Morgunblaðið - 09.05.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987
Sjónvarpsstjórnmál í Bandaríkjunum:
Gestrisni Gary Hart skyggði
á upphaf þingrannsóknar
Washington, frá ívari Guðmundssyni fréttaritara Moiyunblaðsins.
FRUMSÝNING rannsóknar-
nefndar beggja deilda Banda-
ríkjaþings í íranmálinu, sem
hófst á þriðjudagsmorgun, hvarf
að mestu í skugga annars at-
burðar. Athyglin beindist ekki
síður að fréttinni um að Gary
Noregur:
Tekið fyrir fall-
hlífarstökk
í Trollveggen
Osló, Reuter.
NORSKA ríkisstjórnin hefur lagt
fram tillögu um að bann verði
lagt við fallhlífarstökki í Troll-
veggen-fjalli en þangað hafa
fífldjarfir menn flykkst á und-
anförnum árum til að iðka þessa
íþrótt.
Trollveggen, sem er suður af
suður af Þrándheimi, er 1.788
metra hátt fjall og hafa rúmlega
200 ofurhugar kastað sér fram af
því á undanfömum sjö árum. Fjórir
fallhlífarstökkvarar hafa farist og
átta sinnum hafa björgunarsveitir
tekið sér á hendur stórhættulegar
ferðir til að bjarga slösuðum mönn-
um.
Samkvæmt lagafrumvarpinu
sem lagt var fram í gær verður
með öllu bannað að iðka þessa
íþrótt í Trollveggen og verða þeir
sem brjóta bannið að greiða háar
sektir. Búist er við að lagafrum-
varpið hljóti staðfestingu þingsins.
Hart hefði dvalist einn með ungri
blómarós og fegurðardís nætur-
langt í húsi sínu í Washington, á
meðan eiginkona hans var víðs-
fjarri í Denver-borg.
Fundur rannsóknamefndarinnar
var einkar vel undirbúinn. Nefndin
er að störfum í sal, sem er einn
hinn skrautlegasti í þinghöllinni,
skreyttur marmarasúlum og þykk-
um silkitjöldum. Hann er auk þess
sögufrægur.
Það var í þessum sal, sem Water-
gate-yfírheyrslumar fóru fram fyrir
14 ámm og „tehvelfíngarmálið"
svokallaða, sem setti blett á forseta-
feril Warrens G. Harding 1923. Það
var og í þessum sal að McCharty
öldungadeildarþingmaður var kveð-
inn niður 1954 í herferð sinni gegn
kommúnistum í áhrifamiklum emb-
ættum. Þau réttarhöld voru þau
fyrstu, sem sjónvarpað var frá þing-
fundum.
Fjölmiðlar, einkum sjónvarps-
stöðvar, hafa gert mikið til að
rannsóknarstörf þingnefndarinnar
komist sem best til skila. Mikið er
í húfí. Spumingamar snúast um
störf sjálfs forsetans. Frægustu
sjónvarpsþulir eins og Dan Rather
og Peter Jennings, sem tók sér
stöðu á Austurvelli er Höfðafundur-
inn var haldinn í fyrrahaust, komu
til Washington frá aðalstöðvum
sínum í New York, til að sjá um
fréttaflutninginn frá fundi nefndar-
innar. Helstu sjónvarpsstöðvar
landsins gerðu ráð fyrir að minnsta
kosti klukkustundar útsendingu frá
fundinum. Ein stöð, kapalstöðin
CNN, ætlaði að hafa stöðuga út-
Skora á de Cuellar að birta
skjöl um Kurt Waldheim
Belgrað. Reuter.
ÓOPINBER félagsskapur — Al-
þjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn
— sem breski heimspekingurinn
Bertrand Russel stofnaði, hefur
skorað á Javier Perez de Cuell-
ar, aðalframkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, að birta
skjöl samtakanna um fyrrum
framkvæmdastjóra S.þ., Kurt
Waldheim.
Félagsskapurinn, sem nú lýtur
sendingu allan þriðjudaginn.
Formaður nefndarinnar, öld-
ungadeildarmaðurinn Daniel K.
