Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
49
Anatoly Koryagin,
48 ára
Serafim Yevsyukov Jr.,
24 ára
opinbera yfirlýsingu þar sem krafízt
var sjátfstæðis Eystrasaltsríkjanna
23. ágúst 1979, þegar rétt 40 ár
voru liðin frá gerð leynisamnings
Stalíns við Hitler þar sem viður-
kennt var að Eystrasaltslöndin
væru innan áhrifasvæðis Sovétríkj-
anna.
Eistland hafði notið sjálfstæðis í
21 ár þegar það var innlimað í
sovézka stórveldið árið 1940. Minn-
ingamar lifa enn. Réttarhöldin yfír
Niklus vom enn ein tilraun Sov-
étríkjanna til að koma í veg fyrir
að þær minningar þróuðust yfír í
einarða aðskilnaðarhreyfingu. Fyrir
að undirrita yfirlýsinguna, fyrir að
lýsa yfír fordæmingu á innrás Sov-
étríkjanna í Afghanistan og fyrir
stuðning við þá sem vildu sniðganga
Ólympíuleikana í Moskvu var Nik-
lus dæmdur til tíu ára vistar í
vinnubúðum og fímm ára útlegð.
í bréfí sem smyglað var út úr
vinnubúðunum segist Niklus búa í
bragga með 47 öðmm föngum og
aðeins 32 kojum: „Ég hreiðraði um
mig á gólfínu, í hálfmyrkrinu undir
ofninum innan um fjölda vel aldra
kakkalakka."
„Sergei D. Khodorovich“
Khodorovich, fyrmrn tölvuforrit-
ari, var í stjóm hjálparsjóðs til
stuðnings pólitískum föngum sem
starfaði ólöglega við að aðstoða ijöl-
skyldur fanganna við kaup á
flugfarseðlum til að heimsækja ijar-
lægar vinnubúðir, veita bamafjöl-
skyldum framfærslustyrki,
sendingu matarpakka, og stöku
sinnum kostaði sjóðurinn lögfræði-
aðstoð fyrir fangana.
Árið 1983 var Khodorovich
dæmdur vegna vitnisburðar fram-
Iosif Z. Begun,
54 ára
Sergei I. Grigoryants,
45 ára
Mart Niklus,
52 ára
Aleksandr I. Ogorodnikov,
36 ára
Vladimir L. Gershuni,
56 ára
Merab Kostava,
47 ára
Genrikh fengi að ganga fijáls væri
hann sú manngerð að um hann
safnaðist nýr hópur andófsmanna.“
Orðrómur var á kreiki meðal
andófsmanna nú í febrúarbyijun
að Altunyan hefði verið fluttur úr
vinnubúðunum til fangelsis í
Kharkov í Úkraínu, og yrði fljótlega
látinn laus.
„Anatoly Koryagin“
Koryagin, sem er sálfræðingur,
var dæmdur til sjö ára dvalar í
vinnubúðum og fímm ára útlegðar
innanlands fyrir að smygla til Vest-
urlanda skýrslu um störf sín sem
ólaunaður ráðgjafí nefndar er
rannsakaði misbeitingu geðlækn-
inga í pólitískum tilgangi í Sov-
étríkjunum.
„Allir þeir sem ég rannsakaði
höfðu verið úrskurðaðir geðsjúkir
vegna þess að þeir höfðu gert eða
sagt eitthvað sem álitið var fjand-
samlegt Sovétríkjunum," skrifaði
hann í skýrslu sem hann sendi
brezka læknatímaritinu Lancet árið
1981. Skýrsla hans stuðlaði að al-
þjóða fordæmingu á misnotkun
geðlækninga í Sovétríkjunum.
Seint í janúar var haft eftir Sak-
harov og öðrum andófsmönnum að
Koryagin hefði verið fluttur úr
vinnubúðunum í fangelsi í heima-
borg sinni Kharkov, og 19. febrúar
var hann svo látinn laus.
„Iosif Z. Begim“
Á unglingsárunum gekk Begun
í skóla gyðinga. Á fullorðinsaldri
heillaðist hann af sögu og menningu
gyðinga. Ludmilla Alexeyeva segir
að hann hafi verið fyrsti maðurinn
sem hún hafi séð ögra almennu
gyðingahatri með því að ganga um
með kollhúfu gyðinga, yarmulke, í
Moskvu. Þegar h_ann sótti um að
fá að flytjast til ísraels árið 1971
var hann rekinn úr starfí sínu sem
rafmagnsverkfræðingur, og síðar
einnig úr starfi næturvarðar. Hann
kenndi hebresku í einkatímum, en
það er ekki talið lögmætt starf í
Sovétríkjunum. Hann var hand-
tekinn fyrir að vera „sníkjudýr",
eða þann glæp að hafa enga at-
vinnu, og sendur í tveggja ára
útlegð til gullnámubæjar í Síberíu,
átta tímabeltum frá fjölskyldu hans
í Moskvu.
