Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
82. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Júgóslavía:
Yfir 200 fyrirtæki
næstum gjaldþrota
Belgrad, Reuter.
Á ÞRIÐJA þúsund ríkisfyrirtæki
í Júgóslavíu voru rekin með mikl-
um halla á síðasta ári og verða
á þriðja hundrað þeirra að öllum
líkindum lýst gjaldþrota þá og
þegar.
Dusan Kocoljevoc, einn af forset-
um Verkalýðssambands Júgóslavíu,
sagði að 2.306 fyrirtæki með rúm-
lega 600 þúsund menn á launaskrá
hafí verið rekin með halla í fyrra.
Hann sagði gjaldþrot blasa við á
þriðja hundrað fyrirtækjum vegna
mikils hallareksturs í fyrra og hitt-
eðfyrra. í júlí ganga í gildi lög sem
veita tapfyrirtækjum sex mánaða
frest til að vinna sig út úr erfiðleik-
unum. Samkvæmt lögunum mega
fyrirtækin aðeins greiða lágmarks-
laun þann tíma og þau sem ekki
ynnu tapið upp yrðu lýst gjaldþrota.
Kocoljevoc sagði að í fyrra hefðu
stjómvöld látið „frysta" bankainn-
stæður fjórða hvers fyrirtækis um
skeið, þar eð þau hefðu ekki staðið
við viðskiptaskuldbindingar sínar.
Þá hefðu fyrirtæki með samtals um
1,4 milljónir manna á launaskrá
farið yfír á bankareikningum sínum
í fyrra.
Loks sagði blaðið Politika Eks-
pres að algengt væri að fyrirtæki
Reuter
Vopnahlé í flóttamannabúðum
Konur og börn í Shatila-flóttamannabúðunum í Beirút litast um
í búðunum í hléi, sem gert hefur verið á bardögum við búðirn-
ar. Sýrlenzkar hersveitir tóku sér stöðu í búðunum í gær til
að tryggja að bardagar bijótist ekki aftur út milli shíta og
Palestínumanna.
borguðu ekki laun á réttum tíma
og mörg fyrirtæki hefðu enn ekki
greitt laun það sem af er árinu.
Miklar vinnudeilur hafa verið í
Júgóslavíu að undanförnu. Brutust
þær út er stjómin frysti laun fyrir
mánuði. Talið er að ólgan muni
aukast enn frekar ef og þegar fyrir-
tæki verða tekin til gjaldþrota-
skipta. Verðbólga er um 100% í
landinu, samkvæmt opinberum
tölum, en talið er að hún sé í raun
enn hærri. Efnahagsástandið í
Júgóslavíu er mjög alvarlegt og
útlitið dökkt. Útflutningur hefur
dregist saman um 17,8% það sem
af er árinu. Fjárhagsstaða fram-
leiðslufyrirtækja hefur verið það
slæm, að algengt er að þau hafi
orðið að minnka afköst þar sem þau
höfðu ekki efni á að kaupa á hrá-
efni.
Reuter
Kafari sígur niður á brú brezku bílfeijunnar eftir að hún komst á
réttan kjöl í gær. Kafarar fóru í gærkvöldi inn í feijuna og náðu
út tugum líka f arþega, sem drukknuðu þegar henni hvolfdi 6. marz sl.
Tugum líka náð úr
brezku bílferiunni
Zeebrugge, Reuter.
KAFARAR fóru í gærkvöldi inn
í brezku feijuna Herald of Free
Enterprise og sóttu fyrstu Iík
farþega, sem drukknuðu þegar
feijunni hvolfdi fyrir utan hafn-
armynnið í Zeebrugge í Belgíu
6. marz sl. Björgunarmenn komu
ferjunni á réttan kjöl í gær.
Gert var ráð fyrir að kafararnir
yrðu að störfum í feijunni í alla
nótt þar sem spáð var versnandi
veðri á slysstað. Talið var að um
borð væru lík um 140 farþega og
að þau væru flest í matsal á efra
þilfari og í vistarverum skipveija,
sem voru neðanþilja.