Inouye frá Hawaii, setti fundinn á
mínútunni kl. 10. Hann sagði, að
nefndinni væri falið, að rannsaka
mál, sem væri í senn „sorglegt og
soralegt". Að ræðu hans lokinni
fluttu allir nefndarmenn, hver á
fætur öðrum hugnæmar ræður um
lýðræði, þingræði og vilja almenn-
ings í landinu. Og þá fóru blaða-
menn að týnast úr salnum, enda
hafði verið þröngt um þá, því
myndasmiðir tóku mikið rúm en
urðu samt sumir þeirra að sitja á
hækjum sér á gólfínu. Frægu sjón-
varpsþulimir komu hinsvegar aldrei
inn í sjálfan salinn heldur útvörpuðu
frá einkaskrifstofu með þinghöllina
í baksýn á skjánum.
Hætt að sjónvarpa
Um þetta leyti fór að færast fjör
í fréttina um næturgest Gary Hart.
Það var von á honum á fund hjá
ritstjórasambandinu í New York.
Sjónvarpsnotendur voru famir að
hringja hundruðum saman til fasta-
Áður en rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings hóf störf sin á þriðjudag
myndaðist biðröð fyrír utan fundarsalinn, sem náði út á götu eins
og hér sést.
stöðva sinna og heimta að sýnd
yrði framhaldssagan, sem þeir eru
vanir að fá að morgni dags.
Reagan forseti var í Rósagarði
Hvíta hússins með sjónvarpsmenn
á vakt að vanda. Forsetinn virtist
sprækur, hljóp við fót á milli beð-
anna og er kallað var til hans hvort
hann vildi segja eitthvað um nefnd-
ina svarði hann: „Já, ég vonast nú
til að frétta eitthvað, sem ég vissi
ekki um áður.“ Fréttamaður birtist
aftur á skjánum og fullyrti, að for-
setinn hefði ekki svo mikið sem
„kíkt“ á sjónvarpið allan daginn.
Fréttin um næturgest Gary Hart
hélt áfram að vaxa og skyggja á
fréttir frá rannsóknamefndinni.
Blaðamaður, sem stóð við hlið mér
sagði: „Reagan forseti hefði ekki
getað óskað sér betri fréttar í dag.“
Þegar leið á kvöldið sýndu sjón-
varpsstöðvamar sitt hefðbundna
efni. Að sjálfsögðu fékk Gary Hart
sitt hjá grínistunum. Einn þeirra
sagði: „Hingað til hefír það verið
aðalspumingin: „Hvað vissi Reagan
forseti og hvenær."
En nú er spumingin: „Hvað vissi
Hart og hvenær fór hún?“
Nýja Sjáland:
KGB neyddist til að
láta í minni pokann
foiystu júgóslavneska sagnfræð-
ingsins Vlacdimir Dedijer, hefur
sent Perez de Cuellar bréf, þar sem
farið er fram á, að skjöl S.þ. um
Waldheim verði gerð opinber í því
skyni að varpa ljósi á athafnir hans
I stríðinu.
í bréfínu er tekið fram, að banda-
rískum, austurrískum og júgóslav-
neskum stjómvöldum hafí verið
send sams konar bréf.
- segir David Lange
Wellington, Reuter.
DAVID Lange, forsætisráðherra
Nýja Sjálands, kvaðst í gær ráða
það af brottrekstri eftirlits-
manns í nýsjálenska sendiráðinu
í Moskvu að sovéska leyniþjón-
ustan KGB hefði orðið undir i
deilu við stjórnina.
Lange sagði við blaðamenn að
David Nicol hefði verið sendur til
Moskvu fyrir ellefu mánuðum og
hann væri ekki njósnari.
Sovétmenn lýstu yfír því á
fímmtudag að Nicol væri óvelkom-
inn eða „Persona non grata" eins
og það var orðað og var honum
skipað að hafa sig á brott frá Sov-
étríkjunum innan einnar viku. Sagði
að hann hefði „gert sig sekan um
athæfí, sem ekki samræmist stöðu
stjómarerindreka".
Brottreksturinn siglir í kjölfarið
á því að Sergei Budnik, háttsettum
ráðgjafa í sovéska sendiráðinu í
Wellington, var vísað úr landi.
Lange segir að vitað hafí verið fyr-
ir víst að Budnik var yfírmaður í
KGB.
„Ég tel nokkuð augljóst að það
kom til deilna [í Moskvu] og þetta
var barið í gegn,“ sagði Lange.
„Budnik fór alltént ekki í launkofa
með hvemig hann teldi að bregðast
ætti við. Svo fór að þeir héldu að
þeir yrðu að gera eitthvað til þess
að ekki liti út fyrir að þeir játuðu
á sig njósnir. þannig að þeir völdu
einhvem úr, sem ekki nokkrum
manni hefði dottið í hug að væna
um njósnir, í þeirri von að málinu
væri þar með lokið."
