Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 18
18
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
[ dag kl. 12 opnum við nýjan fjölskyldustað að
fáið þið
Fyrstu tvær klukkustundimar
í dag og næstu viku bjóðum við
Tomjnraborgara, fcrciMtslccif* oq
kokteiisósv á aðeins 169
iuvnw i
TOMMA
HAMBORGARAR
HÓLMASEU 4
BEST1 BUINN í BÆNUM!
Hvammstangi:
Nýrbátur
á staðinn
Hvammstanga.
NÝR bátur bættist við skipastól
Havmmstangabúa á sumardag-
inn fyrsta. Það var frystiskipið
Guðmundur Einarsson, keyptur
frá rækjuverksmiðjunni í
Hnifsdal. Þetta er 186 tonna yfir-
byggður bátur, sem var mikið
endurbyggður á þessu ári í Bret-
landi og hentar mjög vel til
djúprækjuveiða. Ætlunin er að
hann hefji þær veiðar hið fyrsta.
Skipstjóri á Guðmundi Einars-
syni verður Sveinn Gunnarsson.
Skipið er í eigu rækjuverksmiðjunn-
ar Meleyrar hf, en hún seldi aftur
vélbátinn Glað, sem er um 50 tonna
eikarbátur. Sá bátur hefur verið í
eigu fyrirtækisins síðan árið 1976
og var fyrsti báturinn sem, verk-
smiðjan eignaðist og kom hann frá
Ólafi Bjömssyni í Keflavík. Sá bát-
ur reyndist mjög vel. Menn binda
miklar vonir við að hið nýja skip
renni traustum stoðum undir at-
vinnulíf staðarins.
Karl
Skotveiði-
félag verð-
ursamband
AÐALFUNDUR Skotveiðifélags
íslands var haldinn 4. apríl sl.
Tímamót eru nú í sögu félagsins.
Verulega breytt lög voru sam-
þykkt á fundinum.
Skotveiðifélag íslands er nú sam-
band skotveiðifélaga í landinu.
Félag, sem telur minnst 15 félags-
menn og játast undir lög og siða-
reglur þess, getur orðið aðildarfé-
lag. Þingsetu á næsta aðalfundi
hafa aðeins kjömir fulltrúar aðild-
arfélaganna, einn fulltrúi fyrir 25
fullgilda félagsmenn, fámennustu
félögin eiga þó alltaf einn fulltrúa.
Aukafélagar geta orðið þeir ein-
staklingar, sem vegna búsetu
sinnar eiga ekki kost á að starfa
innan skotveiðifélags. Velunnarar
félagsins utan svæða skotveiðifé-
laga, núverandi félagar sem aðrir,
geta þrátt fyrir þessar breytingar
stutt markmiðin og notið þess sem
félagsskírteini bíður upp á.
Stjóm skotveiðifélags íslands er
nú þannig skipuð: Formaður: Hall-
grímur Marinósson, verslunarstjóri,
Reykjavík. Varaformaður: Sig-
mundur Ófeigsson, verkfræðingur,
Akureyri. Ritari: Ólafur Jónsson,
lögfræðingur, Seltjamamesi. Gjald-
keri: Jón Armann Héðinsson, fýrrv.
alþingismaður, Kópavogi. Með-
stjómendur: Áslaug Olafsdóttir,
kennari, Kirkjubæjarklaustri, Þórð-
ur Þórðarson, lögreglufúlltrúi,
Reykjavík, Þorsteinn Líndal, hér-
aðsdýralæknir, Skógum.
(Frcttatilkynning.)
„Eftirlýst
augnablik“
- Nýtt ljódakver
ÚT ER komið ljóðakverið „Eftir-
lýst augnablik" eftir Agúst
Sverrisson. Er þetta fyrsta bók
höfundar en áður hefur birst
eftir hann smásagan „Saknað“ í
tímariti Máls og menningar.
„Eftirlýst augnablik" er 44 síður
að lengd og innihelSur 20 ljóð sem
flest eru prósaljóð.
Jón Óskar Sólnes hefur hannað
kápu bókarinnar og jafnframt
myndskreytt hana. Prentun annað-
ist Stensill hf.