Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
19
Reykjayíkur-
ganga Utivistar
Sunnudaginn 10. maí efnir
ferðafélagið Útivist til Reykjavík-
urgöngu sinnar þriðja árið í röð.
Gönguferðin er hugsuð sem
hvatning til almennings um að
stunda gönguferðir og útivist og
til að kynna náttúrulega göngu-
leið í gegnum höfuðborgina sem
margir hafa eflaust ekki gert sér
grein fyrir að væri til.
Gangan hefst kl. 13 á Grófar-
torgi, sem er bílastæðið á milli
Vesturgötu 2 og Vesturgötu 4,
en skrifstofa Útivistar er í Gróf-
inni 1. Þaðan verður gengið út í
Aðalstræti, elstu götu landsins.
Grófin sjálf dregur nafn sitt af
uppsátri eða útróðrarstað sem var
á þessum slóðum, ef til vill frá
upphafi byggðar. Bærinn Vík hef-
ur líklega staðið syðst í Aðal-
stræti. Þá liggur leiðin meðfram
Tjöminni, um Hljómskálagarðinn
að BSÍ. Við Tjömina verður hugað
að fuglalífi, en um 40—50 tegund-
ir fugla sjást þar árlega.
Við hefðbundinn brottfararstað
Útivistar við bensínsölu BSÍ geta
nýir þátttakendur slegist í hópinn
kl. 13.30 pg liggur leiðin upp í
Öskjuhlíð. Öskjuhlíðin er grágrýt-
ishæð austur af Vatnsmýrinni.
Þar má sjá lábarið gijót, fjöru-
mörk frá ísaldarlokum í 43 m hæð
yfir sjó, en Öskjuhlíðin er þó sann-
arlega meira en urð og gijót. Því
áfram er haldið um fallega skóg-
argötu þar sem gróðursett vom
innlend og erlend tré fyrir um 30
áram. Skógurinn hefur skapað
þama ákjósanleg skilyrði til úti-
vistar. í Háuklettum í Öskjuhlíð
er hægt að skoða landamerkja-
stein jarðarinnar Skildinganess
með ártalinu 1839 og á þeim slóð-
um á einnig að vera hið fræga
Beneventum. Nafnið Beneventum
er komið frá skólapiltum Hóla-
vallaskóla er héldu þar fundi. Af
skógargötunni er komið niður að
Heita læknum í Nauthólsvík.
Nauthólsvík var áður vinsæll
sjóbaðsstaður, en nú baða menn
sig í heita læknum margfræga,
en hann er yfirfallsvatn frá hita-
veitugeymunum í Öskjuhlíð. Þar
er hægt að koma í gönguna kl. 14.
Ekki gefst tími til baðferðar i
Nauthólsvík og er gengið áfram
með Fossvoginum yfir í Skóg-
ræktarstöðina í Fossvogi. Við
Fossvog era 4—5 m háir hamrar
er hafa að geyma sjávarsetlög,
líklega frá síðasta hlýskeiði ísald-
ar fyrir um 100 þúsundum ára. í
Skógræktarstöðinni verður aðal-
áning í göngunnni og þar getur
fólk tekið upp nesti og slegið verð-
ur á létta strengi með góðum
Útivistarsöngvum. Þeir sem era
seinir fyrir geta komið í gönguna
þarna kl. 15, en frá Skógræktar-
stöðinni er gengið eftir góðum
göngustíg inn Fossvogsdalinn og
síðan um undirgang hjá Fáks-
heimilinu yfir í Elliðaárdal og
gengið yfir Elliðaámar að gömlu
Elliðaárstöðinni. Þaðan aka rútur
Vestfjarðaleiðar fólki til baka.
Áætlaður heildartími göngunn-
ar með hvfldum er þrjár og hálf
klukkustund. Sérfróðir menn
koma inn í gönguna á nokkram
stöðum og fræða t.d. um jarð-
fræði, fugla, skógrækt o.fl. Með
í för verða einnig fararstjórar
Útivistar. Þátttökugjald er ekkert.
(Frá ferdafélaginu Útívist.)
Ungir norrænir einleikarar:
Fulltrúi Noregs leik-
ur í Norræna húsinu
ÞRIÐJU tónleikarnir í tónleika-
röð Norræna hússins, Ungir
norrænir einleikarar, verða
sunnudaginn 10. maí kl. 16.00.
Þá kemur fram fulltrúi Noregs,
Hávard Gimse, og leikur á píanó
verk eftir Scarlatti, Debussy,
Hoibergsvitu eftir Grieg og són-
ötu í h-moll eftir Liszt.
Hávard Gimse er 21 árs gamall
en hefur þegar unnið sér sess með-
al efnilegustu píanópleikara
Noregs. Hann hóf píanónám sjö ára
gamall og lýkur námi frá Tónlistar-
háskólanum í Osló nú í vor.
Hárvard Gimse hefur leikið með
stærstu hljómsveitum Noregs allt
frá 1981 og komið fram f sjónvarpi
og útvarpi. Fyrstu einleikstónleik-
ana hélt hann árið 1984. Hann
hefúr tekið þátt í píanókeppnum
og unnið til verðlauna, t.d. tónlistar-
verðlaun sem kennd era við Ástríði
prinsessu og hátíðarverðlaun Ro-
berts Levin.
í febrúar sl. vann hann fyrstu
verðlaun í keppni, sem haldin var
í Frankfurt, en í henni tóku þátt
Hávard Gimse píanóleikari.
33 píanóleikarar á aldrinum 18—21
árs ftá 17 Evrópulöndum.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Utboð norðlenskra minkabænda á byggingarefni:
Spamaður 200-250 þúsund
kr. á hvern minkaskála
LOÐDÝRABÆNDUR á Norður-
landi hafa ákveðið að taka tilboði
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga og kaupfélaganna á Sauðár-
króki og Blönduósi í efni í 33
minkaskála sem þeir ætlað að
byggja í sumar. Bændumir buðu
efnið út og fengu nokkur tilboð,
sum þeirra mjög hagstæð, að
sögn Gisla Pálssonar á Hofi í
Vatnsdal. Bændurnir spara
200—250 þúsund krónur við
byggingu hvers minkaskála.
Gísli sagði að tilboð SÍS og kaup-
félaganna hefði verið lægst, og
hefði verið ákveðið að taka því eft-
ir að lægstu tilboðin vora athuguð.
Minkaskálamir era flestir fyrir 300
læður, og meðalstærð þeirra 60,95
x 12,30 metrar. Tilboðin miðast við
allt efni fyrir ofan grann, eins og
Gísli orðar það. Kostnaðurinn verð-
ur nálægt 600 þúsund á hús, sem
er 25—30% lægra en þetta efni
kostar á almennum markaði, að
sögn Gísla. Það þýðir að bændumir
spara 200—250 þúsund krónur við
byggingu hvers minkahúss.
CITROÉN AXEL
ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR, Á AÐEINS KR. 259.500,-
Lágmúla 5, sími 681555
Umboöiö á Akureyri:
Gunnar Jóhannsson, sími 96-25684.