Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987 69 Jóhannes Sigurðs- son — Minning Fæddur 1. febrúar 1899 Dáinn 29. mars 1987 Hann afí Jói er dáinn. Það kom okkur svo sem ekki mjög á óvart og þó. Fyrir rúmum 2 mánuðum vissum við að ekki væri langt að leiðarlokum í þessu lífí, og loka- stundin kom að morgni sunnudags- ins 29. mars. Jóhannes fæddist á GamlaHrauni við Eyrarbakka 1. febrúar 1899, sonur hjónanna Kristrúnar Jóhann- esdóttur og Sigurðar Guðmunds- sonar, sem bæði urðu háöldruð. Því miður kynntist ég ekki Sigurði heitnum en Kristrúnu man ég eftir rúmliggjandi síðustu mánuði ævi hennar. Jóhannes fór ungur til sjós og var lengst af í siglingum á norskum fragtskipum og á þeim árum ferð- aðist hann vítt og breitt, m.a. til Spánar, Portúgals og Norður- Afríku. En eins og gefur að skilja lágu leiðir hans aftur til gamla landsins þar sem hann var um skeið á togurum. Eftir það hóf hann störf hjá Landssíma Islands og þar vann hann þar til starfsferli hans lauk. Skömmu eftir heimkomuna kynntist henn eiginkonu sinni, Guð- þjörgu Bárðardóttur frá Móeiðar- hvolshjáleigu í Hvolhreppi. Þau giftust 23. desember 1932 og varð 2ja barna auðið, þau eru Sigrún, fædd 28. október 1933, og Gunnar, fæddur 4. febrúar 1936. Guðbjörg lést löngu fyrir aldur fram, 31. janúar 1959, eftir lang- varandi veikindi og var það sár og mikill missir fyrir Jóhannes og okk- ur öll hin. Oðlingskonu eins og henni hef ég sjaldan eða aldrei kynnst. Nokkrum árum síðar kenndi Jó- hannes sjúkdóms sem átti eftir að hafa áhrif á líf hans eða það sem eftir var. Hann var sendur á sjúkra- hús í Kaupmannahöfn til að fjar- lægja krabbamein í hálsi. Eftir þá aðgerð þótti með eindæmum hversu fljótur hann var að læra að tala aftur án raddbanda. Sigrún giftist ung Snorra Sturlu- syni og eignuðust þau fjögur böm; Björgu Jóhönnu, Ólafíu Kristínu, Sturlu og Amdísi. Snorri lést fyrir aldur fram eftir langvarandi veikindi og nokkmm ámm síðar missti Sigrún einkason- inn, Sturlu, aðeins 22ja ára. í fyrrasumar lést svo Kristín dóttir hennar frá eiginmanni sínum og þremur börnum. Seinni maður Sig- rúnar er Geir Runólfsson, skrif- stofustjóri hjá Landsbanka Islands, sem staðið hefur með henni eins Kveðja frá vinkonu Margar eru raunir réttláts manns en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum Hann gætir allra beina hans ekki eitt af þeim skal brotið. (Davíðss. 35. vers 20-21.) I gær var æskuvinkona mín, Hrafnhildur Margrét, kvödd hinstu kveðju. Við Magga, en það var hún ávallt kölluð, höfum þekkst frá barnæsku, en við lékum okkur sam- an á Stokkseyri. Æskuárin vom fljót að líða og um 16 ára aldur skildu leiðir um sinn er Magga fór á Selfoss og ég til Eyja. Árið 1973 liggja leiðir okkar saman á ný og kom þá í ljós að þau vináttubönd er við bundumst í æsku voru þau sömu. Þær stundir er við Magga áttum saman hin síðari ár sem og í æsku em mér ógleymanlegar. í allri umgengni var Magga ávallt hress og kát og trúði á lífið. Þrátt fyrir veikindi sín hin síðari ár missti Magga aldrei trúna á lífíð og barðist hetjulegri baráttu þar til yfír lauk. Með þessum fátæklegu og klettur í öllum hennar sorgum og erfíðleikum. Við Gunnar tókum stóra ákvörð- un fyrir átta ámm að flytjast búferlum til Bandaríkjanna. Synir okkar Birgir og Haukur, sem báðir vom þá á unglingsaldri, komu með okkur og ári seinna fluttu svo Sandra dóttir okkar og Kristján maður hennar einnig hingað til Seattle, með Arnar son sinn með sér. Það er ekki með öllu sársauka- laust að flytjast þetta langt í burtu og sektarkenndin segir oft til sín, sérstaklega þegar um er að ræða sjúkdóma og veikindi. Mest bitnar þetta allt á Sigrúnu og Björgu dótt- ur hennar, sem er eina barnabarn Jóhannesar sem býr í Reykjavík. Á Björg sérstakan