfirlýsing kæmi frá
þér. Áttu von á því að þetta leið-
indaatvik muni skaða þig í þeirri
kosningabaráttu sem þú ert opin-
berlega að hefja á morgun?
„Fyrst er nú frá því að greina,
að það var enginn fundur með
mínum stuðningsmönnum á Hótel
Borg. Ég kom bara til þess að hitta
vini mína og kunningja á Hótel
Borg í kaffí, eins og ég geri iðu-
lega. Ég frétti meira að segja að
það hefði verið greint frá því í út-
varpi að það yrði fundur þama, sem
er hreinn misskilningur. Nú, þetta
atvik þama á Hótel Borg, hlýtur
auðvitað að skaða mig. Þetta er í
annað sinn á ævi minni sem ég slæ
mann. í fyrra skiptið sem það henti
mig hafði ég miklu meira tilefni til
höggsins en í dag, því þá var virki-
lega búið að leika mig grátt. En
þú verður að átta þig á því, að það
sem gerist í dag, gerist vegna þess
að ég er búinn að vera undir ómann-
legri pressu í langan tíma og er
orðin afskaplega þreyttur. Eins og
þú veist, þá hafa blaðamenn verið
við hvert mitt fótmál í langan tíma
og þessi síðasti sólarhringur hefur
þó verið slnu verstur. Hann er raun-
ar svo ótrúlegur, að það nálgast
frelsisskerðingu. Sfðast þegar
hringt var dyrabjöllunni í nótt af
blaðamanni var klukkan að ganga
tvö. í morgun fyrir allar aldir hring-
ir blaðamaður og vekur mig til þess
að hafa við mig viðtal. Þegar ég
kem út snemma í morgun þá bfða
mín blaðamenn frá DV fyrir utan
til þess að ná tali af mér. Þeir hafa
elt mig hvert einasta fótmál, hvert
sem ég hef farið í allan dag, þann-
ig að þegar ég kem niður á Hótel
Borg að verða hálffjögur í dag og
sé fulltrúa flestra ef ekki allra flöl-
miðlanna samankomna í veitinga-
salnum bið ég alla blaðamennina
að lofa mér að drekka kaffí í friði
með vinum mfnum og kunningjum.
Og til þess að tryggja það nú að
ég geti fengið að vera í friði, þá
bið ég starfsfólkið og veitingastjór-
ann um að sjá til þess að ég fái
frið. Þetta gekk ekki vel í fyrstu
en síðan fékk ég að vera nokkum
veginn í friði. Svo gerist það, þegar
ég stend upp til þess að tala við
tvær konur sem ég þekki og sný
mér svo við til þess að fara út úr
salnum, að þá er þessi ljósmyndari
búinn að stilla sér upp á milli mín
og útgöngudyranna til að taka
myndir. Þá fauk í mig, sem aldrei
skyldi verið hafa. Ég sló til hans,
fyrát til myndavélarinnar, þvf ég
ætlaði að koma í veg fyrir að honum
tækist að ná myndinni, en mér
mistókst það. Þá sló ég hann í and-
litið og auðvitað hefði ég ekki átt
að gera það. Þetta var atvik sem
átti sér stað vegna þreytu og ion-
brigða með það, að fá ekki að rera
í friði eitt einasta augnablik og Guð
veit að ég sé eftir þessu. Þetta .ilýt-
ur að hafa skaðleg áhrif á mig, það
fer ekki hjá því. Eg vil hins vegar
greina frá því, að þessi blaðamað-
ur, sem varð fyrir höggi mínu hefur
komið hingað heim til mín í dag,
að minni beiðni og við höfum rætt
saman og við höfum skilið sáttir.
Ég met hans drengskap meir en
orð fá lýst.“
Viðtal: Agnes Bragadóttir