Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 64
■Hróóleikur og JL skemmtun 1 nrrtntilil ífeirt RLLT sem l vnA ■ ép
fyrir háa sem lága!
ptnrjpmM&foifo
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
VERÐ I LAUSASÖLU 50 KR.
Vestmannaeyjar:
Kunnings-
skapur
á ijarnar-
bakka
ÞESSIR kunningjar
hittast og stinga saman
nefjum við Tjörnina á
hveijum morgni. Morg-
unblaðsmenn rákust á
þá í gærmorgun þegar
miðborgin skartaði sinu
fegursta í morgunsól.
Svanurinn lét sér athyg-
lina vel Hka. Viðmæl-
andi sagði þá hafa
þekkst síðan í haust,
þégar þessi ársgamli
steggur fór að þiggja
brauð úr lófa hans. Þeg-
ar á veturinn leið varð
hann gæfari og leyfir
nú að sér sé klappað og
strokið.
Sjá frásögn á blaðsíðu
34.
Rúmur helmingur
þorskaflans í gáma
' ^hetta er hálfgert volæði hjá okkur, það
sárvantar fisk, segir Guðjón Olafsson,
skrifstofustjóri Fiskiðjunnar hf.
MEIRA en heimingur af lönduðum þorski i Vestmannaeyjum í apríl-
mánuði var fluttur utan ísaður í gámum. Af öllum bolfiski, sem þar
var landað, fór rétt tæpur helmingur óunninn utan. Vinnsla á þorski
í aprilmánuði i Vestmannaeyjum hefur líklega ekki verið jafnlitil í
áratugi. Alls var landað 7.063 lestum af botnfiski i Eyjum í mánuðin-
um og þar af fóru 3.416 óunnar utan. 2.367 lestum af þorski var
landað og af þvi fóru 1.052 lestir i vinnslu en 1.315 i gáma.
„Þetta er hálfgert volæði' hjá
okkur. Það sárvantar fisk til
vinnslu, en við ráðum lítið yfir hrá-
efnisöfluninni," sagði Guðjón
*—Ólafsson, skrifstofustjóri Fiskiðj-
unnar hf. í Vestmannaeyjum, í
samtali við Morgunblaðið. „Við er-
um í Samfrosti, sem gerir þijá
togara út, en í vetur hefur einhver
einn togaranna stöðugt verið frá
veiðum vegna breytinga eða við-
gerða. Það hefur haft slæm áhrif á
okkur, þar sem við höfum aðeins
verið með fjóra netabáta í viðskipt-
um og vertíðin hefur verið slök ofan
á allt annað. Það hjálpast allt að.
I upphafí vertíðar var samið við
-^jjessa fjóra netabáta þess efnis, að
við tækjum að okkur að gera að
og ganga frá afla þeirra í tvo gáma
til útflutnings af hveijum bát. Af-
ganginn af aflanum áttum við síðan
að fá til vinnslu. Afgangurinn hefur
Borgarráð:
Minnisvarði
umThor Jensen
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
heimila áhugasamtökum að reisa
minnisvarða um Thor Jensen í
garði Fríkirkjuvegar 11 í
. pgeykjavík.
Samtökin voru stofnuð til að hafa
forgöngu um þetta mál og hefur
verið gert samkomulag við Helga
Gíslason myndhöggvara um að hann
geri tillögu að væntanlegum minnis-
varða. Óskað er eftir að borgarstjóri
láti gera stöpul undir styttuna þar
sem hún yrði reist.
*««
**.
Fundum forseta lokið:
hins vegar nánast enginn verið, svo
við höfum staðið í því að ganga frá
ísfiski í gáma til útflutnings meðan
okkur sárvantar físk til vinnslu.
Ljósi punkturinn í þessu er þó sá,
að með þessu móti fáum við gotu
og lifur í land. Þeim verðmætum
er þá allavega ekki hent í sjóinn,
þó fiskurinn fari í gámana," sagði
Guðjón Ólafsson.
Áhugi á stjómarsamstarfi við
Alþýðuflokk er takmarkaður í röð-
um framsóknarmanna, samkvæmt
sömu heimildum. Margir framsókn-
armenn telja að Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, hafí ítrekað sent Fram-
sóknarflokknum tóninn, og slíkt sé
ekki fýrirboði um að gott samstarf
geti tekist með þessum tveimur
flokkum í ríkisstjóm. Vilja því
margir framsóknarmenn kanna alla
aðra samstarfsmöguleika fremur.
Aðrir framsóknarmenn telja þó að
þriggja flokka ríkisstjóm með aðild
Framsóknarflokks, Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks sé ef til vill
líklegasta stjómarmynstrið, en það
sé alveg ljóst að slík stjóm verði
ekki mynduð á næstu dögum eða
vikum.
