Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987 77
Barist í bænda-
glímu að fornum sið
Skotinn Douglas Edmunds
hefur skipulagt Víkingaleika
í Skotlandi þar sem sextán
íslenskir kraftajötnar keppa
BÆNDAGLÍMA er íþrótt sem
unnendur teiknimyndahetjanna
Ástríks, Steinríks og fólaga kann-
ast ágætlega við. Aðrir kunna að
hafa lesið um það úr fornsögum,
þegar hetjur fylktu liði og börðu
á fjandmönnum sínum í bænda-
glímu. Þeir eru hins vegar fáir
sem þekkja íþróttina úr nútíman-
um og enn færri af eigin raun.
En úr því verður heldur betur
bætt á komandi hausti, nánar til-
tekið þann 30. ágúst næstkom-
andi, þegar sextán manna sveit
með „víkingablóð1' í æðum og
sterkasta mann heims í farar-
broddi mætir í bændaglfmu
sextán vöskum Bretum og Skot-
um með skoskt hálandablóð f
æðum.
Talandi um blóð þá er rétt að
geta þess að ekki mun það renna
að fornum sið í glímunni, en eigi
síður munu keppendur teljast
„dánir" undir vissum kringum-
stæðum, þ.e. ef þeir verða þá ekki
teknir tii fanga af andstæðingun-
um.
Það er Skotinn Douglas Ed-
munds, sem á heiðurinn af því að
endurvekja þessa fornu íþrótt, en
hann er maðurinn á bak við svo-
nefnda „Víkingaleika" sem verða
haldnir á fyrsta degi árlegrar
Víkingahátíðar í Larg í Skotlandi,
stað sem víkingar sóttu mikið á
sinni tíð.
Edmunds er ekki nýtt nafn í
heimi kraftajötna og aflrauna, því
hann og fyrirtæki hans hafa í mörg
ár séð um Hálandaleikana skosku
og þar að auki unnið við keppnina
um sterkasta mann Evrópu og
sterkasta mann heims.
„Ég er alltaf að velta fyrir mér
hvað er hægt að gera nýtt og
Víkingaleikarnir eru ein slík hug-
mynd sem nú verður framkvæmd.
Það á líka vel við að halda slíka
leika í Larg, því þar eru miklar
minjar frá tíma víkinganna og ár-
lega hefur verið haldin Víkinga-
hátíð með söng, dansi og
tilheyrandi skemmtan þar í ágúst.
Hana hafa margir sótt frá Norð-
urlöndum, sérstaklega frá Noregi
og Svíþjóð og því ekki að bæta
íslendingum þar við og gera það
svoiítið hressilega," segir Ed-
munds. Hann var nýlega staddur
hér á landi m.a. vegna leikanna
og átti þá viðræður við væntanlega
keppendurog þjálfara þeirra, Gísla
Þorsteinsson, júdóþjálfara.
„Með Víkingaleikunum vil ég
endurvekja fornar íþróttir víkinga-
tímans og aðrar fornar skoskar
íþróttir, en þarna mætast nítján
manna lið frá íslandi með Jón Pál
í fararbroddi og frá Bretlandi með
Geoff Capes í broddi fylkingar, en
auk hans verða kraftajötnar á borð
við Mark Higgins og Chris Black í
breska liðinu.
Iþróttirnar sem keppt verður í
eru m.a. bændaganga, en hún er
þannig að keppendur taka sér í
fang 75 kílóa steina og ganga með
þá hring eftir hring. Sá sigrar sem
gengur lengst, en heimsmetið í
þessari grein á nú Jón Páll, sem
komst 270 metra. Hann á líka
Morgunblaðið/Einar Falur
• Víkingar leggja á ráðin, en stór hópur manna hefur tekið að sór
kostnaðinn vegna starfa Youri Sedov hjá Vfkingi.
Sviss:
Luzerní
áttunda sæti
LUZERN er nú í 8. sæti sviss-
nesku knattspyrnunnar eftir 1:0
sigur á St. Gallen um helgina.
Xamax er í efsta sæti og Grass-
hoppers í öðru.
Sigurður Grétarsson var í byrj-
unarliði Luzern en fór útaf þegar
fimm mínútur voru til leiksloka.
Ómar Torfason tók þá við stöðu
hans. Leikurinn fór fram við erfiðar
aðstæður þar sem miklar rigningar
hafa verið í Sviss að undanförnu.
Völlurinn var því blautur og þung-
ur.
