Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987 Handbolti: Landsliðið tekurþáttí móti í S-Kóreu Lokaumferðin í kvöld Úrslit fást í kvennablakinu SÍÐASTA umferðin í 1. deildinni í handbolta verður í kvöld og verða þá tveir leikir í Digranesi, tveir í Hafnarfirði og einn í Laug- ardalshöll. íslandsmeistararnir, Víkingur, leika í Höllinni við KA og hefst leik- urinn klukkan 19. í Digranesi leika Breiðablik og Ármann klukkan 20 og strax á eftir, eða kiukkan 21.30, leika Stjarnan og Valur. í Hafnar- firði leika fyrst Haukar og KR og hefst leikur þeirra klukkan 20 og strax á eftir FH og Fram. Þessir leikir skipta litlu máli um sigur, fall eða Evrópusæti því það er svo til allt Ijóst í því sambandi. Víkingar eru Islandsmeistarar og lið Hauka og Ármanns falla í 2. deild. Víkingur tekur þátt i Evrópu- keppni meistaraliða á næsta ári og Breiðablik leikur líklega í IHF- keppninni. FH getur að vísu náð því sæti með sigri í kvöld -ef Breiðablik tapar fyrir Ármanni. ÍS eða Víkingur? Þriðji og síðasti úrslitaleikurinn í blaki kvenna á milli ÍS, íþrótta- félags stúdenta, og Víkings verður í kvöld í Hagaskóla og hefst hann klukkan 18.30. ÍS vann fyrri leikinn en Víkingar þann síðari og í kvöld verður Ijóst hvaða stúlkur verða íslandsmeistarar. Spurs í þriðja sæti TOTTENHAM vann Sheffield Wednesday 1:0 í ensku deildinni í gær og skaust þar með f þriðja sætið. Clive Allen skoraði eina mark Spurs og hefur hann nú gert 44 mörk. Charlton og Chelsea gerðu markalaust jafntefli í leik þar sem mikið gekk á og sjö leikmenn voru bókaðir. Southampton og Wimbledon skildu einnig jöfn en hvoru liði tókst að skora tvö mörk. I 2. deild gerðu Brighton og Plymouth 1:1 jafntefli. í Þýskalandi gerðu Homburg og Dortmund 2:2 jafntefli í gær. Jafntefli LEIKNIR og Þróttur gerðu jafntefli í Reykjavíkurmótinu í gærkvöldi. Lokatölur 4:4 eftir að Leiknir hafði haft 3:1 yfir í leikhléi. Bæði liðin fengu því tvö stig. Fjórartólfur í sprengivikunni FJÓRAR tólfur komu fram með tólf réttum leikjum hjá íslenskum getraunum um helgina og 30 rað- ir voru með 11 réttum leikjum. Potturinn var 1.959.110 krónur í þessari sprengiviku og gaf hver tólfa 342.845 krónur, en 19.591 króna fékkst fyrir 11 rétta. Tvær konur voru með tólf rétta. Önnur fékk vinnninginn á hvítan seðil, en hin var með gulan og þar voru einnig fjórar raðir með 11 réttum. Selfyssingur var með eins seðil, en sá, sem fékk hæsta vinn- inginn að þessu sinni, fyllti út kerfisseðil, sem kostaði 1.260 krónur. Hann er úr Vesturbænum í Reykjavík, hefur tippað grimmt frá því getraunir voru endurvaktar, aldrei sleppt úr viku og fengið vinn- ing af og til, en aldrei eins háan og nú. Ein tólfa og átta raðir með 11 réttum gaf 499.573 krónur. „Ég rétt gaf mér tíma til að renna yfir leikina á seðlinum, byrjaði á því að festa Derby úti, en hin merkin voru meira eða minna út f loftið. Þegar ég kom að fyrsta leiknum átti ég tvítryggingu eftir, setti einn og tvo, hélt með Liverpool, en fagnaði þegar Arsenal skoraði sig- urmarkið," sagði sá heppni við Morgunblaðið í gær. Morgunblaöið/Árni Sæberg Meistararnirfá Daihatsu Daihatsuumboðið á íslandi hefur ákveðið að gefa Handknattleikssambandi íslands Daihatsu Charade bifreið að verðmæti um 320.000 krónur til að keppa um sem sigurlaun i úrslitaleik bikar- keppni HSÍ á sunnudaginn. Hilmir Elísson, sölustjóri hjá Daihatsu, greindi frá þessu á blaðamannafundi í gær. Forstjórar umboðsins, Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Helgason, vildu minnast 10 ára afmælis fyrirtækis- ins og 80 ára afmælis verksmiðjunnar með veglegum hætti. Fyrirtækið hefur ávallt stutt vel við bakið á íþróttum í landinu og vildi veita HSÍ verðskuldaða viðurkenningu á þessum tímamót- um. Fram og Stjarnan leika