Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Unnið er af fullum krafti við að bora eftir sjó þessa dagana við hús
Atlantslax í Sandgerði og vonast menn fljótlega eftir árangri.
Atlantslax í Sandgerði:
Einstaklingur keypti
jarðbor frá Englandi
Sandgerði.
ÖSKAR Arnason, skipstjóri í
Sandgerði og einn af eigendum
fiskeldisstöðvarinnar Atlantslax,
hefur fest kaup á jarðbor frá
Englandi. Borinn hefur hann
notað til að bora eftir köldu vatni
við hús Atlantslax í Sandgerði
og síðar meir er ætlunin að bora
í landi Staðar í Grindavík þar
sem meiningin er að öll starfsemi
stöðvarinnar verði eftir nokkur
ár.
ínn kominn upp í 17—18 milljónir
í dag. Hann bjóst við að geta leigt
öðrum aðilum í fiskeldi afnot af
bornum. Óskar sagði ennfremur að
framleiðendur gæfu upp að hægt
væri að bora niður á 500 metra
dýpi með bomum.
- BB
Fáskrúðsfj örður:
Magnús
Guðmundur
María
Kappræður á Hótel Borg*
í KVÖLD klukkan hálf níu
verður kappræðufundur á
Hótel Borg, þar sem fulltrúar
Sambands ungra jafnaðar-
manna (SUJ) og Sambands
ungra sjálfstæðismanna (SUS)
leiða saman hesta sína.
Ræðumenn SUJ verða Magnús
A. Magnússon, Guðmundur Árni
Sigurbjöm
Stefánsson og María Kjartans-
dóttir. Ræðumenn SUS verða
Sigurbjörn Magnússon, Sólveig
Pétursdóttir og Ámi M.
Mathiesen.
Fundurirm skiptist niður í þijár
umferðir. í þeirri fyrstu fær hvor
aðili fyrir sig 7 mínútna framsögu
fyrir fyrsta mann, 6 mínútna fyr-
Sólveig
ir annan mann og 5 mínútna fyrir
þriðja mann. Að þessum framsög-
um loknum fær aðili fyrir sig 2
mínútur til þess að spyija hinn
spjörunum úr og síðan verða báð-
um aðilum gefnar 10 mínútur til
þess að svara spurningum. í loka-
umferðinni fær síðan hver fram-
sögumaður fyrir sig fjórar
mínútur.
Árni
Sautján börn valin í fyrirsætustörf
HOLLENSKI listhönnuður-
inn Martie Dekkers valdi
sautján íslensk börn síðast-
liðinn laugardag til þess að
sitja fyrir í tískutímariti,
sem ætlað er ungu kynslóð-
inni í Evrópu.
Pjölmörg böm komu á Hótel
Sögu sl. laugardagsmorgun
þegar valið var í störfín. Tíma-
ritið er gefíð út í tveimur
milljónum eintaka og dreift um
alla Evrópu. Ljósmyndimar af
krökkunum verða allar teknar
í Reykajvík dagaha 18. til 27.
apríl næstkomandi.
Óskar sagði að búið væri að bora
tvær holur með þessum bor um 20
metra djúpar og væri búið að tengja
aðra þeirra. Áður hefði verið borað
á þrem stöðum og hefði stöðin nóg
af vatni. Nú væri verið að bora
þriðju holuna með nýja bomum og
væri ætlunin að ná sjó úr þessari
holu. Nú væru þau seiði, sem fyrst
hefðu komið í húsið, orðin eins og
V2 árs og því þyrfti að fara að sjó-
venja þau.
Óskar sagði að hann hefði fengið
borinn í desember og hefði hann
þá kostað 5 milljónir, en síðan hefði
verið keypt mikið af aukabúnaði
og lauslega áætlað væri kostnaður-
Alþýðubandalagið o g Framsókn andvig
niðurfellingu útsvars eldri bæjarbúa
Á FUNDI í hreppsnefnd Búða-
hrepps í liðinni viku lagði Eiríkur
Stefánsson fulltrúi óháðra fram
tillögur þess efnis að fella niður
útsvar allra bæjarbúa sem komn-
ir eru á ellilífeyrisaldur og
sjómanna eldri en 60 ára. Sjálf-
stæðismenn studdu tillögurnar
en fulltrúar Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks greiddu at-
kvæði gegn þeim. Voru þær því
felldar með fjórum atkvæðum
gegn þremur.
Að sögn Eiríks byggði hann til-
lögur sínar á þeim forsendum að
sjómenn eru almennt taldir slitna
mun fyrr út en landverkafólk.
Rannsókn sem Tómas Helgason
yfirlæknir birti árið 1976 leiddi
þetta í ljós. Þá er stór hluti elstu
kynslóðarinnar erfiðisvinnumenn
sem hafa unnið verkamannavinnu
frá unglingsaldri. „Margir þessara
manna halda áfram að skila vinnu-
framlagi þótt þeir séu orðnir
þjakaðir af erfíðum sjúkdómum.
Með þessu gæti bæjarfélagið sýnt
þeim þakklætisvott," sagði hann.
„Það hefur tíðkast á Neskaups-
stað í nærfellt fjóra áratugi og á
Eskifirði á annan áratug að fella
niður útsvar fólks á ellilífeyrisaldri.
Þá samþykkti bæjarstjórn Eski-
fjarðar nýlega samhljóða að fella
niður útsvar af sjómönnum við 60
ára_ aldur.
Ég á von á því að kjósendur
Framsóknar og Alþýðubandalags
hér bænum af eldri kynslóðinni
kunni að verða fyrir vonbrigðum
með þessa afstöðu sinna fulltrúa.
Þeir vilja augsýnilega skattleggja
þá alla leið ofan í gröfina. Og ekki
virðumst við standa upp úr öðrum
byggðarlögum í framkvæmdum
þrátt fyrir meiri skattlagningu. Ég
skora á þetta fólk að láta heyra í
sér,“ sagði Eiríkur Stefánsson.
Opnuð tilboð
í Höfða-
strandarveg
FRAMTAK sf á Siglufirði átti
lægsta tilboð í lagningu Höfða-
strandarvegar, frá Enni að
Þrastarstöðum, sem Vegagerðin
opnaði nýlega tilboð i. Tilboðið
var 1.466 þúsund krónur, sem
er 69,5% af kostnaðaráætlun.
Sex önnur verktakafyrirtæki
buðu í lagningu vegarins. Þessi
vegur er 3,3 km að lengd, og á að
ljúka verkinu fyrir 30. september.
Króksverk átti lægsta tilboð í
efnisvinnslu á Norðurlandi vestra,
samtals 43 þúsund rúmmetra. Til-
boð Króksverks var 8.736 þúsund
kr., sem er 95% af kostnaðaráætlun
V egagerðarinnar.
Martie Dekkers i hópi ungra íslenskra fyrirsæta