Morgunblaðið - 08.04.1987, Page 35
rsei .iíflqÁ .8 hiioaciu'mtvgim .GiGAjanuoflOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
E£
35
Skógrækt á Fljótsdalshéraði:
i
Hugað að möguleika á
útflutningi á iðnskógi
Eirilsstiií'iiim. ^ ^ ^ i J
^ Egilsstöðum.
A FUNDI sem skógræktarfélag
Austurlands og Skógræktarfélag
Islands gengust fyrir á Egilsstöð-
um fyrir skömmu gerði Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri grein
fyrir möguleikum á útflutningi
iðnskógar til frekari vinnslu á
Norðurlöndunum. Gott verð fæst
fyrir þessa afurð þar og eru tijá-
kvoðuverksmiðjur tilbúnar til að
borga um 1500 kr. á rúmmetra.
Framsögumenn auk Sigurðar voru
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri, Jón
Loftsson skógarvörður á Hallorms-
stað og Snorri Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
íslands flutti ávarp. Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri fjallaði í erindi sínu
um markmið og möguleika í skóg-
rækt á íslandi. Kvað hann tilfinnan-
lega skorta pólitíska stefnumörkun í
skógræktarmálum íslendinga. Einnig
væri brýnt að gera langtímaáætlun
um fjármögnun stofnkostnaðar en
brýnast væri að hefjast handa um
gerð skógræktarkorta fýrir landið í
heild og auka rannsóknir.
í máli Sigurðar um möguleika
skógræktar kom fram að arðsem-
iskröfur um vöxt væru um 3
rúmmetrar á hektara og að um 20
erlendar og 3 innlendar tijátegundir
uppfylla þessi skilyrði. Þar af væru
5 tegundir hentugar til viðarfram-
leiðslu.
Sigurður greindi einnig frá nýjum
hugmyndum sem hefðu vaknað eftir
heimsókn sænska skógræktarpró-
fessorsins Mortens Bendz á skóg-
ræktarþingi fyrir skömmu. Benti
hann á möguleikann á útflutningi á
iðnskógi til tijákvoðuframleiðslu.
Verksmiðjur á Norðurlöndunum
greiða um 1500 kr. á rúmmetra fyrir
slíkan iðnskóg kominn á hafnarbakka
á AustQörðum. Er hér um nýjar hug-
myndir að ræða því hingað til hafa
augu manna beinst að rekstri slíkrar
verksmiðju hér á landi en arðsemi
ekki verið næg.
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
fjallaði um hlut skógræktar í búhátt-
arbreytingunni og hvemig skógrækt
og búfjárrækt færu saman. Kvað
hann nauðsyn á nýrri landnýtingará-
ætlun og lagabreytingum svo skóg-
rækt geti orðið alvömbúgrein. Einnig
gerði Jónas grein fyrir nýlegum arð-
semisútreikningum sem sýna að
--------------'Z..,
** *.«Ví
Morgunblaðið/Hákon Aðalsteinsson
Fyrsta tréð gróðursett í Fljóts-
dalsáætlun Skógræktarinnar
fyrir um 20 árum. Á myndinni
eru f.v. Hallgrímur Þórarinsson,
Sigurður Blöndal, þá skógar-
vörður á Hallormsstað, Rögn-
valdur Erlingsson og Halldór
Sigurðsson.
skógrækt á ákveðnum svæðum er
bæði þjóðhagslega hagkvæm og hag-
kvæm fyrir bóndann.
Jón Loftsson skógarvörður á Hall-
ormsstað flutti erindi um Héraðs-
skóg. í máli Jóns kom fram að
möguleikar á ræktun nytjaskógar á
Upphéraði allt út að Rangá em mikl-
ir. Á 132 býlum á þessu svæði em
um 30 þús. hektarar vel fallnir til
Einar Egilsson við sjókerið í anddyri Háskólabíós. Morgunbiaðið/Þorkeii
Áhugahópur um byggingu náttúrufræðihúss:
Sjóker til sýnis í and-
dyri Háskólabíós
ÁHUGAHÓPUR um byggingu ýmsar tegundir kuðunga. Þá er á
náttúrufrseðihúss, sem þessa dag-
ana er að byrja vorstarfsemi sina,
hefur sett upp sýningu í anddyri
Háskólabíós. Þar hefur verið
komið upp sjókeri með sýnis-
hornum af Kfverum í malar- og
sandfjöru. Vorstarfsemi hópsins
er fólgin í röð kynninga á lífinu
í sjónum við ísland og er sýningin
í Háskólabíói fyrsta kynningarat-
riði hópsins.
