Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
61
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva:
„Væri ekki hægt að nota pen-
ingana á skynsamlegri hátt?“
Til Velvakanda
V.G. og Þ.E.G skrifa:
Við erum algjörlega mótfallnar
þátttöku íslendinga í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu. Kostnað-
urinn við að senda þátttakendur í
keppni sem þessa er of mikill fyrir
smáþjóð eins og okkur íslendinga.
Væri ekki ráð að nota peningana á
annan og skynsmlegri hátt?
Undirbúningur keppninnar er
mikill og tímafrekur. Fólk úr öllum
áttum tekur sig til og sest niður til
þess að semja lag sem ætlað er að
falla í kramið hjá almenningi. Allir
eiga sér þann draum heitastan að
slá í gegn og verða frægir. Kemur
það berlega í ljós í þessari keppni.
En er þetta rétta leiðin?
Við Islendingar eigum til mikið
af efnilegum lagasmiðum og söngv-
urum sem hafa árum saman sent
frá sér mörg gullfalleg iög. Lög sem
hafa fengið að þróast og endurbæt-
ast áður en þeim er skellt út á
markaðinn. Þau lög eru ekki samin
í einu hendingskasti af þeirri
ástæðu einni að þau verði tilbúin
fyrir einhvem ákveðinn skiladag.
Leyfum þeim sem eru þeirri náð-
argáfu gæddir að geta samið góð
lög að nota hana á réttan hátt. Við
þurfum ekki á neinni söngvakeppni
að halda, séu lögin nógu góð koma
vinsældimar af sjálfu sér. Er ekki
betra að safna perlum hægt og
hljótt heldur en að tína upp gorkúl-
ur til þess að henda í þessa keppni.
Lögin sem send em inn í keppn-
ina fela hvorki í sér boðskap né
sögu sem nær til fólksins. Hver er
eiginlega tilgangurinn?
Stykkishólmur:
Vegagerð-
inhlýturað
fá hiksta
Stykkishólmi.
FORIN á vegunum, herra minn
trúr. Þegar bílarnir hafa skreiðst
yfir Kerlingarskarð em þeir eigi
fagrir á að líta. Sést varla í þá fyr-
ir leðju og annað eftir því. Efamál
að nokkur geti lesið bílnúmerin.
Menn láta álit sitt í ljós á hressileg-
an og háværan hátt og blessuð
vegagerðin hlýtur stundum að fá
hiksta, eins og við sögðum í gamla
daga. Sú stund sem varanlegir veg-
ir koma alla leið til Reykjavíkur er
þráð, því þótt vorin séu erfíðust
með bleytuna og slarkið, geta líka
haustrigningamar gert sitt.
Ekki mun að fullu gengið frá því
hvar aðalvegurinn skuli liggja yfir
skarðið, en menn em að mæla og
athuga sinn gang. Verði veginum
breytt eins og til stendur verður
lækkar hann gagnvart snjó og er
það ekki til bóta.
En þetta gengur allt, menn fara
yfír, festast og em dregnir á flot
aftur, festast aftur o.s.frv. og má
jafnvel tala um ævintýralegar ferð-
ir og einhvem tímann var talað um
að ekki væri gaman að guðspjöllun-
um ef enginn væri í þeim bardaginn
og kannski er heldur ekki gaman
að ferðum nema þær einstöku sinn-
um slagi upp í svaðilferðir. En
Vegagerðin hefír sitt að hugsa og
auðvitað vildi hún setja meiri ferð
á framkvæmdimar, en það er nú
svo eins og með annað að byr verð-
ur að ráða.
— Arni
Þessir hringdu .. .
Of mikið um
endursýningar á
Stöð 2
Óhress áskrfandi hringdi:
„Mig langar að koma á fram-
færi mikilli óánægju í sambandi
við endursýningar á myndum á
Stöð 2 en þær em alltof tíðar.
Maður getur séð sömu myndina
allt af 3-4 sinnum á 30 dögum
en það ætti að vera nóg að end-
ursýna myndir einu sinni kl. 5.
Ríkissjónvarpið endursýnir
margt efni, en þeir endursýna
ekki sama efnið trekk í trekk.
Svo þessir hundleiðinlegu ítölsku
og þýsku þættir sem þeir em
famir að sýna á Stöð 2. Hvað
em þeir að hugsa? Ef við hefðum
vitað að þetta yrði svona þá
hefðum við aldrei keypt okkur
afmgara, heldur bara horft
áfram á Ríkissjónvarpið.“
Gull- og silfur-
skip Sigurðar
- einstök sýning
Óli H. Þórðarson hringdi:
„Mig langar til að vekja athygli
á sýningu á gull- og silfurskipum
Sigurðar H. Þórólfssonar sem
nú stendur yfir í Hlégarði í
Mosfellssveit. Þetta er alveg ein-
stök sýning og sérstök upplifun
að skoða hana. Ég vil hvetja
fólk til að sjá þessa sýningu.
Stöð 2
- endurvarps-
stöð fyrir
Grindavík?
Mæja hringdi: „Mig langar til
að koma á framfæri fyrirspum
til Stöðvar 2 þess efnis hvort
þeir ætli ekki að koma upp end-
urvarpsstöð hér í Grindavík svo
við Grindvíkingar getum séð
stöðina. Stöð 2 sést mjög illa
héma. Stöð 2 er að koma upp
endurvarpsstöðvum úti á landi
og ég skil ekki hvers vegna við
í Grindavík ættum að verða út-
undan.“
Hvar er hægt að
læra köfun?
Áhugamaður um köfun
hringdi og spurðist fyrir um
hvar væri hægt að læra köfun.
Þessari fyrirspurn er hér með
komið á framfæri.
Gullna hindin - eitt af skipunum á sýningu Sigurðar H. Þórólfsson-
ar i Hlégarði.
Vorið/Sumarið
1987
frá Hennes & Mauritz
við Eidistorg
Sími 611811.
Fatnaður fyrir smáfólk,
ungt fólk,
fullorðið fó
Bolirfrákr. 368.,-
Gallabuxurfrákr. 1.295.,
Barna gallabuxur frá kr. 998.,-
Góðar vörur á góðu verði.
Opið laugardag kl. 1-4.
Sunnudag kl. 1-5.