heiður og þakkir skilið fyrir hversu góð hún hefur verið við afa sinn. Bamabarnaböm Jóhannesar á Islandi og í Ameríku em orðin ell- efu talsins og þau eldri sem kynntust honum munu sakna hans sárt. Ekki má gleyma lífsfömnaut hans í gegnum súrt og sætt seinni árin, Guðrúnu Jónsdóttur, sem á nú um sárt að binda eins og við hin. Kærar þakkir, Gunna mín, frá okkur öllum í Seattle og Blaine. Jóa Fædd 12. júní 1918 Dáin 8. marz 1987 „Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinimir kveðja, vininn sinn látna, er sefur nú hinn síðasta blund." (V. Briem) Ingibjörg vinkona mín lést þann 8. marz á Landakotsspítala eftir stutta legu. Hún var fædd 12. júní 1918 á Þingeyri. Foreldrar hennar vom Jón Sigurðsson skósmiður og kona hans Valgerður Tómasdóttir. Við Ingibjörg höfðum þekkst í 10 ár. Allan þann tíma og reyndar mikið lengur átti hún við mikla vanheilsu að stríða. En hún bar sig vel, bein í baki og létt í lund og gerði gott úr öllu. Hún vann öll sín verk vel og af mikilli alúð, hvort sem var innan heimilis eða utan. Ekki hvað síst bar garðurinn í Hlíðarhvamminum vitni snyrti- orðum kveð ég elskulega vinkonu mína en í hjarta mínu geymi ég allar þær yndislegu minningar um allar þær stundir er við áttum sam- an og það sem Magga var mér. Fjölskyldu Margrétar sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur, og bið góðan Guð að styrkja þau í sorg sinni. Sirrý mínum gleymi ég aldrei þegar hann var í hominu hjá okkur í Nökkva- voginum. Gunnar, Birgir og Haukur gleyma aldrei veiðiferðunum á Am- arvatnssheiði. Birgir, Haukur og Kristján stunda nú sjómennsku við Alaska og komast þess vegna ekki til Islands. En Sandra fylgir afa Jóa síðasta spölinn ásamt pabba sínum. Við hin emm öll með hugann á Islandi á þessari kveðjustund. Fjarstödd tengdadóttir, Rósa Signrðardóttir. Seattle. mennsku hennar. Þar átti hún margar gleðistundir og það var skemmtilegt að ganga með henni um garðinn. Ingibjörg var mjög virkur félagi í Garðyrkjufélagi Is- lands og í 15 ár lagði hún lið við undirbúning og afgreiðslu á blóm- laukum sem félagið er með. Á hundrað ára afmæli G.I. var hún ásamt fleimm heiðruð fyrir gott starf. Ingibjörg giftist eftirlifandi manni sínum, Jóni Vilhjálmssyni vélstjóra, árið 1947. Þau vom sam- hent og virtu hvort annað að verðleikum og studdu í erfiðum veikindum hvors annars. Honum votta ég mína innilegustu samúð. Ingibjörg var jarðsett í kyrrþey föstudaginn 19. marz. L.H.J. Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Ingibjörg Jóns- dóttir - Kveðjuorð Hrafnhildur Margrét Viggósdóttir Minning: EinarKarl Guðjónsson Fæddur 13. nóvember 1907 Dáinn 27. febrúar 1987 Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dauðans dimma nótt. (V. Briem.) Laugardaginn 7. mars var til moldar borinn frá Hafnarkirkju frændi minn, Einar Karl Guðjóns- son. Hann var fæddur á Þorgeirs- stöðum, Lóni, sonur hjónanna Kristínar Jónsdóttur og Guðjóns Einarssonar. Ungur missti hann föður sinn, fór hann þá að Syðra- firði í sömu sveit, til föðurbróður síns, Sigurðar Einarssonar. Einn bróður átti Karl, Guðmund, fæddan 1910. Er hann búsettur hér á Höfn. Snemma kynntist Einar Karl vinnunni. í hans uppvexti var lífið ekki alltaf dans á rósum. I Syðra- firði var selveiði og æðarvarp, sem sinna þurfti. Varð hann snemma liðtækur við veiðarnar og verkun selskinna, enda átti veiðimennskan og vinnan við hana hug hans allan. Fáir kunnu jafnvel og hann að meðhöndla selskinnin, enda sama hvað hann gerði, alls staðar ríkti sama trúmennskan og vandvirknin. 