Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 63

Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ Essen óstöðvandi Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni f Vestur-Þýskalandi ÞAÐ virðist fátt geta komið í veg fyrir að Essen verji meistaratitil sinn í þýska handknattleiknum. Þróttur fékk Liðið vann í gœr stóran sigur á liði Göppingen, 26:12, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 14:4! Alfreð Gíslason lék að venju vel með Essen. Hann skoraði fimm mörk í leiknum og í vörninni sá hann um Klempel þannig að kapp- inn skoraði aðeins eitt mark í fyrri hálfleik og þrjú í þeim síðari. Fraatz var markahæstur leik- manna Essen með níu mörk en Alfreð kom næstur honum. Það virðist nú vera formsatriði fyrir Essen að klára mótið. Liðið hefur sjö stiga forystu þegar fimm leikir eru eftir og allt útlit fyrir að það verði meistari. Leikurinn í gær er trúlega besti heimaleikur Essen í vetur. Handewitt vann Schvabing í gærkvöldi með 25 mörkum gegn 24. • Alan Smith sleppur hér framhjá Johhny Metgod hjá Forest. Ætli hann eigi eftir að standa sig jafnvel með Arsenal? England: þrjú Þróttur vann Fylki í öðrum leik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu á gervigrasveliinum í Laugardal í gærkvöldi með þremur mörkum gegn tveimur og fékk því þrjú stig fyrir leikinn. Fyrri hálfleikur var þófkenndur en sóknarlotur Þróttar þó ívið hættulegri. Sigurður Hallvarðsson skoraði þá tvívegis fyrir Þrótt en í upphafi síðari hálfleiks skoruður þeir Hörður Valsson og Ólafur Jó- hannesson sitt markið hvor fyrir Fylki og jöfnuðu metin. Atli Hilmarsson tryggði Þrótti síðan sigur og þrjú stig er hann skoraði mark á síðustu mínútum leiksins eftir mistök markvarðar Fylkis sem missti fyrirgjöf út í teig- inn til Atla sem þakkaði fyrir sig og skoraði. Tap gegn Luxemburg ISLENSKA landsliðið f blaki tap- aði fyrsta leiknum í blakmóti sem liðið tekur þátt í í Luxemburg. Strákarnir héldu utan í gær og léku fyrsta leikinn fljótlega eftir komuna. Fyrstu hrinuna unnu heima- menn mjög auðveldlega, 15:5, eftir að vera komnir í 14:1. Síðan tóku íslensku strákarnir við sér en það dugði ekki til sigurs. Þeir töpuðu 15:11 og þeirri þriðju 15:12. Það var fyrt og fremst sterk sókn Luxemborgara sem gerði gæfumuninn. Einnig var einn leik- Islandsmet hjá Guðna metinu. Þrír kappar áttu það áður en Guðni bættist í hópinn. Magnús Jónasson úr Ármanni og Angantýr Jónasson úr HVÍ settu báðir met árið 1977 og ári síðar bættist Guð- laugur Þorsteinsson úr ÍR í hópinn. GUÐNI Sigurjónsson hlaupari úr Breiðabliki jafnaði í fyrrakvöld íslandsmetið í 50 metra hlaupi innanhúss þegar hann hljóp vegalengdina á 5,7 sekúndum. Guðni setti metið á innanfélags- móti UBK sem fram fór í Baldurs- haga og þótti víst mörgum tími til kominn að einhver næði eldra manna þeirra með geysilega sterkar uppgjafir sem okkar menn réðu illa við. Bestir voru þeir Þorvaður Sig- fússon, Leifur Harðarson og Sigurður Þráinsson. Liðið leikur á morgun við ungl- ingalandslið Finna og á sunnudag- inn leika þeir síðasta leik sinn á mótinu. ÍBK vann ÍBK vann Hauka í bikarkeppni kvenna í Keflavfk í gær með 60 stigum gegn 41 og eiga stúlkurn- arfrá Keflavík nú mikla möguleika á að komast f úrslitaleikinn og þá væntanlega við KR, sem vann IS í fyrri leik liðanna. Arsenal keypti Smith Síðasti dagur félagaskipta var f gær Frá Bob Hennessy á Englandi. FRESTUR til félagaskipta leik- manna hjá ensku knattspyrnulið- unum á þessu keppnistfmabili rann út í gær og langt er sfðan eins mikið hefur verið um að vera sfðasta daginn. Arsenal opnaði loks budduna í gær og keypti Alan Smith frá Leic- ester City fyrir 800.000 pund. Smith er 24 ára framherji og lék á sínum tíma við hlið Gary Lineker hjá Leicester. Hann hefur gert 17 mörk í vetur. Hann mun þó ekki leika með Arsenal fyrr en næsta ár því samið var um að hann yrði áfram hjá Leicester og freistaði þess að bjarga þeim frá falli. Þess má geta að hann sagði nei við Chelsea fyrir tveimur mánuðum er þeir buðu honum samning. Notthingham Forest keypti Paul Wilkinson, miðherja hjá Everton, í gærfyrir 275 þúsund pund. Manc- hester