Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
49
Stigatafla Áður Stig Mín Röð Land sigrað Lag Flytjandi íslands stigagj. Úrslit I
1 NOREGUR 1985 Mitt liv Kate
2 ÍSRAEL 1978, 1979 Shir Habatlanim Datener & Kushnir
3 AUSTURRÍKI 1966 Nurnoch Gefuhl Gary Lux
4 ÍSLAND Hægt og hljótt Halla Margrét Árnadóttir
5 BELGÍA 1986 Soldiers of Love Liliane St. Pierre
6 SVÍÞJÓÐ 1974, 1984 Boogaloo Lotta Engberg
7 ÍTALÍA 1964 Gente Di Mare UmbertoTozzi & Raf
8 PORTÚGAL Neste Barco AVela Alfredo Azinheira Jorge Mendes
9 SPÁNN 1968 No Edtas Solo Patricia Kraus
10 TYRKLAND Sarkim Sevgi Ustune Locomotif
11 GRIKKLAND Stop Bang
12 HOLLAND 1957, 1958, 1975 Rechtop In De Regen Marcha
13 LUXEMBORG 1961,1965, 1972, 1973,1983 Amour-Amour Plastic Bertrand
14 BRETLAND 1967, 1969, 1976, 1981 Onlythe Light Rikki
15 FRAKKLAND 1959, 1960, 1962, 1977 les Mots D’Amour Christine Minier
16 ÞÝSKALAND 1982 Lass die Sonne in Dein Herz Wind
17 KÝPUR Aspro Mavro Alexia Vassiliou
18 FINNLAND Sata Salamaa Vicky Rosti
19 DANMÖRK 1963 En Lille Melodi Anne Cathrine Herdorf
20 ÍRLAND 1970,1980 Hold Me Now Johnny Logan
21 JÚGÓSLAVÍA Ja Sam Za Ples Novi Fosili
22 SVISS 1956 Moitié Moitié Carol Rich
Monaco sigraði árið 1971 en tekur ekki þátt nú.
í 6. sæti. Síðan hefur hún stundað
tónlistamám í Bretlandi og vinnur
nú að meistaragráðu við einn þekkt-
asta tónlistarskóla heims, Berklee
College of Music í Boston í Banda-
ríkjunum. Hún flytur nú lagið
„Aspro Mavro" fyrir hönd Kýpur,
en samkvæmt veðbönkum er því
spáð frekar slöku gengi.
18. Finnland.
Söngkonan Vicky Rosti syngur
framlag Finna að þessu sinni, lagið
„Sata Salamaa. Finnar hafa sjaldn-
ast flegið feitan gölt í Eurovision
og ekki eru þeir taldir líklegri til
afreka nú.
19. Danmörk.
Danir eru taldir eiga talsverða
möguleika að þessu sinni og af
þeirra hálfu er það söngkonan Anne
Cathrine Herdorf ásamt hljómsveit-
inni Bandjo, sem flytja lagið „En
lille melodi". Höfundur lags og
texta er einn af liðsmönnum hljóm-
sveitarinnar Helge Engelbrecht,
sem hefur verið atvinnumaður í
tónlist síðan 1973.
20. írland.
Söngyarinn Johnny Logan er
fulltrúi írlands í annað sinn í Euro-
vision og veðja margir á að hann
verði fyrstur manna til að vinna
keppnina tvisvar, en hann sigraði
árið 1980 með laginu „What’s Anot-
her Year“. Hann syngur nú eigið
lag og ljóð „Hold Me Now, sem
talið er sigurstranglegt ef marka
má veðbanka.
21. Júgóslavía.
Hljómsveitin Novi Fosili flytur
framlag Júgóslava, lagið „Ja Sam
Za Ples“. Höfundur lagsins er einn
af liðsmönnum sveitarinnar, Rajko
Dujmic, en hann gekk til liðs við
hljómsvetina 1976 og hefur hún
síðan verið í fremstu röð popphljóm-
sveita í Júgóslavíu. Samkvæmt
veðbönkum er laginu spáð góðu
gengi og er talið líklegt til að hafna
í einhvetju af efstu sætunum í
keppninni.
22. Sviss
Söngkonan Carol Rich flytur lag-
ið „Moitie Mottie" fyrir hönd
Svisslendinga. Lagið virðist ekki
eiga upp á pallborðið hjá veðbönk-
um og er almennt ekki talið líklegt
til að ná langt í keppninni.
íslenska dómnefndin
Ríkisútvarpið hefur skipað ellefu
manna dómnefnd til að greiða at-
kvæði fyrir íslands hönd í keppninni
í kvöld. í dómnefndinni sitja: Ása
María Ásgeirsdóttir 18 ára fisk-
verkunarkona Vestmannaeyjum,
Einar Már Ríkharðsson 22 ára sjó-
maður Reykjavík, Guðmunda
Ingimundardóttir 27 ára skrifstofu-
maður og húsmóðir Höfn í Homa-
firði, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir
16 ára nemi Bolungarvík, Jóh'annes
Guðlaugsson 20 ára verslunarmað-
ur Kópavogi, Nanna L. Svavars-
dóttir 22 ára háskólanemi
Reykjavík, Oddrún Kristjánsdóttir
35 ára framkvæmdastjóri
Reykjavík, Óskar I. Örlygsson 18
ára framhaldsskólanemi Garði,
Steingrímur Guðjónsson 30 ára vél-
virki Akranesi, Þorsteinn Pétursson
42 ára tollafgreiðslumaður Akur-
eyri og Þóra Sigurjónsdóttir 55 ára
húsmóðir Gaulveijabæjarhreppi.
Fomaður nefndarinnar verður
Markús Öm Antonsson útvarps-
stjóri og ritari Guðrún Skúladóttir,
en þau tvö hafa ekki atkvæðisrétt.
Sv.G.
VIEPA
Viö kynnum
tónkvíslavogir í
verksmiöju okkar aö
Krókhálsi 6.
Laugardaginn 9. maí
frá kl. 10-18°°
Plasíos liF^
KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900®^
Opið til kl. 2
Markus
tískuhús
Austurstræti 1 Oa, 4. hæð. Sími 22226.
Rútuferdir
Höfuðborgir Norðurlandanna
Brottför 26. júlí. 13 dagar. Laus sæti.
Fararstjóri: Arni G. Stefánsson, magister. Verð 53.000.,- í tvibýli.
Austurriki og Ungverjaland
Brottför 14. ágúst. 15 dagar. 12 sæti laus.
Fararstjóri: Árni G. Stefánsson, magister. Verð 52.700.,- í tvíbýli.
Sérprentuð ferðaáætlun yfir þessar ferðir liggur frammi á skrifstofunni.
í dag verður Árni G. Stefánsson
fararstjóri til viðtals.
Opið í dag 10-12.
FERÐASKRIFSTOFAN
* Aik. t
Door