Morgunblaðið - 08.04.1987, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
65
Fréttabréf frá Þingeyri:
Blómlegt félagslíf,
en stopul vinna í vetur
Þingeyri.
ÆTLA MÆTTI að Þingeyringar
hefðu allir geispað golunni í vet-
ur — svo hljótt hefur verið um
þá — en þeir hafa ekki einu sinni
týnt tölunni heldur það gagn-
stæða. Samkvæmt opinberum
skýrslum hefur fjölgað í hreppn-
um um 9 manns, 1. desember
1985 vori 495 manns en eru nú
504.
Heilsufar má teljast gott í vetur
og sömu sögu er að segja af veður-
fari síðan um áramót — eða eftir
að lauk eilífum umhleypingum í
nóvember og desember. Varla var
von til þess að sumarið væri komið
í alvöru á góu enda hafa síðustu
vikur sýnt að enn er vetur. „Kontor-
logn“ inn á Dýrafírði er þó enginn
mælikvarði á vetrarveður, það vita
allir er til þekkja.
Til áramóta var sjósókn með ein-
dæmum erfið að dómi sjómanna en
aflabrögð nokkuð_ góð þá sjaldan
veður datt niður. í ládeyðunni eftir
áramót kvað við annan tón, nú afl-
aðist sáralítið þar til 14. mars, að
Sléttanesið kom inn með 150 tonn.
Hinn togarinn, Framnesið, hefur
verið í „klössun" í Þýskalandi
marga mánuði, en er nú loks kom-
inn í heimahöfn. Atvinna hefur þvl
verið með minna móti og óvenju
margir eru á atvinnuleysisbótum.
En þrátt fyrir verkfall í janúar og
minni atvinnu í vetur hefur fé-
lagslífíð verið líkt og venjulega,
hjónaball í nóvember, fjölsótt mjög,
jóla- og áramótadansleikur, þorra-
blót bæði í Þingeyrar- og Mýra-
hreppi og kirkjukórinn æft
vikulega. Lionsmenn efndu að venju
til mannfagnaðar fyrir eldri borg-
ara, beggja vegna fjarðarins. Allt
bendir þó til þess að ekki stefni í
syngjandi páska á þessum vetri,
enda þótt tónlistarskóli hafí tekið
til starfa í haust. Margir njóta góðs
af þeirri starfsemi og þá sérstaklega
grunnskólanemendur. Kennt er á
píanó og kennari er Guðbjörg Leifs-
dóttir frá Hnífsdal en vart er hægt
að vænta þess að skólinn skili snill-
ingum eftir eins vetrar nám.
Brids-félagið Gosi spilar eitt kvöld
í viku og í verkfallinu kom mikill
fjörkippur í Gosa. Eitthvað hefur
verið um almenna dansleiki, en
kvikmyndasýningar hafa lagst af
og við það batnaði fjárhagur félags-
heimilisins enda var myndbanda-
væðingin búin að kippa fótunum
undan rekstrinum. Nokkrir dans-
glaðir Þingeyringar hittast á
sunnudagskvöldum í félagsheimil-
inu og taka sporið.
Kvenfélagið Von varð 80 ára 17.
febrúar og var þess minnst með
veglegri veislu 21. febrúar. Ekki
þurfti að kvarta undan veisluföng-
Stjóm kvenfélagsins Vonar. Frá vinstri: Alda Sigurðardóttir ritari,
Þorbjörg Gunnarsdóttir formaður, Gunnhildur Elíasdóttir og Margr-
ét Guðjónsdóttir. Jóhanna Gunnarsdóttir var fjarverandi.
Hluti veislugesta situr að snæðingi og nokkrir fá sér á diskinn.
Yfirskriftin er mynduð með rósum sem gerðar vom úr servíettum.
Garðyrkjuskóli ríkisins:
„Opinn dagnr“
GARÐYRKJU SKOLI ríkisins að
Reykjum Ölfusi er opinn almenn-
ingi til sýnis sunnudaginn 12.
apríl (pálmasunnudag). Sýning
þessi er unnin af nemendum og
er liður í kynningu á starfsemi
skólans.
verður fræsala, vorlaukasala og
kynning á gróðurskólaplöntum.
Nemendur og fulltrúar fyrirtækja
verða á staðnum og leiðbeina gest-
um og gangandi. A svæðinu verður
dreift ókeypis bæklingi, sem nem-
endur hafa unnið, um eitt og annað
sem viðkemur garðyrkju og garð-
rækt.
Sýningin er opin frá kl. 10—18
og eru allir boðnir velkomnir!
