Morgunblaðið - 09.05.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
17
rannsóknastofu á jarðhæð „Húss-
ins sem þjóðin gaf“ í Þjóðarátak-
inu 1982 en það stendur við
Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Nú er
um 200 fermetra húsnæði fullfrá-
gengið en í desember sl. barst
félaginu höfðingleg gjöf frá ís-
lenskum aðalverktökum, en það
var allur nauðsynlegur tækjabún-
aður fyrir rannsóknastofuna að
andvirði hálfrar sjöttu milljónar
króna. Forstöðumaður Rann-
sóknastofu í sameinda- og
frumulíffræði Krabbameins-
félagsins er dr. Helga M.
Ögmundsdóttir læknir. Ætlunin
er að bæði innlendir og erlendir
vísindamenn geti haft aðstöðu á
rannsóknastofunni fyrir ýmsar
rannsóknir í baráttunni við
krabbameinið og jafnframt er það
von félagsins að með þessu megi
skapa nýja vídd í starfsemi fé-
lagsins. Hluti söfnunarfjárins var
notaður til að stofna Rannsókna-
sjóð Krabbameinsfélagsins. í
júní 1987 verður auglýst eftir
umsóknum um styrki til krabba-
meinsrannsókna í fyrsta sinn. Er
það von félagsins að styrkveiting-
ar í þessum tilgangi geti orðið
árviss hefð.
Krabbameinsfélagið hefur
beitt sér fyrir kynningu á gildi
röntgenmyndatöku af bijóstum
til þess að unnt sé að greina þetta
langalgengasta krabbamein
íslenskra kvenna á byijunarstigi.
Mikill áhugi ríkir hjá konum fyr-
ir að komið verði á fót skipulegri
leit að brjóstakrabbameini með
röntgen-greiningu. Samtök
kvenna og einstaklingar víðsveg-
ar um landið hafa gefíð fé til
kaupa á nauðsynlegum tækja-
búnaði svo að flýta megi fyrir
að þessi þjónusta geti hafíst. Þó
svo að veruleg fjárupphæð hafí
nú þegar safnast er ljóst að félag-
ið mun leggja rúmar fímm millj-
ónir króna til viðbótar til að það
hafí yfír að ráða þeim útbúnaði
sem til þarf svo að konum búsett-
um úti á landi verði tryggð
sambærileg þjónusta og veitt
verður á höfuðborgarsvæðinu.
Þjóðarátakið mun því tryggja að
skipuleg leit að btjóstakrabba-
meini með röntgen-greiningu
hefjist nú í haust. Viðbótar tækja-
búnaður hefur verið pantaður.
Gerð hefur verið framkvæmdaá-
ætlun sem miðar að því að allar
konur á skoðunaraldri eigi kost
á þessari rannsókn á næstu
tveimur árum. Það fé sem safn-
aðist í Þjóðarátaki 1986 hefur
þannig valdið kaflaskilum í leitar-
starfí Krabbameinsfélagsins.
Sumar myndanna sem prýða
þessa frétt af Þjóðarátaki 1986
eru unnar af nemum úr auglýs-
ingadeild Myndlista- og handí-
ðaskóla íslands undir handleiðslu
kennara síns, Sigurðar Amar
Brynjólfssonar. Krabbameins-
félagið fékk þetta unga og
hæfileikaríka fólk til samstarfs
við Fræðsluviku 1986 sem haldin
var á Kjarvalsstöðum. Hluti sýn-
ingarinnar hefur síðan verið
sendur víða um land og er enn
góðfúslega lánaður til þeirra sem
kunna að hafa áhuga.
Að lokum vil ég fyrir hönd
Krabbameinsfélagsins þakka
þjóðinni fyrir þann geysilega
stuðning sem hún hefur veitt fé-
laginu fyrr og síðar. Það er von
mín að þetta greinarkom gefi
nokkra hugmynd um það sem
þegar hefur verið framkvæmt
fyrir stuðning þjóðarinnar frá
Þjóðarátaki 1986.
Reykjavík í maí 1987.
Höfundur er dr. med. og er for-
stjóri Krabbameinsfélagsins.
Við klófestum nokkur eintök af
þessum glæsilega draumabíl:
ALFA 33 GIARDINETTA 4x4
árg.'87 í staðlaðri útfærslu á
undraverði:
AÐEINS KR.518.300.-
INNIFALIÐ í VERÐI: Rafdrifnar
rúður og læsingar, litað gler, fjar-
stilltir útispeglar, þokuljós
framan og aftan,
þurrkur og sprautur á afturrúðu,
þrýstisprautur á framljósum,
digital klukka, veltistýri o.m.fl.
6 ára ryðvarnarábyrgð.
Sýning í dag
kl. 1-5.
u
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
^■FJORHJOLADRIFINN
SKUTRÍLL FRÁ ALFA R0ME0
A UNDRAVERÐI
Btóm a .
skal gleója með fallegum blómum.
Eigum mjög go« ÚWl af faliegum ogPbreytíegum
Blómum
interflora VÍðaVCrOld
blómvandar. ---------
i^1óma^siáiðóvenju<a»egtbl6mahaf
Fagleg þekking, - fagleg þiónusU
blíófiíiöUCi
Komið