19. júlí kvæntist Karl Helgu Sig- jónsdóttur frá Bæ. Lifir hún mann sinn og dvelur nú á Skjólgarði, heimili aldraðra. Þau hjón hófu búskap í Syðrafirði, en árið 1934 fluttu þau til Hafnar. í þijú misseri bjuggu þau í Álaugarey, en byggðu síðan hús sitt Sjávarborg og bjuggu þar æ síðan meðan heilsa entist. Árið 1936 eignuðust þau dóttur- ina Nönnu Láru. Þá kom sólargeisli inn í líf frænda míns, voru þau feðg- in alla tíð mjög samrýnd. Þegar svo dótturbörnin, sem eru sex, efnis- og myndarfólk, bættust í fjölskyld- una ljómuðu augu hans er hann minntist á þau. Síðastliðið haust kenndi hann þess meins, sem dró hann til dauða. en lítið var hægt að gera. Honum auðnaðist þó að koma heima aftur og átti þá öruggt athvarf hjá dóttur sinni og tengdasyni. Önnuðust þau hann af mikilli nærgætni og kær- leika þar til yfir lauk. Já, hann var sannarlega trúr yfír litlu, hann Kalli frændi minn. Nú hækkar sól og senn kemur vor. Með söknuði hugsa ég til þess að sjá ekki hann Kalla frænda minn bjástra við bátinn sinn í vognum og lagfæra í kringum húsið sitt. Allt verður mannlífið snauðara þeg- ar þau hjónin leiðast ekki lengur sem lítil börn framhjá glugganum mínum á sinni daglegu göngu . í Óslandið. Ef við ættum öll glaðlyndið og hreinskilnina hans Kalla frænda míns þá væri allt mannlífið betra. Nönnu Láru og fjölskyldu hennar sendi ég og min fjölskylda innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng mun lifa með sam- ferðamönnum hans. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir, * og upphiminn fegri en augað sér mót ölium oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Sigrún Eiríks. Sigríður Þ. Eiríks- dóttir - Kveðjuorð Fædd 5. septeniber 1954 Dáin 11. marz 1987 Okkur langar til að minnast elsku- legrar vinkonu okkar, sem féll frá í blóma lífsins, eftir mikið stríð við veikindi. Sigríður Þrúður, eða Sigga eins og hún var alltaf kölluð, fæddist árið 1954 á Seyðisfirði. Hún ólst upp í föðurhúsum, svo lá leiðin til Reykjavíkur, er hún var orðin eldri. Þar kynntist hún eftirlifandi eigin- manni sfnum, Kristni Sveinbjörns- syni frá Ólafsvík, og eignuðust þau drenginn Eirík árið 1974. Þau sett- ust að í Ólafsvík, og hafa búið þar síðan. Það var árið 1981, að nokkrar kunningjakonur stofnuðu sauma- klúbb. Sumar okkar þekktust lítið, en aðrar meira, og urðu síðan góð kynni innan hópsins. Sigga var ein af okkur sex. En n(ú er skarð fyrir skildi, því hún Sigga er farin yfir móðuna miklu, en við trúum því að hennar bíði meira og æðra en okkur hinum er gefíð. Sigga var alveg einstök ung kona, hörkudugleg og samviskusöm að hverju sem hún gekk. Hún var létt í lund og þess fengu þeir sem henni kynntust að njóta og vera samvistum við hana. Sigga var myndarleg og umhyggjusöm húsmóðir og nutu þeir sem henni kynntust þeirrar hlýju og einlægni sem hún var gædd. Hún var gift sjómanni, og þess vegna oftast með soninn Eirík ein heima. Hún fór að vinna í Landsbanka Ól- afsvíkur fyrir um þremur árum og líkaði þar mjög vel. Það var svo í fyrra að það fór að halla undan færi hjá henni. Þá sýndi hún mikinn dugnað og æðruleysi yfir því sem að bar. Kristinn og Eiríkur voru henni mikil stoð svo og foreldrar hennar, systir og mágur í Ólafsvík, og er þeirra sorg mikil. Sigga kom í saumaklúbbinn núna í febrúar sl. og það sýndi hennar mikla dugnað og vilja sem hún bjó yfir. Guð einn ræður lífi mannanna, og hún laut vilja hans. Kæri Kiddi og Eiríkur. Guð styrki ykkur í sorg ykkar og vaki yfir ykk- ur. Við biðjum Guð að vaka yfir henni Siggu og við munum geyma þá fögru minningu sem við eigum um hana. Foreldra á Seyðisfirði og systkini biðjum við Guð að styrkja svo og tengdafólk og ættingja í sorg þeirra. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt“. (V. Briem) Kveðja frá saumaklúbbnum, Jóhanna G. Scheving, Gunnhildur Vigfúsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Guðrún Pétursdóttir Björg Sigurgeirsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.