Morgunblaðið - 08.04.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR '8. APRÍL 1987
$7
Persaflóastríðið:
Iranar segja að
ný sókn sé hafin
Irakar kveðast hafa stökkt Irönum á flótta
Bahraín, Reuter.
ÍRANAR kváðust í gær hafa hafið nýja sókn austur af borinni Basra
i írak. íraska útvarpið í Bagdað sagði að sókn írana hefði verið
hrundið. Hvorir tveggja kváðust hafa valdið miklu manntjóni í liði
hins i árásinni, sem Iranar nefna Karbala-8.
Útvarpið í Teheran sagði að íran- Taha Yassin Ramadan, aðstoðar-
skar sveitir hefðu fellt eða sært forsætisráðherra íraks, sagði
2.600 íraka. írakar sögðu að mörg
þúsund íranar hefðu fallið og sveit-
ir þeirra hefðu flúið eins og fætur
toguðu.
Iranska fréttastofan IRNA
greindi frá því að íranskar sveitir
hefðu beitt nýjum herbrögðum til
að ijúfa vamarlínur íraka og sótt
rúma tvo km inn fyrir þær. Iranar
væru nú um tíu km frá Basra,
næst stærstu borg íraks. Sagði að
sóknin héldi áfram og íranar hefðu
náð tugum skriðdreka og herflutn-
ingabifreiða á sitt vald eða eyðilagt.
Irakar kváðust hafa gert árásir
á olíuhöfn írana á Sirri-eyju í gær.
A mánudag sögðust þeir hafa gert
loftárásir á olíuborpalla og og dælu-
stöð norðarlega á Shatt-al-Arab
vatnasvæðinu.
nýlega að írakar myndu nú leggja
aukna áherslu á að eyðileggja olíu-
hafnir og -stöðvar írana fyrst þeir
væru staðráðnir í að halda áfram
styijöldinni, sem staðið hefur í sex
og hálft ár.
Átök hafa ekki verið hörð undan-
famar vikur á svæðinu, þar sem
íranar hmndu af stað stórsókn,
Karbala-7, í janúar. Þeirri sókn lauk
í um tíu km íjarlægð frá Basra.
í íranska útvarpinu var venjuleg
dagskrá rofin í gær og hergöngum-
arsar leiknir. Einnig var send út
upptaka þar sem trúarlegur leiðtogi
írana, Ayatollah Ruollah Khomeini,
skoraði á írana að láta ekki deigan
síga.
Bandarískar orrustu-
þotur til Honduras
CIA f lækt í stór-
fellt eiturlyfja-
misferli?
Teg’ucig-alpa, New York, Reuter.
BANDARÍKJAMENN hyggjast
senda Honduras tólf F-5E orr-
ustuþotur til að tryggja yfir-
burði rikisins í lofti vegna
aukinnar hættu, sem stjórnvöld
í Washington telja stafa af
hernaðarmætti Nicaragua.
Þetta var haft eftir banda-
rískum stjórnarerindrekum i
Honduras í gær. Bandaríska
sjónvarpsstöðin CBS sagði í
gær að bandaríska leyniþjón-
ustan CIA hefði notað eitur-
lyfjasmyglara til að koma
vopnum til skæruliða í Nic-
aragua.
Sjónvarpsstöðin hafði eftir eit-
urlyfjasmyglurum að þeir teldu
að Bandaríkjastjóm hefði hafið
viðskipti með eiturlyf til að afla
fjár fyrir skæruliða í Nicaragua.
Nokkrir heimildarmannanna
sögðu að þeir, sem skipulögðu
aðgerðina, hefðu útvegað gnótt
eiturlyfja og komið málum svo
fyrir að flugvélar, sem flutt hefðu
vopn til Mið-Ameríku, gætu lent
með eiturlyf innan borðs á banda-
rískum herflugvöllum. Ekki var
sagt hvað orðið hefði um fíkni-
efnið.
CIA neitar allri aðild. George
Lauder, talsmaður CLA, sagði að
fréttin væri „fráleit, hún er ger-
samlega út í hött“.
Bandarískir stjómarerindrekar
í Honduras sögðu að orrustu-
þoturnar ættu að tryggja að
Honduras hefði öflugasta flugher
í Mið-Ameríku. Nicaraguastjóm á
engar oirustuþotur, en þeir eiga
þyrlur og fullkomnar, þunvopnað-
ar árásarvélar, sem Sovétmenn
hafa veitt þeim.
Bandaríkjastjóm þarf á sam-
þykki þings að halda áður en
þotumar verða sendar til
Honduras.
Reuter
Bílferjunni
komiðá
réttan kjöl
Björgunarmönnum tókst í gær að
koma feijunni Herald of Free
Enterprise, á réttan kjöl. Feijunni
hvolfdi undan Zeebrugge í Belgíu
þann 6. mars síðastliðinn. Stálvír-
ar höfðu verið festir í skrokk
skipsins eins og sjá má á myndun-
um og fylgdust björgunarmenn'
spenntir með því er feijan var
smám saman rétt af. Höfðu þeir
af því nokkrar áhyggjur að skipið
myndi brotna undan vatnsþung-
anum en verkið gekk að óskum.
