Morgunblaðið - 08.04.1987, Side 31

Morgunblaðið - 08.04.1987, Side 31
31 smiðstöðva sem nemendur hafa aðgang að í þéttbýli. Aðbúnaður og umönn- un: Orð og efndir Heimavistir skulu minna á al- menn heimili Nú skyldi maður ætla að öllum væri ljós hver ábyrgð hvílir á þess- um stofnunum og að þeim væri búið í samræmi við hana. Lög og reglugerðir sem máiið snertajgefa býsna góð fyrirheit um það. I 25. gr. grunnskólalaganna segir t.d.: „Við gerð heimavista skaí kapp- kostað að þær minni sem mest á almenn heimili." Ennfremur segir í reglugerð _ um heimavistir nr. 428/1978: „í öllum heimavistar- skólum skal aðbúnaður vera þannig að nemendur geti notið sem best hvíldar og næðis utan skólatíma. Einnig sé góð aðstaða til tómstunda- og félagsstarfa." (5. gr.) Fjársvelti og virð- ingarleysi fyrir þörfum nemenda Því miður eru þessi markmið víðs Qarri raunveruleikanum. Við skulum byija á að sjá hvern- ig skólastjóri lítils heimavistarskóla á Norðurlandi lýsir aðstöðunni, í viðtali við tímaritið Heimili og skóla 1984: Aðstaðan er mjög misjöfn og engan veginn nægilega góð. I fyrsta lagi er allt of þröngt, sér- staklega á drengjavistinni. Þar eru fjögurra manna herbergi en við verðum yfirleitt að hafa fimm á herbergi sem er óviðun- andi. Þar er heldur ekki nein setustofa eða neitt annað sem hægt er að bjóða nemendum upp á í frístundum. (Letur- breytingar greinarhöfundar.) Þetta getur hver sem er borið saman við þær greinar laga og reglugerða sem vitnað var til hér að framan. Þetta er nú undantekning, kann nú einhver að segja. Það er því miður rangt. Þetta er algengt ástand. Um það geta margir vitnað. Því miður hefur enginn talið ómaksins vert að gera heildarúttekt á ástandi þessara mála. T.d. vantar MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987 allar upplýsingar um aðbúnað á heimavistum í annars ágæta könn- un sem Félag skólastjóra og yfir- kennara gerði á aðstöðu og búnaði í skólum 1981. Það vekur líka at- hygli að í stofnbúnaðarskrá fyrir grunnskóla sem sama félag gaf út 1985, ásamt Kennarasambandi Is- lands, er ekki minnst einu orði á heimavistir. Höfundar OECD-skýrslunnar hafa komið auga á sérstöðu heima- vistarskólanna. Þeir nefna fyrst þá sérstæðu staðreynd að margir þess- ara skóla eru hannaðir með hótel- rekstur í huga. Þeir segja að þótt byggingar margra þessara skóla séu á ytra borði aðlaðandi hafi þær oft mikla galla sem skólar. Auk þeirra augljósu óþæginda sem það hefur í för með sér að láta allt hverfa á vorin sem minnir á skóla- hald, skortir þessa skóla algjörlega þá félagsaðstöðu og þann aðbúnað sem börn þurfa. Höfundar skýrsl- unnar draga upp þá mynd af þessum skólum að þeir líði fyrir ómenntaða kennara, tíð kennara- skipti og skort á rými, búnaði og fjármagni. Höfundar segja enn- fremur að þó svo að þörf fyrir heimavistarskóla kunni að fara minnkandi þá verði að starfrækja þá skóla sem enn er þörf fyrir sóma- samlega en ekki með svo augljósum mismun frá því sem gerist í þétt- býli sem nú tíðkast. Þetta væri hörð gagnrýni um hvaða skóla sem er. En að segja það um heimavistarskóla, slík sem ábyrgð þeirra er, að starfræksla þeirra einkennist af ómenntuðu starfsfólki, tíðum kennaraskiptum, ijársvelti og algeru virðingarleysi fyrir þörfum nemenda er ekki bara gagnrýni, það er þungur áfellis- dómur. Hliðstæð umhyggja og vernd og á eigin heimilum Ekki verður skilið við heimavist- arskóla án þess að beina sjónum að þörf heimavistarnemenda fyrir umönnun starfsfólks. Um þetta eru, eins og ýmislegt annað, fallega orð- uð ákvæði í lögum og reglugerðum. í 25. gr. grunnskólalaganna er sagt að heimavistir skuli þannig úr garði gerðar „ ... að nemendur geti jafnan náð til umsjónarmanns heimavista“. Ennfremur segir í áður tilvitnaðri reglugerð mennta- málaráðuneytisins um heimavistir að umsjón nemenda skuli vera í höndum „ ... kennara, fóstra eða annarra starfsmanna með upp- eldismenntun____“ (3. gr.) Þar segir enn: „Gæslufólk skal leitast við að sýna nemendum hliðstæða umhyggju og vernd og þeir njóta á heimilum sínum." (4. gr.) Þetta skilja þeir sem starfa við heimavistir þannig að nemendum beri skýlaus réttur til umönnunar og eftirlits allan þann tíma sem þeir eru ekki í kennslustundum, jafnt nótt sem dag. Þessi tími getur því orðið allt að 18 stundum á sólar- hring. Nemendur mega vera gæslulausir 12 stundir á sólarhring Því miður er menntamálaráðu- neytið á annarri skoðun. Síðar