Baden, lið Gumundar Þor-
björnssonr, vann 3:0 sigur í 2.
deildarkeppninni á laugardaginn.
Oakley góður
í gær birtist mynd af Wes Unseld
og sagt að hann væri einn leik-
manna Chicago Bulls. Hann var
frægur leikmaður á árum áður
og lók með Washlngton Bullets f
mörg ár, en í greininni með mynd-
inni er rætt um Charles Oakley,
einn helsta frákastara Chicago
Bulls í vetur, og átti mynd af hon-
um að fylgja.
r xwmm
| r ~
• „Þetta verður örugglega stórskemmtileg viðureign,u segir Edmunds, sem hér er ásamt bróður sínum
og tveimur íslenskum þáttakendum í Víkingaleikunum. F.v. Jón Páll Sigmarsson, John Edmunds, Douglas
Edmunds og Hjalti Árnason.
heimsmetið í annarri rammskoskri
grein sem verður þarna, sem er
að lyfta kringlulaga steinum allt
að 240 kílóa þungum upp á tunnur
sem eru 1 1/2 meter á hæð. Hann
er sá eini sem hefur lyft öllum
steinunum upp á tunnur í réttri
hæð, en við lánuðum steinana í
keppnina um sterkasta mann
heims, þar sem þeim var lyft á
allt of lágar tunnur.
Þá verður keppt í að kasta
„Hamri Þórs", bera þunga steina,
í reiptogi og ýmsum öðrum grein-
um, að ógleymdri sjálfri bænda-
glímunni, þar sem bæði liðin
mætast fullskipuð.
Fyrirkomulag hennar er að forn-
um sið. Sextán liðsmenn Skotanna
mæta sextán liðsmönnum (slend-
inganna á bargadagavelli. Fyrir
aftan þá verða átta dómarar til að
sjá um að allt fari eftir settum regl-
um, en það verða svo hornablásar-
ar í íslenska liðinu og sekkjapípu-
blásarar í því skoska sem blása til
leiks og gefa mönnum merki um
hvenær á að sækja, hörfa og þess
háttar.
Þarna berjast svo menn hver
við annan og dómaranna er að
úrskurða hver er „dáinn" ef hann
hefur legið of lengi á jörðinni, eða
hvort einhver sé kominn það langt
inn á svæði andstæðinganna að
hann teljist vera tekinn til fanga.
Þetta fer allt eftir settum reglum.
Nú, þegar þessir liðsmenn hafa
lokið sínum bardaga þá er loka-
viðureignin eftir, en að fornum sið
mætast aðalhetjur liðanna í lokin
og þá ganga fram þrír menn úr
hvoru liði og heyja endanlegu við-
ureignina. Þar verða Capes,
Higgins og Black fyrir Skotana.
Þetta verður örugglega stór-
skemmtileg viðureign," segir
Edmunds og því eru þeir Jón Páll
og Hjalti Árnason fyllilega sam-
mála, segja það ágætis tilbreyt-
ingu að taka þátt í fjöldakeppni í
stað einstaklingskeppni.
Á sama máli er Gísli Þorsteins-
son, júdóþjálfari, en hann kemur
til með að velja íslenska keppnis-
hópinn bráðlega. „Ég vel í liðið
menn sem eru í góðri þjálfun og
verða mikið að keppa í sumar.
Uppistaðan verða lyftingamenn,
júdómenn og menn úr glímunni,"
segir Gísli, en eitt þeirra atriða sem
hann mun láta hópinn æfa sérstak-^-
lega er svonefnd, „Cumberland
glíma".
„Ég býst við að hópurinn þurfi
að koma svona fjórum sinnum
saman á æfingar, þá sérstaklega
fyrir bændaglímuna, en svo keppa
þeir líka í meira sérhæfðum þraut-
um og verða valdir sérstaklega til
þess. Ég get ekki sagt endanlega
hverjir skipa hópinn, en líklega
verða þar á meðal þeir Jón Páll
Sigmarsson, Bjarni Friðriksson,
Hjalti Árnason, Torfi Ólafsson, Sig-ifc^.
urður Hauksson, Magnús Hauks-
son, Arnar Marteinsson og ég
sjálfur," segir Gísli.