Eftir að hann tók þátt í mótmæl-
um gegn réttarhöldum yfír andófs-
manninum Yuri Orlov árið 1978 var
Begun handtekinn á ný og sendur
í þriggja ára útlegð þar sem innan-
lands-vegabréf hans heimilaði
honum ekki að vera í Moskvu.
Hann var handtekinn í þriðja sinn
árið 1983 fyrir að skrifa og safna
greinum um menningu og sögu
gyðinga, en þar komu einnig ber-
lega fram ásakanir um opinberar
ofsóknir gegn gyðingum í Sovétríkj-
unum. í fangelsinu í Chistopol, um
FIMMERUENN
íFANGELSI
Grein Bill Kellers var skrifuð síðla í febrúar s.l. Síðan hafa
orðið þær breytingar, að fjórir menn til viðbótar á lista
Sakharovs hafa verið látnir lausir, en einn virðist hafa verið
færður til vistar á geðveikrahæli á ný. Mennimir, sem látnir
voru lausir, eru: Genrikh 0. Altunyan, Sergei D. Khodorovich,
Mikhail G. Rivkin og Alexsei Smimov.
Svo virðist sem Serafim Yevsyukov, eldri, sem látinn var
laus af geðveikrahæli 24. janúar, hafi verið handtekinn 28.
febrúar s.l. og færður á hælið á ný. Hann hafði dvalið þar í
sex mánuði og verið gefið inn geðlyf eftir að hafa krafíst
þess að fá að flytja úr landi. Sonur hans og nafni er enn í
vinnubúðum fyrir að neita að gegna herskyldu.
Auk Yevsyukov-feðga eru þrír menn á lista Sakharovs enn
í fangelsi. Þeir eru: Vladimir L. Gershuni, sem er á
geðveikrahæli, Mart Niklus, sem er í vinnubúðum og Merab
Kostava, sem liggur á fangelsisspítala.
550 km fyrir austan Moskvu, starf-
aði hann við að vefa strigapoka
undir ávexti og grænmeti.
Ina kona hans og sonurinn Boris
höfðu ekki fengið að heimsækja
hann frá því í ágúst 1985. Þegar
eiginkonan reyndi að fá að hitta
hann nú í janúar var henni sagt
að hann væri í einangrun þar sem
hann hefði ekki skilað tilskildum
kvóta upp á átta poka á dag.
Begun var látinn laus um síðustu
helgi.
„Vladimir L. Gershuni"
Gershuni var fyrst handtekinn
árið 1949, þá 19 ára og nemandi,
fyrir að dreifa flugritum með ásök-
unum á Stalín fyrir svik við bylting-
una. Aleksandr Solzhenitsyn, sem
hitti hann í bráðabirgðafangabúð-
um árið 1950, minnist hans í bók
sinni um Gulagið sem æsingamanns
er snerist gegn eftirlitsfanga og
hrópaði: „Við erum aftur orðnir
byltingarmenn! í þetta sinn gegn
Sovétríkjunum."
Gershuni var látinn laus tíu árum
síðar og starfaði sem múrari auk
þess sem hann skrifaði hnyttnar og
harðorðar greinar í ólögleg tímarit,
en fyrir þá iðju sína var hann dæmd-
ur til fímm ára dvalar í geðsjúkra-
húsi.
Árið 1979, þegar nokkrir
Moskvubúar hófu útgáfu ólöglegs
tímarits er hlaut nafnið Leitin og
ætlað sem málgagn þeirra er vildu
leita „leiða út úr ógöngum okkar
allra", var Gershuni skráður sem
einn ritstjóra tímaritsins. Fyrir það
var hann á ný dæmdur til styttri
dvalar í geðsjúkrahúsi.
Þegar honum var sleppt að þessu
sinni gekk hann til liðs við hóp
manna er vildu stofna óháð verka-
lýðsfélög í stað þeirra opinberu.
Hópurinn hafði háleitar hugsjónir
um að stofna sameiginlega hjálpar-
sjóði, sameignarhúsnæði, bama-
heimili og innkaupahópa, en tókst
aðeins að gefa út upplýsingarit með
gagnrýni á sovézka vinnulöggjöf
og hag verkamanna. Fyrir þetta var
Gershuni handtekinn árið 1982.
Síðast fréttist af Gershuni í geð-
sjúkrahúsi í Alma Ata, höfuðborg
Kasakstans. Fátt annað er um hann
vitað.
