Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987
Úrslit sveitarstjórnakosninga í Bretlandi:
Thatcher treystir
enn stöðu sína
London, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttritara Morgunblaðsins.
ÚRSLIT bæjar- og sveitarstjórnakosninganna, sem fram fóru hér í
landi á fimmtudag, hafa aukið líkumar á því að boðað verði til þing-
kosninga hinn 11. júní næstkomandi. íhaldsmenn mega vel una við
úrslit nýafstaðinna kosninga og sama má raunar segja um annað
stjórnarandstöðuaflið, Bandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna. Ur-
slit kosninganna urðu Verkamannaflokknum hins vegar mikil
vonbrigði.
Á sunnudaginn hittir Margaret Thatcher forsætisráðherra helstu
ráðgjafa sína á sveitasetri sínu, Chequers, í Buckinghamshire. Er
fastlega búist við að þar verði endanlega tekin ákvörðun um að boða
til þingkosninga hinn 11. júní næstkomandi.
í bæjar- og sveitarstjómakosn- Allt þetta brást, íhaldsflokkurinn
ingunum tókst íhaldsflokknum að hélt sínum hlut að mestu og saman
mestu að halda því fylgi er hann
hlaut í sambærilegum kosningum
árið 1983, en þær kosningar voru
einmitt undanfari frækilegs sigurs
flokksins í þingkosningum sama ár.
Telja íhaldsmenn sér ekkert að van-
búnaði að endurtaka sama leikinn
nú. Norman Tebbit, formaður
íhaldsflokksins, lék á alls oddi í við-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC,
í gær, kvað flokk sinn mega vel við
nýafstaðnar kosningar una og úrslit
þeirra drægju svo sannarlega ekki
úr líkum á því að boðað yrði til þing-
kosninga í júní. Það eru mörg góð
teikn á lofti í efnahagslífinu, gróska
á ýmsum sviðum og horfur góðar,
atvinnulausum fer fækkandi og þar
fram eftir götunum. Ef til vill væri
það efnahagslífmu fyrir bestu að
við boðuðum til kosninga sem fyrst,
fengjum ótvírætt umboð kjósenda
til áframhaldandi stjómarsetu.
Margaret Thatcher hefur nú lagst
undir feld til að kveða upp um það
hvort hún eigi að ganga á fund
Bretadrottningar á mánudaginn til
að fara fram á þingrof og nýjar
kosningar. Hún hefur ekki viljað
láta neitt uppi um hug sinn en ætl-
ar að gefa sér tíma eins og aðrir
íhaldsmenn til að gaumgæfa úrslit
bæjar- og sveitarstjórnakosning-
anna, kanna ofan í kjölinn hvar
landið liggur í hinum ýmsu kjör-
dæmum.
Fylgisaukning
Bandalagsins
Þótt íhaldsmenn séu upplitsdjarf-
ir og ánægðir með úrslit kosning-
anna er það Bandalag fijálslyndra
og jafnaðarmanna sem helst getur
státað af raunverulegum sigri og
fylgisaukningu miðað við síðustu
kosningar. Fylgisaukning Banda-
lagsins varð ekki eins mikil og
bjartsýnustu bandalagsmenn höfðu
gert sér vonir um. Talsmenn fijáls-
lyndra og sósíaldemókrata, David
Steele og David Owen, hafa borið
sig vel og hrósað sigri. Segja þeir
að úrslitin séu enn eitt sanninda-
merki þess að Bandalagið sé mjög
að styrkja stöðu sína í breskum
stjómmálum og sé til alls líklegt í
komandi þingkosningum. Segja þeir
að æ fleirum verði nú ljós nauðsyn
þess að Bandalagið treysti sig í
sessi og ijúfi skarð í það tveggja-
flokkakerfí sem hafi í raun verið
við lýði undanfama áratugi.
David Steele sagði í BBC, að
Bandalagið ætlaði að breyta hlut-
föllunum í komandi þingkosningum,
komast til raunverulegra áhrifa.
Það ætlaði að skjóta Verkamanna-
flokknum ref fyrir rass og helst
íhaldsflokknum líka.
Vonbrigði Verka-
mannaflokksins
Það er Verkamannaflokkurinn
sem þarf að sleikja sárin að loknum
kosningunum í fyrradag. Flokkur-
inn reið ekki feitum hesti frá
þessum kosningum, náði engan
veginn þeim árangri sem hann hafði
gert sér vonir um.