í þessari sömu reglugerð eru ákvæði sem taka af öll tvímæli um það. Þar er reiknaður út stundafjöldi, sem gengur undir nafninu „gæslu- kvóti“, og er sá tími sem skólum er úthlutaður til að sinna nemend- um utan kennslustunda. Fjármála- ráðuneytið gefur síðan út samhljóða reglur um hámarksgreiðslur úr ríkissjóði fyrir gæslustörf að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Lítum nú nánar á hvaða mat kemur þar fram á þörf heimavistar- nemenda fyrir slíka umsjón. Gæslukvótinn er reiknaður út frá nemendafjölda og miðast lágmark hans, samkvæmt reglugerðinni, við 6—10 nemendur á heimavist. Það þýðir væntanlega að séu nemendur færri en það eiga þeir ekki rétt á neinni umönnun utan kennslu- stunda. Þetta geta menn borið saman við eigin reynslu af því að ala upp börn á grunnskólaaldri. Þessi lágmarkskvóti er 26,63 stundir á viku og er athyglisverð sú nákvæmni að reikna hann með tveimur aukastöfum. Ef við jöfnum þessum stundafjölda niður á íjóra og hálfan sólarhring, þ.e. frá mánu- dagsmorgni til föstudags, kemur í ljós að til ráðstöfunar eru tæpar sex stundir á sólarhring. Þær tólf stund- ir sem þá eru eftir af sólarhringnum verða nemendur væntanlega að eiga undir kennurum sínum hvort þeir sinna þeim í sjálfboðavinnu eða ekki. Gæslukvótinn fer síðan stig- hækkandi með nemendafjölda. Séu nemendur 11—20 eiga þeir rétt á samveru við umsjónarmann sinn 35,75 stundir á viku, eða tæpar átta stundir á sólarhring. Það þarf 95 nemendur til að skóli fái gæslukvóta sem nægir til að hafa einn mann samvistum við nem- endur 18 stundir á sólarhring frá mánudagsmorgni til kennsluloka á föstudag. Já, einn mann til að sinna 95 nemendum í einu. Það þarf meira en lítið ímyndunarafl, eða kannski heimsku, til að ætla manni að vinna uppeldisstarf við þvílíkar aðstæður. Svona tryggir sem sagt yfirstjóm menntamála á íslandi, í samráði við sveitarstjórnarmenn, rétt heima- vistarnemenda til hliðstæðrar umönnunar og þeir njóta á heimil- um sínum. Svona er farið að því að tryggja þann rétt þessara barna, sem geta verið allt niður í sjö ára gömul, að geta leitað til einhvers sem þau þekkja og geta treyst þeg- ar eitthvað bjátar á, líka á nóttunni. Og það sem dapurlegast er af öllu: Embættismenn ráðuneytisins, jafnvel þeir sem þykjast hafa reynslu af að starfa við heimavist- ir, verja þetta ástand og ganga þannig gegn þeim hagsmunum nemenda sem maður hefði haldið að þeir væru settir til að veija. Hér er að vísu rétt að slá þann varnagla að ég er hér að tala um þann rétt sem nemendum er tryggð- ur en ekki endilega að lýsa raun- verulegri umönnun nemenda. Flestir kennarar meta velferð nem- endanna meira en kjarasamningana og vinnuverndarlögin og gera hvað þeir geta í þessum efnum. En eftir stendur þetta: Heimavistarskólum er haldið í skipulögðu fjársvelti og umsjón nemenda er skipulögð sem sjálfboðavinna sem kennarar eiga að bæta ofan á vinnuskyldu sína við kennslu. Við þessar aðstæður er óhjákvæmilegt að aðbúnaði nem- enda sé stórlega áfátt, bæði hvað varðar húsnæði, félagsaðstöðu og umönnun. Það er beinlínis fáránlegt að ætla heimavistarskólum að kom- ast af með sama starfslið og almennum skólum. Það hlýtur að vera krafa allra sem hlut eiga að máli, nemenda, foreldra og kenn- ara, að þessum skólum verði gefinn kostur á fleira starfsfólki en öðrum. Annaðhvort sérstökum uppeldis- menntuðum umsjónarmönnum eða þá kennurum sem uppfylla vinnu- skyldu sína að hluta með heimavist- argæslu. Núverandi ástand er smánarblettur á skólakerfinu sem kennarar og foreldrar þessara barna verða að sameinast um að hreinsa meðan menntamálaráðu- neytið lyftir ekki fingri til þess og beitir sér jafnvel gegn sanngjörnum kröfum um úrbætur. Höfundur er kennari á Eiðum. Hand vaqnar 1« Eigum ávallt fyrirliggjandi jtNJ hinavelþekktuBV-hand- lyttivagna meö 2500 og 1500 kílóa lyftigetu. UMBOÐS OG HEÍLDVERSLUN BÍLDSHÖFDA 16 SÍML6724 44- IlpfflF / y yt n iYwQj U YA l\/V^J c !> cL M C3 Elna er saumavél sem kemur þér á óvart. Sérstaklega meðfærileg og prýdd öllum þeim kostum, sem nauðsyn- legir þykja, svo sem tvöfaldan lokusaum (overlock), sjálvirka gerð hnappagata og margan annan fjölbreyti- legan saum. Elna, er heimsþekkt fyrir frábærar saumavélar. Þú ættir að líta við og kynna þér kosti Elna. X -v \\ vCRtOVl Heimilistækí hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S: 27500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.