Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987
29
Holmes berst við Moriarty
Meiringen, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
LAFÐI Jane Conan Doyle, dóttir breska rithöfundarins Sir Art-
hurs Conan Doyle, opnaði í gær í Meiringen í Sviss safn um
frægustu bókmenntapersónu föður síns, Sherlock Holmes leynilög-
reglumann. Um 60 aðdáendur Sherlocks úr Sherlock Holmes-
félaginu í London og annars staðar að úr heiminum voru viðstaddir
athöfnina og gáfu fyrstu gripina, sem safnið á að geyma. Þetta
var ein aðalathöfnin á 100 ára famæli Holmes en fyrsta bókin um
hann, Study in Scarlet, kom ú. S. janúar 1887.
Aðdánedur Holmes hafa verið á
ferðalagi í Sviss í tíu daga. Þeir
hafa ferðast um landið klæddir í
búninga frá Viktoríutímanum og
skemmt sér konunglega. í gær-
morgun settu þeir á svið áflog
Holmes og Moriartys, Napóleons
glæpamannanna, við Reichenbac-
h-foss við Meiringen og skoðuðu
staðinn þar sem Conan Doyle gekk
frá Holmes dauðum í sögunni The
Final Problem. Og var myndin hér
að ofan tekin við það tækifæri.
Doyle var fenginn til að halda
sögunum áfram og síðdegis í gær
kom Holmes svífandi í fallhlíf og
lenti við minnismerki um sjálfan
sig fyrir neðan fossana í Meiring-
en, aðdáendum sínum til mikillar
gleði og ánægju.
i
Noregur:
Ekkert fararsnið á stjóm
Gro Harlem Brundtland
Ósló. Frá Jan Erik Lauro, fréttaritara
Laugardagurinn 9. maí er
eins árs afmælisdagur stjórnar
Verkamannaflokksins í Noregi.
Eins og stendur er ekkert, sem
bendir til þess, að Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra
fari frá í bráð.
Miklu fremur má segja, að Gro
leiki nú við hvem sinn fíngur. Hún
hefur ferðast um víða veröld í
embættiserindum sem formaður
umhverfismálanefndar Samein-
uðu þjóðanna, og fólk hefur fengið
á tilfinninguna, að þar færi sterk-
ur þjóðarleiðtogi. Þetta hefur m.a.
komið fram í skoðanakönnunum
að undanförnu, þar sem Verka-
mannaflokkurinn hefur blómstrað
sem aldrei fyrr. Og þó að ríkis-
stjómin hafi ekki komið öllum
stóru málunum í gegn á þessu
eina ári, er fólkið almennt ánægt
með árangurinn.
Þessa dagana eru fyrrnrn ríkis-
stjómarflokkar, Hægriflokkurinn,
Miðflokkurinn og Kristilegi þjóð-
arflokkurinn, að reyna að koma
sér saman um grundvöll nýs
stjómarsamstarfs borgaraflok-
kanna. En viðræðumar hafa
gengið tregt og steytt á mörgu
skerinu. í efnahagsmálunum er
fleira, sem skilur flokkana að, en
hitt sem sameinar þá. Og flokk-
amir stefna einnig hver í sína
áttina í fleiri málaflokkum.
Öðm hverju koma upp mál, sem
virðast ætla að valda kreppu-
ástandi í Stórþinginu. En hingað
til hefur Gro Harlem Bmndtland
tekist að sigla milli skers og bám,
ýmist með málamiðlunum eða
stuðningi frá borgaraflokkunum.
Nú em vorannimar að hefjast
í Stórþinginu. Mikill fjöldi mála
bíður afgreiðslu. Ekkert þeirra
virðist þó af þeirri stærðargráðu
að nægi til að fella ríkisstjómina.
En ef þríflokkunum tekst að ná
saman, má vera, að eitthvert þess-
ara mála verði „blásið upp“ í því
skyni að fella stjómina. Ef það
gerist hins vegar ekki, situr Gro
sem fastast í sumar.
Persaflóastríðið:
Fyrsta árásin
á sovéskt skip
Bahrain. Reuter.
SOVÉSKT flutningaskip
skemmdist í árás óþekktra aðila,
er það var á siglingu á Persaflóa
sl. miðvikudag, en komst hjálpar-
laust til hafnar í Saudi-Arabíu.
Er þetta í fyrsta skipti sem slíkt
gerist.
íranir hafa gert allmargar árásir
á skip á þessu svæði og er álitið að
þeir hafi verið þama að verki.
Gmnnt hefur verið á því góða milli
ríkjanna að undanfömu og sagði
Ali Khamenei, forseti íran, í Teheran
í gær að Sovétmenn styddu íraka í
stríði þjóðanna tveggja. Tass, frétta-
stofan sovéska, svaraði þegar í stað
og sagði írönsk stjómvöld rangtúlka
viðþorf Sovétmanna.
Íranskir byltingaverðir fengu ný-
lega til afnota létta sænska hraðbáta
er dugað hafa þeim vel og em áhafn-
ir bátanna búnar vélbyssum og
sprengjuvörpum. Er talið að áhöfn
eins þessara báta hafi gert árásina
á sovéska skipið.
Moskva:
Kirkjuráðstefna 1
tilefni af 1000 ára
kristnitökuafmæli
Moskvu. Reuter.
ALÞJÓÐLEG kirkjuráðstefna
verður haldin í Moskvu i næstu
viku til undirbúnings hátíðahalda
vegna 1000 ára afmælis kristni-
töku í Rússlandi á næsta ári, að
þvi er Tass-fréttastofan sagði í
gær.
Önnur undirbúningsráðstefna var
haldin í Kænugarði í fyrrasumar og
sóttu hana kirkjunnar menn hvað-
anæva að úr heiminum.
VORSYNING VELTIS
SÍÐASTI DAGUR VOLVOSÝNINGAR
öryggis- og tæknisýningu Volvo í
Volvosalnum lýkur í dag, 9. maí.
Grípið tækifærið og kynnist Volvo-
bifreiðunum að utan jafnt sem innan -
örygginu og gæðunum.
Bílasýning!
Fólks- og vörubifreiðarnar árgerð 1987
eru í Volvosalnum og á sýningarsvæð-
inu í Skeifunni 15.
Opið í dag, laugardag, kl. 10—16.
Heitt á könnunni.
Blöðrur og Volvofánar fyrir börnin.
Sími: 91-35207
(bein lína í Volvosal)
P&Ó/SÍA