Engum gat dulist fyrir kosning-
amar að Verkamannaflokkurinn
þurfti á veglegum sigri að halda,
ekki aðeins til að styrkja stöðu sína
gagnvart Ihaldsflokknum heldur
einnig til að treysta sig í sessi sem
forystuafl stjómarandstöðunnar.
dró með Verkamannaflokknum og
Bandalagi fijálslyndra og jafnaðar-
manna.
Einkum olli Verkamannaflokkn-
um vonbrigðum bágborin frammi-
staða í Mið-Englandi þar sem
flokkurinn hefur gert sér vonir um
að hrifsa sæti af íhaldsmönnum. í
komandi þingkosningum. Er ljóst
að Verkamannaflokkurinn á nú
mikið verk fyrir höndum eigi honum
að takast það, sem virðist næsta
borin von nú, að vinna meirihluta
í komandi þingkosningum. Tals-
menn flokksins segjast þó ekki bera
neinn ugg í bijósti vegna þeirra
kosninga. „Því fyrr því betra,“ svar-
aði Niel Kinnock er hann var
spurður að því í BBC hvenær hann
vildi að þingkosningar yrðu haldn-
ar. Og hann bætti við: „Þegar á
hólminn er komið munum við
standa uppi sem sigurvegarar. Þeg-
ar við höfum komið málstað okkar
til skila munu kjósendur fylkja sér
um flokk okkar. Við höfum mikið
fram að færa — um baráttuna gegn
atvinnuleysinu, um umbætur í fé-
lagsmálum ýmsum — skólakerfinu,
heilbrigðiskerfínu — og öðru því
sem snertir svo mjög daglegt líf
fólks í þessu landi. Deilur innan
Verkamannaflokksins hafa verið
mjög í sviðsljósinu um nokkurt
skeið og eiga þær vafalaust sinn
þátt í því hvemig fór í kosningunum
í gær.
Reuter
EKKERT ER NYTT
UNDIR SÓLINNI
Varðskýli eru allajafna fremur einföld í sniðum, en í Guatemala
finnst mönnum greinilega ástæða til þess að lífga örlítið upp á tilver-
una hjá varðmönnum. Á myndinni er verið að leggja síðustu hönd
á varðskýli í herstöð í Solola í Guatemala.
Gary Hart hættir kosningabaráttunni:
Nýjar ásakanír um hjú-
skaparbrot réðu úrslitum
Washington, Reuter.
GARY Hart hefur ákveðið að hætta við að sækjast eftir útnefningu
Demokrataflokksins til forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta
ári. Mestu réði að fulltrúi stórblaðsins Washington Post tilkynnti að-
stoðarmönnum hans að blaðið hefði undir höndum frekari upplýsingar
um að Hart hefði gerst helst til fjölþreifinn til kvenna.
Svo sem kunnugt er af fréttum
birti dagblaðið Miami Herald frétt
þess efnis á sunnudag að Hart hefði
varið stórum hluta helgarinnar með
29 ára gamalli þokkadís. Hart neit-
aði því harðlega að hann hefði gerst
sekur um hjúskaparbrot en hann
hefur verið kvæntur í 28 ár þótt
fregnir að vestan hermi að ýmislegt
hafi gengið á í því hjónabandi. Hart
viðurkenndi hins vegar að honum
hefðu orðið á mistök með því að
gefa Gróu á Leiti tækifæri til að
iðka sína uppáhalds íþrótt. Donna
Rice, en svo nefnist þokkadísin,
þvertók fyrir að hafa iðkað syndsam-
legt athæfí með Hart og kvaðst
harma það að þessi misskilningur
skyldi hafa skapast. Miami Herald
lýsti henni í gær sem „glæsikvendi"
sem sæktist eftir félagsskap auð-
ugra og frægra manna. Til sönnunar
þessu kvað blaðið hana hafa átt
vingott við ekki ófrægari menn en
vopnasalann Adnan Khasoggi, Al-
bert prins af Mónakó og rökkstjöm-
una Don Henley. Skoðanakannanir
sýndu að almenningur í Banda-
ríkjunum lagði almennt ekki trúnað
á framburð þeirra og fylgið hrundi
af Hart en hann hafði haft öruggt
forskot á aðra frambjóðendur demó-
krataflokksins. „Þessu er lokið,“
sagði einn nánasti samstarfsmaður
Hart en þá sýndu skoðanakannanir
að Hart naut minna fylgis en George
Bush, sem talinn er líklegasti fram-
bjóðandi Repúblikanaflokksins. Þar
til hneykslismálið kom upp hafði
þessu verið öfugt farið.