til úrslita í bikarkeppni karla að þessu sinni og er til mikils að vinna. Sigur- vegararnir vinna sér rétt til þátttöku í Evrópu- keppni bikarhafa í haust og fá auk þess glæsilega bifreið í verðlaun auk annarra viðúrkenninga. Á myndinni eru nokkrir leikmenn Stjörnunnar og Fram ásamt þjálfurum og Jóni Hjaltalín Magn- ússyni formanni HSÍ við Daihatsu Charade bílinn sem bikarmeistararnir hljóta á sunnudaginn. HSÍ hefur þegið boð um að taka þátt í sterku móti, sem haldið verður í Suður-Kóreu 28. - 31. ágúst nk. Auk heimamanna og íslands taka þátt Japan Spánn og Svíþjóð. Sérstök fjáröfiun verður vegna þessarar kostnað- arsömu en nauðsynlegu ferðar, en hún kostar HSI tæplega tvær milljónir krónur. Stjórnarmenn HSÍ ræddu við Suður-Kóreumenn í úrslitakeppni HM í Sviss í fyrra, buðu þeim til íslands og lögðu drög að þátttöku í móti í Suður-Kóreu fyrir Olympíu- leikana. „Við tókum þátt í móti í Sviss fyrir HM, sem var mjög mikil- væg reynsla fyrir úrslitakeppnina. Enn mikilvægara er að fá tækifæri til að keppa í Suður-Kóreu fyrir ÓL til að kynnast breyttum að- stæðum, loftslaginu, matnum,1 tímanum og íþróttahöllunum," sagði Jón Hjaltalín, formaður HSÍ, við Morgunblaðið í gær. í lok ágúst eru liðin að undirbúa sig fyrir íslandsmótiö og þá fer þýska bundesligan í gang, en að sögn Jóns, vonast HSI til að fá þá leikmenn lausa, sem valdir verða. Nýr bikar í kvöld Víkingur og KA leika í 1. deild íslandsmótsins í handknatt- leik í Laugardalshöll í kvöld og hefst leikurinn klukkan 19. Að leik loknum fá nýbakaðir íslandsmeistarar Víkings af- hent sigurlaun sín. Hinn nýi og glæsilegi íslandsbikar, sem Davíð Oddsson bogarstjóri gaf til keppninnar, verður nú af- hentur í fyrsta sinn. Hefur HSÍ óskað eftir því við borgarstjóra, að hann afhendi bikarinn. Davíð Oddsson ákvað að gefa bikar til keppninnar í fyrra, þegar Víkingar fólu honum gamla bikarinn til varðveizlu á 200 ára afmæli Reykjavíkur. Varð borgarstjóri mjög undr- andi yfir hrörlegu ásigkomulagi bikarsins og tilkynnti á stund- inni að Reykjavíkurborg myndi gefa nýjan bikar og svo skemmtilega vill til að Víking- arnir vinna til hans í fyrsta sinn. Að leik loknum verður upp- skeruhátíö í félagsheimili Víkings við Hæðargarð og eru allir Víkingar og velunnarar fé- lagsins velkomnir. Morgunblaðið/Einar Falur • HSÞ-maður reynir hægri fótar klofbragð á HSK-mann. HSK sigraði í sveitaglímu íslands UNGLINGASVEIT HSK sigraði í sveitaglímu íslands sem fram fór í íþróttahúsi Kennaraháskólans á laugardaginn. HSK sigraði HSÞ með 14,5 vinn- inga gegn 10,5. Aðeins var keppt í unglingaflokki. Keppni ífullorðins- flokki varð að fresta þar sem sveit HSÞ mætti ekki til leiks. KR-ingar fóru því heim án keppni. í sigursveit HSK voru: Jóhannes Sveinbjörnsson, Gunnar Gunnars- son, Hörður Óli Guðmundsson, Jón G. Friðgeirsson og Kjartan Ásmundsson. 1X2 1 0) 2 c 3 s > o Tíminn c c ! ja Dagur s & n i K c (B 0Q Sunday Mirror Sunday People News of the Worid Sjnday Expresa Sunday Talegraph SAMTALS 1 X 2 Leeds — Coventry 1 2 1 1 1 1 1 1 — — 2 — 7 0 2 Watford — Tottenham X 2 2 2 2 2 2 2 2 X 1 1 2 8 Everton — West Ham 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0 Leicester — Aston Villa 2 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 __ 9 1 1 Man.C. — Southampton X 1 1 1 1 1 X 2 1 2 X _ 6 3 2 Norwich — Liverpool 2 X X 2 2 1 2 2 X X 2 1 4 6 2 Oxford — Newcastle 1 X 1 1 1 1 1 1 1 2 X 8 . 2 2 QPR-Luton x L 2 2L X 1 ? X ? x X 1 7 3 C. Palace —Plvmouth X 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 g 2 0 Dnrhy — Stnkn 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 n n Hnddnrsflnlri — Ipawlrh 1 1 9 1 9 1 9 Y 9 Y 9 Pnrtsmnuth — Oldham 1 1 X 1 x . X 1 -i X 1 1 Q
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.