Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 31 Unglingnr skotinn til bana í Belfast Sá sjötti úr fjölskyldunni, sem f ellur fyrir byssukúlu Belfast, Reuter. KAÞÓLSKUR unglingur var skot- inn til bana á heimili sínu og þrír slösuðust í óeirðum, sem blossuðu upp í Belfast á Norður-írlandi i fyrrinótt. Gary McCartan, sá sjötti í fjöl- skyldunni, sem fellur fyrir byssukúlu í þau 18 ár, sem óöldin hefur staðið á Norðurírlandi, var drepinn af þrem- ur mönnum, sem ruddust inn á Noregur: Laxeldi í rörum Ósló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. FYRIRTÆKIÐ Oppdretsrör hef- ur búið til nýtt fiskeldiskerfi í samvinnu við háskólann i Tromsö. Felst það i því, að fiskur- inn er alinn upp í stórum plast- rörum með streymandi vatni. Fyrirtækið hefur varið um 2,4 milljónum norskra króna í gerð þessa kerfis. Er tilraunakerfið gert úr 60 metra löngu plaströri, 1,6 m að þvermáli. Rörinu er komið fyrir á hafsbotni og lokað í báða enda með rafstraumi, sem kemur í veg fyrir, að laxinn leiti út — og einnig að rándýr eins og selir og otrar sleppi inn. Tilraunimar hafa leitt í ljós, að fískurinn vex 20% hraðar í straum- vatninu. Einnig verður vöðva- og fítusamsetning hans líkari því, sem gerist hjá villtum laxi. heimili hans. Þá rændi einhver óald- arflokkurinn bíl af manni, sem þeir skildu þó ekki við fyrr en þeir höfðu ausið hann bensíni og kveikt í. Hon- um tókst þó að koma til bjargar illa brunnum. Loks var brotist inn á heimili og húsráðanda misþyrmt og unglingur særðist á fæti þegar hann lenti í skothríð milli lögreglunnar og skæruliða írska lýðveldishersins. Alla nóttina var bensínsprengjum kastað að lögreglunni, sem reyndi að dreifa óeirðaseggjunum með því að skjóta á þá plastkúlum. 30 fólks- bílum og strætisvögnum var rænt um nóttina. Fýrir nokkrum dögum var borinn til grafar skæruliði úr IRA, sem lét lífíð þegar sprengja sprakk í höndum hans. I átökum, sem þá urðu milli lögreglunnar og þeirra, sem fylgdu honum, slösuðust 16 manns og hefur síðan ríkt mikil spenna í Belfast. Starfsmenn kjörstjóma flylja kjörkassa á kjörstað. Reuter. Kjörgögn berast seint á kjörstaði Danao, Manila,. Reuter. ÞÚSUNDIR manna fögnuðu Corazon Aquino, forseta Filipps- eyja, er hún lauk kosningaferð sinni um landið í Danao á Cebu- eyju. Þar fékk hún ekki að tala er hún bauð sig fram til forseta árið 1986. Þingkosningaraar fara fram á mánudag, eins og komið hefur fram í fréttum. Kosningabaráttan hefur verið hörð og hafa a.m.k. 40 manns látið lífið í henni, þegar þetta er skrifað. Heyrst hefur að kjörgögn vanti á ýmsa kjörstaði, en stjómvöld segja að því verði kippt í lag fyrir kjör- dag. Herinn hefur mikinn viðbúnað og hefur verið gripið til sérstakra aðgerða vegna sögusagna um að tilraun til valdaráns sé yfirvofandi. Bandaríska sendiráðið í Manila hef- ur varað Bandaríkjamenn við að ferðast um viss svæði á eyjunum þar sem búast má við átökum. Óstaðfestar fregnir herma að her- menn í Negroshéraði hafí orðið Bandaríkjamanni að bana. Forstöðumenn Rauða krossins hafa beðið herinn um að grípa ekki til aðgerða til að frelsa Svisslend- ingana tvo sem rænt var sl. þriðju- dag á Mindanaoeyju. Krefjast mannræningjamir 25.000 dollara lausnargjalds fyrir þá. Stuðningsmenn forsetans ljúka kosningabaráttunni formlega í kvöld með miklum útifundi. BÍLASÝNING BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur laugardag og sunnudag Bestu bílakaupin ídag! Og auk bílanna verða til sýnis og sölu mikið úrval aukahluta á allartegundir Lada bílanna. Bíla- og vélsleðasalan verður opin. VÉÍife^nl Komið, þiggið veitingar og njótið dags- ins með okkur. iVJ Opið alla helgina frá kl. 10—17.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.