Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
75
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Villimemi í Bláfjöllum
Til Velvakanda.
Það er ömurlegt að vita hve
fullorðnir menn eru tilbúnir að
spilla í kring um sig að því er virð-
ist að ástæðulausu, nema þá af
skemmdarfýsn. Þetta reyndi ég í
Bláfjöllunum um síðustu helgi.
Sunnudaginn 22. mars lagði ég
leið mína eftir vel troðinni göngu-
Margir hafa haft samband við
Velvakanda út af gátunni sem
spurst var fyrir um í síðustu viku.
Gáta þessa er að finna í bókinni
íslenskar gátur, skemmtanir, viki-
vakar og þulur sem Jón Árnason
og Ólafur Davíðsson söfnuðu til.
Bókin var fyrst gefin út í Kaup-
mannahöfn árið 1887. Þar er gátan
svona:
Sá ég sitja segg
'sunnan undir vegg;
hefir augu og nef
aldrei fær hann kvef
hefir bústinn bol,
býsna mikið þol,
syngur örvaþór,
aldrei fer 5 kór.
Gettu gátu mín
ef glögg er vizkan þín.
Greinilegt er að mörg afbrigði
eru til af þessari gátu. Einn þeirra
sem höfðu samband við Velvakanda
og vildi aðeins nefna sig H.V. hefur
hana svona:
Sá ég sitja segg
sunnan undir vegg;
hefir augu og nef,
aldrei fær hann kvef,
syngur í álmaþór,
aldrei kemur í kór.
(Og svo bæta sumir við:)
braut svæðisins og naut útivistar-
innar, sem svo oft áður. Síðdegis
daginn eftir, mánudag, freistaði
veður mín aftur, en nú voru við-
brigði.
Hluti af göngubrautinni, u.þ.b.
1 km kafli, var nú uppspændur
eftir einhver torfærutæki, senni-
lega jeppa, þannig að ekki var um
Nú er vandi
að geta á steðja.
Með þessari viðbót verður gátan
auðráðin.
annað að ræða en að ganga utan
brautar á þessum parti. En auk
þess hafði verið ekið þvers og kruss
um svæðið og víða þvert yfir
göngubrautina. Var göngusvæðið
því meira og minna í sárum af
u.þ.b. 25 sm djúpum förum eftir
breiðustu dekk.
Það er ekkert gamanmál að
menn skuli komast upp með að
þjóna eyðileggingarfýsn sinni á
þennan hátt. Bláfjallasvæðið er
perla sem prýðir höfuðborgarsvæð-
ið og þangað sækir fólk í vaxandi
mæli til þess að stunda heilbrigða
hreyfingu í tæru. fjallalofti utan
við ys og þys og umferðargný
hversdagsleikans. Hér held ég að
þörf sé á að taka í taumana.
Benedikt Gunnarsson
Þessir hringdu . .
Svört taska
með skilríkjum
Svört axlartaska hvarf á dans-
leik í Glæsibæ sl. föstudag. í
töskunni var m.a. vínrautt seðla-
vekski, með skilríkjum, vísakorti,
banakakorti og ávísanahefti
merktu Sparisjóði Keflavíkur.
Finnandi vinsamlegast skili tösk-
unni á lögreglustöðina í
Reykjavík.
Giallo úr
Úr af tegundinni Giallo fannst
hjá Brekkuseli fyrir skömmu. Eig-
andi þess vinsamlegast hringi í
síma 7 41 50.
Svartir leður-
hanskar
Svartir uppháir leðurhanskar
töpuðust 31. mars, sennilega í
Kirkjustræti en þaðan fór eigand-
inn í gegn um kökuhúsið að
Búnaðarbankanum í Austur-
stræti. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 3 70 44. Fundarlaun.
Ofnskúffa
o.fl.
Stúlka í Mosfellssveit, sem skil-
aði ofni er hún ætlaði að kaupa,
er beðið að skila ofnskúffuni, plöt-
unum og grindinni að Skipholt
30 eða hringja í síma 1 86 14.
Sá ég silja segg
Erum við tilbúin að drekkja
því sem áunnist hefur?