Björgunarmenn kváðust hafa séð
fjölmörg lík í gegnum kýraugu
þegar bakborðshlið feijunnar kom
í ljós. Lausamunir, húsgögn og
eigur farþeganna féllu fyrir borð
er skipinu var komið á réttan kjöl
og hafði net verið strengt með-
fram skipinu til að forða því að
þeim skolaði á haf út.
Enn er ekki vitað með vissu
hversu margir fórust er feijunni
hvolfdi nokkrum mínútum eftir
að hún lét úr höfn í Zeebrugge.
Talsmenn fyrirtækisins, sem rak
feijuna, sögðu eftir slysið að 543
menn hefðu verið um borð og að
409 hefðu komist lífs af. Sögðu
þeir að lík 74 manna væru líkast
til enn um borð í feijunni. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins sagði
hins vegar í síðustu viku að 140
manna væri enn saknað þar sem
mistök hefðu átt sér stað við taln-
ingu þeirra sem lifðu slysið af.
Finnland:
Utanríkisráðherra
Indónesíu:
Veizluglaðar
skrafskjóður
Jakarta, Reuter.
MOCHTAR Kusumaatmadja,
utanríkisráðherra Indónesiu,
sagði á kosningafundi á þriðju-
dag, að Indónesar töluðu of
mikið í vinnunni og þegar þeir
færu á salerni, virtust þeir sitja
þar lon og don. Þannig færi
til spiliis dýrmætur tími.
Senn fara fram kosningar í
Indónesíu. Ekki er vitað til að
aðrir ráðherrar hafi tekið á blaðri
Indónesa né klósettvenjum.
Mochtar sagði ennfremur, að
Indónesar bærust of mikið á og
lifðu um efni frarn.,, Einlægt
þurfið þið að vera að skemmta
ykkur,“ sagði ráðherrann ásak-
andi.„Þegar þið giftið ykkur
verður að halda veizlu fyrir mörg
hundruð og fimmtíu manns, þótt
þið hafið ekki efni á því. Ef þið
hélduð ekki þessar veizlur sýknt
og heilagt, hefðuð þið efni á að
kaupa ykkur hús eða bíl.“
Forsetinn lætur kanna stjórn-
armyndun stærstu flokkanna
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
MAUNO Koivisto Finnlands-
forseti hefur veitt Esko Rekola
umboð til að kanna grundvöll
fyrir stjórnarmyndun Hægri
flokksins, Jafnaðarmanna-
flokksins og Miðflokksins.
Rekola er 67 ára gamall og
óflokksbundinn. Borgaraflokk-
arnir eru hlynntir því að þrír
stærstu flokkarnir myndi stjórn
en jafnaðarmenn eru
tvístigandi.
Þótt Rekola hafi verið falið
þetta verkefni er ekki tryggt að
hann verði þar með næsti forsæt-
isráðherra Finnlands ef flokkarnir
þrír mynda stjórn. í Finnlandi
hefur óháðum mönnum oftlega
verið falið að kanna grundvöll
stjómarmyndunar. Talsmenn
flokkanna hafa verið beðnir um
að skýra Rekola frá því á fimmtu-
dag hvort þeir eru sammála um
hver eigi að verða helstu verkefni
MorgunblaÓsins.
næstu ríkisstjómar. Þegar Rekola
hefur lokið starfi sínu getur Koi-
visto skipað mann í stöðu forsæt-
isráðherra. Ef stóm flokkarnir ná
ekki samkomulagi getur forsetinn
einnig farið þess á leit við Rekola
eða einhvern annan að hann kanni
aðra möguleika á stjórnarsam-
starfí.
Rekola er fyrst og fremst ætlað
að bera saman stefnuyfirlýsingar
flokkanna og ræða við fulltrúa
þeirra um hugsanlegt samstarf.
Forsetinn fól Rekola einnig að
kanna hvort nauðsynlegt sé að
stjórnin njóti stuðnings tveggja
þingmanna af hveijum þremur.
Borgaraflokkarnir hafa fullyrt að
slíkur stuðningur sé stjórninni
nauðsynlegur ef koma á í gegn
breytingum á skattakerfinu sem
talið er að verði stærsta verkefni
næstu ríkisstjómar.
Esko Rekola er sestur í helgan
Reuter
Esko Rekola hefur verið falið að
kanna hvort þrír stærstu þing-
flokkar Finnlands geti myndað
stjórn.
stein en hann er talinn vera sér-
stakur trúnaðarmaður Maunos
Koivisto. Rekola sat í stjórn hans
á ámnum 1979 til 1982 og hann
hefur einnig haft embætti fjár-
málaráðherra með höndum í
nokkur skipti.
Sem fyrr sagði em jafnaðar-
menn tvístígandi í afstöðu sinni
til stjórnarmyndunar með borg-
araflokkunum. Kosningaósigur
jafnaðarmanna hefur vakið upp
umræður í flokknum og hafa
vinstrisinnar innan flokksins
gagnrýnt stjómarsamstarfið við
miðflokkana. Breytingar á þjóð-
félaginu hafa einnig gert það að
verkum að þær stéttir sem taldar
hafa verið dyggustu fylgismenn
jafnaðarmanna em smám saman
að hverfa. Því telja margir hyggi-
legt að flokkurinn verði í stjórnar-
andstöðu og reyni að endurheimta
fyrra fylgi.