Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 64
XJöfóar til
Xlfólksíöllum
starfsgreinum!
ÉBRUIIRBÓT
-AFÖRYGGISASTÆÐUM
Nýjungar
í 70 ár
FOSTUDAGUR 27. MARZ
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Albert yfirgefur D-listann
framboð Borgaraflokks
Einhugur á gey sifj ölmennum fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
og á sunnudaginn er boðaður
fundur í Flokksráði sjálfstæðis-
manna, sem er æðsta valdastofn-
un á milli landsfunda. Þá eru
fundir boðaðir í öllum kjördæmum
nú um helgina. í gærkvöldi var
haldinn Qölmennur fundur trúnað-
armanna Sjálfstæðisflokksins í
Vestmannaeyjum, sem lýsti ein-
dregnum stuðningi við formann
flokksins.
Sjá ennfremur forystugrein,
frásögn af fulltrúaráðsfundi
og viðtal við Albert Guð-
mundsson á miðopnu og
fréttir á bls. 2.
4
ALBERT Guðmundsson, fyrrverandi íðnaðarráðherra, sem skip-
aði fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík
vegna alþingiskosninganna, dró nafn sitt til baka af listanum í
gær. Er nú unnið að framboði á vegum Alberts undir merkjum
Borgaraflokksins. Verður bann sjálfur i 1. sæti listans i Reykjavík,
Guðmundur Ágústsson, héraðsdómslögmaður í 2. sæti og Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir i 3. sæti. Þá er ákveðið að Júlíus Sólnes
skipi 1. sæti á lista Borgaraflokksins í Reykjaneskjördæmi. Borg-
araflokkurinn stefnir að framboði í öllum kjördæmum landsins.
Enginn listi flokksins hefur enn verið birtur. Fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna ákvað á geysifjölmennum fundi í gærkvöldi, að
ræra menn upp á lista Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík. Skipar
Friðrik Sophusson, varaformaður flokksins, nú fyrsta sætið en
Hannes H. Garðarsson, formaður málfundafélagsins Óðins, sett-
ist í 16. sæti listans.
Frá því Albert Guðmundsson
sagði af sér embætti iðnaðarráð-
herra á þriðjudag hefur verið rætt
um framboð á hans vegum. Stuðn-
ingsmenn Alberts hafa fengið
listabókstafínn S skráðan hjá
dómsmálaráðuneytinu í nafni
Borgaraflokksins. í gær ritaði
Albert Guðmundsson bréf til
"^Sveins H. Skúlasonar, formanns
Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík, og fór þess á leit að
nafn sitt yrði dregið til baka úr
efsta sæti framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Reylq'avík. Segir
Albert í samtali við Morgunblaðið
í dag, að hann hafí tekið ákvörðun
um framboð sitt eftir ummæli,
sem Þorsteinn Pálsson lét falla í
samtali á Stöð 2 um að „ég skuli
eftir kosningar vera áhrifalaus",
eins og Albert orðar það. Þor-
steinn Pálsson vísaði því á bug í
ræðu á fundi Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í gær, að starfs-
svið Alberts í Sjálfstæðisflokknum
®*hefði verið þrengt vegna yfírlýs-
inga sinna. Þorsteinn sagði
ennfremur, að rökin fyrir fram-
boði Aiberts í Reykjavík dygðu
ekki fyrir framboði stuðnings-
manna hans í öðrum kjördæmum.
Á fundi Fulltrúaráðsins á Hótel
Sögu í gærkvöldi, sem Birgir fsl.
Gunnarsson, alþingismaður,
sagði, að væri sá fjölmennasti,
sem hann myndi eftir í þijátíu ár,
kvaddi enginn sér hljóðs og tók
máistað Alberts Guðmundssonar.
Þar var samþykkt einum rómi til-
laga, þar sem hafnað er með öllu
fullyrðingum Alberts í bréfí hans,
að Þorsteinn Pálsson hafí með
einhveijum hætti haft í hótunum
við Albert þess efnis, að hann
mundi ekki geta rækt með eðlileg-
um hætti skyldur sínar sem
þingmaður Reykvíkinga. Lýsti
fundurinn stuðningi við málsmeð-
ferð Þorsteins Pálssonar og Sveins
H. Skúlasonar, formanns Full-
trúaráðsins.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon.
Frá fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Hótel Sögu í gærkvöldi. Birgir ísl. Gunnarsson, alþingis-
maður, sagði, að fundurinn væri hinn fjölmennasti, sem hann myndi eftir á síðustu 30 árum.
Verkföll og uppsagnir:
Neyðarástand að skapast á
spítölum og í heimahjúkrun
Áður en Albert Guðmundsson
tilkynnti afsögn sína af lista sjáif-
staeðismanna, hitti hann Þorstein
Pálsson á einkafundi.
Borgaraflokkurinn opnaði
kosningaskrifstofu í Reykjavík í
gær.
Að sögn talsmanna Sjálfstæðis-
flokksins hringdu nokkrir tugir
manna í skrifstofu hans í gær og
báðu um að verða skráðir í flokk-
inn. Miðstjóm Sjálfstæðisflokks-
Jns kemur saman til fundar í dag
VERKFALL háskólamenntaðra
hjúkrunarf ræðinga hefur nú
staðið á aðra viku og er áhrifa
þess farið að gæta víða. Sjúkl-
inga hefur þurft að senda heim
af sjúkrahúsunum og að sögn
Margrétar Þorvarðardóttur,
framkvæmdastjóra heimahjúkr-
unar við Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur, hefur það aukið
nyög álagið á heimahjúkrun, sem
nú annar ekki þörfinni. Fólk
bíður eftir daglegri aðstoð sem
ekki er unnt að veita. Sömu sögu
er að segja á Seltjarnamesi. Á
sjúkrahúsunum blasir við alvar-
legt ástand vegna uppsagna
sjúkraliða 1. aprfl.