Björgunarmenn sáu tugi líka
þegar yfírbygging skipsins kom upp
úr sjó. Voru þau við glugga skips-
ins og virðist sem hinir látnu hafi
klemmst er húsgögn og innan-
stokksmunir hentust til þegar
skipinu hvolfdi.
Hafist var handa við að koma
feijunni á réttan kjöl í morgunsárið
og var verkinu lokið upp úr hádegi.
Ymislegt lauslegt flaut út úr feij-
unni meðan á björgunaraðgerðum
stóð en svæðið umhverfis hana
hafði verið girt af til þess að hindra
að lausamunir flytu burt.
Sjá ennfremur bls. 37
Reagan vill tryggingu
fyrir öryggi sendiráðs
Washington, Reuter.
RONALD Reagan, Bandarikja-
forseti, sagði í gærkvöldi að
enginn færi inn í nýja sendi-
ráðsbyggingu Bandaríkjanna i
Moskvu fyrr en hann hefði
fengið tryggingu fyrir því að
hún væri örugg.
Reagan sagði að Sovétmenn
fengju heldur ekki að fara inn í
nýja sendiráðsbyggingu sína í
Washington fyrr en hann hefði
sjálfur fengið tryggingu fyrir því
að nýja sendiráðsbygging Banda-
ríkjamanna í Moskvu væri örugg.
Reagan sagði framangreint á
óvæntum blaðamannafundi í
Hvíta húsinu í gær. Hann sagðist
hafa gefíð George Shultz, utanrík-
isráðherra, fyrirmæli um að taka
málið upp á fundi sfnum með
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, í næstu
viku.
Forsetinn sagðist hafa falið sér-
stakri nefnd undir forystu Melvins
Lairds, fyrrum varnarmálaráð-
herra, að kanna þann brest, sem
orðið hefði á öryggi í bandaríska
sendiráðinu í Moskvu. Einnig
hefði Frank Carlucci, öryggisráð-
gjafi, verið beðinn að meta tjónið
af njósnum sovézkra kvenna, sem
buðu öryggisvörðum í sendiráðinu
blíðu sína gegn því að fá að valsa
um sendiráðsbygginguna.
Nýja sendiráðsbygging Banda-
ríkjamanna í Moskvu kostaði 200
milljónir dala, átta milljarða ísl.
króna. Ýmsir bandarískir þing-
menn hafa haldið því fram að
jafna beri hana við jörðu því ætla
megi að hún sé undirlögð af hljóð-
nemum, sem sovézka leyniþjón-
ustan hafí komið þar fyrir.
Styrkja-
kerfið
glæpaupp-
spretta?
^ Strasbourg, Reuter.
Á ÁRI hveiju glatar Evrópu-
bandalagið milljörðum doll-
ara vegna svika, sem framin
eru í skjóli landbúnaðarstefnu
bandalagsins og styrkjakerf-
isins, mestu glæpauppsprett-
unnar á meginlandinu, eins
og það hefur verið kallað.
Heinrich Aigner, þingmaður
kristilegra demókrata og form-
aður einnar helstu fjárlaga-
nefndar Evrópuþingsins, segir,
að um 3,4 milljarðar dollara,
10% af framlögum bandalagsins
til landbúnaðarmála, færu í súg-
inn á hvetju ári vegna alls konar
svikastarfsemi. Felst hún m.a. í
því að ofmeta skemmdar mat-
vælabirgðir, smygla nautpeningi
milli landa vegna svokallaðrar
„slátrunaruppbótar" og í ýmiss
konar niðurgreiðslusvikum, þar
sem mafían kemur mikið við
sögu.
„Reikningar bandalagsins eru
skýrsla um getuleysi, svik og
óreiðu,“ sagði Bretinn Hugh
McMahon.