Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
Flugslys í Indónesíu:
Farþegaflugvél
lenti í niður-
streymi og hrapaði
Djakarta, Reuter.
INDÓNESÍSK farþegaflugvél,
sem hrapaði niður á flugbraut á
laugardag, lenti i niðurstreymi í
þrumuveðri og reyndust stjóm-
tæki hennar biluð, að því er sagði
í tilkynningu frá samgönguráðu-
neytinu í Indónesíu í gær.
Tuttugu og átta manns biðu bana
í flugslysinu.
Reyn Lumenta, forseti Garuda
Indonesia-flugfélagsins, hafði sagt
við blaðamenn að eldingu hefði lost-
ið niður í vél flugfélagsins í aðflugi
að alþjóðlega flugvellinum Polonia
í Medan á Norður-Sumatra.
í yfirlýsingu ráðuneytisins, sem
dreift var til fjölmiðla, var hvergi
minnst á eldingu. Þar var haft eft-
ir flugmanni DC-9 flugvélarinnar
að hún hefði skyndilega hrapað í
niðurstreymi þegar flugbrautin var
í sjónmáli.
Sumirat flugmaður, sem ræddi
við Rusmin Nuijadin samgönguráð-
herra á sunnudag, sagði að stjóm-
búnaður vélarinnar hefði ekki
virkað þegar hann reyndi að rétta
flugvélina af.
Lumenta vitnaði á sunnudag í
afrit af síðustu orðaskiptum flug-
mannsins við flugtuminn: „Eldingu
hefur lostið niður í flugvélina og
við erum að hrapa.“
Flugvélin, sem var á leið frá
Banda Aceh á Norður-Sumatra með
37 farþega og átta manna áhöfn,
flaug þá á rafmagnslínu og dró á
eftir sér þúsund kg straumbreyti
og kapla, sagði í yfirlýsingunni. Því
næst rakst hún á garð við flug-
brautina. Við það laskaðist annar
vængurinn, vélin þeyttist inn á flug-
brautina og eldur braust út. Þá
sprakk vélin og tættist í sundur.
Þijú hundmð hermenn, slökkviliðs-
menn og björgunarmenn vom
klukkustund að hemja eldinn.
Svarti kassinn, sem inniheldur
upptökur af fjarskiptum úr flug-
klefa og aðrar upplýsingar, fannst
á mánudag. Hann verður sendur til
Ástralíu til rannsóknar, sagði í til-
kynningu ráðuneytisins.
Sautján manns björguðust og
liggja sextán enn á sjúkrahúsum,
að því er yfirvöld í borginni Medan
sögðu. Margir þeirra em þungt
haldnir af bmnasámm.
Ítalía:
„Bragginn“ kominn á síðasta snúning
Reuter
Brátt verður þekktasti bíll Frakka ekki lengur framleiddur í Frakklandi. Citroén ætlar að loka versmiðjun-
um skammt frá París, sem framleiða „braggann" eða tveggja strokka bílinn, og verður hann frá og með
næsta ári aðeins framleiddur í Portúgal. Fimm milljónir manna hafa keypt sér Citroén bragga frá því að
framleiðsla hófst árið 1949. Þá leit bíllinn út eins og sjá má á myndinni og sagði í auglýsingum að hann
væri einkar hentugur til að flytja fjóra bændur og kartöflusekk. Bragginn hefur verið ódýrasta bifreið í
Frakklandi, en framleiðendumir eiga í sífellt meiri erfiðleikum með að halda verði niðri. Bæði hefur fram-
leiðslukostnaður aukist og sala minnkað í Frakklandi. Hertar reglur um útblástur bifreiða í ýmsum löndum
gætu haft áhrif á útflutning.
Kristilegir demókratar
hafna stíómarsamstarfi
Bretland:
Böm við verksmiðjuvinnu
BÖRN niður í 11 ára aldur vinna
í breskum verksmiðjum við að
framleiða skó og aðrar leðurvör-
ur, sem seldar eru fyrirtækjum
um allt landið. Flestir vinnuveit-
enda bamanna era innflytjendur
frá Indlandi og Bangladesh.
Þetta kemur fram í rannsókn,
sem breska blaðið The Sunday
Times stóð fyrir.
Mörg barnanna, sem enn ganga
í skóla, vinna allt að sjö klukku-
stundir á dag, að sögn blaðsins.
Alþjóða bamahjálpin í London tel-
ur, að yfír 35.000 böm vinni
ólöglega á höfuðborgarsvæðinu
einu.
Lög um vinnu bama (frá 1983)
kveða á um, að böm undir 13 ára
aldri megi ekki gegna launuðu
starfi, og samkvæmt lögunum
mega böm ekki vinna meiraén tvær
klukkustundir þá daga, sem skóli
er, auk þess sem vinnuumhverfi
þeirra verður að uppfylla kröfur
heilbrigðisyfirvalda.