(Fréttatilkynning)
Nýr skemmtikraftur, frú Jóhanna Jónsdóttir, þenur nikkuna.
um, öðru nær. Sjö röskar konur
undir forystu Borgnýjar Gunnars-
dóttur kennara báru hitann og
þungann af að metta gesti og
skemmta þeim og tókst það með
ágætum. Félaginu bárust góðar
gjafír þ.á.m. kr. 25.000 frá hrepps-
nefnd Þingeyrarhrepps, og frá
Kvenfélagi Mýrarhrepps þrír for-
kunnarfagrir kertastjakar og
fylgdu gjöfunum kveðjur og góðar
óskir. Skeyti komu víðar að. Kven-
félagskonum Mýrahrepps ásamt
mökum var boðið til fagnaðarins
og einnig félagskonum búsettum
sunnanlands. Tvær mættu til leiks
ásamt eiginmönnum, Þingeyrar-
konum til óblandinnar ánægju. Þó
nokkrar brottfluttar félagskonur
halda tryggð við félagið á ýmsan
máta, ijölmenna þegar Vonarkonur
bregða undir sig betri fætinum og
ferðast vítt og breitt um landið, en
oft hafa þær verið veitendur og
taka þá félögum sínum að vestan
með kostum og kynjum.
Kvenfélagið Von er bráðlifandi,
félagar eru milli 50 og 60 og mik-
ill meirihluti þeirra er á aldrinum
frá tvítugs til fertugs. Það starfar
í takt við tímann, aflar fjár og eyð-
ir því til hinna ólíkustu mála, en
er samt trútt upprunalegum til-
gangi — að vinna að menningar-
og mannúðarmálum. Ákveðið var
að minnast þessara tímamóta með
gjöfum að venju. Félagsheimilið
fékk „andlitslyftingu" með end-
umýjun gluggatjalda og 15 kristal-
skertastjökum sem prýddu borð
gestanna ásamt blómum í áður-
nefndu hófí.
Heilsugæslustöðin á bráðlega að
fá nýtt blóðmælingartæki að ósk
þeirra er þar ráða húsum. Á aðal-
fundi var samþykkt að veita fé til
tækjakaupa á fjórðungssjúkrahús-
unum á ísafírði og Patreksfirði,
einnig að kaupa ljósaútbúnað fyrir
björgunarsveit Slysavamafélagsins
Vamar. Yngri kynslóðin er nú tekin
við stjóm félagsins en hana skipa:
Þorbjörg Gunnarsdóttir formaður,
Alda Sigurðardóttir ritari, Gunn-
hildur Elíasdóttir gjaldkeri, Margrét
Guðjónsdóttir og Jóhanna Gunnars-
dóttir.
Ein kona var gerð að heiðurs-
félaga, Erla Sveinsdóttir fyrrver-
andi formaður til margra ára og
síðar gjaldkeri. Afhenti formaður
henni heiðursskjal ásamt blóm-
vendi. Félagskonur önnuðust
skemmtiatriði en margir tóku til
máls, bæði í bundnu og óbundnu ~
máli, einnig var mikið sungið. Þing-
eyringar vom veisluglaðir og
virðast það enn og verða sér oftast
úti um tilefni til að skvetta úr klauf-
unum — og eitthvað er í uppsiglingu
núna á vegum félagsheimilisins, því
æft er af kappi leikrit, söngur ofl.
Sumir nefna þessa áráttu Þingeyr-
inga skemmtanasýki. Sínum augum
lítur hver silfrið.
Hulda
ESAB
RAFSUÐU-
TÆKI,VÍR
0G FYLGI-
HLUTIR
FORYSTA ESAB ER
TRYGGING FYRIR
GÆÐUM OG ÞJÓNUSTU
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
ESAB
í skólanum verður meðal annars
boðið upp á kaffíveitingar auk þess
sem selt verður ferskt íslenskl
grænmeti, pottaplöntur og útsæðis-
kartöflur. Einnig verða fulltrúai
fyrirtækja með sölu og kynningu i
ýmsu sem viðkemur garðyrkju, m.a
HRINGDU
og fáðu áskriftargjöldin
skuldfærð á greiðslukorta-
reikning þinn mánaðarlega.
SÍMINN ER
691140
691141
Jttftrigiitttlrlgtöilfr
Rennur fram meö einu handtaki og veröur 140 cm. breitt rúm.
SUÐURLANDSBRALTT 22
S:36011
OPIÐ LAU6ARDA6 11. 04.
KL. 10:00—16:00
J J; " í'. f 1S£ I Ifiai S Í^ ” > ii’ t ii