Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987
f
Finnland:
Tilraunir til stjórnar-
myndunar að hefjast?
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins:
BUIST er við að Mauno Koi-
visto, forseti Finnlands, tilkynni
í dag hverjum hann felur að
reyna stjórnarmyndun. Forset-
inn ræddi við leiðtoga stjórn-
málaflokkanna i gær og var
líklegast talið að hann fæli full-
trúa einhvers borgaralegu
flokkanna stjórnarmyndun.
Ilkka Suominen, forseti þjóð-
þingsins og formaður hægri
flokksins, gekk fyrstur á fund
Koivisto. Eftir fundinn vildi hann
ekki spá hveijum yrði falin stjóm-
armyndun, en sagðist treysta
dómgreind forsetans fyllilega í því
máli.
Fulltrúar Jafnaðarmanna-
flokksins tilkynntu að loknum
fundi með forsetanum að þeim
fyndist eðlilegast að borgaralegu
flokkamir yrði falið að reyna
stjórnarmyndun.
Forsvarsmenn borgaralegu
flokkanna lýstu áhuga sínum á
myndun samstjómar miðflok-
kanna, hægri manna og jafnaðar-
manna. Vildu þeir að fyrst yrði
möguleiki á stjóm af því tagi
kannaður.
Mauno Koivisto flutti ræðu við
þingsetningar á föstudag og við
það tækifæri lét hann í ljós þá
skoðun sína að samstjórn jafnað-
armanna og borgaralegu flokk-
anna kæmi vart til greina. Stjórn
af því tagi hefði að hans mati allt-
of stóran þingmeirihluta á bak við
sig. Koivisto hefur jafnan viljað
veg þingsins sem mestan og sagði
í ræðu sinni að það yrði til þess
að umræður á þingi legðust niður
ef ríkisstjóm hefði meira en tvo
þriðjuhluta allra þingmanna á bak
við sig.
Jafnaðarmenn eru einnig
andvígir stjómarmyndun með
borgaralegu flokkunum. Stjóm-
málaskýrendur í Helsinki telja
líklegast að í viðræðunum við
flokksleiðtogana hafi forsetinn
fyrst og fremst kannað tvo mögu-
leika. Annað hvort myndun stjóm-
ar jafnaðarmanna og hægrimanna
eða stjómar miðflokka og hægri-
manna.
Reuter
Ferja rétt við
Stjórnunarfélag íslands hefur undanfarin þrjú misseri starfrækt
tölvuskóla, þar sem kennd er forritun og kerfisfræði. Námiö þyggir að
verulegu leyti á hönnunar- og forritunarverkefnum sem hafa það
markmiö að nemendur öölist færni í aö beita þeim aðferðum serfi
kenndar eru. Sum verkefni eru tekin beint úr atvinnulífinu, önnur eru
tilbúin, en leitast er við að láta þau endursþegla raunveruleikann.
Þetta nám er nú einnig hægt að stunda í áföngum á kvöldin. Sama
námsefni er þá kennt í sjö 40 klst. áföngum. í fyrsta áfanganum,
GRUNNI, er farið yfir stýrikerfi og helstu notkunarsvið einkatölva. í
forritunaráföngum er kennt Pascal, mest notaða forritunarmálið á
einkatölvur. Ekki er nauðsynlegt að Ijúka náminu, hver og einn getur
tekið þá áfanga sem honum hentar.
grunnur
FRAMHALO
KLST
forritun II
KERFISHÖNNUN
Besla byriendanámstóO
námskeið.
^ KyS ^mKatöWum.
__ Stvrikerfiö MS-DOS.
- Ritvinnslukerfiö Word.
40
KLST
A
Stjórnunarfélag Islands
TÖLVUSKÚU
Ananaustum 15 • Simi: 6210 66
Undirbúningl að því að rétta feijuna Herald of Free Enter-
prise lauk í gær og átti að reyna að koma henni á réttan kjöl
í dag. Feijan lagðist á hliðina í fyrra mánuði fyrir utan hafnar-
mynnið í Zeebrugge í Belgíu og drukknuðu á annað hundrað
farþegar, sem um borð voru.
Reuter
Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, og Brian Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada, slá á létta strengi við upphaf fyrsta fundar þeirra í
opinberri heimsókn Bandaríkjaforseta til Kanada.
Bandaríkin og Kanada:
Viðskiptahömlum
líklega aflétt í ár
Ottawa, Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, sagði í ræðu í þingi
Kanada í Ottawa, að hann væri
ákafur fylgismaður þess að við-
skiptahindrunum milli Banda-
aríkjanna og Kanada yrði rutt
úr vegi. Reagan, sem nú er í
opinberri heimsókn í Kanada,
sagði að slíkt gæti orðið öðrum
ríkjum til fyrirmyndar.
Reagan hét því að Bandaríkja-
stjóm myndi gera sitt til þess að
ryðja viðskiptahömlum úr vegi.
Brian Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, lagði til fyrir tveimur árum
að grannríkin gerðu með sér
fríverzlunarsamning. í millitíðinni
hafa sprottið upp viðskiptadeilur
milli ríkjanna og hafa Kanadamenn
hvað eftir annað sakað Bandaríkja-
menn um harða vemdarstefnu.
Reagan sagði í gær að hugmynd-
ir Mulroneys væri til marks um
mikla framsýni. Forsetinn sagði
hins vegar að auðveldara væri að
setja sér takmark en ná því. Hann
sagðist Vonast til þess að samkomu-
lag næðist fyrir árslok.
í ræðunni í þinginu í Ottawa vék
Reagan að alþjóðamálum og sagðist
fagna merkjum um breytingar í
Sovétríkjunum. Hann sagðist vona
til að þar væri um að ræða fyrsta
skrefið í átt til raunverulegs frelsis
þar í landi. Hann sagði að ef Sovét-
menn stefndu raunverulega að friði
ættu þeir að breyta stefnu sinni á
alþjóðavettvangi. Stríðið í Afganist-
an og stuðningur þeirra við stjómir
Kampútseu, Eþíópíu og Angólu
væri ekki til marks um mikinn frið-
arvilja.
X