Reuter
Frétt Miami Herald um samband
leikkonunnar Donnu Rice og
Garys Hart varð honum að falli.
Miami:
„Loks eru andstöðuöflm
í Nicaragua sameinuð“
- segir Chamorro, leiðtogi UNO, um sameiningii skæruliðahreyfinganna
Hið virta dagblað The Washington
Post skýrði frá því í gær að Hart
hefði ákveðið að draga sig út úr
kosningabaráttunni fáeinum
klukkustundum eftir að blaðið hefði
tjáð aðstoðarmönnum hans að það
hefði undir höndum óyggjandi upp-
lýsingar um samband Harts við konu
eina í Washington. Blaðið lét nafns
konunnar ekki getið en kvaðst hafa
óyggjandi heimildir fyrir því að Hart
hefði lengi átt vingott við hana.
Kvaðst blaðið ekki ætla að birt frétt
þessa og lét þess getið að beðið hefði
verið með að skýra frá þessum upp-
lýsingum til þess að Hart fengi
greiddan 750.000 dollara styrk frá
ríkinu, sem ætlað er að jafna að-
stöðu þeirra sem bjóða sig fram í
forsetakosningum. Hann skuldar
enn stórfé frá því hann bauð sig
fram til forsetakjörs fyrir Demó-
krataflokkinn árið 1984 en þá beið
hann lægri hlut fyrir Walter Mond-
ale.
„Ég hef aldrei litið á stjórnmál
sem mitt ævistarf," sagði Gary Hart
eitt sinn í viðtali við dagblaðið The
Wall Street Journal. „Ég hef frekar
litið svo á að um ákveðið tímabil sé
að ræða í lífi mínu.“
Miami, fr& Steinjfrími SigrirgeirBsyni, blaðamanm MorgunblaðsinB.
„LOKS ríkir traust milli and-
stöðuaflanna í Nicaragua," sagði
Pedro Joacquin Chamorro, yfir-
maður UNO, stærstu skæruliða-
samtakanna, í viðtali við
Morgunblaðið um samkomulag-
ið, sem tókst sl. miðvikudag eftir
tveggja mánaða viðræður milli
skæruliðahreyfinganna UNO,
BOS og FDN. Samkvæmt því
verða hreyfingarnar sameinaðar
og komið á fót einum þjóðarher.
I samkomulaginu felst, að- sett
verður á fót sjö manna borgaraleg
stjóm yfír heraflanum stjórnmála-
ráð, sem skipað verður 54 mönnum.
Vonast skæruliðar til, að þetta auki
líkur á, að þeir fái meiri stuðning
frá stjóminni í Washington. „Nú
er ekki lengur hægt að ásaka okkur
um, að við séum óvirkir vegna inn-
byrðis ágreinings og sundurlyndis,"
sagði Chamorro, sem kvaðst binda
vonir við, að þetta yrði til að breyta
ímynd skæmliðanna í Nicaragua,
Bandaríkjunum og Evrópu.
„Við höfum lengi verið ásakaðir
um, að yfirmenn okkar væru aðeins
útsendarar frá Washington en nú
geta Nicaraguamenn litið á okkur
sem sína fulltrúa," sagði Chamorro.
„í stjómmálaráðinu munu verða
útlægir fulltrúar frá öllum stjóm-
málaflokkum og hlutverk okkar nú
verður að tala við okkar eigin þjóð
og fara fram á stuðning hennar.“
Chamorro sagði, að samninga-
viðræðumar hefðu verið mjög
erfíðar en lausnin hefði fundist þeg-
ar engin virtist í sjónmáli. „Þetta
er ekki lausn, sem fékkst fyrir utan-
aðkomandi afskipti, heldur nigarag-
uísk lausn. Miðvikudagurinn var
stór dagur í sögu nicaraguísku þjóð-
arinnar."
Gengi
gjaldmiðla
London, Reuter.
GENGI helstu gjaldmiðla
gagnvart dollara í kauphöll-
inni í London var sem hér
segir á hádegi í gærr
1,3350 kan. dollarar.
1,7840 v-þýsk mörk.
2,0115 holl. gyllini.
1,4670 sv. frankar.
36,90 belg. frankar.
5,9550 fr. frankar.
1.239,00 ít. lírur.
139,40 japönsk jen.
6,2300 sænskar kr.
6,6550 norskar kr.
6,6925 danskar kr.
Ifyrir breska pundið fengust
þá 1,6790 dollarar og fyrir gull-
únsuna 455,80 dollarar.