City fékk Kevin Langley lánaðan frá Everton, en Wilkinson keypti miðvallarleikmanninn frá Wigan í fyrrasumar fyrir 100 þús- und pund. Watford greiddi Northampton 235 þúsund pund fyrir Richard Hill. Hann hefur skorað 31 mark fyrir félag sitt í vetur, sem er á HEIMALEIKIR UTILEIKIR SAMTALS Lelkir U J T Mörk U j T Mörk Mörk Stig LIVERPOOL 34 12 3 2 35 13 8 4 5 25 19 60 : 32 67 EVERTON 32 12 3 1 38 10 6 4 6 21 16 59 26 61 ARSENAL 32 9 5 1 22 5 6 5 6 20 15 42 : 20 55 TOTTENHAM 30 10 3 4 29: 13 6 3 4 22 17 51 30 54 NOTT. FOREST 33 10 6 1 31 12 5 3 8 24: 27 55 39 54 LUTON 33 12 3 1 22 9 3 6 8 14 25 36 34 54 NORWICH 32 7 9 1 23: 17 6 5 4 20: 21 43: 38 53 COVENTRY 32 12 2 3 28: 14 2 5 8 10: 21 38: 35 49 WIMBLEDON 32 9 4 4 25 16 5 2 8 17 22 42 38 48 WATFORD 31 9 4 2 29 12 4 4 8 22 26 51 38 47 CHELSEA 33 7 4 6 22 23 5 5 6 20 27 42 50 45 QPR 33 9 3 4 25 18 3 4 10 12 24 37 42 43 MAN. UTD. 32 9 3 4 29 14 1 8 7 11 19 40 33 41 SHEFF. WED. 32 8 7 2 30: 16 2 4 9 13 30 43. 46 41 WESTHAM 32 6 2 6 24: 23 4 6 8 19: 30 43 53 38 SOUTHAMPTON 32 9 2 5 35 19 2 2 12 18 37 53 56 37 OXFORD 32 6 6 4 24 21 2 4 10 8: 33 32: 54 34 LEICESTER 33 7 5 4 30 21 2 1 14 13- 43 43: 64 33 MAN. CITY 32 6 5 5 20 17 0 7 9 7 25 27 42 30 CHARLTON 32 4 5 6 17 17 3 3 11 13 28 30 45 29 ASTON VILLA 33 5 6 5 19 22 1 4 12 17 45 36 67 28 NEWCASTLE 31 5 4 6 22 24 1 5 10 10 29 32 53 27 góðri leiö meö að sigra í 4. deild. Hill verður áfram hjá Northampton út tímabilið. West Ham keypti í varnarmann- inn Tommy McQuinn frá Aberdeen í gær fyrir 125.000 pund og á sama tíma keypti Oxford sóknarmanninn Martin Foyle frá Aldershot fyrir 140.000 pund. WBA seldi Garth Crooks til Charlton fyrir 80.000 pund og Stu- art Evans fyrir 50 þúsund pund til Plymouth, en Luton hafnaði tilboði Glasgow Rangers í Ricky Hill. Sou- ness bauð 250 þúsund pund, en Luton vill fá 400 þúsund pund fyr- ir leikmanninn. Sunderland keypti í gær Keith Bertschin frá Stoke City fyrir 30 þúsund pund í gær. Souness hjá Glasgow Rangers hefur nú eytt 2 milljónum punda til kaupa á nýjum leikmönnum. í gær keypti hann tvo leikmenn, Jim Philips frá Bolton Woderse fyrir 75 þúsund pund og Kirkwood frá East Five fyrir 50 þúsund pund. Þá er Ijóst að Mark Hughes verður áfram hjá Barcelona. Hann fór til Wales í frí um síðustu helgi, þegar hann var settur út úr liðinu, og hafði Manchester United áhuga á að fá hann aftur. Af því verður ekki og Hughes flýgur til Spánar í dag. Að lokim má geta þess að John Bond framkvæmdastjóri Birming- ham var sektaður um 750 pund á dögunum fyrir að gagnrýna val landsliðs Englands fyrr í vetur i blaðaviðtali. Nokkrir leikir voru í Englandi í vikunni og látum við stöðuna fyrir leiki helgarinnarfylgja hértil hliðar. Handbolti: í kvöld TVEIR hörkuleikir veröa í 1. deild handboltans í í kvöld í Seljaskóla og hefst sá fyrri klukkan 19.30. Fyrst leika Valur og Breiða- blik, liðin sem léku svo æsi- spennandi leik í bikarnum á miðvikudaginn, og síðan lið KR og Stjörnunnar. Tveir leikir sem verða áræðanlega spennandi. i 2. deild er einnig mikill leik- ur en þá leika Þór og ÍBV á Akureyri og ræður þessi leikur miklu um hverjir komast í 1. deild að ári. Kubik með tvö TÉKKAR unnu Svisslendinga, 2:1 í vináttulandsleik í knattspyrnu í Bellinzona í Sviss í fyrrakvöld. Kubik skoraði bæði mörk Tékka í seinni hálfleik eftir að Hermann hafði náð forystunni fyrir heima- menn á 11. mínútu. Létt hjá þýskum Vestur-Þjóðverjar unnu ísra- elsmenn, 2:0, í vináttulandsleik í knattspyrnu í Tel Aviv í fýrra- kvöld. Olaf Thon og Lothar Mattaeus skoruðu fyrir Þjóð- verja. Áhorfendur voru 30 þúsund. sima góNusm GREIÐ SLUKORTAÞ J ÓNU STA ÍSLENSKRA GETRAUNA Hér eru leikirnir! Leikir 28. mars 1987 K 1 X 2 1 Arsenal - Everton 2 Aston Villa - Coventry 3 Charlton - Chelsea 4 Leicester-Man.City 5 Luton-Tottenham 6 Man. Utd. - Nott'm Forest 7 Newcastle - Southampton 8 Oxford - Sheff. Wednesday 9 Q.P.R. - Norwich 10 West Ham - Watford 11 Oldham - W.B.A. 12 Portsmouth - Sunderland Hringdu strax! 688-322 föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardagakl. 9.00-13.30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.