Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987 23 JUPS PHIUPS! -miPS PHlUPSj ÍPHIU! PMIUPS PHIUPÍ PHILIPS íslenskir ljóðatónleikar í Sví- þjóð, Finnlandi og á Álandsejjum Jónshúsi, Kaupmannahöfn. ÍSLENSK tónlist er kynnt á ljóðatónleikum í Svíþjóð, Finn- landi og Álandseyjum þessa dagana og á næstunni. Er það ungnr Svíi, Martin Ringmar, sem stendur fyrir dagskrá þessari og hefur hann þýtt öll íslensku ljóð- in á sænsku og syngur þau sjálfur við undirleik Guðmundar Eiríks- sonar á píanó, Gunnars Bernburg á kontrabassa og Peters Gullin á saxófón. Martin Ringmar talar alveg lýta- lausa íslensku, svo vel að engum dettur í hug að hér sé ekki landi ^kkar á ferð. Hann hefur dvalið á íslandi um þriggja ára skeið, m.a. við nám. Nýlega flutti Martin þátt um íslenska málvemd í sænska út- varpið, enda mjög áhugasamur um íslenskt mál og afkastamikill þýð- andi. Dagskrá tónleikanna ber heitið — Min okánda dikt — og er tónlist um íslenska ljóðlist. Þeir félagamir fluttu hana þrisvar sinnum í desem- ber sl. í Kungelv, Lundi og Stokk- hólmi. Tónleikaferðalagið, sem hófst 29. mars, byijaði í Sundsvall og Svanö. Síðan var haldið til Umeá 30. mars, Vasa í Finnlandi daginn eftir og 1. apríl léku þeir og sungu hluta af dagskránni, er Vigdís Finn- bogadóttir forseti íslands var gestur í Helsingfors. Fer sá þáttur fram í Finlandia-húsinu um kvöldið og er auðvitað hápunktur ferðarinnar. Þá flytja þeir Martin, Guðmundur, Gunnar og Peter ljóð og lög í Ábo 2. apríl, kvöldið eftir í Bláa leik- húsinu í Mariehamn á Álandseyjum og að lokum í norræna háskólanum á Biskops Amö í Svíþjóð að kvöldi 8. apríl. Dagskrá tónleikanna er kynnt í mjög óvenjulegri tónleikaskrá, sem um leið er fréttablað, sem gestir geta lesið sér til afþreyingar á und- an sýningunni eða á leið til eða frá henni eins og Martin komst að orði. Heitir „blaðið" Foldin og eru þar þýðingar úr Öldinni okkar frá ýms- um tímum. Sum lögin á tónleika- skránni eru þjóðlög, en önnur eftir Bergþóru Ámadóttur, Jón Nordal, Guðmund Eiríksson, Jón Ásgeirs- son, Þórarin Guðmundsson, Hjálm- ar Ragnarsson og Torfa Olafsson. Eru flest laganna eftir Bergþóm og flest ljoðanna eftir Halldór Lax- ness og Stein Steinarr, en Vatn- senda-Rósa, Jónas Hallgrímsson, Davlð Stefánsson, Jóhannes úr Kötlum og Stefán Hörður Grímsson eiga eitt til tvö ljóð hver. Er hér mikið í fang færst og víða farið og jafnvel um heldur afskekkt- ar slóðir og má vænta þess, að Martin Ringmar og félögum hans verði vel tekið af Islendingum, ís- landsvinum og öðrum áhugamönn- um um norræna tónlist. — G.L. Ásg. Frá vinstri: Martin Ringmar, Guðmundur Eiríksson, Gunnar Bern- burg, Peter Suldin. Ingólfur Hjörleifsson Nýr ritstjóri Skinfaxa INGÓLFUR Hjörleifsson, blaða- maður, hefur verið ráðinn rit- stjóri Skinfaxa, málgagns ungmennafélags Islands. Skrif- stofa hans er á Öldugötu 14, í hinu nýja húsnæði UMFÍ. Ingólfur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1978 og BA-prófí í almennri bók- menntafræði 1985 frá Háskóla íslands. Hann starfaði sem blaða- maður við Þjóðviljann frá 1985 til 1987. Skinfaxi er tímarit sem gefíð er út af ungmennafélagshreyfing- unni og hefur komið út óslitið í tæp 80 ár og segir í fréttatilkynning- unni frá UMFÍ, að Skinfaxi sé fyrst tímarita hérlendis sem er sett og brotið um í Pake Maker-forriti á Macintosh-tölvu á skrifstofu UMFÍ. Ingólfur er fæddur í Reykjavík, 13. marz árið 1958. Sambýliskona hans er Steinunn Jónsdóttir kenn- an. PHIllw] [PHIIIPS1 [PHIUPS' fpHUIPs) |PHUIPS| |PHIIIPS| jPHIUPS ' '"%* t-t S'‘5 ; MPSj ÍPHIIIPS PHlUPSj [pHIMPSj [pMILIPs] fpNIUP5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.