Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
fclk í
fréttum
SKÓLAFÉLAGAR og kennarar liðs Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti sem hreppti
efsta sætið I spumingakeppni framhaldsskól-
anna fögnuðu sigrinum á mánudagsmorgun.
Úrslitaeinvígið fór fram í sjónvarpssal á laugar-
dagskvöld og bar lið FB þá sigurorð af liði
MS. Nemendafélög dagskóla og öldungadeildar
fjölbrautaskólans færðu liðsmönnum blóm-
vendi, kennarfélagið sendi páskaegg og skóla-*
meistari ritsöfti Sigurðar Norðdal. Þá barst
bókagjöf frá Máli og menningu. Hér sést Guðný
Valgeirsdóttir stjómarmaður í nemendafélig-
inu rétta Bjarka Hjálmarssyni blómvönd, til
hliðar við hann hampa þeir Kjartan Ólafsson
og Ármann Þorvaldsson gjöfúm sfnum.
Skórinn fýkur með tilþrifum
Að afklæðast -
Fullorðinsfræðsla tekur á sig ýmsar myndir eins
og dæmi frá Bandaríkjunum sannar. Þar býður
stofnun í New York, er annast fullorðinsfræðslu, nám-
skeið fyrir konur er vilja læra að afklæðast fyrir sinn
heittelskaða. Kennarinn er starfandi fatafella og hefur
V'
Reuter
með tilþrifum
aðsóknin að námskeiðinu orðið slík að námskeiðin
verða mun fleiri en í fyrstu var áætlað og kennarinn,
sem kallar sig Gio, ráðgerir námskeið í fleiri borgum
Bandaríkjanna og gerð myndbands, svo konur vítt og
breitt um heiminn geti fullnumað sig í listinni.
Reuter.
Yerk
Martin Luther King
gef in út
Coretta Scott King, ekkja
Martin Luther King, hins
harða baráttumanns fyrir mann-
réttindum, sem myrtur var árið
1968, hélt fyrir skömmu blaða-
mannafund í Bandaríkjunum, þar
sem tilkynnt var uo utgáfufyrir-
tæki Kaliforníuháskóla hygðist á
næstunni gefa út verk King í 12
bindum. A myndinni heldur frú
King á kynningarriti sem dreift
var á fundinum.
Nýjasta kosningahártískan, ungi maðurinn sem snýr
baki í myndavélina hefur látið raka af sér hárið, nema
að aftan þar sem það myndar form banyan-trésins, sem
er merki stjórnarflokksins, Golkanflokksins, sem er
númer 2 á atkvæðaseðlinu eins og hinn ungi maðurinn
á myndinni er að vekja athygli á.
Fjölskrúðug
kosninga-
barátta
Kosningabarátta er víðar í fullum gangi, en á íslandi og
er álíka fjölskrúðug og mannlífið í viðkomandi löndum.
I Indónesíu fara fram þingkosningar þann 23. apríl nk. og
beita frambjóðendur og flokkar ýmsum ráðum til að vekja
athygli kjósenda. Við birtum hér til gamans tvær myndir
úr baráttunni og þótt ekki sé með því reiknað að áróðurs-
meistarar íslensku flokkanna grípi þær hráar, þá getur verið
gaman að láta hugann reika og ímynda sér hvernig þeir
gætu nýtt sér þær.
Nafni og myndum af Sukarno,
fyrrum forseta Indónesíu, hefur
skotið oft upp í kosningabarát-
tunni og þessi ungi maður sem
er stuðningsmaður lítils flokks,
hefur látið tattóvera mynd hans
á brjóst sér og töluna 3 á kinnina.
Reuter.