í sjókerinu em lifandi fjörulífverur
og má úr plönturíkinu nefna þör-
unga, s.s. kóralþang, belgjaþang og
fjömgrös, og úr dýraríkinu krækl-
inga, krossfiska, bertálkna, möttul-
dýr og tvær tegundir sæbjúga. Einnig
hrúðurkarla, þanglýs, marflær og
sýningunni gróðurkort af íslenska
hafsvæðinu og einfölduð mynd af
fæðutengslunum í hafinu við fsland.
Einar Egilsson, talsmaður Áhuga-
hóps um byggingu náttúmfræðihúss,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
áhugahópurinn stæði nú á tímamót-
um. Eftir meira en tveggja ára starf
við að ýta við stjómvöldum um aukna
náttúmfræðslu og byggingu náttúm-
fræðihúss væri hópurinn ekki
ánægður með árangurinn og því yrði
nú breytt um aðferðir. Einar sagði
að í undirbúningi væm kynningar á
ýmsum þáttum íslenskrar náttúm.
Kynningin í anddyri Háskólabíós
er opin daglega frá kl. 18.30 til 21.00
virka daga og kl. 16.30 til 21.00 um
helgar og er aðgangur ókeypis.
Égkýs
SjálfstæðiS'
flokkinn
Birna
Loftsdóttir,
verslunarmaður, Hafnarfirði:
„Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
vegna þess að ég treysti
honum best fyrir hag lands
og þjóðar.“
X-D
1REYKJAMES
Sigurður Blöndal fylgist með bændum í Fljótsdal gróðursetja nyfja-
skóg.
skógræktar. Mætti huga sér að nýta
helming þessa lands undir skógrækt
á næstu 15 ámm. Til þess að planta
í 100 ha á ári þarf um 4 milljónir
plantna sem er tíföld núverandi fram-
leiðsla. Kostnaður við þetta er um
100 þús. á ha eða um 100 milljónir
á ári. Þetta er einungis hluti árlegra
útflutningsuppbóta með hefðbundn-
um landbúnaðarvörum.
Taldi Jón að í dag væm ýmsir
þeir atburðir að gerast í landbúnaðar-
málum á íslandi að vert væri að
gaumgæfa þennan valkost.
í lok fundarins var eftirfarandi
ályktun samþykkt: Pundur um hlut-
verk skógræktar á Austurlandi
haldinn í Valaskjálf, Egilsstöðum,
28.3. 1987 samþykkir að beina
ákveðnum tillögum til stjómvalda um
að útvega sem allra fyrst Qármagn
til stóraukinnar skógræktar í Ijórð-
ungnum. Það er sannað að nytjaskóg-
rækt á völdum svæðum á Héraði er
arðgæf. Á það bæði við um viðarvöxt
og ávöxtun þess fjármagns sem til
hennar er lögð.
Skógrækt verður ekki stunduð í
atvinnuskyni nema fjármagn verði
tryggt og er skorað á stjómvöld að
leggja nú lið þeim bændum sem í
alvöru ætla að stunda skógrækt sem
atvinnugrein.
Björn
ENGINN ER
ÁNÆGÐUR..
EF
HANN SPARAR
UM OF í
GISTIAÐSTÖÐU
ÞAÐ
VITUM VIÐ..
Hnnm^TmnTni
... þess vegna býður Atlantik
einungis uppá fyrsta flokks hótel
sem valda engum vonbrigðum.
Taktu ekki áhættuna á því að
koma óánægður heim.
Veldu ferð með Atlantik og gistu
á „Klassa“ hóteli.
Á heildina litið þá borgar það sig.
BROTTFARARDAGAR:
April Mai Juni Julí
15 23 1 4
29 13 13
22 25
Agúsl September Október
3 5 5
15 14
24 26
ÁRtTTRHBÐ
28388 og 2P580
ÖRKIN.'SIA