Kólesteról mest í
íslenskum börnum
ÍSLENSKAR stúlkur og piltar á
aldrinum 7-19 ára hafa hæstu
kólesterólgildi í blóðinu sem
mælst hafa í heiminum. Kólester-
ólgildi i fullorðnum einstakling-
um er einnig töluvert hærra en
það magn sem mældist í saman-
burðarhóp Vestur-íslendinga, en
þrátt fyrir það eru íslendingar
ekki í hópi þeirra þjóða sem hafa
hæstu dánartíðni af völdum
kransæðasjúkdóma.
Mælingar á kólesterólgildi f blóði
voru gerðar í nýlegri samanburðar-
rannsókn á íslendingum búsettum
á Héraði og Vestur-íslendingum í
Vatnabyggðum norður af
Winnipeg. Viðamikil rannsókn fer
nú fram á þessum hópum, að sögn
dr. Jóhanns Axelssonar forstöðu-
manns rannsóknarstofu Háskólans.
Aðspurður hvort þessar niðurstöður
gæfíi til kynna að kólesterólgildi í
blóðinu væru ekki jafn hættuleg og
menn hafa talið, svaraði Jóhann að
líklegt væri að mikið kólesteról
auki hættu á kransæðasjúkdómum,
þó samhengið væri ekki jafn ein-
falt og sumir hefðu talið. Hann
segist vonast til að rannsóknimar
leiði í ljós hvaða áhrif umhverfí og
lifíiaðarhættir hafa á tilurð og þró-
un sjúkdóma, þar sem þessir tveir
hópar eru erfðafræðilega mjög líkir
en hafa búið við mismunandi skil-
yrði í um það bil öld.
Sjá nánar namtal við Jóhann í
C-hluta Morgunblaðsins á bls.
6 og 7.
„Ástandið er mjög slæmt á mörg-
um stöðum og það skapast algert
neyðarástand ef til verkfalis sjúkra-
liða kemur 1. apríl. Það verður ekki
einu sinni hægt að sinna fólki sem
ekki kemst fram úr rúmum og er
svo til ósjálfbjarga. Þær fáu sem
eftir verða reyna auðvitað að sinna
því alnauðsynlegasta, það verður
að stokka upp starfsemina á meðan
þetta ástand varir, en það verður
ekki helmingur starfsfólksins eftir,
því sjúkraliðamir em í meirihluta
hér. Þrátt fyrir að við séum með
fullskipað lið núna, önnum við ekki
því aukna álagi sem varð þegar
byijað var að ioka deildum á Land-
spítalanum," sagði Margrét Þor-
varðardóttir, hjúkmnarforstjóri, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Á Seltjamamesi hefur ungbama-
eftirlit og mæðraskoðanir raskast
nú þegar vegna aukins álags í kjöl-
far útskrifta sjúklinga á sjúkrahús-
um. Ingibjörg Sigmundsdóttir,
hjúkmnarforstjóri Heilsugæslu-
stöðvar Seltjamamess, sagði að
ekki hefði reynst unnt að sinna öll-
um beiðnum sem borist hefðu og
lagði áherslu á hversu alvarlegt
ástandið yrði um mánaðamótin, ef
ekkert yrði að gert. „Ekki aðeins
kemur þá til verkfalls sjúkraliða,
heidur ganga þá einnig í gildi upp-
sagnir hjúkmnarfræðinga."
Á Borgarspítalanum er farið að
gera ráðstafanir til að mæta því
ástandi sem skapast vegna upp-
sagna, að sögn Margrétar Gústafs-
dóttur, og verður að draga vemlega
saman starfsemi á mörgum deildum
sjúkrahússins. Tæplega 150 sjúkra-
liðar hafa sagt upp störfum frá og
með 1. apríl. Hún sagði að í dag
yrðu lagðar tillögur fyrir stjóm
sjúkrahússins um ráðstafanir og
lokanir á deildum.
Á Landspítalanum hefur verkfall
háskólamenntaðra hjúkmnarfræð-
inga staðiðsíðan 19. þessa mánaðar
og af þeim sökum skapast mjög
slæmt ástand, að sögn Vigdísar
Magnúsdóttur, hjúkmnarforstjóra.
Loka hefur þurft um 90 rúmum og
senda sjúklinga heim af mörgum
deildum. Uppsagnir bæði háskóla-
menntaðra hjúkmnarfræðinga og
sjúkraliða taka gildi 1. apríl, svo
ástandið verður lang verst þar, ef
fer sem horfír.
Á Landakoti leggja um 100
sjúkraliðar niður störf um mánaða-
mótin, ef til uppsagna kemur, að
sögn Guðrúnar Marteinsson, hjúkr-
unarforstjóra. Hún sagði að mikil
samstaða væri meðal sjúkraliða á
Landakoti, um 90% myndu leggja
niður vinnu. Þar eins og á öðmm
sjúkrahúsum verður að draga sam-
an starfsemina.
Sjá „Óskir um hlunnindi utan
kjarasamninga“ á bls. 2.