Ágæti samferðamaður,
Ert þú með báðar fæturna á jörð-
inni eða ert þú á sundi í táraflóði
tilfinningaseminnar?
Fréttamaður spurði Þorstein
Pálsson hvort honum þætti ekki
ómakiega vegið að Albert Guð-
mundssyni þar sem hann var í
útlöndum.
Ég spyr, hvernig dettur manni í
hug, sem á ekki bara að vera ábyrg-
ur gjörða sinna heldur gegnir
trúnaðarstarfi sem hann hefur tekið
að sér, að rjúka til útlanda þegar
svo viðkvæm og leiðinleg mál sem
þetta eru við það að springa?
Þeir sem fylgdust með úrslitum
forsetakosninganna á Filippseyjum
muna sjálfsagt hvernig Markos
brást við staðreyndum. Við vitum
líka hvernig Albert brást við, en
það merkilega er, að íslenska þjóðin
virðist standa á öndinni af tilfinn-
ingasemi og virðist gleyma, ekki
bara stað og stund, heldur þjóðar-
rekstrinum í heild sinni.
Ég er ansi hrædd um að íslend-
ingar hefðu mátt bíða lengur eftir
sjálfstæði sínu ef Jón Sigurðsson
hefði sagt frammi fyrir alþjóð
„Æ,æ, þú mátt ekki græta mig.“
Hann hefði ekki þótt traustvekjandi
leiðtogi, sem stæði og félli með orð-
um sínum og gjörðum.
Albert Guðmundsson hefur
margt gott gert bæði fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og þjóðarbúið en það
þýðir ekki það, að rétt sé ekki rétt
og rangt sé ekki rangt. Ef Híjlena
vill fara í framboð á hún að gera
það sjálf, en ekki að ota fullorðnum
föður sínum út í allt það álag sem
því fylgir og beri hún hans velferð
fyrir bijósti ætti hún auðvitað að
sjá þetta sjálf.
Ég held að við ættum að hug-
leiða hvort við erum tilbúin til að
drekkja því sem áunnist hefur á
kjörtímabilinu sem er að ljúka. Þeg-
ar við höfum náð áttum ætti ekki
að vera erfitt að þekkja aftur rétt
frá röngu.
Ágæti samferðamaður, ég vona,
okkar allra vegna, að við eigum
samleið á réttri leið og kjósum X-D.
Ragnheiður Pálsdóttir
Vandið val björgunarvesta —
stærð þeirra og gerð
Góð björgnnarvesti hafa þann kost að snúa sjálfkrafa þeim
er þau nota í flotlegu með munn og nef yfir vatnsfletinum
og varna því að menn fljóti á grúfu. Öll vesti ættu að vera
með endurskinsborðum, flautu og ljósi.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll,
Háaleitisbraut 1,3. hæð
Símar: 689004 - 689005 - 689006
Utankjörstaðakosning ferfram hjá borgarfógetanum í
ReykjavíkíÁrmúlaskólaalladagafrá kl. 10-12,14-18
og 20-22 nema sunnudaga og aðra helgidaga kl. 14-
18. Lokað föstudaginn langa og páskadag. Skrifstofan
gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosn-
ingunum. Áðstoð við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna ef
þið verðið ekki heima á kjördag.
húsgagna4iöllín
F R í S K I R
DDdQq
og þægindi hvort sem setið er
eða sofíð í ljósgráu, ljósbrúnu,
og ljósbláu.
Það fer ekkert á milli mála hvaða sveftisófí er vinsælast-
ur hjá unga fólkinu. Það er PAX sófínn sem er þannig
frá genginn að hægt er að renna áklæðinu af honum
og setja það í hreinsun, auk þess sem áklæðið er sérstak-
lega varið fyrir óhreinindum.
Útborgun Afborguná mánuði
6.980 2.880
Hjá okkur sérðu langsamlega stærsta og besta úrval
landsins af allskonar svefnsófum fyrir fullorðna, hjón og
fermingarböm. ' ______
REYKJAVlK
<Í
Gódan daginn!