Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
Tískudrotln-
ingar fyrr
ognú
Mynt
Ragnar Borg
Það má vel vera að mörgum
þyki peningur þessi ljótur og illa
sleginn. Samt er hann skrautsmíð
síns tíma. Sýnir Elísabetu fyrstu
Englandsdrottningu, árin 1558—
1603, í sínu fínasta pússi.
Þær tengdadætur Elísabetar
annarrar drottningar Bretaveldis,
Díana og Fergie eru tískudrottning-
ar á sama hátt og Elísabet fyrsta
mótaði tísku síns tíma. Peningurinn
er verulega stækkaður og sýnir því
smáatriði í klæðnaði drottningar.
Sérfræðingar í klæðaburði fyrri
tíma líta á peninginn, sem væri
hann tískumynd í nýjasta hefti
Vogue í dag. Svo mörg smáatriði
skráir þessi gullpeningur.
Myntsöfnun er í rauninni ekkert
annað en mannkynssaga. Saga
heimsvelda, einstakra atburða inn-
an þeirra, saga tímabila í mann-
kynssögunni, svo sem Sasanska-
heimsveldisins, Baktríu,
Alexanders mikla, Rómaveldis,
Karlamagnúsar, Hansaverslunar á
íslandi, brauðpeninga á íslandi, eða
vörupeninga einstakra verslana á
íslandi.
Allir þessir þættir myntsöfnunar
eru sýndir af sérfræðingum á Mynt-
safni Þjóðminjasafnsins og Seðla-
bankans við Einholt 4 kl. 14—18 á
sunnudögum. Þar er að fá ítarlegri
upplýsingar.
En til að ljúka greininni vil ég
benda á að þar er að finna hálfan
gullnóbíl. Þið sjáið að Elísabet
drottning stendur á skipsijöl á pen-
ingnum. Svona skipamyndir á mynt
voru undirstaðan að verslun Breta
frá því um 1350. Gullnóbílarnir, en
því nafni gengu ensku gullpening-
amir undir, voru peningar, sem
menn tóku sem ekta. Stuðluðu þeir
að trausti manna á að versla við
Englendinga.
Eg minni á fundinn hjá Mynt-
safnarafélagi íslands í Templara-
höllinni á morgun, sunnudag,
klukkan 14.30. A uppboðinu eru
margir merkir gripir, sem hafa bor-
ist uppboðsnefnd félagsins. Gull,
silfur og brons, innlent sem erlent.
Áhugamenn um myntsöfnun eru
velkomnir.
Bóndarós
(Paeonia officinalis)
Meira en öld er liðin síðan fyrstu
bóndarósimar vom fluttar hingað
til lands. Ekki er þó hægt að segja
að þær séu meðal þeirra garð-
plantna sem algengar geta talist
og misjafnar sögur fara af ræktun
þeirra. Margar tegundir em til af
bóndarósum en það em aðallega
tvær þeirra, eða öllu heldur af-
brigði, sem hér em ræktaðar að
einhverju ráði. Sú sem betur hefur
reynst heitir Paeonia officinalis á
fræðimáli og er þetta sú tegund sem
við getum með réttu nefnt bóndarós
vegna þess að ræktun hennar hefur
um aldaraðir verið áberandi mikil
við bændabýli í hinum ýmsu löndum
Evrópu. Áður fyrr var mikill fjöldi
afbrigða til af þessari tegund en í
seinni tíð em það aðallega 3 eða 4
sem vel em þekkt. Þau em öll með
þéttfylltum blómum og heita: Pae-
onia offícinalis „Rubra Plena", sem
er með dökkrauðum blómum, „Alba
Plena" með blómum, sem í fyrstu
em bleik, en lýsast og verða að
lokum hvít, „Rosea Plena“ með
bleikum blómum og „Rosea Sup-
erba Plena", sem líka er með
bleikum blómum. Til em afbrigði
með einföldum blómum og em þau
nú ræktuð hér til reynslu. Villtar
plöntur af tegundinni em sjaldan
ræktaðar nema í grasagörðum. Þær
em nú líka til hér í nokkmm görð-
um til reynslu.
Heimkynni Paeonia offícinalis
em: Sviss, Týról, Frakkland, norð-
urhluti Ítalíu og Albanía. Hún vex
oft þó nokkuð hátt til fjalla. í Alpa-
fjöllunum hefur hún fundist í 1700
BLÓM
VIKUNNAR
49
Umsjón:
Ágústa Bjömsdóttir
m hæð. Þessi tegund á sér mjög
langa ræktunarsögu. Vitað er að
farið var að rækta hana fyrir meira
en 1000 ámm. Um miðja 19. öld
fór ræktun hennar að dragast sam-
an vegna annarrar tegundar sem
þá var nýbúið að flytja inn frá Kína.
Þessi nýja tegund var Paeonia lacti-
flora (P. Sinensis og P. albiflora),
sem oftast er nefnd Kinversk
bóndarós. Ræktun hennar var æfa-
fom í Kína og var hún til í ýmsum
afbrigðum sem þóttu bera af hinum
CITROÉN
AX
FRANSKA BYLTINGIN
í HÖNNUN SMÁBÍLA
CITROÉN
AX
CITROÉN
<
w
Undirbúningur aö franskri byltingu í hönnun smábíla
hófst fyrir 5 árum.
Þá fékk hönnunardeild Citroén það verkefni aö hanna
bíl sem átti aö vera stuttur en þó rúmgóöur.
Hann varö að vera glæsilegur og aflmikill en þó sérlega
sparneytinn og hafa frábæra aksturseiginleika og síðast
en ekki síst varð hann að vera ódýr.
Með algerri uppstokkun í framleiðsluaðferðum tókst að
uppfylla allar þessar mótsagnakenndu kröfur.
Franska byltingin heitir CITROEN AX.
JAFNVEL VERÐIÐ ER
FREISTANDI/frá kr.329,900.-
Vegna sérlega hagstæðra samninga við Citroén verk-
smiðjurnar getum við boðið viðskiptavinum okkar afar
freistandi verð og greiðsluskilmála á CITROÉN AX.
BÍLASÝNING UM HELGINA
Opið frá kl. 10-6 laugardag og 1-5 sunnudag.
Komdu og sjáðu bílinn sem fékk Gullna stýrið, smábílinn
CITROÉN AX ásamt riddara götunnar, CITROÉN BX sem
verður tjóðraður niður á staðnum.