„Mart Niklus“
Niklus, fuglafræðingur að
mennt, var einn 45 Eistlendinga,
Litháa og Letta sem undirrituðu
kvæmdastjóra sjóðsins í Leningrad,
Valery Repins, sem eftir 15 mánaða
setu í einangrunarklefa hafði lýst
yfír iðrun sinni opinberlega í ríkis-
sjónvarpinu og sagt sjóðinn vera
skálkaskjól fyrir bandarísku leyni-
ijónustuna, CLA. Khodorovich var
dæmdur til þriggja ára vistar í
vinnubúðum rúmum 300 kílómetr:
um fyrir norðan heimskautsbaug. I
apríl í fyrra var dómurinn lengdur
vegna „illkvittnislegrar óhlýðni".
28. janúar var kona hans, Taty-
ana, kvödd á fund KGB og henni
tilkynnt að hún hefði tveggja daga
umhugsunarfrest til að ákveða
hvort hún vildi fallast á tilboð
þeirra: ef hún féllist á að flytjast
úr landi yrði eiginmanni hennar
sleppt. Hún sagði að tilhugsunin
um að verða rifín burt frá ættjörð
sinni og ættingjum væri „ógnvekj-
andi“, en ekki jafn ógnvekjandi og
tilhugsunin um að eiginmaðurinn
léti lífið í vinnubúðum. Þau hjónin
hafa því ákveðið að flytjast úr landi.
„Yevsyukov-
fjölskyldan“
Serafím Ycvsyukov, fyrrum sigl-
ingafræðingur hjá Áeroflot, var
sendur á geðveikrahæli eftir að
hafa sótt um að fá að flytjast úr
landi. Hann var efstur á lista Sak-
harovs yfir þá sem hann vildi fá
leysta úr haldi. Hann var látinn
laus 24. janúar, máttfarinn og utan
við sig eftir að hafa verið sprautað-
ur svo til daglega í sex mánuði með
sterkum róandi lyfjum.
Hann hefur ekki fengið heimild
til að flytjast úr landi, og yfírvöld
hafa aðvarað hann um að hann
geti fljótlega lent á geðveikrahæli
á ný.
Sonur hans og alnafni, sem er
24 ára, er áfram í vinnubúðum í
Síberíu, en hann hefur tvívegis ver-
ið dæmdur til vistar þar fyrir að
neita að gegna herþjónustu. Hann
tilkynnti yfirvöldum að hann vildi
ekki þjóna í her lands þar sem hann
vildi ekki búa.
Yevsyukov eldri og dóttir hans,
Ludmilla, sem er 26 ára, segja að
fjölskyldan sé enn ákveðnari en
áður í að reyna að komast úr landi.
„Hér á landi eru allir óttaslegnir,"
segir hún. „Allir eru þrælar."
„Sergei I. Grigoryants“
Grigoryants var blaðamaður og
bókmenntagagnrýnandi, og skrifaði
fyrir mörg virtustu tímaritin í
Moskvu.
Árið 1975 var hann handtekinn
fyrir að hafa látið vin sinn fá þijár
bækur eftir höfunda sem flutzt
höfðu úr landi og fyrir „brask" í
sambandi við sölu á nokkrum mál-
verkum. Hann sat í fimm ár í
fangelsi og vinnubúðum.
„Sergei sagði oft að ef hann
gæti gleymt öllu því sem hann sá
í fyrstu fangelsisvistinni væri hann
heigull," segir náinn vinur hans.
„Með því að gleyma væri hann að
bregðast samföngum sínum og
einnig landi sínu.“
Hann gleymdi engu. Árið 1983
var hann handtekinn á ný fyrir að
standa að útgáfu ólöglegs frétta-
blaðs sem nefnt var „V“, en það
stóð fyrir Vesti, eða fréttir, og
skýrði frá réttarhöldum og að-
búnaði pólitískra fanga. í réttar-
höldunum yfir honum þuldi
Grigoryants yfír dómurunum nauð-
syn þess að upplýsa um siðferðis-
skortinn í sovézku samfélagi svo
unnt yrði að þoka því í lýðræðisátt.
Ummæli hans, sem flutt voru af
miklum eldmóði, gætu hafa komið
úr penna ræðuhöfundar Gorbach-
evs. Dómurinn hijóðaði upp á sjö ár
í fangelsi og þriggja ára útlegð.
í síðasta bréfi hans, sem eigin-
kona hans, Tamara, fékk í júní í
fyrra, kvartaði Grigoryants yfír
miklum höfuðverkjum og kvaðst
þjást af skyrbjúg. Yfírvöld hafa
fullyrt að hann væri við góða heilsu,
en neitað eiginkonu hans og móður
um að fá að heimsækja hann og
endursent matarpakka og lyf sem
þær hafa sent honum.
Tamara Grigoryants kveðst ekki
komast hjá að minnast þess að
annar kunnur andófsmaður, Ana-
toly Marchenko, lét lífíð í sama
fangelsi, Chistopol, í desember eftir