Blaðamenn Sunday Times ræddu
við allmarga verksmiðjueigendur,
sem viðurkenndu, að þeir hefðu
böm í þjónustu sinni, þar á meðal
sín eigin böm.
„Það er ekkert athugavert við
að nota böm,“ sagði einn þeirra,
eigandi Star Leather í Brick Lane
í Eastend í London. „A sumrin geta
þau unnið frá átta á morgnana til
miðnættis, og þau leggja hart að
sér, af því að þetta er ákvæðis-
vinna."
Eftir að blaðið birti niðurstöður
rannsóknarinnar, hafa heilbrigðis-
°g öryggisnefndir hins opinbera,
svo og verkalýðsfélag starfsfólks í
leðuriðnaði hafið sjálfstæðar athug-
anir á bamavinnunni í viðkomandi
fyrirtækjum.
Fréttir í sænskum fjölmiðlum:
Lögreglan bendluð
við morðið á Palme
Stokkh&lmi. Frá Erik Lidcn, fréttaritara
AÐ undanfömu hafa birst um
það fréttir í sænskum fjölmiðl-
um, að hópur hægriöfgamanna
innan lögreglunnar í Stokkhólmi
hafi komið við sögu þegar Olof
Palme var myrtur fyrir rúmum
13 mánuðum. Lögregluyfirvöld í
borginni hafa hins vegar vísað
þessum fréttum á bug.
Fréttimar hafa snúist um það,
að innan lögreglunnar sé leynilegur
félagskapur manna, sem safnist
reglulega saman til að hlýða á upp-
tökur af ræðum Hitlers, Görings,
Göbbels og annarra frammámanna
í Þýskalandi nasismans. Þá eiga
Morgunblaðsins.
þessir menn að hafa sérstakt yndi
af þýskum stríðssöngvum og her-
göngulögum og stunda skotæfingar
með byssum, sem gerðar em fyrir
sérstaklega stórar kúlur.
Það hefur gefið þessum fréttum
byr undir báða vængi, að sumir
þeirra, sem bendlaðir eru við leyni-
félagsskapinn, hafa áður verið
sakaðir um óþarfa harðneskju í
starfi.
Yfirmenn lögreglunnar í Stokk-
hólmi hafa reynt að fara ofan í
saumana á þessu máli en hafa ekki
fundið neinn, sem kannast við ein-
hvem félagsskap af þessu tagi.
stjómarmyndun. Takist það ekki
mun sá hinn sami þá líklega mynda
minnihlutastjóm fram yfir kosning-
ar.
Craxi baðst Iausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt þann 3. mars síðast-
liðinn og sagði að deilur innan
stjórnarinnar hefðu gert hana
óstarfhæfa. Á dögunum hafnaði
Francesco Cossiga forseti afsagnar-
beiðni forsætisráðherrans og
mæltist til þess að ríkisstjórin leit-
aði trausts þingsins.
Stjórnarmyndunartilraunir
strönduðu á deilu sósíalista og
kristilegra demókrata um hvort
efna beri til þjóðaratkvæðagreiðslu
í júní um lagalegar umbætur og
nýtingu kjamorku. Kristilegir
demókratar telja hana óþarfa en
flokkur Craxis er gagnstæðrar
skoðunar. Á sunnudag lét Craxi að
því liggja í ræðu sem hann flutti
að hann myndi beita sér fyrir mynd-
un skammtímastjómar þeirra
flokka sem styddu þjóðaratkvæða-
greiðslu um þessa málaflokka. Þar
með yrðu sósíalistar útilokaðir frá
stjómarsamstarfi í fyrsta skipti í
40 ára sögu lýðveldisins og komm-
únistar kæmust í stjóm í fyrsta
skipti frá 1947. Virðist svo sem
þessi orð Craxis hafi hleypt illu blóði
í kristilega demókrata og að þeir
hafi sameinast um að fella stjórn-
ina.
Búist við falli sljórnarinnar í dag
Róm, Reuter.
BÚIST er við því að Kristilegir
demókratar kalli ráðherra sína
úr fimm flokka samsteypustjóm
Bettinos Craxi, forsætisráðherra
Ítalíu, i dag. Þar með fellur ríkis-
stjórain og bendir því flest til
þess að boðað verði til kosninga
á næstunni.
Ráðamenn innan flokksins áttu
langan fund á mánudagskvöldið og
lýstu því yfir að stjómarsamstarfinu
væri lokið. í vikunni verður gengið
til atkvæðagreiðslu á þingi um
stuðningsyfirlýsingu við stjómina.
30 ráðherrar sitja í ríkisstjóm Crax-
is og eru 16 þeirra úr flokki kristi-
legra demókrata. Með þessu er talið
víst að tilraunir til að bjarga stjóm-
inni séu að engu orðnar og því
líklegt að boðað verði til nýrra kosn-
inga. Einnig er hugsanlegt að
Francesco Cossiga útnefni næsta
forsætisráðherra og feli honum
ERLENT