Lange kvaðst telja að háttsettari
starfsmanni í sendiráðinu í Moskvu
hefði verið vísað úr landi ef KGB
hefði fengið að ráða einhveiju.
Frakkland:
Mikill viðbúnaður vegna
réttarhaldanna yfir Barbie
Lyon, Reuter.
SVEITIR þungvopnaðra lög-
regluþjóna gæta nú dómshall-
arinnar í borginni Lyon í
Frakklandi, þar sem réttar-
höldin yfir Klaus Barbie hefjast
á mánudag.
Barbie var fluttur frá Bólivíu
til Frakklands fyrir fjórum árum
og er ákærður fyrir glæpi gegn
mannkyninu. Iðnaðarmenn voru f
gær að leggja lokahönd á breyt-
ingar á salnum, þar sem níu
manna kviðdómur mun kveða upp
úrskurð yfír Barbie. Einnig voru
leyniskyttur lögreglunnar að
koma sér fyrir á húsþökum í
grennd við dómshöllina og famar
voru eftirlitsferðir um götur.
Allur þessi viðbúnaður er til
þess að gæta öryggis Barbies, sem
kallaður er „Slátrarinn frá Lyon“
vegna þeirra grimmilegu ódæðis-
verka, sem hann er sakaður um
að hafa framið þegar hann var
yfírmaður lögreglunnar í Lyon á
árunum 1942 til 1944. Dómara
og lögfræðinga er einnig vandlega
gætt eftir að hótanir bárust frá
lítt þekktum samtökum nýnasista.
Búist er við að þetta verði
mestu stríðsglæparéttarhöld, sem
haldin hafa verið í Frakklandi, og
munu þau taka tvo mánuði. Sjón-
varpað verður frá upphafí þeirra
og er það fyrsta sinn, sem kvik-
myndatökuvélar fá aðgöngu í
franskan réttarsal.
Margar vikur eru síðan hafíst
var handa til að breyta hinu risa-
stóra anddyri dómshallarinnar til
þess að 700 blaðamenn, 100 vitni
og ákærendur og 40 lögfræðingar
kæmust fyrir.
Barbie er ætlað að sitja í gler-
búri, sem verður opið að ofan, við
hlið dómara. En lögfræðingar
ákærenda segja að þeir óttist að
Barbie neiti jafnvel að bera vitni
eins og honum er ætlað að gera
frá 14. til 16. maí.
Jacques Verges, hinn umdeildi
lögfræðingur Barbies, hefur sagt
að skjólstæðingur sinn eigi ekki
að fá réttláta dómsmeðferð og
réttarhöldunum megi líkja við af-
töku án dóms og laga.
Barbie sagði í skriflegu viðtali
við franska vikuritið Paris-Match:
„Finnst ykkur réttlátt að hafa
áhrif á kviðdóminn með því að
sýna heimildarmyndir í sjónvarpi
fyrir réttarhöldin, þar sem bæði
eru sýndar fílmur úr skjalasöfnum
eða leikarar sýndir í hlutverki
mínu?“
Franskur herréttur dæmdi
Barbie tvisvar til dauða að honum
fjarverandi. Samkvæmt frönskum
lögum fymast dómar um
tríðsglæpi á tuttugu árum og enn
fremur er ekki hægt að ákæra
mann tvisvar fyrir sama glæpinn.
Barbie hefur nú verið ákærður
fyrir glæpi gegn mannkyninu og
er hann sagður hafa verið með-
sekur í brottflutningi og morðum
á 400 gyðingum og 300 félögum
úr frönsku andspymuhreyfíng-
unni.
Leyniskyttur lögreglu koma
sér fyrir á húsþaki í grennd við
dómshúsið, þar sem réttar-
höldin yfir Klaus Barbie fara
fram.
Verges, sem hefur róttækar
skoðanir, hefur hótað að draga
alla frönsku þjóðina á táknrænan
hátt fyrir dómstóla fyrir framferði
hennar þegar Frakkland var her-
tekið af nasistum. Hann segir að
Barbie ætli að fletta ofan af
mönnum, sem sviku andspymuna
og segja að hve miklu leyti Frakk-
ar störfuðu með andstæðingnum.
Reuter
Málskjöl ákæruvaldsins á hend-
ur Klaus Barbie losa rúmlega
eitt hundrað kílógrömm og er
þar að finna yfir tvö þúsund
og fimm hundruð skjöl.