Víkingar ætla sér
stóra hluti undir
Youri Sedov
stjórn
ÞEIM var lótt Víkingunum er þeir
loks síðasta föstudag fengu stað-
festingu í rússneska sendiróðinu
á komutfma þjálfarans Youri
Sedov. Maðurinn, sem gerði
Vfking að Islandsmelsturum í
knattspyrnu árin 1981 og 1982,
kemur til landsins föstudaginn
10. aprfl. Undir hans stjórn ætla
Víkingar sór sigur f 2. deiid í sum-
ar og síðan að taka stefnuna á
íslandsmeistaratitil innan þriggja
ára.
Youri Sedov var í þrjú ár með
Víkingsliðið, 1980-1982. Óhætt er
að segja að þau séu mesti blóma-
tími í knattspyrnusögu félagsins.
Fram að titlinum árið 1981 hafði
Víkingur ekki orðið íslandsmeistari
í rúmlega hálfa öld eða frá árinu
1924. Sedov tók við af landa sínum
Youri llytchev, sem einnig hafði
gert góða hluti með Víkingsliðið.
Víkingar hafa nú hleypt af stokkun-
um mikilli herferð meðal yngri og
eldri stuðningsmanna sinna undir
slagorðunum „Víkingar í vígahug"
og er takmarkið að stuðningur
þessa hóps fjármagni kostnaðinn
við þjálfarann næstu tvö árin.
Youri Sedov er 57 ára gamall,
hámenntaður í íþrótta- og knatt-
spyrnufræðum. Hann lék á sínum
tíma sem bakvörður með landsliði
Sovétríkjanna og spannar ferill
hans þar 13 ár. Frá því að Sedov
hélt til síns heima árið 1982 hefur
hann starfað við ráðgjöf og þjálfun
hjá Knattspyrnusambandi Sovét-
• Youri Sedov
ríkjanna. Meðal annars hefur hann
haft yfirumsjón með landsliði 21
árs og yngri á þessu tímabili.
Á síðasta ári þjálfdði Magnús
Jónatansson lið Víkings í 2. deild-
inni. Herzlumuninn vantaði til að
liðið kæmist upp í 1. deild, en
Vfkingar voru þó mjög ánægðir
með störf Magnúsar. Róðurinn
verður eflaust þungur hjá Víking-
um í 2. deildinni í sumar. Lið þeirra
er að mestu skipað ungum leik-
mönnum, en Víkingar hafa ofurtrú
á Youri Sedov. Af þeim leikmönn-
um, sem spiluðu með Víkingi
meistaraárin 1981 og 1982 eru
aðeins þeir Jóhann Þorvarðarson
og Þórður Marelsson eftir í hópn-
um. Nokkrir hafa lagt skóna á
hilluna. Menn eins og Heimir Karls-
son og Aðalsteinn Aðalsteinsson
leika nú með ÍR og verða því and-
stæðingar Víkings í 2. deild. Helgi
Helgason leikur með Völsungum á*-
Húsavík, Lárus Guðmundsson í
V-Þýzkalandi og Ómar Torfason í
Sviss svo nokkrir séu nefndir.
„Það er annað hvort eða hjá
okkur" segir Jóhannes Tryggva-
son, einn forystumanna knatt-
spyrnunnar í Víkingi um keppn-
istímabilið, sem senn fer í hönd.
„Meistaraflokkurinn hefur verið í
lægð hjá okkur undanfarin ár og
því ætlum við að breyta. Víkingur
verður 80 ára á næsta ári og þá
er takmarkið að eiga lið í 1. deild
í knattspyrnu. Yngri flokkar Víkings
eru hins vegar mjög sterkir og
hugmyndin er að nýta þekkingu
og reynslu Youri Sedovs fyrir aðra
flokka í félaginu og jafnvel að hann
haldi þjálfaranámskeið. Við erum
sannfærðir um ágæti þessa rúss-
neska þjálfara og ferill hans innan
knattspyrnuhreyfingarinnar í Sov-
étríkjunum segir allt sem þarf.
Hér á landi vöktu vinnubrögð
hans athygli og árangurinn var frá-
bær - tveir meistaratitlar Víkings á
þremur árum. Það var meira en
að segja það þvi Víkingur hafði
ekki orðið meistari í 57 ár og hafði
því ekki hefð á bak við sig eins og
til dæmis Valur og Akranes, sem
nánast árlega höfðu verið á*
meistarapalli. Við erum með ungt
lið núna, nýtt lið, sem Youri Sedov
fær að móta og með þessum
mannskap ætlum við okkur meist-
aratitil innan fárra ára," segir
Jóhannes Tryggvason.