Sjá samtöl á bls. 36 og 37.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Kristín Karlsdóttir og Guðrún Agnarsdóttir, fulltrúar Samtaka um kvennalista, komu á fund Vigdísar
Finnbogadóttur, forseta ísiands, kl. 15 í gær og stóð fundur þeirra með forsetanum í 51 mínútu.
FUNDUM Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, með forsvars-
mönnum flokkanna lauk í gær. Ekki er vitað hvenær forsetinn tekur
ákvörðun um hveijum hún fær umboð til stjórnarmyndunar, en frem-
ur er gert ráð fyrir, að það verði um eða upp úr helginni.
Meðal framsóknarmanna er talið líklegt, að forsetinn feli
Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra, að gera fyrstu tilraun
til stjórnarmyndunar, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er
Steingrímur Hermannsson ekki ýkja áfjáður í að fá umboðið fyrstur
manna, þótt í því felist ekki, að hann biðjist undan því. Ástæðan
fyrir takmörkuðum áhuga forsætisráðherra á að fá umboð til stjórn-
armyndunar er skv. heimildum Morgunblaðsins sú, að allt frá lokum
Viðreisnartímabils hefur aðeins einu sinni tekist að mynda ríkis-
stjóm í fyrstu umferð en það var sumarið 1971, þegar Ólafur
Jóhannesson myndaði fyrri vinstri stjórn sína. Jafnan síðan hefur
fyrsta tilraun til stjórnarmyndunar misheppnast.
Verði niðurstaðan sú að 1 hafa í hyggju að ræða við formenn
Steingrímur fái umboðið mun hann | allra flokka og fulltrúa Kvennalista.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Steingrímur muni fremur skila
af sér umboðinu eftir skamman
tíma en reyna myndun flögurra
flokka ríkisstjómar, ef í Ijós kemur
að Sjálfstæðisflokkur viíji fremur
reyna samstarf við aðra flokka en
Framsóknarfiokk áður en farið
verður út í alvarlegar stjórnarmynd-
unarviðræður við framsóknarmenn.
Steingrímur mun því, fái hann
umboðið, byija á því að ræða við
Þorstein Pálsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, til þess að ganga
úr skugga um það hvort sjálfstæðis-
menn vilji samstarf við Framsókn-
arflokkinn og leita þriðja
samstarfsaðila. Að viðræðum við
Þorstein loknum, hefur Morgun-
blaðið heimildir fyrir því að
Steingrímur myndi snúa sér til full-
trúa Kvennalista.
Þóttist vera læknir og
þuklaði á sjúklingum
MAÐUR nokkur klæddi sig fyrir
skömmu sem læknir og fór á
stofugang á Borgarspítala. Hann
sagði konum, sem þar voru sjúkl-
ingar, að hann þyrfti að skoða
þær. Skoðunin fór fram með því
að hann þuklaði konurnar.
Málið kom upp fyrir um þremur
vikum. Svo virðist sem maðurinn
hafi gengið rakleitt inn á sjúkrahús-
ið og með einhveijum hætti orðið
sér úti um hvít læknafot. Síðan
gekk hann inn á sjúkrastofur, gaf
sig á tal við sjúklingana og kvaðst
vera á stofugangi. Hann spurði
sjúklingana að líðan og þreifaði á
þeim. Ekki hafði hann þó stundað
athæfi sitt lengi er hann hvarf á
braut, en lögreglan hafði hendur í
hári hans eftir lýsingum sjúklinga.
Málið er nú til rannsóknar hjá rann-
sóknarlögreglu ríkisins og hefur
manninum verið gert að sæta geð-
rannsókn.
Að sögn Jóhannesar Pálmasonar,
framkvæmdastjóra Borgarspítal-
ans, er erfitt að koma í veg fyrir
atburð sem þennan. „Sjúkrahúsin
eru opnar stofnanir og auðvelt fyr-
ir fólk að fara ferða sinna innan
þeirra. Við höfum þó hug á að
bæta þar úr og hefur þessi at-
burður orðið til þess að ýta undir
hugmyndir manna um að starfsfólk
sjúkrahúsanna verði auðkennt með
einhveijum hætti,“ sagði Jóhannes.
„Þetta hefur verið til umræðu í
vetur og líklega verður það ofan á
að öllum starfsmönnum verður gert
að ganga um með spjald í barmin-
um, þar sem á er nafn viðkomandi
og mynd af honum“.
Steingrímur ekki áfjáður
í að fá umboðið fyrstur